Morgunblaðið - 05.09.1996, Blaðsíða 4
4 B FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1996
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
STÆRRI fyrirtæki virðast í
æ ríkari mæli sækjast eft-
ir ungu og velmenntuðu
fólki til æðstu stjórnunar-
starfa. Eitt skýrasta dæmið um
það er ráðning hins 33 ára gamla
rekstrarhagfræðings Frosta Sig-
utjónssonar í stöðu forstjóra Ný-
hetja hf. síðastliðið vor. Tekur
hann við af Gunnari M. Hanssyni
sem stýrt hefur Nýheija frá upp-
hafi og þar á undan IBM á íslandi
um langt árabil.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur
Frosti fjölbreytta reynslu úr at-
vinnulífinu, bæði af markaðsmál-
um, Ijármálum og tölvumálum.
Hann gegndi síðast stöðu íjár-
málastjóra Marels hf., en þar á
undan var hann markaðsstjóri
Tölvusamskipta hf. og ráðgjafi hjá
Kaupþingi hf.
Hann tekst nú á hendur að stýra
tölvu- og hugbúnaðarfyrirtæki
með um 1,7 milljarða veltu og 153
manna starfsliði. Það annast þjón-
ustu og sölu á ýmiss konar tölvu-
búnaði og hugbúnaði, allt frá
smæstu réiknivélum upp í stórar
og afkastamiklar tölvur. Auk þess
hefur fyrirtækið selt fjarskipta-
búnað, símbúnað, hljóðkerfi, ljósa-
stýringar og annan ráðstefnubún-
að, sjóðsvélar, prentara, skrif-
stofuvélar og rekstrarvörur ásamt
því að annast fræðslu og ráðgjöf.
Flaggskip fyrirtækisins er eins og
flestum er kunnugt umboðið fyrir
IBM-tölvur.
Ekki hægt að neita
svona boði
Frosti segir að ráðningin hafi
átt sér skamman aðdraganda, en
hann hafí aldrei verið í neinum
vafa um að rétt væri að taka við
starfinu. „Ég var nýkominn úr
fríi þegar stjórnarformaður Ný-
hetja hringdi í mig og óskaði eftir
fundi. Það kom mér mjög á óvart
að þeir vildu jafn ungan mann í
starfið og raun bar vitni, en var
engu að síður reiðubúinn að taka
við jafn spennandi verkefni sem
einmitt er á mínu áhugasviði.
Stóra spurningin var sú hvort ég
hefði einhveija sýn fyrir fyrirtækið
og gæti leitt það. Allar efasemdir
hurfu eftir nokkrar vikur þegar
ég sá að ég gæti fengið miklu
áorkað. Marel var gríðarlega góð-
ur skóli, þar sem ég var nýlega
búinn að fara í gegnum átak í
endurgerð vinnuferla og endur-
skipulagningu. Þar sá ég bæði um
fjármál, tölvumál og skrifstofu-
hald ásamt því að vinna að stefnu-
mótun með framkvæmdastjórn
fyrirtækisins.“
Frosti hefur lengi verið í störf-
um sem tengjast tölvumálum. „Ég
byijaði strax eftir menntaskóla að
forrita og þýða hugbúnað, bæði
bókhaldshugbúnað, ritvinnslukerfi
o.fl. Þá starfaði ég einnig hjá Atl-
antis-fyrirtækinu sem framleiddi
íslenskar einkatölvur. Mér fannst
skorta á þekkingu mína á viðskipt-
um og fór því í viðskiptafræði.
Með náminu vann ég meðal ann-
ars að forritun fyrir Kaupþing, þar
sem ég tók þátt í að skrifa tíma-
skráningarkerfi, verðbréfavörslu-
kerfi og kröfukaupakerfi. Ég ann-
aðist síðan markaðssetningu hjá
Skjáfaxi meðan ég var markaðs-
stjóri Tölvusamskipta, sem gekk
bærilega."
Byrjaði ekki að hræra
í öllum pottum strax
- Hvaða breytingar hafa verið
gerðar á skipulagi og rekstri Ný-
heija frá því þú tókst við?
„Þegar ég hóf störf
ákvað ég að taka mér
góðan umhugsunartíma
og byija ekki að hræra í
öllum pottum fyrr en ég
vissi hvað væri í þeim.
Fyrstu vikuna byijaði ég
reyndar á því að breyta ákveðnum
hlutum sem ég vissi að væru til
bóta eins og t.d. að koma á viku-
legum samráðsfundum með öllum
stjómendum.
Nýlega var tekin sú ákvörðun
stjórnendur. Fyrirtækin sækjast
sömuleiðis eftir ráðgjöf um Inter-
netið og stærri fyrirtæki eru í
vaxandi mæli að setja upp þráð-
laus netkerfi.
Einstaklingar vilja fyrst og
fremst ódýrar og góðar tölvur og
hafa síður þörf á að hafa sér-
hæfðri tækniþjónustu að halda.
Við höfum því opnað verslunina
Tölvukjör í Fákafeni fyrst og
fremst með það í huga að þjóna
heimilum og einstaklingum.
Ennfremur höfum við eflt sam-
starf við hugbúnaðarfyrirtækin og
lítum á það sem mikilvægan þátt
að eiga gott samstarf við fyrirtæki
eins og Hug, Streng, Kerfi, AKS
o.fl. Þau bjóða bókhaldskerfi en
við bjóðum hópvinnukerfi, vélbún-
að, ýmsar lausnir og þjónustu. Við
munum jafnframt leggja mikla
áherslu á að þróa Internetsþjón-
ustu okkar og hönnun á heimasíð-
um.
Hér hefur einnig verið tekin upp
ný þjónusta á sviði fjarfundabún-
aðar sem gerir viðskiptavinum
okkar meðal annars kleift að eiga
fundi með sérfræðingum erlendis.
Þessi búnaður getur fært íslensk
fyrirtæki í útflutningi nær sínum
viðskiptavinum."
Góðir tímar
framundan
Frosti segir því að góðir tímar
séu framundan fyrirNýheija. „Það
er uppsveifla í efnahagslífinu og
eftirspurn eftir tölvubúnaði hefur
verið mikil. IBM hefur verið í lægð
á undanförnum árum, en er nú á
mikilli uppleið undir stjórn fyrrver-
andi kökusalans Lou Gerstner.
Sala á stórtölvum hefur til dæmis
verið að aukast með tilkomu Inter-
netsins, því það er þörf á stórtölv-
um til að sinna mörgum notendum
samtímis.
Þá má nefna að Nýherji hefur
fengið nýjan stjórnarmann frá
IBM í Danmörku, Niels Christian
Furu. Þetta er drífandi maður sem
stjórnar sölu á PC-vélum á Norð-
urlöndum. Hann hefui' náð miklum
árangri á sínu sviði. PC-vélar frá
IBM hafa lækkað mikið í verði og
eru í mikilli sókn á Norðurlöndun-
um. Auk þess að leggja meiri
áherslu á PC-vélar munum við
auka áhersluna á Unix-vélar frá
IBM og erum strax farnir að finna
fyrir aukinni eftirspurn og áhuga.“
Mikil tækifæri í
upplýsingatækni
Nýheiji er hluthafi í hugbúnað-
arfyrirtækinu Hug hf., Tölvutæki-
Bókvali á Akureyri og Stöð 3.
„Hugur hf. dreifir og selur Con-
corde-hugbúnað. Tölvutæki-bók-
val annast ýmiskonar rekstur í
tengslum við tölvubúnað," segir
Frosti. „Stöð 3 hefur lent í miklum
seinkunum og framleiðandi mynd-
lyklanna í Bandaríkjunum hefur
ekki getað staðið við sín joforð.
Fleiri sjónvarpsstöðvar á íslandi
hafa lent í svipuðum byijunarörð-
ugleikum, en samt náð að festa
sig í sessi. Ég held að þáð sé rými
fyrir viðbótarsjónvarpsstöð, en
hún hefur fengið í vöggugjöf
ákveðna erfiðleika sem unnið er
að að leysa. Menn eru bjartsýnir
á að þessi tæknilegu vandamál
verði brátt úr sögunni og unnið
er að því að auka hlutafé félags-
ins.“
- Nú hefur komið fram að það
er skortur á hæfu fólki til starfa
hjá tölvufyrirtækjum og ákveðið
launaskrið virðist hafa verið í
gangi í þessum geira.
Hvernig snýr þetta að
Nýheija?
„Það er launaskrið í
gangi í tölvugeiranum
og við munum þurfa að
svara því með hækkun
á verði útseldrar vinnu til okkar
viðskiptavina. Hins vegar vonast
ég til að fleira fólk mennti sig á
þessu sviði. Ég hef trú á að Islend-
ingar eigi mikil tækifæri í upplýs-
ingatækni og e.t.v. meiri en aðrar
þjóðir,“ sagði Frosti Siguijónsson.
Morgunblaðið/Kristinn
FROSTI Sigurjónsson, forstjóri Nýherja, í verslun fyrirtækisins við Skaftahlíð.
Mörg sóknarfærí
hjá Nýhetja
Frosti Sigrirjónsson var í vor ráðinn forstjórí Nýherja. Kristinn
Bríem ræddi við hann um fyrri störf hans og þær breytingar sem
framundan eru hjá fyrirtækinu.
að selja þann hluta Radíóstofu
Nýherja sem annast öryggiskerfi
og öryggisþjónustu. Það kom upp
úr dúrnum að við hefðum fljótlega
þurft að fjárfesta töluvert í
öryggiskerfaþætti Nýheija til að
geta keppt á markaðnum. Þetta
er töluvert fjarskylt meginstarf-
semi fyrirtækisins og við mátum
það því svo að betra væri að selja
þennan þátt og nýta fjármagnið í
annað sem stendur okkur nær.
Þá höfum við gert nokkrar
breytingar á stoðdeildum og komið
á fót sérstakri innkaupadeild sem
Ieysir af hólmi birgðadeild. Inn-
kaup á PC-vélum, rekstrarvörum
o.þ.h. hafa verið á höndum sölu-
manna, en nú hefur innkaupa-
deildinni verið falið að annast
þennan þátt. Sölumenn þurfa að
vera í góðum tengslum
við birgja til að fylgjast
með nýjungum. Tölvur
og tengdur búnaður
úreldist mjög hratt
þannig að það var
nauðsynlegt að auka
sérhæfingu á sviði inn-
kaupa og vörustjórnunar.
Hvað markaðsmálin snertir
hafði sérstakur markaðsstjóri ekki
verið hjá fyrirtækinu heldur sinnti
hver deild þessum þætti fyrir sig.
Það var því orðið tímabært að
Marel var
gríðarlega
góður
skóli
ráða markaðsstjóra til að skipu-
leggja markaðsaðgerðir og nýta á
sem bestan hátt hveija krónu. Við
fengum góðan mann, Finn Orra
Thorlacius, í þetta starf, en hann
var áður markaðsstjóri hjá IKEA.
Ég á því von á að við náum betri
árangri í markaðssetningu, styrkj-
um ímynd fyrirtækisins og sendum
skýrari boð út á markaðinn."
Umbætur á innri
upplýsingamálum
„Við ætlum ennfremur að gera
töluverðar umbætur á innri upp-
lýsingamálum Nýheija. Það er
verið að setja upp Lotus Notes-
hópvinnukerfi sem mun skila mikl-
um ávinningi. Möguleikarnir á
bættu samstarfi innan fyrirtækis-
ins munu aukast mjög mikið. Til
að hægt sé að bjóða heildarlausnir
þurfum við að vita nákvæmlega
um þarfir einstakra viðskiptavina
og miðla þekkingu á milli manna
í fyrirtækinu.
Við höfum síðan hug á að draga
úr þeirri deildaskiptingu sem hér
hefur verið og leggja áherslu á
meginferli í starfseminni. Deildir
hafa einblínt mjög á eigin mark-
mið og fyrst og fremst sinnt eigin
málum. Það er mikið af starfsfólki
hér með þekkingu sem nýttist
ekki sem skyldi vegna þess að það
var fyrst og fremst að hugsa um
verkefni sinnar deildar."
Vaxtarmöguleikar
í allar áttir
- A hvaða sviðum sérðu mesta
möguleika fyrir Nýheija í framtíð-
inni? Hvar liggja vaxtarmöguleik-
arnir?
„Vaxtarmöguleikarnir eru í all-
ar áttir þannig að við þurfum að
velja og hafna. Það var farið í
mikla stefnumótunarvinnu í sumar
sem endaði með spennandi báts-
ferð niður Hvítá. í þeirri vinnu kom
m.a. fram að framlegð af vélbún-
aði hefur lækkað það mikið að
ekki er lengur hægt að gefa með
honum þekkinguna. Þess vegna
munum við leggja áherslu á að
efla ráðgjöf og þjónustu.
Við munum reyna að
skilja betur á milli þjón-
ustu við fyrirtæki og ein-
staklinga. Nýheiji mun
nota breidd sína og styrk
til að uppfylla kröfur fyr-
irtækja og bjóða þeim
heildarlausnir. Fyrirtæk-
in sækjast í æ ríkari mæli eftir
heildarlausnum á sínum tölvumál-
um og vilja getað leitað til eins
aðila með sín mál. Tækifæri eru
meðal annars á sviði hópvinnu-
kerfa og upplýsingakerfa fyrir
Fyrirtækin
sækjast
eftir heild-
arlausn