Morgunblaðið - 05.09.1996, Síða 1

Morgunblaðið - 05.09.1996, Síða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 1996 JMtwgitnMaMfr ■ FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER BLAÐ Afturelding borgar 1,6 millj. kr. fyrir leikmenn AFTURELDINGARMENN í Mos- fellsbæ hafa náð samkomulagi við þrjú félög vegna peningagreiðslana á fjórum leikmönnum, sem eru komnir í herbúðir 1. deildarliðs félagsins í handknattleik. Búið er að ganga frá félagaskiptum Sveins Sveinssonar úr FH, 475 þús. krónur. í dag verður gengið frá félagaskiptum Einars Gunnars Sigurðssonar og Siguijóns Bjarnasonar frá Selfossi. Afturelding mun greiða 730 þús. kr. fyrir Einar Gunnar og 300 þús. kr. fyrir Sigur- jón. Þá á eftir að ganga endanlega frá félagaskiptum Jóns Andra Finns- sonar úr Fram, 160 þús. kr. Samtals greiðir félagið 1,665 millj. kr. fyrir leikmennina. Síðasti nágranna- slagurinn á Roker- velli SUNDERLAND tók á móti Newcastle ð Roker-velli í gærkvöldi og dragist liðln ekki saman í bikarkeppnl ð heimavelli Sunderland í vetur var um að ræða síðasta nðgrannaslag þeirra ð vellln- um því Sunder- land flytur fyrir næsta tímabil. Á myndinni er Alan Shearer ð milli helma- mannanna Dar- iusz Kubickis til vinstri og Mart- in Scotts. Man. Utd. varð að sætta sig vlð jafntefli i Derby. Lelklr / C3 Reuter Næst að drekka GAIS á réttan kjöl? HIÐ gamalkunna knattspyrnulið frá Gauta- borg, GAIS, er á barmi gjaldþrots. Forráða- menn félagsins hafa tekið þá ávörðun að senya við bruggfyrirtæki, sem hefur ákveðið að setja GAIS-bjór á markaðinn, með merki félagsins á flöskumiðum. Þetta er síðasta útspil forráða- mannanna til að bjarga erfiðri skuldastöðu. Formaður sænska knattspyrnusambandsins hefur lýst vanþóknun sinni á þessari ákvörðun GAIS. Nú er spurningin, tekst stuðningsmönn- um félagsins og Gautaborgarbúum að drekka félagið á réttan kjöl? Fjárhagsvandamál félagsins hófst þegar GAIS fékk Glenn Hysen, fyrrum landsliðs- mann, til að koma til félagsins frá Liverpool. Við hann voru gerðir vægast sagt vanhugsaðir samningar, sem kostuðu félagið mikið. A sama tíma og fjárhagur GAIS rýrnaði, fitnaði Hysen - hann safnaði spiki, þannig að ekki var not fyrir hann á knattspyrnuvellinum. Báðir leikirnir gegn Grikkjum og Eistum á íslandi? GRIKKIR verða fjórða þjóðin í riðli með íslendingum í undankeppni heimsmeistaramótsins í handknattleik, Grikkir sigruðu Kýpur 35:22 um helgina í síðari leik iiðanna og 28:17 í fyrri leiknum. íslendingar stefna að því að fá báða leikina við Grikki hér heima og einn- ig leikina við Eista, en við Dani verður leikið heima og að heiman. Að sögn Þorbjörns Jenssonar landsliðsþjálfara eru bæði Grikkir og Eistar búnir að samþykkja að leika báða leikina hér og nú er aðeins beðið eftir samþykki Dana, en allar þjóðirnar í riðlinum þurfa að veita sam- þykki sitt, óski þjóðir að leika ekki heima og að heim- an. Grikkir hafa í hyggju að leika alla leikina í einni og sömu ferðinni, fyrst við íslendinga, fara síðan til Danmerkur og leika þar tvo leiki og loks til Eistlands og leika báða leikina þar. íslendingar eiga samkvæmt áætlun að leika við Grikki hér heima 2. október og úti 6. október, en verði báðir leikirnir hér verða þeir 5. og 6. október. Fyrri leikurinn við Eista á að vera í Eistlandi 30. október og sá síðari hér á landí 3. nóvember, en verði báðir leikirnir hér verða þeir 2. og 3. nóvember. Fyrri leikurinn við Dani verður hér heima 27. nóvember og síðari leikurinn í Danmörku 1. desember. Aftur í landsliðið eftir rúman áratug KYLFINGURINN Björgvin Þor- steinsson úr Golfklúbbi Akur- eyrar hefur verið valinn í lands- lið íslands i golfi, en nú eru ell- efu ár síðan Björgvin var síðast valinn í landsliðið. „Ég held að ég hafi verið síðast í landsliðinu árið 1985,“ sagði Björgvin f sam- tali við Morgunblaðið í gær. „Ég byijaði mjög vel í vor og stefndi því að því að komast í landsliðið þó svo ég leggði enga ofuráerslu á það, en það er gaman að þessu.“ Ragnar Ólafsson, liðstjóri landsiiðsins, hefur valið Björgvin og Birgi Leif Hafþórsson úr Leyni til að taka þátt í alþjóðlegu móti á Ítalíu 18. til 22. septem- ber á Cirola Golf Villa d’Este vellinum. Þess má til gamans geta að Birgir Leifur er tvítugur og því munar 23 árum á lands- liðsmönnunum. Björgvin var fyrst valinn í iandsliðið 19 ára gamall, árið 1972, og hefur því gríðariega reynslu. „Birgir Leif- ur hefur mikiu meiri reynslu af svona mótum síðari ár þannig að hann verður sjálfsagt að halda í höndina á mér, en ekki öfugt. Ætii ég verði ekki enn trekktari en þegar ég fór í fyrstu ferð- ina!“ sagði Björgvin. Anna María hætt hjá Blikum Breiðablik ekki með lið í 1. deild kvenna í körfuknattleik Anna María Sveinsdóttir hefur snúið til Keflavíkur á nýjan leik, en hún hafði ráðið sig sem þjálfara kvennaliðs Breiðabliks fyrir komandi leiktíð. Anna María var ekki ánægð með hversu fáar stúlk- ur mættu á æfingar hjá Blikum, enda hefur fækkað nokkuð hjá Kópavogsliðinu frá því í fyrra, Inga Dóra Magnúsdóttir ætlar víst ekki að vera í körfunni í vetur, Erla Hendriksdóttir er enn óákveðin, Hanna Kjartansdóttir er farin til Bandaríkjanna og Elísa Vilbergs- dóttir komin í KR. Anna María fer frá Blikum í sátt við stjórnina, en það eina sem bjátaði á var að það vantaði fleiri stelpur á æfingar. Það er því allt útlit fyrir að aðeins verði sex lið í efstu deild kvenna í vetur. Stjórn Breiðabliks ætlaði að halda stjórn- arfund í gærkvöldi og þegar Morg- unbiaðið náði tali af Hannesi Jóns- syni, ritara körfuknattleiksdeildar Breiðabliks, í gærkvöldi vildi hann ekkert tjá sig um málið, sagði að- eins að stjórnin myndi senda frá sér fréttatilkynningu að fundi lokn- um. KNATTSPYRNA: IVAN „GRIMMI" LEIÐIRINNRÁSINA Á ÍTALÍU / C2

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.