Morgunblaðið - 29.08.1996, Síða 6
MORGUNBLAÐIÐ
6 C FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 1996
URSLIT
BORN OG UNGLINGAR
Til minningar
um Önnu
Jónsdóttur
Kópa-
vogsbúar
vígja
gerviefnið
NÆSTKOMANDI laugardag mun
ftjálsíþróttadeild Breiðabliks halda
mót fyrir börn 14 ára og yngri, en
mótið hefst kl. 10:00. Þrír fyrstu í
hverri grein fá verðlaunapening og
veittur verður farandbikar ásamt
bikari til eignar fyrir besta afrekið
í hveijum flokki samkvæmt stiga-
töflu. Keppt verður í fjórum flokkum
drengja og stúlkna. Börn 8 ára og
yngri keppa í langstökki, boltakasti
og 60 metra spretthlaupi sem og
keppendur á aldrinum 9 til 10 ára.
Hinir tveir aldursflokkarnir, 11 til
12 ára og 13 til 14 ára, etja kappi
í langstökki, spjótkasti, 100 metra
spretthlaupi og 600 metra hlaupi.
' Skráningu lýkur í kvöld kl. 20:00.
SIGURLIÐ KR-inga í 4. flokki á Minningarmóti Önnu Jónsdóttur um síðustu helgi. Efri röð
frá vinstri; Sigurlín Jónsdóttir þjálfari, Stella Helgadóttir, Unnur Kjartansdóttir, Berglind
Gunnarsdóttir, Eva Margrét Kristinsdóttir, Sólveig Þórarinsdóttir, Anna Berglind Jónsdótt-
ir, Drífa ísaksdóttir, Guðrún Jóna Kristjánsdóttir þjálfari. Neðri röð frá vinstri; Hrafnhildur
Bragadóttir, Hildur Helga Kristjánsdóttir, Hildur Baldvinsdóttir, Anna Úrsúla Guðmundsdótt-
ir, Elfa Björk hermannsdóttir, Tinna Hauksdóttir, Þórunn Heiga Jónsdóttir, Sæmunda Sæ-
mundsdóttir, Brynja Dís Sólmundsdóttir, Berglind Svansdóttir.
Á laugardag fór fram knattspyrnumót
fyrir 4. og 5. flokki kvenna á KR-velli
í Frostaskjóli. Mótið bar heitið Minn-
ingarmót um Önnu Jónsdóttur, en hún
lék knattspyrnu með meistaraflokki
KR áður en hún lést í umferðarslysi í
fyrra. Anna þjálfaði jafnframt fjórða
og fimmta flokk kvenna í KR.
Foreldrar Önnu, Jón Sigurðsson og
Jóna Ólafsdóttir, gáfu verðlaunagri-
pina sem veittir voru á mótinu og er
það vel af sér vikið hjá þeim. Einnig
var efnt til veglegrar grillveislu að
mótinu loknu.
Það var vel við hæfi að stúlkurnar
sem Anna þjálfaði forðum urðu hlut-
skarpastar í 4. flokki og tóku því við
einum af hinum veglegu verðlauna-
gripum. í öðru sæti var Afturelding
úr Mosfeilsbæ og Reynir úr Sandgerði
var í því þriðja. Fjórða sætið féll í hlut
Víkinga.
í fimmta flokki sigraði lið Reynis
frá Sandgerði, en Víkingarnir komu
næst á eftir og hrepptu annað sætið.
Heimamenn KR-inga voru í því þriðja,
en HK úr Kópavogi lauk leik í fjórða
sætinu.
Knattspyrna
Minningarmót
um Önnu Jónsdóttur
Mótið fór fram laugardaginn 24. ágúst á
KR-veilinum í Frostaskjóli. Mótið er til
minningar um Önnu Jónsdóttur, sem lék
með KR í meistaraflokki kvenna. Helstu
úrslit.
4. flokkur kvenna:
KR - Reynir 2:0 2:0
KR - Afturelding 2:1
3:0
Víkingur-KR“ 1:5
3:1
Lokastaðan í 4. flokki: KR
3. sæti: Reynir
4. sæti: Víkingur
5. flokkur: KR-HK 3:2
2:4
1:5
1:7
2:1
3:3
Lokastaðan í 5. flokki:
.KR
HK
Króksmótið Mótið fór fram á Sauðárkróki helgina 17.
til 18. ágúst og var haldið fyrir 5. - 7. flokk
karla. Helstu úrslit. 5. flokkur A:
2. sæti:
3. sæti:
5. flokkur B / C: 1. sæti: BÍ
2. sæti: HK
6. flokkur A:
1. sæti:
2. sæti: HK
6. flokkur B:
1. sæti: HK
3. sæti:
6. flokkur C / D: HK
2. sæti: ....Völsungur
3. sæti:
7. flokkur A: 1. sæti: KS
2. sæti: Tindastóll
3. sæti: BÍ
7. flokkur B:
2. sæti:
3. sæti: KS
7. flokkur C / D / E: 1. sæti:
2. sæti:
3. sæti:
Golf Sveitakeppni unglinga Stúlkur 18 ára og yngri: 1. Kjölur 3
2. Golfklúbbur Reykjavíkur 3
3. Golfklúbbur Sauðárkróks.... 3
■ Sveit Kjalar sigraði vegna þess að hún
hafði hlotið fleiri vinninga í innbyrðis leikj-
um sínum. 4. Golfklúbbur Akureyrar 1
5. Golfklúbburinn Mostri, Stykkish 0
Piltar 15 til 18 ára: 1. Keilir 4
2. Golfklúbbur Akureyrar 3
3. Golfklúbbur Sauðárkróks 3
■ Golklúbbur Akureyrar hafði betur í við-
ureign sinni við Sauðkrækinga og hreppti
því annað sætið. Drengir 14 ára og yngri: 1. Golfklúbbur Sauðárkróks 4
2. Leynir
3. Go'fklúbbur Akureyrar.............3
4. Golfklúbbur Vestmannaeyja.........3
■ Eyjamenn urðu að sætta sig við 4. sæt-
ið vegna þess að þeir töpuðu fleiri innbyrð-
is leikjum, en Leynir hafði betur í viðureign
sinni við Akureyringa og var því í 2. sæti.
Haukar og Sigurður Gunnarsson standa fyrir handboltaskóla
Handknattleikshreyfingin
verður að halda vöku sinni
Handknattleiksdeild Hauka í
Hafnarfirði rekur nú hand-
boltaskóla fyrir börn og unglinga
ásamt Sigurði
Edwin Gunnarssyni, sem
Rögnvaldsson lék með landsliði Is-
skrifar lands á síðasta ára-
tug eins og margir
muna. Skólinn er bæði fyrir stúlkur
og drengi - byijendur jafnt sem
lengra komna. Nokkur kunnugleg
andlit úr íslenskum handknattleik
hafa lagt hönd á plóginn við að
leiðbeina ungviðinu, þar á meðal
eru þau Aron Kristjánsson, Petr
Baumruk og Hulda Bjarnadóttir.
Kennslu í handboltaskólanum lýkur
á morgun, en eftir helgina munu
krakkarnir setjast á skólabekk af
annarri tegund.
Morgunblaðið átti stutt spjall við
Sigurð Gunnarsson og sagði hann
að íþróttahreyfingin á íslandi þyrfti
að halda vel á spöðunum til að
ungir íþróttaiðkendur landsins
misstu ekki áhugann. „Það er nátt-
úrulega svo margt sem glepur
krakka í dag. Ég held að handknatt-
leikshreyfingin verði að halda vöku
sinni \ samkeppninni við margt ann-
að. Ég tel að íþróttahreyfingin í
heild sinni hafi ekki mætt þessari
samkeppni sem skyldi,“ sagði Sig-
urður.
Hann sagði einnig að markmið
handboltaskólans væri að fá sem
flesta þátttakendur, hvort sem þeir
hefðu mikla hæfíleika í íþróttinni
eða ekki. „Þetta er svona fyrsti vís-
irinn. Það hefur verið rekinn hér
handboltaskóli hér á hveiju ári. Ég
legg áherslu að fá sem flesta krakka
- burtséð frá getu þeirra í hand-
knattleik. Fyrst og fremst hefur
verið lögð áhersla á að allir geti
komið hingað og notið þess að fá
að vera hér.“
Að mati Sigurðar er íslenskur hand-
knattleikur að dragast aftur úr í
hinni öru þróun sem á sér stað víða
um heim. „Handknattleikur er vax-
andi_ íþrótt í heiminum. Ég tel að
við íslendingar höfum setið svolítið
eftir. Ég held fyrst og fremst að
of lítil áhersla hafi verið lögð á
unglingastarf í handbolta hérna
heima. Við erum ekki með nægilega
vel menntaða þjálfara í unglinga-
starfinu. Við erum slakir í að út-
vega okkur þekkingu og kunnáttu
og það skilar sér mjög illa. Það er
Inn úr horninu!
Morgunblaðið/Golli
TAKTARNIR leyna sér ekki hjá þessum unga handboltamanni í tilburðum sínum. Hulda Bjarna-
déttir, leikmaður Hauka og landsliðskona í handknattleik, fylgist grannt með.
engin spurning að þennan þátt þarf
að bæta. Ég tel að við höfum fælt
krakka í burtu frá okkur. íþróttafé-
lögin eru að vissu leyti í uppeldis-
starfssemi og það þarf að leggja
iínurnar með betri hætti. Það þarf
að gera handboltann meira aðlað-
andi fyrir krakka."
Aðspurður hvort félögin séu ekki
að reyna að spara peninga með því
að ráða til sín þjálfara með minni
eða síðri menntun, segir Sigurður:
„Nei, það þarf ekki að vera. Ég
held að þetta sé fyrst og fremst það
að við Islendingar erum svolítið
hrokafullir. Við vitum allt best. Við
höldum til dæmis að nágrannalönd-
in séu mun slakari en við og með
svoleiðis hugmyndum stöðnum við
bara. Þetta er sú tilfinning sem ég
hef fyrir unglingastarfi og þjálfun
í yngri flokkunum yfirleitt. Ég held
að það sé farið allt of snemma út
í harða keppni og við erum ef til
vill með þjálfara sem eru svo til á
unglingsaldri. Þeir sjá ekkert annað
en keppnina, en það þarf líka að
sinna öðrum þáttum.“
Sigurður var ásamt öðrum kunn-
um köppum í landsliðinu þegar Is-
land vann gullið í B-keppninni í
Frakklandi 1989. Einnig náðist
mjög góður árangur landsliðsins á
9. áratugnum. Sigurður segir að
ástæðan fyrir góðu gengi fyrr á
árum hafi verið fyrst og fremst sú
að valkostir sem yngri kynslóðin
stóð frammi fyrir þá hafi verið
miklu færri heidur en nú á dögum.
„í fyrsta lagi voru færri hlutir sem
glöptu hugann. Það voru ekki
komnar tölvur, leiktækjasalir og
gennhnattarsjónvarp þannig að
maður var alltaf í íþróttum. Það var
mun minna val þá. Það er einn
þátturinn. Að öðru leyti var meiri
fjöldi og meiri félagsskapur í
þessu," segir Sigurður. Hann segist
vera á móti því að boltaíþróttirnar
keppist að innbyrðis um að draga
til sin iðkendur. Hann telur rangt
að einskorða krakkana við eina
íþrótt eða að láta unglingana velja
á milli greina þegar þeir ná ákveðn-
um aldri. „Maður var yfirleitt í öll-
um íþróttagreinum. Ég var í hand-
bolta, fótbolta og körfubolta. Ég
er á þeirri skoðun að íþróttagrein-
arnar styðji hver aðra. Það á ekki
að láta krakka velja á milli þegar
þeir verða 15-16 ára. Þau eiga
að vera í sem flestum greinum. Ég
hef aldrei getað skilið það að for-
stöðumenn boltaíþróttanna hérna
stilli þessu svona upp hvert á móti
öðru. Það er mun betra að láta
krakkana vera í sem flestum
íþróttagreinum ef þau hafa áhuga
á því,“ segir Sigurður Gunnarsson.