Morgunblaðið - 23.08.1996, Side 1

Morgunblaðið - 23.08.1996, Side 1
 BLAÐ ALLRA LANDSMANNA KNATTSPYRNA Pttfttmtltfafcifc 1996 FOSTUDAGUR 23. AGÚST BLAD Morgunblaðð/Jón Svavarsson íslendingarnir ætla sér áfram BIRGIR Leifur Hafþórsson frá Leyni á Akranesi lék best af íslendingunum þremur sem nú taka þátt í Evrópumóti áhugamanna í golfi í Karlstad í Svíþjóð. Birgir Leifur lék fyrsta hringinn í gær á 72 höggum, einu yfir pari vallarins. Félagi hans úr Leyni, Kristinn G. Bjarnason, lék á 74 höggum og Björgvin Sigurbergsson úr Keili var á 75 högg- um. „Við ætlum okkur allir að komast áfram og keppa seinni tvo dagana," sagði Björgvin í sam- tali við Morgunblaðið í gær, en keppendum verður fækkað eftir tvo fyrstu hringina. Það eru um 150 kylfingar mættir til leiks í Karlstad og undanfar- in tvö ár hefur verið skorið niður í kringum 150 höggin, þannig að Björgvin og Kristinn virðast báðir alveg á mörkunum. Björgvin sagði völlinn langan ogtalsvert erfið- an, sérstaklega síðari níu holurnar. Hann hóf leik á 10. braut i gær og gekk illa í byrjun. „Það var eitthvað vesen með kylf usveininn þannig að ég gat ekkert hitað upp og byijaði illa, en það lagað- ist,“ sagði Björgvin. Birgir Leifur sló útaf á fjórðu brautinni, 475 metra langri, en fékk siðan örn með næsta bolta og endaði því vel, fékk par á holuna. Ekki höfðu allir lokið leik í gær þegar Morgun- blaðið ræddi við félagana en það virtist sem um tíu kylfingar væru á parinu og 15 einn yfir. Bestu skor gærdagsins átti Finni, hann iék á fjórum xmdir pari, 67 höggum. Bibercic ekki meira með Skaganum MIJHALO Bibercic mun væntanlega ekki leika meira með Skagamönnum í sumar. Gunnar Sig- urðsson formaður Knattspyrnufélags ÍA, sagði á blaðamannafundi I gær að hann sæi ekki annað, eins og staðan væri þessa stundina, en að hann léki ekki lengur með. „Mikki [Mijhalo] kom til mín rétt áður en við fórum til Moskvu og sagðist vilja hætta vegna þessað hann væri óánægður með Guðjón þjálfara. Ég spurði hvers vegna núna og hann sagðist vera hættur að brosa og hættur að skora,“ sagði Gunnar í gær. „Ég á ekki von á að hann fari neitt nema heim til sín,“ bætti formað- urinn við. Þrettán ára fór holu í höggi HAUKURINGI Hjaltalín, 13 ára Hafnfirðingur og nýgræðingur i golfíþróttinni, fór holu í höggi á Hvaleyrarvellinum á þriðjudagskvöldið. Haukur Ingi dró upp „dræver" fyrir börn á teignum á þriðju holu, sem er par þrír og 130 metra löng og draumahöggið varð að veruleika. Haukur Ingi og félagar hans urðu að hætta leik eftir 13. hol- una þar sem of skuggsýnt var orðið. FRJALSIÞROTTIR Á sjöundu milljón fyrir heimsmet Fyrirliðarnir í nýjum hlutverkum ÓLAFUR Þórðarson, fyrirliði Skagamanna, og Hlynur Stefáns- son, fyrirliði Eyjamanna, brugðu sér í ný hlutverk í Fjölskyldu- og hús- dýragarðinum í gær. Verið var að kynna bikarúrslitaleik ÍA og ÍBV sem fram fer á sunnudaginn á Laugardalsvelli og í tengslum við leikinn fá áhorfendur frítt í garðana tvo með því að framvísa miðanum á leikinn. Forsala að leiknum hefur gengið vel og mikið stendur til vegna leiksins, meðal annars verður Tryggvagötunni lokað fyrir leikinn þannig að fjölmargir stuðnings- menn IBV geti komið saman og undirbúið sig fyrir keppnina við Skagamenn í stúkunni. Það var ekki annað að sjá í góðviðrinu í gær en Ólafi færust mjaltirnar vel og Hlynur gætti bikarsins vandlega á meðan. Primo Nebiolo forseti Alþjóða fijálsíþróttasambandsins hefur greint frá því að þeir íþróttamenn sem setja heimsmet á heimsmeistara- mótinu í Aþenu í Grikklandi á næsta ári fái greiddar 6,7 milljónir króna hver. „Við höfum gengið frá samn- ingum við fjársterka aðila til þess að standa straum af þessum greiðsl- um,“ sagði Nebiolo í vikunni. „Við höfum einnig ákveðið að íþrótta- mennirnir fá sömu greiðslur á heims- meistaramótinu árið 1999.“ Hann var ekki fáanlegur til að nefna hveijir það væru sem ætluðu að standa straum af þessu, en sagðist vonast til að hægt yrði að útvíkka þessa hugmynd og heimsmethafar fengju einnig greitt fyrir að setja heimsmet á ýmsum stórmótum sambandsins. Þessi ákvörðun er mikil breyting á stefnu sambandsins, en hingað til hefur ekki verið mikið um peninga- greiðslur til íþróttamanna, í það minnsta opinberlega. Þó hafa verið í boði greiðslur til íþróttamanna fyr- ir þátttöku í árlegu „gullmóti" í Zúrich. Þar hafa mótshaldarar haft úr um 40 milljónum króna að spila til að greiða bestu fijálsíþróttamönn- um fyrir þátttökuna, einnig rúmlega 300 milljónir króna til að skipta á milli þeirra sem sett hafa heimsmet í mótinu. Þetta hefur orðið til þess að ár hvert koma flestir bestu frjáls- íþróttakappar samtímans saman á Zúrich mótið og leggja sig alla fram um að bæta heimsmetin. Ekki má gleyma því að á undanförnum heims- meistaramótum hafa aliir sigurveg- arar fengið nýja Mercedes Benz bif- reið að launum. Þessi yfirlýsing hefur vakið spurn- ingar um hvort fremstu fijálsíþrótta- menn heims muni ekki sniðganga þau mót þar sem ekki er greitt fyrir að setja heimsmet og um leið ein- beita sér að færri mótum en áður. Mikið íhúfi hjá KR DREGIÐ verður í dag í 1. umferð Evrópukeppni bikarhafa þar sem KR-ingar eru meðal þátttakenda. Liðunum 32, sem eftir eru í keppn- inni, er skipt í tvo hópa, A og B, þar sem annars vegar eru saman í hópi liðin, sem tryggðu sér þátt- tökurétt í undankeppninni og hins vegar liðin, sem koma beint inn í 1. umferðina. Getur lið úr hópi A einungis dregist gegn liði úr hópi B og þýðir það því að KR-ingar geta einungis dregist gegn einhveiju af eftirtöldum liðum: AEK (Grikklandi), AGF (Dan- mörku), AIK (Svíþjóð), Barcelona (Spáni), Benfica (Portúgal), Cercle Brúgge (Belgíu), Fiorentina (Ítalíu), Galatasaray (Tyrklandi), Kaisers- lautern (Þýskalandi), Liverpool (Englandi), Lokomotiv Moskva (Rússlandi), Nimes (Frakklandi), Paris St. Germain (Frakklandi), PSV Eindhoven (Hollandi), Sion (Sviss), Sturm Graz (Austurríki). FRJÁLSÍÞRÓTTIR: 50 ÁR SÍÐAN GUIMNAR HUSEBY VARÐ EVRÓPUMEISTARI / C2

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.