Morgunblaðið - 27.08.1996, Page 1
• MARKAÐURINN • SMIÐJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓÐUR OG GARÐAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR •
fltorgtttiMitMfr
Misjafnt
íbúðaverð
VERÐ á íbúðum úti á landi er
víða svipað og á höfuðborgar-
svæðinu. Á Sauðárkróki er
verðlagið svipað þar sem eftir-
spurn hefur verið mikil. Á Ak-
ureyri er verð á íbúðum í sér-
býli 10 til 20% lægra en á
höfuðborgarsvæðinu. / 2 ►
Vandaðar
hliðgrindur
ÞEGAR smíða skal hliðgrind
má hvort tveggja nota járn eða
tré. Bjarni Olafsson gefur góð
ráð í Smiðjugrein sinni og
minnir á að hliðgrind verður að
vanda og að hún getur verið-hin
mesta prýði - ekki síst ef við-
haldið er í lagi. / 24 ►
Nýtt aðal-
skipulag í
Garðabæ
NÝTT aðalskipulag fyrir
Garðabæ sem gilda á
árin 1995 til 2015 er nú
tilbúið og verður lagt fyrir
næsta bæjarsijórnarfund.
Verður það síðan auglýst og að
fengnum athugasemdum lagt
fyrir skipulagsstjórn rfldsins
og leitað staðfestingar um-
hverfisráðherra.
Arkitektarnir Pálmar Óla-
son og Einar Ingimarsson
unnu skipulagið fyrir bæinn og
tók verkið tvö ár. Á gildistíma
skipulagsins er ráðgert að
byggja upp ný íbúðahverfi,
m.a. á Hraunsholti og Garða-
holti á Álftanesi sem er innan
bæjarmarkanna. Einnig er
gert ráð fyrir ýmsum mögu-
leikum fyrir atvinnustarfsemi
og nýtt atriði í skipulaginu er
umhverfisskipulag sem lands-
lagsarkitektarnir Reynir Vil-
hjálmsson og Þráinn Hauksson
hafa unnið. Tvær stofnbrautir
liggja um Garðabæ og nánast
skera bæinn í sundur og má
segja að það sé bæði kostur og
galli: Kosturinn er sá að auð-
velt og fljótlegt er að ferðast
frá bænum til allra átta á höf-
uðborgarsvæðinu. Gallinn er
að byggja verður margs konar
umferðarmannvirki, mislæg
gatnamót og slíkt til að bæjar-
búar geti farið um bæinn án
þess að vera í stöðgri hættu
vegna þungrar umferðar.
Ibúafjöldi Garðabæjar er nú
kringum 7.800. Fullbyggður á
Garðabær að geta hýst um 17
þúsund íbúa. / 16 ►
Minnkandi bygg-
ingaframkvæmd-
ir í Garðabæ
MILLI 49 og 101 íbúð hefur verið
fullgerð árlega í Garðabæ síðustu
þrjá áratugina en mjög er misjafnt
frá einu ári til annars hversu marg-
ar íbúðir eru fullgerðar. Sé litið á
fimm ára tímabil voru flestar íbúðir
að meðaltali árlega fullgerðar á ár-
unum 1980 til 1984 eða 101, en fæst-
ar á árabilinu 1965 til 1969 eða 49.
Árin 1970 til 1974 voru 54 íbúðir full-
gerðar að meðaltali á ári, 63 árin 1975
til 1979, 62 árin 1985 til 1989 og 64 á
síðustu fimm árum.
Alls voru rúmlega 2.300 íbúðir í
Garðabæ í lok síðasta árs og voru þá
47 íbúðarhús í byggingu með samtals
74 íbúðum. Af öðrum húsum í bygg-
ingu má nefna skrifstofuhús, iðnað-
arhús, bílageymslur, við byggingar
og fleira. Aðeins var hafin smíði á 7
íbúðum á síðasta ári. Fullgerð voru
32 íbúðarhús með 38 íbúðum. Fram
til ársins 1975 voru nær eingöngu
byggð einbýlishús og raðhús en eft-
ir það hafa einnig verið byggð fjöl-
býlishús.
Sé litið á einstök ár allt frá 1979
kemur í ljós að hafin var framkvæmd
við flestar íbúðir árið 1983 eða 110 en
fæstar í fyrra eða 7 eins og áður seg-
ir og þær verða álíka fáar í ár. Yfir
80 íbúðir voru í smíðum árin 1980 og
1991 og rétt tæpar 80 árin 1985 og
1987 en á áttunda áratugnum er
fjöldi íbúða í smíðum mjög rokkandi,
allt frá 40 og uppí yfir 100.
Fjöldi íbúa í hverri nýrri íbúð hef-
ur farið minnkandi á síðustu árum.
Þannig voru 5,07 íbúar á hverja nýja
íbúð á sjöunda áratugnum, 3,04 á
þeim áttunda og 2,86 á síðasta ára-
tug. Síðustu fimm árin hefur þessi
tala enn lækkað og eru þá 2,58 íbúar
á hverja nýja íbúð.
Ibúðabyggingar í Garðabæ
1979-1995
Fjöidi íbúða
sem byrjað
var að byggja
100
80
60
40
20
0
1980
1990 1995
Heimild: Byggingafulltrúi, Gardabæ
Þaðborgarsig
að gcra verðsanianburð!
Kaupgengi Húsbréfa er mismunandi
eftir fjármálastofnunum. Skandia keppist
við að bjóða alltaf besta kaupgengið
og staðgreiðir húsbréfin samdægurs.
Ráðgjafar Skandia veita allar upplýsingar
um kaupgengi Húsbréfa.
Hærra kaupgengi þýðir hærra verð
fyrir Húsbréfin þín.
Skandia
FJÁRFESTINGARFÉLAGIÐ SKANDIA H F
LAUGAVEQI 170
5 AO 50 B O
FAX 5AO 50 B 1