Morgunblaðið - 25.08.1996, Qupperneq 1
íslenska á Hótelrásinni
HJÁ Myndbæ hf. er nú unnið að kennslu-
myndbandi í íslensku fyrir útlendinga.
Myndbandið verður svo sýnt á Hótelrá-
sinni, en hún hóf göngu sína fyrir þrem-
ur árum á stærstu hótelum borgarinnar.
Dagskrá er send út um ljósleiðarakerfi
allan sólarhringinn.
Margar myndir eru sýndar á Hótelrá-
sinni um ýmiss konar efhi, eins og við-
skiptalff, íslenska náttúru og samfélag.
Morgunblaðið/ Ásdís
ÚR myndbandi um íslenskukennslu.
ploruunHíiMb
SUNNUDAGUR 25. ÁGÚST 1996 BLAÐ C
Ódýrir bílaleigubílar
fyrir Islendinga.
Vikugjald, lágmarksleiga
Opel Corsa dkr. 1.795
Opel Astra dkr. 1.995
Opel Astra, st. dkr. 2.195
Opel Vectra dkr. 2.495
2ja vikna gjald
Opel Corsa dkr. 2.995
Opel Astra dkr. 3.590
Opel Astra, st. dkr. 3.990
Opel Vectra dkr. 4.390
Innif. ótakmarkaöur akstur,
tryggingar, vsk.
Fáið nánari verðtilboð
International Car Rental ApS.
Uppl. á íslandi, sími 456 3745.
Sala ó ferðum til Kanaríeyja hefst á morgun
Óvenju mikið
framboð
VERÐ á ferðum til Kanaríeyja í
vetur verður á svipuðum nótum og
liðinn vetur samkvæmt upplýsing-
um Morgunblaðsins. Hins vegar er
meira framboð á ferðum. Eldri
borgarar og fjölskyldufólk eru flest-
ir kaupenda ferðanna, og eru jólin
vinsælasti tíminn.
Andri Már Ingólfsson segir
Heimsferðir vera með vikulegar
ferðir til Kanaríeyja frá 17. desem-
ber með beinu Boing 757 leiguflugi
LTE fram yfir páska. Fyrsta ferð
Heimsferða til eyjanna verður 20.
október. Vikuferð til Kanarí kostar
39.900 krónur með öllu fyrir hjón
með 2 börn. Þetta verð er greitt
fyrir hvert þeirra.
Goði Sveinsson hjá Úrval-Útsýn
segir að ferðaskrifstofan auki fram-
boð sitt til Kanaríeyja núna um
nokkur hundruð sæti og að allar
gistingar verði á Ensku ströndinni.
Flogið er vikulega og nokkrum
aukaferðum bætt við. 6. nóvember
er fyrsta ferðin til eyjanna, en um
er að ræða 31 dags ferð á vildar-
kjörum. Goði nefnir verðdæmi:
Tveggja vikna ferð fyrir hjón með
2 börn kostar 38.465 fyrir hvern
fjölskyldumeðlim í tveggja svefn-
herbergja smáhýsi.
Dóra Magnúsdóttir hjá Flugleið-
um segir að félagið verði í vetur
með fleiri gististaði en áður og
meira úrval. Verðið er óbreytt eða
jafnvel lægra. Fyrsta ferð til Kan-
aríeyja er 6. nóvember og fylgir
henni afsláttur. Frá 1. janúar fram
í apríl er flogið vikulega. Verðdæmi
hjá Flugleiðum: 31 dagur fyrir hjón
með 2 börn kostar 46.865 krónur
fyrir manninn. 14 daga ferð fyrir
tvo fullorðna kostar 56.900 á mann.
Helgi Pétursson, Samvinnuferð-
um-Landsýn, segir að flogið sé
vikulega með Flugleiðavél til Kan-
arí. Hann nefnir verðdæmi í jan-
úar: Tveir fullorðnir með tvö börn í
3 vikur kostar 58.715 fyrir hvert
þeirra með öllu. Tveir í íbúð í 3
vikur kostar 83.500 krónur.
Laufey Jóhannsdóttir, hjá Plús-
ferðum, segir að farið verði á
tveggja til fjögurra vikna fresti til
Kanaríeyja í jafnlangan dvalartíma.
Ferð fyrir hjón með tvö böm í 4
vikur kostar 52.300 krónur fyrir
manninn, en 66.300 á mann í tví-
býli á Ensku ströndinni.
Á síðasta ári fóru 3.700 farþegar
til Kanaríeyja með vélum Flugleiða,
á annað þúsund með Heimsferðum
og einhveijir eftir öðmm leiðum.
Ekki er talið ólíklegt að um fimm-
þúsund íslendingar heimsæki Kan-
aríeyjar í vetur.
Öll ofangreind verð eru miðuð
við einstakar ferðir á tiltekna gisti-
staði og geta verið einhveijir fyrir-
varar eins og að borga eigi fyrir
tiltekna daga. ■
Sælkerar til
Frakklands
► SÆLKERA- og vínsmökkun-
arferð til Frakklands á vegum
Samvinnuferða-Landsýnar
verður 17.-27. september næst-
komandi. Fararstjórar verða
Þorfínnur Ómarsson og Sigurð-
ur L. Hall.
► Dvalið verður tvo daga í
París og síðan haldið í Cognac-
héraðið með tilheyrandi smökk-
unarheimsóknum til framleið-
enda.
► Einnig verður farið til
Bordeaux, St. Emilion og Heut
Médoc.
► Dvalið verður í kastalanum
Chateau d’Artigny, haldið svo
til Reims, en þar verður snædd
sérstök kampavínsmáltíð. Trier
er næst á dagskrá og að lokum
flogið heim frá Lúxemborg.
► Ferðin á að einkennast af
heimasveitum koníaksins, fal-
legum hótelum, strandbæjum
og útsýni yfir Loire-dalinn, og
merkum sögustöðum. Verðið er
128.920 krónur á mann í tví-
býli. Innifalið er flug, gisting,
akstur, skoðunarferðir, vínsm-
ökkun og sælkeramáltíðir o.fl.
ásamt fararsljóm. ■