Morgunblaðið - 29.08.1996, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 29. ÁGÚST 1996 C 7
BÖRN OG UNGLINGAR
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Gefð’ann á mig!
MIKIL barátta var í leikjum yngstu þátttakendanna og var
allt lagt í sölurnar.
Tíunda Króksmótið
haldið í blíðviðri
Frá
Bimi
Bjömssyni
á Sauöárkróki
Helgina 17. - 18. ágúst fór fram
Króksmótið í knattspyrnu á
Sauðárkróki. Mótið er jafnframt
stærsti íþróttavið-
burðurinn á Norður-
landi vestra á hverju
ári. Þar koma sam-
an krakkar úr 5.,
6. og 7. flokki og leika knattspyrnu
af hjartans list frá morgni til kvölds
í tvo daga. Mótið er samstarfsverk-
efni Ungmennafélagsins Tindastóls
og Fiskiðjunnar Skagfirðings og
var nú haldið í tíunda sinn. Að
sögn Ólafs Jónssonar, fram-
kvæmdarstjóra Tindastóls, gekk
mótið ágætlega og nánast óhappa-
laust þrátt fyrir að aldrei hafi slík-
ur ijöldi keppenda né áhorfenda
og fylgdarfólks verið jafn mikill og
nú. Ólafur var mjög ánægður með
veðrið, sem var að hans mati mjög
gott báða dagana. Einnig vildi Ólaf-
ur þakka foreldrum og öðrum sem
stóðu að mótinu fyrir mikla og
góða vinnu.
Leikinn var 221 leikur á átta
knattspyrnuvöllum Tindastóls og
sagði ðlafur það verulega ánægju-
legt þegar vel tækist til með móts-
hald sem þetta. „Það leit vissulega
ekki vel út á föstudagskvöldið þeg-
ar krakkarnir og fylgdarfólkið var
að streyma hingað, en þá var norð-
an kaldi og úðarigning. Aftur á
móti stytti upp um nóttina og var
komin einstök blíða á iaugardags-
morguninn, sem hélst báða móts-
dagana," sagði Ólafur.
Króksmótið hefur hlaðið veru-
lega utan á sig á þessum tíu árum
sem liðin eru frá því að það var
haldið fyrst. Mótið var upphaflega
ætlað fyrir félögin á Norðurlandi
sem væru svipuð að stærð og
Tindastóll, en nú hefur sú breyting
orðið á að lið koma vestan frá Vest-
fjörðum og alla leið frá Austijörð-
um. Þetta er jafnframt í fyrsta sinn
sem lið frá Suðvesturhominu tekur
þátt, en það er HK úr Kópavogi.
Sagði Ólafur að mjög erfitt væri
að neita félögum um þátttöku, en
því miður þyrfti að gera slíkt því
að umfang mótsins væri orðið það
mikið. Væntanlega yrði annaðhvort
að lengja mótið eða fækka flokkum,
en þá fengju ekki allir að keppa.
Markmið Tindastólsmanna var ein-
mitt að allir fengju að vera með.
Heiðursgestur mótsins var tug-
þrautarkappinn Jón Arnar
Magnússon og sóttu ungir og verð-
andi knattspyrnusnillingar mjög
eftir því að fá eiginhandaráritun
hans innan í legghlífar sínar.
Að kvöldi fyrri mótsdags var
grillveisla fyrir þátttakendur og
gesti og að henni lokinni var kvöld-
vaka á aðalleikvangi, en þar komu
meðal annarra fram skemmtikraft-
urinn Magnús Ólafsson og afl-
raunamaðurinn Torfi Ólafsson.
„Það sem uppúr stendur, er hvað
þetta var gaman, hversu mikið veðr-
ið lék við okkur, hversu margir
mættu til leiks og að þetta skyldi
allt ganga óhappalaust," sagði Ólaf-
ur Jónsson í lok mótsins, „og svo
spáir hann jafnvel rigningu á morg-
un.“
Sveitakeppni unglinga ígolfi fórfram á Hellu og Selfossi um helgina
Keilir og Kjölur
hlutskarpastir
á Strandarvelli
Sauðkrækingarvoru sigursælir
Sveitakeppni unglinga í golfi fór
fram á Hellu og Selfossi um
síðustu helgi. Keppnin stóð yfir í fjóra
daga, frá fimmtudeginum 22. ágúst
til sunnudagsins 25. ágúst. Leikinn
var höggleikur til uppröðunar fyrsta
daginn, en í Sveitakeppni fullorðinna
er sveitunum raðað saman eftir úr-
slitum síðasta árs. Slíkt þykir ekki
mögulegt hjá unglingunum því breyt-
ingar eru örari hjá þeim vegna ald-
ursflokkaskiptinga. Hina þijá dag-
ana fór fram holukeppni, lík þeirri
sem leikin er hjá þeim fullorðnu, og
var þá leikinn einn leikur í fjórmenn-
ingi og tveir leikir í tvímenningi.
í flokki pilta 15 til 18 ára varð
A-sveit Golfklúbbsins Keilis hlut-
skörpust, en þeir Keilispiltar hlutu
alls fjóra vinninga - einum vinningi
meira en Golfklúbbur Akureyrar og
A-sveit Golfklúbbs Sauðárkróks.
Akureyringarnir hrepptu annað sæt-
ið því þeir sigruðu Sauðkrækinga í
innbyrðis viðureign sveitanna.
í flokki stúlkna 18 ára og yngri
var keppnin mjög jöfn og spennandi,
en þijár sveitir luku keppni með jafn-
marga vinninga. Sveit Golfklúbbsins
Kjalar úr Mosfellsbæ hafði sigrað í
fleiri leikjum í viðureignum sínum
við hina klúbbana og var því úrskurð-
aður sigurvegari. I öðru sæti var
Golfklúbbur Reykjavíkur, en þriðja
sætið féll í hlut Golfklúbbs Sauðár-
króks.
Sauðkrækingar gerðu það ekki
endasleppt í Sveitakeppninni því þeir
sigruðu í flokki drengja 14 ára og
yngri á Svarfhólsvelli á Selfossi.
Þeir hlutu alls fjóra vinninga, en
Leynir frá Akranesi og Golfklúbbar
Akureyrar og Vestmannaeyja komu
næst á eftir með þijá vinninga hvor.
Vestmannaeyingar voru með fæsta
innbyrðis vinninga í leikjum sínum
og höfnuðu því í fjórða sæti. Keppnin
um annað sætið stóð því á milli Leyn-
is og Golfklúbbs Akureyrar, en Leyn-
ir hafði betur vegna þess að þeir
Akurnesingar sigruðu Norðanmenn-
ina í innbyrðis viðureign sveitanna.
SAUÐKRÆKINGAR stóöu sig mjög vel í Sveitakeppninni, en
þeir höfnuðu í verðlaunasæti í öllum flokkum. F.v. Guðmundur
V. Guðmundsson, Kjartan Ómarsson, Einar Haukur Óskarsson,
Árni M. Harðarson og Guðmundur Guðmundsson llðsstjórl.
GOLFKLÚBBURINN Kjölur sigraði í flokki stúlkna 18 ára og yngri. F.v. Kári Jóhannsson liðs-
stjóri, Nína Björk Geirsdóttir, Snæfríður Magnúsdóttir, Katrín Hllmarsdóttir, Eva Ómarsdóttlr
og Helga Rut Svanbergsdóttir.
A-SVEIT Keilis varð hlutskörpust i flokki drengja 15 til 18 ára. F.v. Sigurþór Jónsson, Frið-
björn Oddsson, Jóhann Hjaltason, Hlynur Geir Olason, Ólafur Már Sigurðsson og Ólafur Þór
Agústsson llðsstjóri.