Morgunblaðið - 03.09.1996, Blaðsíða 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Tommi og Jenni
Ljóska
yjves er það sém xp/'r mest
Ferdinand
Smáfólk
Ég reyni að láta það ekki En ég get bara ekki
á mig fá ... að því gert...
Ég hef aldrei verið kosinn
„starfsmaður mánaðarins".
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 5691329
• Netfang: lauga@mbl.is
Ahugafólk
um sjónvarp
Frá Lindu Róbertsdóttur:
ÉG VAR að velta því fyrir mér
hvernig haga ætti sjónvarpsmál-
um fjölskyldunnar í vetur og hvaða
kostur væri fýsilegastur af þeim
sem í boði eru. Fyrir skemmstu
auglýsti sjónvarpsstöðin Sýn fjöld-
ann allan af beinum útsendingum
frá íþróttaviðburðum og frumsýn-
ingar á kvikmyndum. Við nánari
athugun fannst fjölskyldunni þess-
ar kvikmyndir kunnuglegar og
þegar við fórum að rifja þetta upp
saman kom í ljós að flestar þeirra
mynda sem taldar voru upp í aug-
lýsingunni höfðum við séð, flestar
oftar en einu sinni og oftar en
tvisvar, á Stöð 2. Eiginmaðurinn
sló á þráðinn til Stöðvar 2 og
spurði hverju þetta sætti. Þar var
honum sagt að Sýn hefði keypt
300 bíómyndir upp á nýtt frá er-
lendum fyrirtækjum en ekki Stöð
2 og því væri um frumsýningar
að ræða á Sýn, jafnvel þótt mynd-
irnar hefðu verið sýndar áður á
Stöð 2 eða Sjónvarpi.
Sýningarréttur
Oftar en ekki horfir fjölskyldan
á 19:20, sem er í opinni dagskrá,
og um daginn fékk landinn þær
fregnir að Stöð 2 hefði gert samn-
ing um einkafrumsýningarrétt á
fjölda nýrra kvikmynda við sex
stór kvikmyndafyrirtæki, t.d. Di-
sney, Warner og fleiri sem ég
kann ekki að nefna. Við vorum
að líkindum ekki þau einu sem
veltum því fyrir okkur hvað myndi
gerast á Stöð 3. Fjölskyldan hefur
horft á dagskrána þeirra endur-
gjaldslaust frá því útsendingar
hófust, sér til mikillar ánægju. Ég
ákvað að hringja til þeirra á Stöð
3 og spyijast fyrir um dagskrár-
form þeirra í vetur og hvort þessi
nýi samningur Stöðvar 2 þýddi það
að engar kvikmyndir yrðu á dag-
skránni hjá þeim. Þar fékk ég
greið svör og eitt kom mér á óvart
sem fæstir hafa líklega áttað sig
á. Sagt hefur verið frá því í fjöl-
miðlum að í vetur muni Stöð 3
fara af stað með svokallað „pay-
per-view“ og það er þannig að
menn greiða aðeins fyrir þær kvik-
myndir sem horft er á. Þegar ég
spurði hvort ekki yrði Iítið um
myndir á þessari bíórás Stöðvar 3
vegna þessara nýju samninga
Stöðvar 2 sagði stúlkan mér að á
því væri engin hætta. Reglan væri
sú að fyrst væru kvikmyndir sýnd-
ar í kvikmyndahúsum, svo kæmu
þær á myndbandaleigurnar, því
næst ættu „pay-per-view“ stöðv-
arnar sýningarréttinn, þá áskrift-
arstöðvar á borð við Stöð 2 og 3
og loks ríkisreknar sjónvarps-
stöðvar. Miðað við þessar upplýs-
ingar geri ég ráð fyrir að forráða-
menn Stöðvar 3 hafi furðað sig á
fréttaflutningi Stöðvar 2 fyrrnefnt
kvöld. Mér sem neytanda er hins
vegar ekki hlátur í hug því þegar
upp er staðið finnst mér Stöð 2
og Sýn sífellt vera að reyna að slá
ryki í augu áhorfenda og hika
ekki við að nota eigin fréttastofu
í þeim tilgangi.
LINDA RÓBERTSDÓTTIR,
Hraunbrún 4,
Hafnarfirði.
Glöggur lesandi hefur bent á það að þáttaheitið Mál manna
var notað á málfarsþætti í Ríkisútvarpinu sl. vetur. Af þeim sök-
um verður heiti þessara þátta breytt.
Hvað skal segja? 2
Væri rétt að segja: Þeir litu á hvorn annan?
Rétt væri: Þeir litu hvor á annan.
Tveir menn litu hvor á annan.
Þrír menn litu hver á annan.
Tvær konur litu hvor á aðra.
Þrjár konur litu hver á aðra.
Tvö börn litu hvort á annað.
Þijú börn litu hvert á annað.
Margt fólk leit hvað á annað.
Allir litu hver á annan.
Rússar og Þjóðveijar réðust hvorir á aðra.
Rússar, Þjóðveijar og Bretar heijuðu hveijir á aðra.
í næsta þætti verður hugað frekar að notkun þessara sömu
fornafna.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef.ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.