Morgunblaðið - 30.08.1996, Síða 1
64 SÍÐUR B/C
196. TBL. 84.ÁRG.
FÖSTUDAGUR 30. ÁGÚST 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Israelar gagnrýndir
YASSER ARAFAT, forseti
heimastjómar Palestínumanna
(t.h.), og Abdul-Karim al-Kaba-
riti, forsætisráðherra Jórdaníu
(t.v.), á fréttamannafundi í höf-
uðstöðvum Arafats á Vestur-
bakkanum í gær. Al-Kabariti
gagnrýndi þá ákvörðun Israela
að hefja byggingaframkvæmdir
í landnámi gyðinga á Vestur-
bakkanum og sagði að slíkt
stefndi friðarhorfum í tvísýnu.
Bretar tóku í sama streng í
gær, en þeir álíta stækkun land-
námsins ólöglega. Þá varaði Evr-
ópusambandið við því að aukin
spenna í Jerúsalem væri ógn við
friðarþróun í Mið-Austurlöndum.
■ Verkfallið/16
Vara við algengri
aðferð við slátrun
Getur dreift
riðusmiti um
skrokkinn
London. Reuter.
TÆKI, sem notuð eru til að deyða
sláturgripi, oft eru þau loftdrifin og
skjóta pinna inn í höfuð dýranna,
geta valdið því, að heilavefur berst
út í líkama þeirra. Hefur þetta kom-
ið fram við rannsóknir bandarískra
dýralækna.
Tam Garland og samstarfsmenn
hennar við Texas A&M-háskólann
segja, að þessi niðurstaða geti þýtt,
að fólk geti smitast af Creutzfeldt-
Jakob-sjúkdómi, jafnvel þótt reynt
sé að girða fyrir það að öðru leyti.
„Við fundum heilavef í vinstri og
hægri grein lungnaslagæðar í allt
að 5% nautgripa eftir slátrun," segja
þau í breska læknablaðinu Lancet.
„Liklegt er, að príon (eggjahvítu-
efni, sem er talið valda kúariðu) sé
að finna í öllum skrokki dýra, sem
deydd eru með þessum hætti.“
í Bretlandi og víðar ber að fjar-
lægja og eyða þeim hlutum skepn-
unnar, sem hugsanlega eru sýktir,
en Garland segir, að höggið dreifi
heilavef um allan skrokk. Ekki síst
vegna þess, að skepnan drepst ekki
fyrr en nokkrum mínútum eftir það.
Garland kvaðst telja, að einu ör-
uggu sláturaðferðirnar væru raf-
högg og þær aðferðir, sem múslimar
og gyðingar nota, að skera dýrin á
háls. Það þykir hins vegar ekki við-
eigandi á Vesturlöndum.
143 fórust er rússnesk Tupolev-vél flaug á fjall á Svalbarða
Vélina hafði borið
töluvert af leið
Ósló. Morgunblaóið. Reuter.
EKKI er vitað með vissu hvað olli
því að Tupolev-þota Vnukoyo-flugfé-
lagsins rússneska fórst á Operuijalli
á Svalbarða í gærmorgun. Allir sem
um borð voru, 143 manns, létu lífið.
Samkvæmt upplýsingum norska
blaðsins Aftenposten hafði þotuna
borið töluvert af ieið, miðað við að-
flugsstefnuna að flugvellinum í
Longyear-bænum auk þess sem hún
var undir lágmarkshæð.
Rúmlega helmingur farþeganna
voru námaverkamenn frá Rússlandi,
Úkraínu og Hvíta-Rússlandi en að
sögn námafélagsins sem þeir unnu
hjá, voru sjö börn og ijörutíu konur
í hópi farþeganna. Fjórtán manns
voru í áhöfn vélarinnar. Þetta er
mesta flugslys sem orðið hefur í
norsku loftrými. Björgunarstarfi var
hætt síðdegis í gær vegna svarta-
þoku, hvassviðris og mikilla snjóa.
Engin iík hafa verið flutt til byggða
en gert er ráð fyrir að hafist verði
handa við það í dag.
Þotan, sem kom frá Moskvu, skall
á hlíðum Óperufjalls við Aðventudal,
10 km austur af flugvellinum í
Longyear-bænum, nokkrum minút-
um fyrir áætlaða lendingu. Sam-
kvæmt upplýsingum Aftenposten var
þotan 4-5 km norðan við aðflugs-
geislann að flugvellinum, auk þess
sem hún var undir lágmarkshæð í
aðflugi. Vélin skall í ljallshlíðinni í
um 890 metra hæð.
Um tíma var fullyrt að fimm
manns hefðu lifað slysið af en norsk-
ir embættismenn vísuðu þeim frétt-
um á bug síðar um daginn.
Farþegalisti ekki
enn birtur
Farþegalistar höfðu enn ekki verið
birtir í gærkvöldi og því var ekki
vitað með vissu hvers lenskir allir
farþegarnir voru. Námamennirnir og
fjölskyldur þeirra voru á leið til vinnu
í Barentsburg og Pyramiden, sem
eru að mestu leyti byggðar Rússum.
Yfir 100 verkamenn biðu þess að
vera leystir af og áttu þeir að halda
heim með vélinni. Eru íbúar á Sval-
barða að vonum slegnir vegna hins
hörmulega slyss, og sendu Haraldur
Noregskonungur, Gro Harlem
Brundtland, forsætisráðherra Nor-
egs, og Borís Jeltsín Rússlandsfor-
seti, fjölskyldum þeirra sem fórust
samúðarkveðjur.
Reuter
FLAK Tupolev-þotunnar á Óperufjalli í gær. Myndina tók sýslumaðurinn á Svalbarða, sem var í
hópi þeirra fyrstu sem komu á slysstað. Enginn þeirra sem um borð voru lifði slysið af.
Afsögn ráðgjafa áfall fyrir Clinton á lokadegi flokksþings demókrata
Leyfði vændiskonu að
hlera símtöl við forsetann
Chicago. Reuter.
DICK Morris, sem verið hefur áhrifa-
mikill ráðgjafi Bills Clintons Banda-
ríkjaforseta, sagði í gær af sér, að
því er hermt var í herbúðum forset-
ans, eftir að götublaðið Star birti
frétt um að hann hefði í heilt ár stað-
ið í ástarsambandi við gleðikonu og
leyft henni að hlýða á samtöl sín við
forsetann í síma.
Fréttir um málið komust á kreik
aðeins nokkrum klukkustundum
áður en Clinton átti að fiytja ávarp
sitt á flokksþingi demókrata í New
York eftir að hafa verið formlega
tilnefndur forsetaframbjóðandi
flokksins og hefði þetta ekki getað
komið sér ver fyrir forsetann.
Ræðan, sem Clinton átti að flytja
í nótt, var lokaþáttur flokksþingsins,
sem hefur verið laust við óvæntar
uppákomur til þessa. Tíðindin af
Morris leiddu hins vegar til þess að
í innsta hring Clintons var ekki ann-
að rætt og gafst ekki mikill tími til
að leggja lokahönd á ræðuna.
I ræðunni hugðist Clinton gera
grein fyrir því hvernig hann ætlaði
að undirbúa Bandaríkjamenn undir
21. öldina.
Uppnefndi Clinton
„skrýmslið“
Morris hefur verið náinn ráðgjafi
Clintons og átt stóran þátt í að skipu-
leggja kosningabaráttu hans. Þeir
hafa þekkst frá því að Clinton bauð
sig fram til ríkisstjóra í Arkansas
árið 1978. Þótt Morris hafí sveigst
til hægri og farið yfir í herbúðir repú-
blikana var hann aftur kominn til
liðs við Clinton þegar repúblikanar
fengu meirihluta í báðum deildum
Bandaríkjaþings árið 1994.
í Star sagði að Morris hefði átt í
sambandi við Sherry Rowlands,
gleðikonu, sem tæki 14 þúsund krón-
ur á tímann, á hóteli í Washington.
Blaðið kvaðst hafa bæði ljósmyndir
og myndbönd máli sínu til sönnunar.
Þar sagði að Morris hefði gortað
af pólitískum völdum sínum og leyft
henni að hlusta á símtöl við forset-
ann. Hann hefði einnig sagt að hann
uppnefndi Clinton „skrýmslið“ og
konu hans, Hillary, „skýstrókinn".
í frásögn blaðsins kom fram að
Morris hefði leyft Rowlands að lesa
ræðuna, sem forsetafrúin flutti í
Chicago, fimm dögum áður en hún
var flutt. Rowlands hefði haldið dag-
bók þar sem ástarsambandinu væri
lýst í þaula og greint frá leyndarmál-
um, sem Morris hefði sagt henni.
Þar á meðal var leyndarmál, sem
„aðeins sjö menn í heiminum vissu
um“, uppgötvunina um að verið
gæti að leynst hefði líf á Mars.
Viku síðar var tilkynnt að vísbend-
ingar um frumstætt líf hefðu fundist
á loftsteini, sem féll til jarðar fyrir
13 þúsund árum.
í MIÐRI hlíð Óperufjalls ligg-
ur hluti af flaki þotunnar.