Morgunblaðið - 27.08.1996, Page 1

Morgunblaðið - 27.08.1996, Page 1
•f BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 1996 ■ ÞRIÐJUDAGUR 27. ÁGÚST BLAD Guðjón Þórðarson þjálfari Akurnesinga bikarmeistari fjórða árið í röð AFRAM IA AFRA Hver sigur sætastur Akurnesingar urðu bikarmeist- arar í knattspyrnu á sunnudag með 2:1 sigri á ÍBV í úrslitaleik á Laugardalsvelli. Þetta var sjöundi sigur Skagamanna í keppninni og fjórða árið í röð sem Guðjón Þórðar- son, þjálfari þeirra, stýrir liði til sig- urs í bikarúrslitum. Er ekkert lát á sigurgöngu hans í bikarkeppninni? „Nei, ekki núna að minnsta kosti. Maður stefnir auðvitað alltaf að því að vinna og til þess er maður í þessu,“ sagði Guðjón við Morgunblaðið eftir leikinn. Hann var með Skagamenn árið 1993 þegar liðið varð síðast bikar- meistari, gerði KR-inga að bikar- meisturum tvö síðustu ár og núna Skagamenn á ný. Er öðruvísi að verða meistari með sínu heimaliði en það var með KR-ingum? „Ég er að vinna með vanari liði núna, KR-ingar höfðu ekki unnið í tæpa þrjá áratugi og það var auðvitað mjög skemmti- legt augnablik. En hver sigur og núið er alltaf sætast. Þetta er alltaf jafngaman og menn verða alls ekki leiðir á að verða bikarmeistari. Ef menn verða leiðir á því þá er eitt- hvað að.“ Guðjón sagði að ÍA-liðið hefði átt góðan og rólegan tíma á Hótel Örk fyrir leikinn og þar hefði verið farið vandlega yfir hvemig menn ætluðu að spila leikinn. „Leikurinn þróaðist eins og við ætluðum okkur. Við viss- um að við hefðum getu til að skora og myndum vinna nema ef eitthvert slys yrði af okkar hendi, sem varð ekki. Þetta var mjög rólegur bikarúr- slitaleikur, fyrri hálfleikurinn var eins og þægilegur deildarleikur, en það var hluti af því sem við vildum. Við fórum varlega og vildum það frekar en missa leikinn í einhvem hasar og hamagang. Við erum bestir þegar við höldum haus, spilum og látum boltann vinna og við hefðum hæglega getað bætt við fleiri mörkum eftir að við komust í 2:0, vorum nær því en þeir að komast inní leikinn." Þeir sóttu mikið síðustu mínúturn- av. Varstu aidrei hræddur? „Nei, nei. Þetta var mjög eðlilegt. Við hefðum hæglega getað bætt við þriðja markinu, en það hafðist nú ekki. Sóknir þeirra undir lokin vom eðlilegar, við erum tveimur mörkum yfir og erum að láta leikinn líða,“ sagði Guðjón. Á efri myndinni fagna bikarmeist- aramir ásamt stuðningsmönnum sín- um og hér til hliðar er það Alexander Högnason sem bleytir í fyrirliðanum Ólafi Þórðarsyni með mjólkurskvettu. ■ Meistarar / B2 ■ Leikurinn / B4 ■ Úrslit / B7 FATLAÐIR: GLÆSILEGUR ÁRANGUR ÍSLEIMDINGA í ATLANTA / B3 Fjöldl vlnnlnga Vinnings- upphæð Vinningar 5 af 6 1033 46.102852 V«rtu vlöbuln(n) vlnnlngl miklls aó vino 1. vlnningur er áaetlaöur 40 mllljónir kr. VÍNNINGSTÖLUR VÖVtKUDAGtNN AÐALTÖLUR BONUSTÖLUR Kl Hn ifírflDníD' • Bonusvmnlngarnlr a hiugordaciinn yar vofu koyptir i Soluturninum Hamrnborg a Isafiröl og hjja KEA viö Byggöaveg a Akuroyri. ■ Vjnningar Fjöldi vinninga Vinnlngs- upphæö M 1.5 af 5 0 3.453.763 I 2. Vá>5 t 176.750 |}j 3.Jo,s 64 9.520 H 4. 3af 5 2.036 690 BjSamtals: 2.102 5.821.383 i

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.