Morgunblaðið - 06.09.1996, Blaðsíða 27
26 FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBIjAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER 1996 27
STOFNAÐ 1913
UTGEFANDI
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RITSTJÓRAR
Árvakur hf., Reykjavík.
Hallgrímur B. Geirsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
DÓMHÚS
HÆSTARÉTTAR
NÝTT og glæsilegt Dómhús Hæstaréttar var tekið
í notkun í gær. Dómhúsið gerbrejú,ir allri aðstöðu
réttarins. Dómarar fá stórbætta og nýtízkulega starfs-
aðstöðu. Dómsalir verða nú tveir og þingsalur einn,
auk þess sem lögmenn, sem flytja mál fyrir dómnum,
fá starfsaðstöðu í húsinu. Öllu þessu ber að fagna, en
hingað til hefur þetta æðsta stig dómsvaldsins búið við
mjög þröngan húsakost, sem vart hefur verið sæmandi
réttarríki sem lýðveldinu íslandi.
Með þessu húsi telur forseti Hæstaréttar, Haraldur
Henrýsson, að áréttuð sé sú þróun, sem verið hefur
að gerast undanfarið, aðskilnaður framkvæmdavalds
og dómsvalds. Alls staðar í lýðræðisríkjum sé æðsta
dómstig réttarkerfisins í sjálfstæðu virðulegu húsi, sem
undirstriki sjálfstæði dómsins frá öðrum þáttum ríkis-
valdsins. Dómhús Hæstaréttar svarar til Alþingishúss-
ins og Stjórnarráðshússins og hafa nú öll æðstu stig
þessarar þrískiptingar ríkisvaldsins fengið virðulegt þak
yfir höfuðið. Það er og til fyrirmyndar að framkvæmda-
kostnaður við húsið skuli vera innan áætlunar.
Hæstiréttur íslands tók til starfa 16. febrúar 1920
og var þar með lokið þeim þætti í sjálfstæðisbaráttu
þjóðarinnar að fá dómsvaldið á ný inn í landið. Sú
barátta hafði verið háð frá miðri 19. öld, en með lög-
töku Jónsbókar 1281 glataðist dómsvaldið úr landi.
Viðurkenning á rétti íslendinga til stofnunar Hæstarétt-
ar fékkst síðan með sambandslögunum frá 1918 og
var þá þegar hafinn undirbúningur að stofnun réttar-
ins. Fyrst var Hæstiréttur til húsa í Hegningarhúsinu
við Skólavörðustíg og síðan frá 1949 í húsi Hæstarétt-
ar við Lindargötu. Með nýju Dómhúsi, sem tekið var
í notkun í gær, bera allir íslendingar þá von í brjósti,
að vegur réttarins vaxi og afköst hans aukist.
ÞINGFLOKKUR
JAFNAÐARMANNA
ÞAÐ eru út af fyrir sig ekki stór tíðindi á þjóðmála-
vettvangi, þótt þingflokkar Alþýðuflokks og Þjóð-
vaka renni saman í „þingflokk jafnaðarmanna,“ sem
nú verður stærsti stjórnarandstöðuþingflokkurinn.
„Hver vegur að heiman er vegurinn heim,“ segir mál-
tækið, og klofningshópur úr Alþýðuflokknum er einfald-
lega kominn heim, eða í hlaðvarpa síns heima. I ljósi
sögunnar, sem endurtekur sig, samanber sögu Samtaka
frjálslyndra og vinstri manna og sögu Bandalags jafn-
aðarmanna, eru þetta eðlilegar málalyktir.
Það eru hins vegar ýmis veðurteikn á lofti stjórnar-
andstöðunnar í landinu, sem benda til þess að fleira
geti fylgt í kjölfarið. Alþýðubandalagið minnir með
hverju árinu sem líður æ meir á útkjálkasveit, sem er
að missa íbúa sína til búsetulegri byggðarlaga. Þau eru
ófá, sem fyrrum settu svip á Alþýðubandalagið, arftaka
Sósíalistaflokksins, sem á síðustu árum hafa gengið
til liðs við Alþýðuflokkinn og Þjóðvaka - eða helzt úr
lestinni með öðrum hætti. Nýjasta fréttin af þessum
vettvangi er að framkvæmdastjóri þess fram á þetta
ár hefur verið ráðinn til starfa fyrir hinn nýja þing-
flokk jafnaðarmanna.
Það er að vísu ekkert nýtt að „jarðhræringar" séu
á vinstri væng íslenzkra stjórnmála. í þeim hræringum
hafa í tímans rás risið fjöldi smáeyja, sem fljótlega
hafa sigið í sæ á nýjan leik. Sú saga sýnist vera að
endurtaka sig í Þjóðvaka. Það eru hins vegar tíðindi
til næsta bæjar, hve hratt fjarar undan Alþýðubanda-
laginu. Sú framvinda gæti fært hugsýnina um „samein-
ingu jafnaðarmanna“, sem í áratugi hefur verið meiri
í orði en á borði, inn á svið þess mögulega. En veldur
hver á heldur. Og trúlega þurfa oddvitar ýmissa vinstri
hópa að temja sér nýtt vinnulag, verða sameiningar-
vænni í raun og sannleika, áður en draumurinn rætist.
*
Hið nýja dómhús Hæstaréttar Islands við Arnarhól var afhent réttinum í gær
SJÁLFSTÆÐISMENN í HVERAGERÐI
LÖGMENN skoðuðu húsið að afhendingunni lokinni.
Hér eru þeir í smærri dómsalnum.
Þetta hús er tákn um það að þjóðin
telur að rétturinn hafi unnið til
traustsins.“
Húsið borgarprýði
Haraidur Henrysson, forseti
Hæstaréttar íslands, tók við dómhús-
inu fyrir hönd Hæstaréttar. Hann
sagði að sér væri fyrst og fremst
þakklæti í huga og ríkisstjórn og
Alþingi hefðu sýnt stórhug og sér-
stakan skilning á þörf fyrir skjótar
úrbætur með ákvörðun um fjárveit-
ingu til hússins á tímum þegar erfið-
leikar hefðu ríkt í efnahagsmálum
þjóðarinnar. Sagði hann að húsið
væri borgarprýði, sem myndi vekja
athygli þeirra sem heimsæktu höfuð-
borgina og verða miðkjarna hennar
til eflingar.
Haraldur sagði að þetta væri í
annað sinn í 76 ára sögu réttarins
sem hann flytti starfsemi sína milli
húsa. Rakti hann þá sögu í fáum
orðum og sagði að hið nýja hús breytti
allri starfsaðstöðu réttarins. Hefði
það mikla þýðingu fyrir starf hans
nú þegar gert væri sérstakt átak til
þess að stytta meðferðartíma mála
sem kæmu til Hæstaréttar.
„Umfram allt viljum við, sem nú
tökum við þessu glæsilega húsi fyrir
hönd Hæstaréttar og eigum að starfa
þar, líta á það sem tákn umhyggju
og virðingar þjóðarinnar fyrir því
hlutverki, sem Hæstarétti er ætlað
að gegna. Þjóðfélag okkar er reist á
þeirri grundvallarreglu að þar skuli
vera óháð og sjálfstætt dómsvald, það
sé ein af meginforsendum fyrir frelsi
og réttindum einstaklinganna. Á síð-
ustu árum hefur verið lögð aukin
áhersla á þetta, meðal annars í ný-
legri löggjöf um aðskilnað dómsvalds
og umboðsvalds í héraði og annarri
réttarfarslöggjöf. Með þessu nýja
dómhúsi fyrir æðsta handhafa dóms-
valdsins á sérstakri lóð hér við Arnar-
hól er þetta enn undirstrikað.“
Haraldur sagði að dómurum bæri
jafnan að leggja sig fram um að
tryggja rétta úrlausn mála samkvæmt
landslögum og gildandi rétti. Oft
fylgdu lögin ekki eftir þeim breyting-
um sem yrðu á þjóðfélaginu og þá
riði á að dómstólarnir löguðu sig að
breyttum aðstæðum, „gefi anda iag-
anna líf eftir réttarþörfum tímanna“
eins og Árni Tryggvason, fyrrum for-
seti Hæstaréttar, hefði orðað það.
„Þannig eru dómstólarnir í raun að
skapa rétt. Dómstólar eru og ekki
aðeins að dæma í málum þar sem
aðilar deila um Qárhagsmuni eða rétt-
indi, heldur dæma þeir oft um örlög
manna, ákveða J)eim refsingar og
önnur viðurlög. I umræðum heyrist
stundum að þeir beiti ekki sverði rétt-
lætisins af nægilegri hörku. Oft er
ekki hjá því komist að beita harðn-
eskju og vissulega ber dómstólum að
fylgjast vel með þróun afbrota og
bregðast við breyttum aðstæðum eins
og lög standa til. Jafnan ber þó dómur-
um að hafa í huga þau spaklegu orð
dómakapítula Jónsbókar, sem að hluta
eru greypt í hið fagra glerlistaverk
Leifs Breiðfjörð hér í þessum sal, þar
sem segir: „í öllum réttum dómum
eigu að vera, að guði líki en mönnum
hæfi. En það er miskunn og sannindi,
réttvísi og friðsemi. Miskunn á að
varast, að eigi komi heift eða grimmd
í dóma. Sannindi ber að geyma, að
eigi verði lygi fram borin. Réttvísi á
að varast, að eigi verði með rangindum
hallað réttum dómi. Friðsemi á að
varðveita þar til er réttur dómur fellur
á, að eigi verði með bræði ákafur áfell-
isdómur á lagður. .
Tákn um traust
HIÐ nýja dómhús Hæstaréttar íslands við Arnarhól. Morgunblaðið/Árm Sæborg
ÞORSTEINN Pálsson dóms-
málaráðherra í ræðustóli.
ÞORSTEINN Pálsson dóms-
málaráðherra afhenti
Hæstarétti íslands hið nýja
dómhús við Arnarhól við
formlega athöfn í gær að viðstöddum
forseta íslands, ráðherrum ríkis-
stjórnarinnar, dómurum, þingmönn-
um, hæstaréttarlögmönnum og fleir-
um. Haraldur Henrysson, forseti
Hæstaréttar, veitti húsinu móttöku
og færði fram þakkir réttarins.
Dómsmálaráðherra sagði í ræðu
sinni við þetta tækifæri að með hinu
nýja dómhúsi væri langþráður draum-
ur orðinn að myndarlegum veruleika.
Æðsti dómstóll landsins hefði ioksins
eignast sómasamlegt hús. „Þessi dag-
ur markar vissulega þáttaskil í sögu
dómstóla og réttarfars á íslandi.
Hæstiréttur Islands fær nú til umráða
hús sem þjónar vel því starfi sem þar
fer fram. Um leið er það góð um-
gjörð eða sýnilegt tákn um stöðu
dómsvaldsins í landinu. En á því er
full þörf í ljósi þess að dómsvaldið
er ein af þremur meginundirstöðum
stjórnskipunar íslands."
Dómsmálaráðherra rakti síðan
sögu Hæstaréttar og forvera hans
Landsyfirréttar sem settur var á fót
árið 1800 og hefði verið í reynd
æðsti dómstóll landsins, þar sem til
þess að gera fáum málum hefði ver-
ið skotið til Hæstaréttar í Dan-
mörku. Þá hefði verið gefið fyrirheit
um að dómhús yrði reist en það hefði
ekki orðið að veruleika og færi vel
á því að fyrirheitið skuli efnt áður
en full 200 ár séu liðin síðan það var
gefið.
Þorsteinn rakti síðan byggingar-
sögu hússins og sagði að fljótt og
vel hefði gengið að byggja það eftir
að ákvörðun var tekin þar um. Arki-
tektarnir Margrét Harðardóttir og
Steve Christer hefðu orðið hlutskörp-
ust í samkeppni um teikningar að
byggingunni. Þau markmið hefðu
verið sett að byggingin skyldi vera
sjálfstæð í formi sínu og allri gerð
og endurspegla þann virðuleika sem
hæfði starfsemi Hæstaréltar. Forð-
ast hefði átt að draga úr áhrifum
þeirra bygginga sem væru í næsta
nágrenni. Byggingin skyldi vera
vönduð að allri gerð en án óþarfa
íburðar. „Á mjög svo frumlegan og
óhefðbundinn hátt mættu arkitekt-
arnir þessum óskum. Og árangurinn
sjáum við hér í dag í þessu glæsilega
húsi. Það er í sjálfu sér listaverk sem
FORSETI íslands, herra Ólafur Ragnar Grimsson, skoðaði dómhúsið nýja að afhendingu þess lokinni í fylgd
með Haraldi Henryssyni, forseta Hæstaréttar, og arkitektum hússins Margréti Harðardóttur og Steve Christer.
að minni hyggju bæði styrkir og
bætir umhverfi sitt,“ sagði Þorsteinn.
Hann gerði kostnað við bygging-
una einnig að umijöllunarefni og
sagði að áætlað væri að kostnaður
yrði innan við það sem kostnaðaráætl-
un gerði ráð fyrir, sem væri 480 millj-
ónir króna, auk kostnaðar við lausar
innréttingar, tölvubúnað og annað
sem væri áætlaður 50 miiljónir. Þá
sagði hann að handbragð allt á hús-
inu bæri vott um vandvirkni og metn-
að og væri góður vitnisburður um
íslenskt handverk og íslenska hand-
verksmenn.
Hlutur Hæstaréttar mikill
Dómsmálaráðherra fjallaði síðan
um hlutverk dómstóla í þjóðfélaginu
og sagði að án sjálfstæðra og óháðra
dómstóla gæti lýðræðislegt réttarríki
ekki þrifist. Hlutur Hæstaréttar væri
því mikill því engin friður gæti hald-
ist í þjóðfélagi þar sem ekki væri
unnt að skera úr álitaefnum og þræt-
um sem upp kæmu. Síðan sagði ráð-
herra: „Alþingi setur landsmönnum
stjórnarskrá og lög. Það er ekki hlut-
verk Hæstaréttar. En á hinn bóginn
verður ekki framhjá því litið að Hæsti-
réttur hefur hlutverki að gegna við
mótun og þróun réttarins í landinu.
Þau grundvallarréttindi sem ákveð-
in eru í stjórnarskrá mótast eðlilega
í samræmi við breyttar aðstæður og
nýja hugsun eftir því sem tímar líða.
Það er hlutverk Hæstaréttar að varða
þennan veg í dómsúrlausnum sínum.
Það hefur einnig verið hlutverk
Hæstaréttar að móta þróunina í
mannréttindamálum á grundvelli
stjórnarskrár og mannréttindayfirlýs-
inga sem við erum aðilar að.
I ýmsum öðrum efnum hlýtur
Hæstiréttur að móta réttarþróun með
lagatúlkun. Þegar landsyfirrétturinn
var settur á fót á sínum tíma stóðu
til að mynda miklar deilur um mark-
mið og leiðir í refsirétti. Þá voru
umbyltingartímar og dómarar lands-
yfirréttarins tókust á um mildi og
dómhörku í refsimálum.
Refsirétturinn er eitt af þeim svið-
um þar sem dómstólar hljóta eðli
máls samkvæmt að móta í ríkum
mæli framkvæmdina á grundvelli al-
mennrar lagasetningar. Aðstæður í
nútímaþjóðfélagi kalla á virkari vörn
borgaranna gegn hvers konar árásum
á einstaklinga þar sem lífi og limum
er ógnað. Þó að þungir refsidómar
séu ekki allra meina bót í þeim efn-
um, er að minni hyggju ljóst að þyngri
refsingar eru nauðsynlegar í barátt-
unni fyrir því að veija einstaklingana
fyrir líkamlegu ofbeldi."
Ráðherra sagði ennfremur að á
þessum tímamótum í sögu réttarins
þegar hann fengi nýtt og sómasam-
legt húsnæði til afnota blöstu við fjöl-
mörg verkefni. Þau væru ekki ein-
vörðungu á sviði hefðbundinna úr-
lausna dómsmála, heldur væri einnig
það hlutverk að þróa íslenskan rétt í
samræmi við tíðarandann. „Það er
vandasamt hlutverk og ekki hlaupið
að því að gera breytingar, því að stöð-
ugleiki og festa í dómsúrlausnum er
mikilvægur þáttur í hlutverki Hæsta-
réttar. En nýr tími og nýjar aðstæður
kalla á þróun réttarins og það er von
mín að rétturinn taki kalli hins nýja
tíma þannig að refsingar á því sviði,
sem ég hef hér nefnt, verði virkari og
í samræmi við vitund og vilja fólksins
í landinu," sagði Þorsteinn.
Loks gerði ráðherra miklar umbæt-
ur á íslensku réttarkerfi á síðustu
árum að umtalsefni. Hann sagði að
dómhúsið væri ekki reist til þess að
múra inni staðnað réttarkerfi. „Það
er miklu fremur komið hér til sann-
indamerkis um einhveijar mestu
skipulagsbreytingar, sem gerðar hafa
verið á dómstólum, réttarfari og lög-
gæslu í landinu. Það er til vitnis um
grósku og skapandi starf í samræmi
við þarfir nýs tíma. Þetta hús, sem
við opnum hér í dag og afhendum
Hæstarétti, er tákn um það að þjóðin
vill standa dyggan vörð um löggæslu
og réttarfar í landinu. Þeir sem hér
starfa og munu starfa bera mikla
ábyrgð. Hæstiréttur verður á hveijum
tíma að njóta trúnaðar og trausts.
þjóðarinnar
FRÁ fundi sjálfstæðismanna í Hveragerði. Morgunbiaðið/RAX
Forystumálin
gerð upp fyrir
næstu kosningar
Sjálfstæðismenn í Hveragerði tókust á um
bæjarmálin á opnum fundi Sj álfstæðisfélags-
ins Ingóifs. A köfium var hart deilt en sátta-
hljóð jókst þe^ar leið á fundinn. Helgi Bjarna-
son fylgdist með umræðunum.
FJÖLMENNI var á opnum
félagsfundi um bæjarmál í
Hveragerði sem Sjálfstæð-
isfélagið Ingólfur boðaði til
í fyrrakvöld. Upp undir 70 sjálfstæð-
ismenn voru á fundinum. Tilefni
fundarins var að ræða stöðuna í
bæjarmálum vegna þess klofnings
sem nýlega varð í röðum bæjarfull-
trúa flokksins. í tengslum við
ákvarðanir um ráðningu í störf hú-
svarðar í grunnskólanum og af-
greiðslugjaldkera hjá bæjarfélaginu
kom upp á yfirborðið persónulegur
ágreiningur bæjarfulltrúa flokksins
sem leiddi til þess að upp úr sam-
starfi þeirra slitnaði en sjálfstæðis-
menn náðu sem kunnugt er hreinum
meirihluta í síðustu kosningum. Þrír
bæjarfulltrúarnir mynduðu nýjan
meirihluta með bæjarfulltrúum H-
listans þannig að í það stefndi að
Knútur Bruun oddviti sjálfstæðis-
manna og forseti bæjarstjórnar yrði
einn í minnihluta. Knútur sagði þá
af sér störfum í bæjarstjórn og vara-
maður hans gekk til liðs við meiri-
hlutann þannig að nú eru allir bæjar-
fulltrúar Hveragerðis saman í meiri-
hluta.
Ágreiningur um persónur
Knútur Bruun, fyrrverandi forseti
bæjarstjórnar, var fyrstur á mæ-
lendaskrá á sjálfstæðisfundinum.
Hann rifjaði það upp að fyrir rúmum
tveimur árum hefði sjálfstæðisfólk í
Hveragerði sýnt sér þann heiður að
leiða lista flokksins. „Kosningabar-
áttan skilaði okkur besta árangri
flokksins á landinu öllu, glæsilegum
kosningasigri." Sagði hann að meiri-
hluti sjálfstæðismanna hefði komið
mörgum góðum málum ti! leiðar og
dreifði upplýsingum um helstu verk-
efni og stöðu þeirra. „Því miður bár-
um við ekki gæfu til þess að standa
saman og með félögum okkar þegar
á reyndi," sagði Knútur.
„Enginn snýr hjóli tímans. Það
sem gert er verður ekki aftur tekið.
Ágreiningurinn snerist um persónur
og vinnubrögð en ekki málefni. Það
þjónar ekki hagsmunum okkar Hver-
gerðinga og þaðan af síður sjálfstæð-
ismanna að ýfa upp sárin og gera
meira úr þeim ágreiningi. Frekari
umræða mun engu breyta og einung-
is kæta pólitíska andstæðinga Sjálf-
stæðisflokksins. Af því er komið
meira en nóg. Það er von mín að
fulltrúum flokks okkar í bæjarstjórn
takist að leiða Hveragerði farsællega
inn í framtíðina og Sjálfstæðisflokk-
inn til þeirrar forystu sem honum
einum ber,“ sagði Knútur. Hann
sagðist hafa kosið að taka ekki frek-
ari þátt í störfum fundarins og vék
af fundi.
Langvarandi ágreiningur
Gísli Páll Pálsson, núverandi for-
seti bæjarstjórnar, ræddi ítarlega um
aðdraganda þeirra atburða sem til
umræðu voru. Tók hann undir orð
Knúts Bruun um glæsilegan kosn-
ingasigur og að meirihlutinn hefði
unnið mjög gott starf í upphafi kjör-
tímabilsins. Fljótlega hefði þó farið
að bera á ágreiningi innan meirihlut-
ans. Nefndi hann sem dæmi að Knút-
ur Bruun hefði með hótunum fengið
sig til að draga til baka þátttöku í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Suð-
urlandi fyrir síðustu alþingiskosning-
ar, vegna þess að hann hefði sjálfur
haft hug á að bjóða sig fram.
Fór Gísli Páll yfir samskipti sín
og Knúts vegna ráðningar húsvarðar
og afgreiðslufulltrúa. Lagði á það
áherslu að ekki hefði verið samstaða
í meirihlutanum um ráðningu þeirra
tveggja sjálfstæðismanna sem Knút-
ur Bruun lagði kapp á að fengju
stöðurnar. Sagðist hann að lokum
hafa ákveðið að mæla með því fólki
í stöðurnar sem stjórnendur á bæjar-
skrifstofum og í grunnskólanum ósk-
uðu eftir að ráða, þrátt fyrir yfirlýs-
ingar Knúts um samstarfsslit við sig
og bæjarstjórann ef það yrði gert.
„Þetta voru erfiðar ákvarðanir og
enginn vissi hvert framhaldið myndi
verða,“ sagði Gísli Páll.
Hann sagði að daginn eftir hefði
hann verið kallaður á fund nokkurra
forystumanna sjálstæðisfélagsins.
Þar hefði Bragi í Eden krafist þess
að hann viki úr bæjarstjórn í eitt ár
til þess að hægt yrði að leiðrétta
mistökin við húsvarðarráðninguna.
Sagðist hann hafa setið undir svívirð-
ingum manna úr þessum hópi og séð
að ekki þýddi að ræða málin frekar,
yfirgefið fundinn og skellt fast á
eftir sér.
Gísli Páll fór yfír aðdraganda þess
að þrír bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins hefðu í þessari stöðu geng-
ið til samstarfs við H-lista vinstri
manna. Tók hann það fram að sú
ákvörðun hefði verið afskaplega erf-
ið en lagði á það áherslu að að öðrum
kosti hefðu bæjarstjórinn og fjórir
af fimm efstu mönnum á lista Sjálf-
stæðisflokksins orðið að segja af sér
og Knútur Bruun einn ráðið bæjarfé-
laginu. Lýsti hann þeirri skoðun sinni
að myndun meirihlutans hefði orðið
til þess að Knútur sagði af sér, hann
hefði aldrei gert það að öðrum kosti.
Gísli Páll fór yfir málefnaskrá
nýja meirihlutans og sagði að með
henni væri hvergi vikið frá stefnu
Sjálfstæðisflokksins, hún væri nú
komin með uppáskrift H-listans.
Hann lýsti einnig stöðunni eftir
brotthvarf Knúts Bruun úr bæjar-
stjóminni og sagði að eitt brot H-list-
ans á samkomulaginu þýddi að meiri-
hlutinn væri fallinn og meirihluti
sjálfstæðismanna aftur einn við völd.
„Eg kvíði ekki framtíðinni í bæjar-
máíum,“ sagði Gísli Páll. Kvaðst
hann vona að sjálfstæðismenn bæru
gæfu til að komast að heillavænlegri
niðurstöðu í þessu máli og gætu
gengið samhentir til næstu kosninga.
Atburðarás
sett á svið
Að loknum ræðum fyrrverandi og
núverandi forystumanna Sjálfstæð-.
isflokksins í bæjarstjórn urðu langar
og á köflum harðar umræður um
málin. Bragi Einarsson í Eden sagð-
ist hafa farið fram á það að Gísli
viki því hann hefði talið heppilegra
að höggva á einn útlim en að taka
hausinn af. Gagnrýndi hann Gísla
Pál harkalega fyrir framgöngu hans
í málinu. Talaði um óheilindi og að
sett hafi verið á svið atburðarás til
að storka Knúti og koma honum út
úr bæjarmálunum. Samstarfið við
H-listann taldi hann á mörkum hins
löglega, allavega langt utan hins sið-
lega.
Fleiri fundarmenn lýstu megnri
óánægju með samstarfið við H-list-
ann og hvernig það bar að. Lýstu
því yfir að þeir treystu ekki sam-
starfsaðilanum. Aðrir lýstu yfir
stuðningi við bæjarfulltrúana. Held-
ur meira sáttahljóð var komið í menn
þegar leið á fundinn. Valdimar Haf-
steinsson sagði að staðan væri
óheppileg fyrir Sjálfstæðisflokkinn
og röð mistaka hefði ráðið því að
hún væri komin upp. Sagðist liann
virða ákvörðun bæjarfulltrúa flokks-
ins og að þeir þyrftu að standa og
falla með henni. Lagði hann áherslu
á að mannaráðningarnar skiptu engu
máli í þessari atburðarás heldur
hvernig ætti að standa að þeim.
Vakti hann athygli á því að fram-
kvæmdastjórar sæu um mannaráðn-
ingar í fyrirtækjum og stjórnarmenn
kæmu þar hvergi nærri. Hvatti
Valdimar sjálfstæðismenn til að
standa saman. Forystumálin yrðu
gerð upp fyrir næstu kosningar, von-
andi í prófkjöri.