Morgunblaðið - 29.08.1996, Qupperneq 1
HlOTrjputli'lftfrUk
1996
FIMMTUDAGUR 29. AGUST
BLAÐ
Morgunblaðið/Golli
Ungur nemur, gamall temur
VETRARSTARFIÐ er nú að hefjast hjá handknattleiksdeildum hinna ýmsu íþróttafélaga. Undanfarnar vikur hafa nokkur félög
staðið fyrir handboltaskólum fyrir börn og unglinga og er einn slíkur starfræktur hjá Haukum. Hér má sjá Sigurð Frey Birgis-
son stökkva inn úr horninu, en Hulda Bjarnadóttir, landsliðskona og leiðbeinandi í skólanum, sér til þess að ekkert fari úrskeiðis.
Blikar fá erlend-
an leikmann
BREIÐABLIK hefur fengið liðsstyrk fyrir kom-
andi tímabil í körfuknattleiknum, alhliða banda-
riskan leikmann að nafni Nimto Hammons. Hann
er 195 sentimetrar, lék með George Washington
háskólaliðinu í fyrra og gerði þá um 15 stig að
meðaltali og tók fimm fráköst auk þess sem
hann var með 3,5 stoðsenidngar að meðaltali í
Ieik.
Kristján gerði tvö
KRISTJÁN Jónsson, virðist vera kominn á fullt
á nýjan leik i sænsku knattspyrnunni, en hann
var meiddur i upphafi tímabilsins. Kristján átti
stóran þátt i 5:1 sigri Elfsborg á HScken um
helgina, gerði tvö mörk sjálfur og lék að sögn
sænskra blaða rrýög vel. Kristján kom liði sínu
í 1:0 á 25. mínútu með skailamarki og siðan í
3:0 með öðru skallamarki á 62. mínútu.
Fullt hús hjá
Stoke City
„ÞAÐ er alltaf gaman að vinna leiki í blálokin,"
sagði glaðbeittur Lárus Orri Sigurðsson í gær-
kvöldi eftir að hann og félagar í Stoke höfðu
lagt Bradford að velli, 1:0 á
heimavelli. Sigurmarkið
gerði Mike Sheron úr víta-
spyrnu nokkrum andartök-
um áður en leikurinn var
úti. Við sigurinn færðist
Stoke upp í efsta sæti 1.
deildar ensku knattspyrn-
unnar ásamt Barnsley með 9
stig eftir 3 leiki.
Lárus sagði að þeir hefðu
átt að vera búnir að gera út
um leikinn í fyrri hálfleik en
leikmenn Bradford vörðust
vel og Iengi, en hefðu á hinn bóginn ekki átt
neitt marktækifæri.
„Það er ekki mikið mark takandi á töflunni
ennþá og við erum með báða fætur á jörðinni
þótt við séum með fullt hús hingað til, en vissu-
lega er þetta ánægjulegt."
Næsti leikur Stoke er á útivelli á laugardag-
inn gegn Reading.
Víkingur leikur
við Feyenoord
ÍSLANDSMEISTARAR Víkings í borðtennis
leika á móti hollensku meisturunum, Feyeno-
ord/Visser, í Evrópukeppni meistaraliða í TBR-
húsinu á laugardaginn og hefst leikurinn kl. 16.
Lið Víkings skipa: Guðmundur E. Stephensen,
Ingólfur Ingólfsson, Markús Árnason, Bjarni
Bjarnason og Kristján Jónasson. Þjálfari liðsins
er Kínverjinn Hu Dao Ben.
LÁRUS Orri
FRJALSIÞROTTIR / GULLMOT I BERLIN
Johnson í „drauma“-sveitina?
Ajax
kaupir
IWAN Cesar Gabrich, lands-
liðsframheiji Argentínu,
skrifaði í gær undir fimm
ára samning við hollensku
meistarana í Ajax frá Amst-
erdam. Gabrich, sem er 24
ára, kemur frá félaginu
Newell Old Boys í Argentínu
og er ætlað að leika við hlið
Patricks Kluiverts I framlín-
unni. Hann er sjötti leikmað-
ur sem Ajax kaupir á skömm-
um tíma. Hinir eru; Richard
Witschge, John Veldman,
Mariano Juan og framher-
jarnir Babangida og Dani.
Aannað kvöld fer fram fjórða og
síðasta „Gullmót" Alþjóða
fijálsíþróttasambandsins á þessu
sumri í Berlín, á sama velli og
Bandaríkjamaðurinn Jesse Owens
vann til fernra gullverðlauna á
Ólympíuleikunum árið 1936. Af
þessu tilefni hafa skipuleggjendur
mótsins unnið hörðum höndum að
því að fá flestar stjörnur fijáls-
íþrótta dagsins í dag til að láta ljós
sinn skína í keppni mótsins. Einnig
hafa þeir reynt að fá sem flesta
ólympíumeistara í 100 m hlaupi frá
1948 til 1996 til að mæta og hafa
fengið jákvæðar undirtektir frá
langflestum.
Tromp mótsins í Berlín á að vera
keppni í 4x100 m boðhlaupi og þar
hefur miklu púðri verið eytt til að
leiða saman í eina sveit nokkra fót-
fráustu menn síðustu ára, Linford
Christie, Donovan Bailey, Frankie
Fredericks og Carl Lewis. Þetta er
geit til að heiðra minningu Jesse
Owens. Ljóst er að Lewis getur
ekki verið með eftir meiðsl sem
hann varð fyrir í keppni í Brussel
síðastliðinn föstudag og enn er óljóst
hvort Christie gefur kost á sér í
„Draumasveitina". Rudi Thiel móts-
stjóri er bjartsýnn. „Ég held að okk-
ur takist að fá Christie til að mæta
og keppa.“
Til þess að fylla skarð Lewis í
sveitinni hafa Thiel og félagar rætt
við ekki ómerkari mann en Michael
Johnson ólympíu- og heimsmeistara
í 200 og 400 m hlaupi karla og
heimsmethafa í fyrrgreindu grein-
inni. Ef af verður yrði það í fyrsta
skipti sem Johnson tekur þátt í
4x100 m boðhlaupi á alþjóðlegu-
móti. Enn hefur Thiel og félögum
ekki borist svar frá Johnson um það
hvort hann þekkist boðið, en það
myndi eflaust gleðja marga aðdá-
endur hans og Owens því hlaupast-
íl þeirra hefur einmitt verið líkt sam-
an.
Það var einnig haft samband við
Ruth Owens, ekkju Jesse, og óskað
eftir næiveru hennar á mótinu en
vegna lasleika treystir hún sér ekki
til að ferðast til Þýskalands frá
Bandaríkjunum, en einn íþróttamað-
ur úr stjörnufansi kvöldsins mun
lesa skeyti frá henni áður en keppni
hefst.
Hlaup „Draumasveitarinnar"
gegn sveitum Afríku, Bandaríkj-
anna og Evrópu verður síðasta grein
mótsins og ugglaust sú sem beðið
verður eftir með hvað mestri eftir-
væntingu, ekki síst ef hún verður
skipuð Bailey, Christie, Fredericks
og Johnsons. Það er hins vegar ljóst
að fari svo ólíklega að þeir hlaupi
á betri tíma en heimsmetinu, 37,40
sekúndum, þá fæst það ekki stað-
fest heimsmet þar sem þeir eru
ekki landssveit. Það verður að telj-
ast ólíklegt að þeir nái svo góðum
tíma þar sem það þarf mikla æfingu
fyrir hlaupara til að stilla saman
strengi við skiptingar.
KNATTSPYRNA: BÚIST VIÐ BARÁTTU GÖMLU „RISANNA“ Á SPÁNI / C3