Morgunblaðið - 28.08.1996, Síða 1
f
d\n a
Grjótflutningar á Bakkafirði
ÞENNAN vörubíl sá ég í sumar þegar ég var hjá afa mínum
á Bakkafirði. Hann keyrði gijót í höfnina. Sesselja, 6 ára.
Að beygja
vatn
NUDDIÐ plastskeið (má vera
annar plasthlutur) við efnisbút
og hún hleðst upp af raf-
magni. Hún dregur til sín smáa
hluti, t.d. pappírsbúta, ryk og
þvíumlíkt. Prófið að gera eins
og sýnt er á myndinni: Látið
renna mjóa bunu úr kalda-
vatnskrananum (munið að
skrúfa fyrir að notkun lok-
inni!) og haldið skeiðinni nærri
bununni, sem á þá að sveigja
að skeiðinni - og þar með haf-
ið þið beygt vatnið!
Simmi teiknar
KÆRU Myndasögur.
Sigmundur B. Þorgeirsson
er ætíð að teikna, þá sér hann
myndir í blöðum og bókum og
stækkar á annað blað. Hérna
kemur ein sem hann stækkaði
úr Morgunblaðinu, en þar sér
hann oft fyrirmyndir.
Bless og kær kveðja,
Simmi og Björg mamma.
Orl til
Mogg-
ans
HALLÓ, kæri Moggi!
Ég klambraði saman
einu ljóði sem þið megið
birta ef þið viljið.
Að lesa Moggann er gaman að
gera,
ég vona að hann ætli að vera.
öm Myndasögur Moggans má gott
eitt segja
- samt ætla ég um það að þegja.
Sumt má bæta
- annað er gott,
en það mun ykkur kæta,
að flest er flott!
Höfundur: Elín Ólafs.
Sumarið kveður senn
VIÐ kveðjum gott sumar með fallegri mynd Kristínar Birnu, 8 ára. Veðrið hefur verið afskap-
lega milt í sumar, að minnsta kosti hér á suðvesturhorninu, og vonandi hafa sem flest ykkar átt
hið allra besta sumar, sem hefur þroskað ykkur til líkama og sálar.
Skólinn byrjar hjá flestum ykkar í næstu viku og óska Myndasögur Moggans ykkur allra heilla
í leik og starfi á komandi vetri.
Ferða-
Ijöð
ÉG skrifaði þetta ljóð í
Svíþjóð. Ég var í Svíþjóð j
í sumar. Égtók Norrænu ,■
til Danmerkur og fór
með henni heim frá Nor- -
egi.
Kveðja, Ester K. Bro-
mell, 9 ára.
Í9\
Gleðilegt sumar
Trén koma.
Blómin byija að blómstra. y
Fuglarnir byija að verpa.
Skólinn hættir.
Sumir fá sumarleyfi.
Sumir fara í útilegur.
Margir fara til útlanda. ,