Morgunblaðið - 04.09.1996, Side 1

Morgunblaðið - 04.09.1996, Side 1
72 SIÐUR B/C/D/E 200. TBL. 84. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Bandaríkjamenn gera eldflaugaárás á Iraka Bagdad, Washington, Nikosiu. Reuter. - Saddam Hussein hótar svari Segja íraka ógna alþjóðlegu öryggi - Alþjóðleg viðbrögð blendin Reuter BANDARÍKJAMENN skutu í gærmorgun 27 flugskeytum á ír- aka. Hér sést hvar skeyti af gerðinni Tomahawk er skotið frá herskipinu Laboon í morgunsárið í gær. Flugræningi gefst upp eftir lend- ingu í Osló Osló. Reuter. PALESTÍNUMAÐUR, sem rændi búlgarskri flugvél af gerðinni Tupolev TU-154 og kom því til leiðar að henni var flogið til Noregs, gafst upp skömmu eftir að vélinni var lent á Gardemoen-flugvelli í Osló, krafðist þess að fá lögfræðing og sótti um pólitískt hæli. Maðurinn rændi farþegavél- inni, sem var á leið frá Beirút í Líbanon til búlgörsku borgar- innar Varna við Svartahaf, í gær. Hann leyfði öllum farþeg- um vélarinnar, 150 talsins, að fara frá borði í Varna og lét afferma farangur þeirra. Því næst fyrirskipaði hann að hald- ið yrði áfram til Noregs. Hann hélt átta manna áhöfn vélarinn- ar, sem er frá flugfélaginu Balkan, í gíslingu. Um þremur stundarfjórðung- um eftir lendingu á Gardemoen- flugvelli, sem hafði verið girtur af, gaf maðurinn sig fram við lögreglu og var honum stungið í fangelsi. Engan sakaði í flug- ráninu. Asbjorn Gran, lögreglufull- trúi í Osló, sagði að maðurinn hefði ekki gefið pólitíska ástæðu fyrir verknaðinum. Atanas Atanasov, flugvallar- stjóri í Varna, sagði að maður- inn hefði ruðst inn í flugstjórn- arklefann í vélinni með sprengju í hönd stundarfjórðungi fyrir lendingu þar og krafist þess að vélinni yrði annaðhvort snúið til Oslóar eða Helsinki. Norsk stjórnvöld höfðu ekki brugðist við kröfu mannsins um hæli í gær, en þar í landi hefur hingað til verið takið hart á flug- ræningjum og þeir framseldir án nokkurra málalenginga. BANDARIKJAMENN skutu 27 stýriflaugum frá herskipum og sprengjuflugvélum á _ hernaðarleg skotmörk í suðurhluta íraks snemma í gærmorgun og segja írösk stjórn- völd að fimm manns hafi fallið og nítján særst. Árásinni var beint gegn ijarskipta- og ratsjárstöðvum auk loftvarnabúnaðar. Stjórnvöld í Bagdad og víðar í arabaríkjum, þ. á m. í Sýrlandi, fordæmdu árásina sem gerð var í kjölfar þess að Iraksher var sendur inn í héruð Kúrda í norðri á laugardag og réðist á borgina Ar- bil. Vesturveldin telja að írakar hafi með því brotið vopnahlésskilmála. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna lýsti yfir því í gærkvöldi að ekki yrði haggað við viðskiptabanningu, sem írakar hafa sætt frá því þeir gerðu innrásina í Kúveit árið 1990. Blendin viðbrögð Bandaríkjamenn sögðu að þessu svari við árásinni á Arbil væri ætlað að koma í veg fyrir að Irakar réðust að nágrannaríkjunum. Ríki heims tóku árásinni misjafnlega og var tal- að um brest í samstöðu banda- manna. Bretar, Japanar, Kanada- menn og Þjóðveijar lýstu yfir stuðn- ingi, en Frakkar sögðu að Banda- ríkjamenn hefðu verið of bráðir. Hún mætti andstöðu Samtaka arabaríkja. Rússar fordæmdu árásina harka- lega og sagði Jevgení Prímakov utan- ríkisráðherra að pólitískir hagsmunir heima fyrir hefðu verið látnir ráða. Nú eru tveir mánuðir í forsetakosn- ingar í Bandaríkjunum. Bandaríkjamenn kváðust hins veg- ar hafa átt náið samstarf við Rússa, sem hefðu reynst hjálplegir. Bandarískir embættismenn sögðu að ákveðið hefði verið að láta til skarar skríða hvort sem þeir hefðu stuðning bandamanna eða ekki og staðið yrði vjð þá ákvörðun. Ráðist yrði aftur á íraka gerðist þess þörf. Bill Ciinton Bandaríkjaforseti og samstarfsmenn hans báru við brýn- um, alþjóðlegum hagsmunum, þar á meðal að tryggja olíustreymi í heim- inum. Clinton sagði að tilgangurinn væri að láta Saddam Hussein, forseta ir- aks, „gjalda fyrir sín nýjustu grimmdarverk [og] draga úr getu hans til að ógna grönnum sínum og hagsmunum Bandaríkjamanna". „Málið snýst ekki aðeins um árás íraka á Arbil,“ sagði William Perry varnarmálaráðherra. „Það er sú greinilega og bráða hætta, sem ná- grönnum Saddams Husseins, öryggi og stöðugleika svæðisins og flæði olíu til heimsins stafar af honum.“ Þetta eru sömu rök og notuð voru í Persaflóastríðinu þegar innrás ír- aka í Kúveit 1990 var hrundið. Bandaríkjamenn lýstu yfir því að eins og sakir stæðu væri ekki hægt að láta verða af áætlunum um að létta á viðskiptabanninu og leyfa írök- um um að selja ákveðið magn af olíu. Einnig var lýst yfir því að flug- banns'svæði í suðurhluta Iraks yrði stækkað um eina breiddargráðu í norður og væri nýja markalínan að- eins 48 km sunnan við Bagdad. Bandaríkjamenn héldu því fram að írakar hefðu ekki dregið lið sitt til baka, heldur héldu áfram sókn og væri Sulaimaniya, aðsetur stjórn- arstofnana stjórnarandstöðu Kúrda, í hættu. Tareq Aziz, aðstoðarforsætisráð- herra íraks, sagði að allt lið íraka yrði á brott frá norðurhéruðum Kúrda í gær og sagði rangt að lið- söfnuður væri við Sulaimaniya. Segja aðgerðir lögmætar Hann varði hernaðaraðgerðirnar í Kúrdahéruðunum. íraksher hefði aðstoðað einn af herflokkum Kúrda undir forystu Massouds Barzanis við að ná aftur borginni Arbil á laugar- dag en síðan hefðu írakar flutt lið sitt á brott frá borginni, nokkrum stundum áður en flugskeytaárásin á suðurhéruðin hófst. Markmið íraks- stjórnar hefði verið að stöðva Kúrda- leiðtogann Jalal Talabani og írana sem styðja hann. Bandaríkjamenn hefðu á hinn bóginn brotið aiþjóðalög með aðgerðum sínum, brotið gegn „orðum og anda“ samþykkta Sam- einuðu þjóðanna um írak. Massoud Barzani, leiðtogi Lýðræð- isflokks Kúrdistans, hefur nú með aðstoð írakshers á ný lagt undir sig borgina Arbil. Talsmaður Þjóðarráðs íraka, regn- hlífarsamtaka íraskra stjórnarand- stæðinga, sagði í gær í London að útsendarar íraksforseta hefðu látið handtaka mörg hundruð manna í Arbil og biði þeirra ekkert annað en pyntingar og dauði. Oiíuverð og gengi Bandaríkjadoll- ara hækkaði verulega á alþjóðamörk- uðum fyrst eftir að fréttist um árás Bandaríkjamanna en lækkaði á ný. ■ 27 stýriflaugum skotið/29 Saddam sakar Bandar í kj amenn um hugleysi og setur flugher í viðbragðsstöðu Irakar neita að virða flugbann Bagdad, Nikosiu, Amman. Rcuter, EFNT var til útifunda í Bagdad og fleiri borgum í Irak í gær vegna flugskeytaárása Bandaríkja- manna á landið í gærmorgun. Að sögn írösku fréttastofunnar INA fordæmdi almenningur Bandarík- in og lýsti stuðningi við Saddam Hussein forseta. Sjálfur flutti Saddam sjónvarpsávarp til þjóðar- innar nokkrum stundum eftir árásina og virtist ekki í uppgjafar- hug, sagði menn sína hafa skotið niður mörg af skeytum Banda- ríkjamanna. Saddam skipaði flughernum og skyttum loftvarnastöðva að skjóta á flugvélar Bandaríkjamanna og bandamanna þeirra er fylgjast með því að Irakar brjóti ekki bann Oryggisráðs Sameinuðu þjóðanna við flugi íraka yfir nyrstu og syðstu héruðum landsins. Sérfræð- ingar álíta að Irakar haf i vart bol- magn til að hlýða þessari skipun. „Enn einu sinni eru hinir auð- mýktu og huglausu Bandaríkja- menn komnir hingað til að endur- taka þá ragmennsku sína að fela sig á bak við tækniþróun sem fyr- ir tilverknað Guðs almáttugs hef- ur orðið þeim til skammar og mun valda þeim mikilli hneisu," sagði Saddam. Hann sagði dagsins myndu verða minnst í annálum þjóðarinnar um dýrð hennar og hreysti. „Megi náð Guðs vera með hinum hnarreistu hetjum okkai'," sagði forsetinn. Þáttur í forsetaslag Saddam, sem var klæddur bún- ingi marskálks, gerði lítið úr tjóni íraka en fimm manns munu liafa fallið og 19 særst, þ. á m. óbreytt- ir borgarar. I Bagdad virtist almenningur Reuter SADDAM Hussein íraksforseti flytur sjónvarpsávarp nokkrum stundum eftir árás Bandaríkjamanna. ÁRÁSIR Á ÍRAK 200 km ÍRAN Flugbannssvæðið stækkað 27 stýhflaugum varskotiö á hemaöarteg skotmörk isuðurhluta íraks Flaugum varskotið trá tveimur Tomahawk bandariskum herskipum Stýríflaug og tveimur B-52 flugvétum lítt uppnæmur vegna árása Bandaríkjainanna í gærmorgun. „Það er sama hvað Bandaríkja- menn gera, það verður ekkert í samanburði við það sem þeir gerðu í Kúveit-stríðinu,“ sagði leigubíistjóri á leið til Kirkuk í norðurhluta landsins. „Það er meira tekið eftir vopnaskaki þeirra heima fyrir.“ Á útimarkaði í borginni sögðu menn að árásin væri þáttur í for- setaslagnum í Bandaríkjunum. „Engu skiptir hvað þeir gera,“ sagði kaupmaður. „Við, almenn- ingur, verðum látin borga.“ Margir sögðust hafa meiri áhyggjur af því að samningur við Sameinuðu þjóðirnar um að írak fengi að selja nokkuð af olíu til að kaupa matvæli kæmi ekki til framkvæmda en Boutros Boutros- Ghali, framkvæmdasljóri SÞ, frest- aði gildistöku samningsins í gær.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.