Morgunblaðið - 03.09.1996, Blaðsíða 42
42 ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1996
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+ Brynja Sigurð-
ardóttir fæddist
í Möðrudal á Fjöll-
um 28. september
1919. Hún lést á ly-
flækningadeild
Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri
28. ágúst síðastlið-
inn. Foreldrar
hennar voru Sig-
urður Haraldsson,
bóndi og síðar
skrifstofumaður á
Akureyri, f. 26.
október 1893, d. 23.
ágúst 1968, og kona
hans Hróðný Sigríður Stefáns-
dóttir frá Möðrudal, f. 2. des-
ember 1892, d. 18. ágúst 1966.
Sigurður og Hróðný bjuggu
fyrst í Möðrudal en fluttu þaðan
að Rangárlóni og síðar að
Stuðlafossi á Jökuldal. Fjöl-
skyldan fluttist til Akureyrar
árið 1930. Brynja átti fjögur
systkini. Þau eru: Stefán, f. 29.
janúar 1918, verslunarmaður
hjá KEA, hann lést í flugslysi
29. maí 1947; Valborg, f. 1. maí
1922, hún á tvær dætur og er
búsett í Reykjavík; Hrefna, f.
13. júlí 1923, bankaritari í
Kaupmannahöfn, ógift, hún lést
29. febrúar sl. í Kaupmanna-
höfn. Haraldur, f. 21. janúar
1925, kvæntur Elísabetu Kemp
Guðmundsdóttur, þau eiga
fjögur börn.
Arið 1946 gerðist Brynja
Síðastliðna mánuði hafa skin
og skúrir skipst á í stórfjölskyld-
unni, heldur meira en venjulega.
Fyrir aðeins fimm mánuðum lést
afi minn eftir stutta sjúkdómslegu.
Það var okkur mikið áfall því þrátt
fyrir háan aldur var hann sann-
kallaður ættarhöfðingi sem vakti
yfir velferð barna sinna og ekki
síst barnabarna sinna og barna
þeirra. Amma og afi fylgdust ætíð
vel með þjóðmálunum. En uppá-
haldsumræðuefni afa voru þó
æskuárin hans. Og voru frásagnir
hans svo lifandi að stundum
gleymdi maður sér alveg og fannst
maður hafa upplifað þetta með
honum þótt atburðirnir hefðu
gerst löngu áður en maður fædd-
ist. Ömmu fannst hins vegar mun
skemmtilegra að ræða stjórnmála-
ástandið og hafði hún mjög
ákveðnar skoðanir á stjórnmála-
mönnunum. Sumir voru í nokkru
uppáhaldi hjá henni og var þá
nokk sama þótt gjörðir þeirra
mættu mikilli gagnrýni á stundum,
hún stóð með sínum mönnum.
BORGAR
APÓTEK
Álftamýri 1-5
GRAFARVOGS
APÓTEK
Hverafold 1-5
eru opin til kl. 22
"á”
Næturafgreiðslu
eftir kl. 22 annast
Borgar Apótek
ráðskona hjá Stefáni
Halldórssyni múrara-
meistara, f. 21. apríl
1905. Stefán var þá
ekkjumaður með tvö
ung börn. Brynja og
Stefán giftust síðar
og gekk hún börnum
hans í móðurstað og
þau eignuðust saman
fjórar dætur og ólu
upp dótturdóttur
sina. Stefán lést á
heimili sínu hinn 30.
mars sl. Börn hennar
og fósturbörn eru: I.
Magnús, læknir á
Akureyri, f. 2. nóvember 1936,
fyrri kona Gerður Ólafsdóttir
hjúkrunarfræðingur. Þeirra
börn eru: a) Ólafur, f. 5.11. 1962,
maki Arna Arnardóttir, þau eiga
þrjá syni. b) Bára, f. 3.7. 1964,
maki Peter Enquist, Bára á tvo
syni, þau eru búsett í Svíþjóð. c)
Brynja, f. 8.7. 1971, maki Jón
Blomsterberg, þau eiga tvær
dætur. d) Magnús, f. 5.10. 1975,
maki Hlíf ísaksdóttir. e) Stefán,
f. 5.10. 1975. Síðari kona
Magnúsar er Sigriður Jónsdóttir
læknaritari. Hennar synir og
stjúpsynir Magnúsar: a) Jón Hall-
dór, f. 1.11. 1969, hann á tvö
börn. b) Hjörleifur, f. 26.3. 1972,
hann á einn son. II. Bára, f. 9.
maí 1944, skrifstofustjóri FN á
Akureyri, var gift Gunnari
Tryggvasyni. Þau eiga tvo syni:
a) Stefán, f. 10.7. 1969. b)
Aðra lagði hún algera fæð á og
áttu þeir sér ekki viðreisnar von
hjá henni. Svona var hún amma
mín.
Eftir fráfall afa í vor tók við
viðburðaríkt sumar þar sem ný
barnabarnabörn bættust í hópinn,
giftingar, útskrift, skírn og stóraf-
mæli. Og amma mætti í hveija
veisluna á fætur annarri og fann
maður þá oft hversu sárt hún
saknaði afa þrátt fyrir að hún
hefði ekki mörg orð um það. Þeg-
ar allt þetta var afstaðið og vetur-
inn fram undan var sem þróttur
ömmu dvínaði. í sínum stóra hópi
var hún búin að koma sér upp
læknum og hjúkrunarliði sem
vakti yfir velferð hennar og þeirra
þegar þau bæði lifðu. Og þar kom
að hún lagðist inn á Fjórðungs-
sjúkrahúsið. Gekk það nú ekki
fortölulaust því henni fannst það
hinn mesti óþarfi þrátt fyrir að
hún væri mikið veik. En ekki
ímyndaði maður sér að hún myndi
ekki koma aftur á Eyrarveginn.
Minningin um siðustu stundir okk-
Erfidrykkjur
Glæsileg kaffi-
hlaðborð, fallegir
salir og mjög
góð þjónusta
Upplýsingar
í síma 5050 925
og 562 7575
FLUOLEIÐIR
IIÚTEL LöFTLEIHIR
Tryggvi Már, f. 18.9. 1973.
Dætur Bryi\ju og Stefáns eru:
III. Ingibjörg, f. 21. maí 1948,
símavörður, gift Smára Sigurðs-
syni múrarameistara á Akur-
eyri. Þau eiga þrjú börn: a)
Agnes, f. 7.9. 1967, maki Þor-
valdur Guðmundsson, þau eiga
einn son. b) Anna Brynja, f.
20.6. 1972. c) Magnús Smári, f.
8.1. 1985. IV. Sigríður Hróðný,
f. 5. maí 1953, hjúkrunarfræð-
ingur, gift Tommy Asp vélfræð-
ingi. Þau eru búsett í Svíþjóð
og eiga tvær dætur, en Sigríður
átti eina dóttur áður sem alin
er upp af Brynju og Stefáni. a)
Charlotta, f. 9.6. 1981. b) Sús-
anna, f. 20.12. 1983. V. Hrafn-
hildur, f. 4. október 1955, fóstra
og kaupmaður, gift Kára I.
Guðmann kaupmanni. Þau eiga
tijá syni: a) Róbert, f. 17.8.1978.
b) Brynjar, f. 9.5. 1983. c) ísak
Kári, f. 31.1. 1992. VI. Halldóra,
f. 17. febrúar 1962, skrifstofu-
maður hjá Strýtu hf., gift Grími
Laxdal verslunarmanni. Þeirra
dóttir er Guðný Ósk, f. 22.7.
1993. VII. Gerður Olofsson,
dóttir Sigríðar, f. 15. febrúar
1972, sjúkraliði, gift Daða Valdi-
marssyni iðnrekstrarfræðingi.
Þau eru búsett í Danmörku.
Þeirra dóttir er a) Gunnhildur,
f. 3.7. 1993.
Aðalstarf Brynju var húsmóð-
urstarfið en árið 1969 tók hún
að sér hreingemingar í Tónlist-
arskólanum á Akureyri. Stefán
var þá við húsumsjón í skólan-
um. Við Tónlistarskólann unnu
þau i tæpa tvo áratugi.
Utför Brynju fer fram frá
Akureyrarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
ar á Eyrarveginum eru mér mjög
dýrmætar. Við vorum bara tvær,
allt var svo friðsælt. Yfir kaffi og
kleinum ræddum við um vandann
að vera nútímakona sem vill eiga
sinn starfsframa auk þess að geta
verið listakokkur, frábær bakari,
klæðskeri og ekki síst góð
mamma. Var hún mér sammála
að þetta gengi kannski ekki alveg
upp og maður þyrfti aðeins að
slaka á sumum kröfunum til sjálfs
sín. Svona var hún amma mín.
Hún var ekki aðeins amma sem
alltaf var hægt að koma til í kaffi,
alltaf tilbúin að spjalla og hún var
líka vinkona mín.
Elsku amma og afi, ég sakna
ykkar sárt. Allt er svo tómlegt án
ykkar á Eyrarveginum. Litla fjöl-
skylda mín, Þorvaldur og Guð-
mundur Smári, sakna þess einnig
að fá ekki að njóta fleiri samveru-
stunda með ykkur. En við munum
vera dugleg að segja Guðmundi
Smára litla frá ykkur og vona ég
að við getum gert minninguna um
ykkur eins ljóslifandi fyrir honum
eins og afi gat gert af æsku sinni.
Verið þið sæl.
Ykkar
Agnes.
Elsku amma.
Ekki hvarflaði það að mér, þeg-
ar ég flutti til þín um sl. mánaða-
mót, að sambúð okkar yrði svona
stutt. Eg hélt að þú yrðir aðeins
nokkra daga á spítalanum en eftir
fyrsta áfallið sem þú fékkst gerði
ég mér grein fyrir að ekkert yrði
eins og áður, en vonaði samt að
þú myndir komast heim og við
ættum eftir að eiga góðan vetur
fram undan eins og við höfðum
spjallað svo mikið um.
En veikindi þín voru meiri en
við gerðum okkur grein fyrir og
nú ertu komin til afa eftir aðeins
fimm mánaða aðskilnað.
Þetta er bara alltof stuttur tími
að missa ykkur bæði, ykkur sem
hafið alltaf verið fastur punktur í
lífi okkar allra.
Það eru ófáar næturnar og dag-
arnir sem ég hef verið hjá ykkur,
sérstaklega þegar við Gerður vor-
um yngri og nú seinni ár eftir að
Gerður fluttist að heiman var það
oft sem við vinkonurnar hittumst
á Eyrarveginum hjá ykkur.
Eyrarvegurinn verður aldrei sá
sami án ykkar en ég mun hugsa
vel um hann eins lengi og ég get.
Elsku amma, ég veit að nú líður
þér vel hjá afa, söknuður þinn
eftir honum var svo mikill.
Magnús Smári saknar ykkar
mikið en ég mun hjálpa honum
við að geyma allar þær góðu minn-
ingar sem við eigum um ykkur.
Hafðu þökk fyrir allt og allt,
elsku amma mín.
Þín
Anna Brynja.
Elsku amma mín.
Mér finnst erfitt, aðeins þriggja
ára, að skilja það að þú sért farin
til Guðs, aðeins tæpum fimm mán-
uðum á eftir afa. Það er skrýtið
að koma með mömmu á Eyrarveg-
inn og þú situr ekki á stólnum
þínum. Það var alltaf svo gott að
koma til þín og fá kex eða nammi
úr skápnum. Og ég sem yngsta
barnabarnið fékk kannski ýmis-
legt að gera sem hin höfðu ekki
fengið, t.d. að vera í búðaleik í
suðurstofunni og skoða skart-
gripaskrínið þitt. Það á eftir að
verða skrýtið hjá okkur mömmu
að skreppa ekki lengur í morgun-
kaffi til þín og hitta ísak Kára og
frænkur mínar. Það var líka gam-
an þegar mamma þurfti að
skreppa eitthvað og ég fékk að
vera ein í heimsókn. En mamma
og pabbi segja mér að afi hafi
tekið vel á móti þér og ykkur líði
vel núna. Hafðu þökk fyrir allt og
allt, elsku amma mín.
Þín
Guðný Ósk.
Elsku amma, að þú sért dáin
er erfitt fyrir okkur að skilja því
þú varst svo fastur punktur í til-
veru okkar. Það var svo gott að
koma í eldhúsið til þín á Eyrarveg-
inum og fá hjá þér mjólk og snúða.
Þú hafðir líka alltaf tíma til að
tala við okkur og alltaf gátum við
fengið að vera, hvort heldur var
að gista að gamni eina og eina
nótt eða að vera í passi meðan
mamma og pabbi voru að vinna.
Þú fylgdist svo vel með okkur og
hvattir okkur ef þér fannst ástæða
til en lést okkur líka vita ef þú
varst ekki sátt við það sem við
vorum að gera.
Dýrmætar eru minningarnar
um jóladag hjá þér og afa þar sem
öll ijolskyldan hittist og þú passað-
ir að allir fengju nú örugglega nóg
að borða og í hádeginu á laugar-
dögum var nú gaman að koma og
fá graut hjá þér.
Þið afi voruð búin að eiga heima
á Eyrarveginum í nær 50 ár þegar
afi dó í vor og við vissum að þú
saknaðir hans svo mikið en nú
vitum við að þið eruð saman á ný.
Elsku amma, minningin um þig
mun ávallt verða okkur kær og
bestu þakkir fyrir allt sem þú gerð-
ir fyrir okkur. Við biðjum algóðan
guð að geyma ykkur afa.
Róbert, Brynjar
og ísak Kári.
Mig langar að minnast Brynju
Sigurðardóttur, eða Innu eins og
hún var kölluð á mínu heimili, sem
nú er látin, tæplega 77 ára göm-
ul. Fyrir tæpum fimm mánuðum
fylgdum við manni hennar til graf-
ar, honum Stebba frænda. Það er
táknrænt að þau, sem búin voru
að ganga saman lífsbrautina í
nærri 50 ár, skulu hverfa á braut
svo til samtímis. Það eru margar
minningar sem líða um huga minn
á þessum tímamótum, ég veit varla
hvar ég á að bera niður. Frá því
ég var 15 ára hef ég þekkt Innu
og aldrei hefur borið skugga á
vináttu okkar. Það voru ófáar ferð-
irnar á Eyrarveginn fyrstu árin.
Bolludagarnir voru góðir. í mörg
ár var það venja að koma þar við
eftir vinnu eða skóla og fá sér
BRYNJA
SIG URÐARDÓTTIR
bollukaffí. Þá má ekki gleyma
sunnudagsbíltúrunum sem farnir
voru í þá daga. Árin liðu, ferðir á
Eyrarveginn urðu kannski færri,
lengra varð á milli okkar, en alltaf
kom tími til að hittast.
Þau Stefán eignuðust fjórar
dætur, auk þess gekk Inna tveim-
ur börnum Stefáns í móðurstað.
Þó aldursmunur á okkur Innu
væri nokkur ár fann ég aldrei fýr-
ir því. Við gátum setið yfir kaffí-
bolla og kökum í eldhúsinu hennar
og spjallað um allt milli himins og
jarðar. Ég er afar þakklát fyrir
þær stundir, auðvitað hefðu þær
mátt vera miklu fleiri, það sé ég
nú.
Elsku Inna mín, þessar fátæk-
legu línur frá mér eru þakklæti
fyrir vináttu þína frá því þú tókst
á móti mér í eldhúsinu í Hafnar-
stræti 97 þar sem ég átti að hjálpa
þér. Þú varst einstaklega dugleg,
allt var svo hreint og fínt hjá þér.
Þakka þér allar samverustund-
irnar gegnum árin og gæði þín
við börnin mín. Alltaf var hægt
að koma með þau í heimsókn, þó
stundum væri þröng á þingi.
„Þar sem hjartarúm er, þar er
húsrúm.“
Við Ari og börnin okkar kveðj-
um þig með hjartans þökk fyrir
allt. Fjölskyldu þinni, systkinum
þínum, frændfólki og vinum send-
um við innilegar samúðarkveðjur
og biðjum ykkur Guðs blessunar.
Sigríður Halldóra.
Drag nú hið blástimda,
blysum leiftranda
salartjald saman
yfir sæng þinni,
brosi boðandi,
að af beði munir
bráðlega hresstur
í himin snúa.
í kveðjuorðum okkar til Stefáns
Halldórssonar, eiginmanns
Brynju, í apríl sl. völdum við er-
indi úr Sólsetursljóði Jónasar
Hallgrímssonar. Enn er við hæfi
að björt ósk úr einu af erindum
þessa fagra ljóðs fylgi úr garði
minningarorðum um kæra vin-
og samstarfskonu. Frelsarinn gaf
okkur það fyrirheit að sá sem
yfir litlu væri trúr yrði yfir mikið
settur. Brynja var trú yfir hinu
smæsta, sýndi alúð því hversdags-
legasta og bar ætíð umhyggju
fyrir því nána. Þannig varð það
litla mikið og hið smáa stórt i
hennar umsjá. Brynja og Stefán
voru ætíð samferða og samstiga
öll árin sem þau höfðu með hönd-
um hreingerningu og húsvörslu í
Tónlistarskólanum á Akureyri þar
sem við fengum notið samstarfs
við þau.
Þau fylgdust einnig að sína
hinstu göngu því aðeins hálft ár
leið á milli brottfarar þeirra úr
þessum heimi. Við erum almættinu
þakklát fyrir að hafa fengið notið
einlægrar vináttu og hjartahlýju
Brynju um áratuga skeið.
Hlýtt viðmót og vinarþel um-
vafði mann ætíð á heimili hennar
á Eyrarvegi. Umhyggjan og kær-
leikurinn sem þau Brynja og Stef-
án sýndu afkomendum, vinum og
venslafólki snart ljúfan streng í
bijósti manns. Við vonum að í
brjósti þeirra sem eiga slíka minn-
ingu verði ljúfur strengur snortinn
áfram og megi verða aðstandend-
um Brynju til huggunar í sorginni.
Við hjónin kveðjum Brynju með
þakklæti og látum annað erindi
úr Sólsetursljóðum verða okkar
hinsu kveðju:
Dreifðir þú dagstjarna
dimmu nætur,
glöð, af glóbreiðri
götu þinni;
langar, á gangi,
dagstundir dýrar,
ó dagstjarna.
Jón Hlöðver Áskelsson
og Sæbjörg Jónsdóttir.