Morgunblaðið - 21.08.1996, Qupperneq 1
SÉRBLAÐ UM SJÁVARÚTVEG
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS MIÐVIKUDAGUR 21. ÁGÚST1996
BLAÐ
Fiskveiðar
Aflabrögð
3 MeðDalborgu
EA á Flæmingja-
grunni
4 Aflayfirlit og
staðsetning
fiskiskipa
Markaðsmál
3 Kvótakerfið er
bjargvættur
nýsjálensks
sjávarútvegs
Greinar
7 Björgvin Þór
Jóhannsson,
skólameistari
Vélskóla íslands
LÚÐUIMIMI LAIMDAÐ
Ijðsmynd/Btrgir Þórbjarnarson
• TRILLUKARLINN Guðmund-
ur Jónsson fékk þessa vænu lúðu
á handfæri á dögunum ásamt
öðrum góðum afla í Norðurfirði
á Ströndtun. Það þurfti þvi nokk-
uð haldgott reipi til að hífa grip-
inn upp úr bátnum.
155.146 tonna aflamarki
úthlutað til 878 skipa
FISKISTOFA sendi í gær útgerðum fiski-
skipa, sem hafa leyfi til veiða í atvinnuskyni,
veiðileyfí og tilkynningar um aflaheimildir á
fiskveiðiárinu sem hefst þann 1. september
nk. Að þessu sinni eru gefin út 1.011 afla-
marksveiðileyfi. Af þeim 1.011 aflamarksskipum, sem veiðileyfi fengu, var úthlut-
að aflamarki til 878 skipa. Aflamarksskip, sem fá leyfi en eru án aflahlutdeildar
og fá því ekki úthlutað neinu aflamarki, eru 133. Aflamarksskipum hefur fækk-
að um 67 á yfirstandandi fiskveiðiári.
Þar sem svokölluð línutvöföldun hef-
ur nú verið afnumin, verður þeim viðbót-
araflaheimildum, sem þannig verða til,
skipt að hluta milli þeirra skipa, sem
hafa reynslu af línuveiðum á tilteknum
viðmiðunartíma og að hluta milli þeírra
aflamarksskipa, sem aflahlutdeild hafa
í þorski og ýsu.
Þá hefur sjávarútvegsráðherra
ákveðið að setja heildaraflamark á veið-
ar á steinbíti og langlúru og hefur Fiski-
stofa úthlutað til bráðabirgða aflaheim-
ildum í þeim tegundum. Fiskistofa hefur
ennfremur úthlutað til jöfnunar fjögur
þúsund lestum af þorski, miðað við
slægðan fisk. Úthlutað var til þeirra
fiskiskipa, sem orðið hafa fyrir meira
en 19,3% skerðingu við úthiutun afla-
marks í þorskígildum undanfarin fimm
fiskveiðiár. Þessar fjögur þúsund lestir
af þorski skiptust milli 596 skipa, en
ekkert skip fékk þó meira en 10 lestir,
Leyfilegur heildarafli í utan aflamarks
kvótabundnum tep. á co
fiskveiðiárinu 1996-97 |>S § i “O ÝC
Allar tðlur 1 þús. lestum :o 11
Þorskur 186,0 5,0 25,9 155,1
Ýsa 45,0 2,2 42,8
Ufsi 50,0 1,9 48,1
Karfi 65,0 65,0
Grálúða 15,0 15,0
Skarkoli 12,0 12,0
Steinbítur 13,0 2,5 10,5
Langlúra 1,2 1,2
Síld (ísl.sumargots.) 110,0 110,0
Uthafsrækja 60,0 60,0
Innfjarðarrækja 8,2 8,2
Hörpudiskur 9,1 9,1
Humar 1,5 1,5
133 skip án
aflahlutdeildar
miðað við slægðan fisk. Fullvinnsluskip
voru undanskilin við þessa úthlutun.
Englr banndagar
Krókabátum hefur nú verið skipt í
þrjá flokka, þ.e. báta sem stunda veiðar
með þorskaflahámarki, báta sem stunda
veiðar á sóknardögum með handfærum
og línu og báta sem stunda veiðar á
sóknardögum með handfærum ein-
göngu. Þorskaflaheimildir krókabáta á
komandi fiskveiðiári miðast við 25.854
lestir. Byggðastoínun hefur síðan 500
lestir til viðbótar til ráðstöfunar til þor-
skaflahámarksbáta.
Frá og með næsta fiskveiðiári verða
engir banndagar hjá krókabátum og
skiptingu fiskveiðiársins í tímabil hefur
verið hætt. Sóknardagar á fiskveiðiár-
inu verða 84 hjá báðum hópum sóknar-
dagabáta, miðað við veiðar með hand-
færum. Sóknardagar krókabáta í hand-
færa- og línuhópnum skerðast sé róið
með línu. Sé róið með línu á tímabilinu
1. maí til 1. september reiknast hver
sóknardagur sem 1,9 sóknardagar, en
á tímabilinu frá 1. september til 1. maí
reiknast hver sóknardagur sem 1,35
sóknardagar, skv. upplýsingum frá
Fiskistofu.
Fréttir Markaðir
Veiðileyfasvipt-
ing gæti átt við
50 báta
• FISKISTOFA hefurnú
sent viðvaranir til eigenda
um 50 báta og skipa, sem
eiga á hættu að missa veiði-
leyfi og aflahlutdeild, þar
sem að viðkomandi hafa
veitt minna en helming út-
hlutaðra aflaheimilda þetta
og siðasta fiskveiðiár./2
Allt að þriðj-
ungs skerðing
á kaupi!
• KÆRA hefur borist Al-
þýðusambandi Vestfjarða á
hendur útgerð togarans
Kans BA frá Bíldudal vegna
brota á kjarasamningi sjó-
manna. Farið hefur verið
fram á leiðréttingu á upp-
gjöri útgerðarinnar. Verði
það ekki gert, verður leitað
til dómstóla með málið.
Heimildir herma að um tölu-
verðar upphæðir séu að
ræða, allt að þriðjungs
skerðingu á kaupi./2
Framlenging á
humarvertíðinni
• ÁKVEÐIÐ hefur verið
að framlengja yfirstandandi
humarvertíð til loka ágúst-
mánaðar að beiðni nokkurra
útgerða í Þorlákshöfn og
Grindavík og að fenginni
umsögn Hafrannsókna-
stofnunar. Leyfilegur heild-
arafli á þessu fiskveiðiári
nemur 594 tonnum, en að-
eins var búið að veiða 465
tonn um síðustu mánaða-
mót./2
Fá ekki að sitja
alþjóðlega
fundi
• FULLTRÚAR Félags út-
hafsútgerða hafa ekki feng-
ið leyfi ríkisstjórnarinnar til
að sitja alþjóðlega fundi þar
sem veiðiréttindi á úthafinu
eru rædd. Leiðir félagið lík-
um að því að á þessum fund-
um séu rædd mál, sem ekki
þoli að koma fram í dags-
ljósið./5
Tilraunir með
beitu í neti
• 1 NOREGI eru nú að hefj-
ast tilraunir með beitu í
neti og er vonast til að það
geti orðið til að auka aflann.
/8
Gjöfulasta
fiskveiðiárið
• FISKAFLINN þetta fisk-
veiðiár er meiri en nokkru
sinni áður, eða um 1,7 millj-
ónirtonnaauk um 180.000
tonn af ýmsum tegundum
utan landhelgi. Síðustu fisk-
veiðiárin hefur aflinn á þess-
um tíma verið töluvert eða
mun minni. I fyrra var hann
1,3 milljónir tonna og 1,5
1994. Ahyglisverðustu
breytingarnar milli ára eru
gífurleg loðnuveiði á þessu
fiskveiðiári eða meira en
milljón tonn, sem er mun
meir en síðustu árin. Þá vek-
ur athygli að þorskafli nú
er meiri en í fyrra og afli
af úthafsrækju heldur enn
áfram að aukast.
Afli fiskveiðiárin 1993/'94 - 1995/'96 tímabilið sept.-júlí
Afliiþús. 1993- tonnum 1994 1994- 1995 1995- 1996
Þorskur 185,7 150,9 160,2
Botnf.alls 494,0 435,8 445,5
Úth.rækja 47,1 55,5 60,7
Loðna 862,4 640,5 1.047,8
Samtals 1.527.0 1.284,9 1.700.9
Afli eins og
á heilu ári
Afli almanaksarin 1994, 1995 og 1996 tímabilið jan.-júlí
Z'£ 'm 1995 1996
Þorskur 116,6 100,0 104,4
Botnf.alls 342,8 299,5 304,8
Úth.rækja 33,1 32,0 33,6
Loðna 686,7 627,3 956,9
Samtals 1.074,1 973,2 1.327,5
• ÞEGAR litið er á alman-
aksárið er útkoman svipuð.
Aflinn eftir 7 mánuði er
orðinn 1,3 miRjónir tonna,
meiri en allt siðasta fisk-
veiðiár. Loðnuafli er meiri
en að meðaltali á heilu ári
og úthafskarfinn skilar um
46.000 tonnum. Þá er ótal-
inn afli af norsk-íslenzku
síldinni, 165.000 tonn og
rúmlega 10.000 tonna
rækjuafli af Flæmska hatt-
inum. Aflinn í ár er þvi
kominn langleiðina í 1,4
milljónir tonna./6