Morgunblaðið - 06.09.1996, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.09.1996, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA JM**i0tntUbritffc 1996 FÖSTUDAGUR 6. SEPTEMBER BLAD HANDKNATTLEIKUR Víkingar lögðu Sel- fyssinga HANDKNATTLEIKSTÍMABILIÐ er að hefjast af fullum krafti þessa dagana og í gærkvöldi hófst Opna Reykjavíkurmótið með sjö leikj- um. Talsverðar breytingar hafa orðið á flestum liðunum síðan á síðustu leiktíð enda eru margir af fremstu handknattleiksmönnum landsins farnir í víking til útlanda og leika með erlendum félagslið- um. Reykjavíurmótið er leikið í fjórum riðlum, en 17 lið taka þátt í mótinu að þessu sinni. Það bar helst til tíðinda í gærkvöldi að Víkingar unnu Selfyssinga, 25:24, í A-riðli, en Víkingur leikur í ann- arri deild í vetur. Urslit annarra leikja í A-riðli urðu þau að Vals- menn, sem léku tvo leiki í gær- kvöldi, byijuðu á því að leggja Fylki, 24:19, oggerðu síðan 22:22 jafntefli við Fram. í B-riðli sigraði Aftureiding lið KR, 39:20, og KA vann ÍR, 31:28. FH vann lið HK, 22:19, í C-riðli og í sama riðli lagði Stjarnan lið Breiðabliks, 28:22. Reykjavíkurmótinu verður fram- haldið í kvöld með átta leikjum og á laugardag lýkur riðlakeppn- inni og úrslitaleikirnir verða á sunnudaginn. Á mynd Kristins Ingvarssonar má sjá einn af nýlið- um deildarinnar, Suk-hyung Lee, landsliðsmarkvörð Suður-Kóreu, en hann ver mark FH í vetur. Áhyggjuefni að kvennaliðin hætti ÓLAFUR Rafnsson, formaður körfuknattleiks- sambands íslands (KKÍ), segir það vissulega áhyggjuefni að liðum skuli fækka eins mikið og raun ber vitni í efstu deild, en (jóst er að a.m.k. þijú lið eru hætt við þátttöku í 1. deild kvenna, Tindastóll, ÍA og Valur og Breiðablik er að íhuga að draga lið sitt út úr keppni. „Það leggst ekki vel í okkur ef svona mörg lið hætta í efstu deild. Ég mun funda með Breiðabiiki i kvöld og ég trúi því ekki fyrr en ég tek á að Blikar verði ekki með lið,“ sagði Ólafur í gærkvöldi. Hann benti einnig á að þetta væri trúlega vandamál íþrótta- hreyfingarinnar í heild. „Það er svo margt í boði fyrir ungt fólk og kvennafþróttir virðast eiga undir högg að sækja enda er ekki beint mikil umfjöllun um þær í fjölmiðlum." Arnar stefnir á að vera með í lands- leikjum haustsins ARNAR Gunnlaugsson gerir ráð fyrir að byija að æfa með samheijum sínum í Sochaux í næstu viku en eins og fram hefur komið hefur landsliðs- maðurinn í knattspyrnu verið frá i sumar vegna meiðsla. Uppskurður og rannsókn í Þýskalandi siðsumars leiddu í Ijós „að vinstri hásinin var í fínu lagi,“ eins og hann orðaði það við Morgun- blaðið. Sochaux er efst í 2. deild frönsku knattspyrn- unnar með 13 stig eftir fimm umferðir. „Við erum með mjög gott lið,“ sagði Amar sem losnaði við gifsið fyrir þremur vikum og sagðist vera að styrkja sig áður en æfingar með félögunum tækju við. „Vonandi get ég byrjað að æfa með liðinu í næstu viku og ég stefni að því að vera með í landsleikjunum á móti Litháen, Rúmenfu og Skot- landi í haust.“ Hann bætti við að færi aUt í fyrra horf yrði hann að taka því rólega í vikur og jafn- vel mánuði. „Ég hugsa ekki um það en fari svo þýðir ekkert að væla og skæla.“ Djurgárden fékk sektog bann SÆNSKA fyrstu deildar félagið Djurgárden var i gær sektað um sem nemur einni milljón króna vegna óláta stuðningsmanna sinna þegar liðið lék við Gautaborg 26. ágúst. Liðinu var einnig gert að Ieika næsta heimaleik sinn fyrir luktum dyrum og verður það þegar Halmstad kemur í heimsókn 16. september. Fótboltabullur úr röðum stuðn- ingsmanna Djurgárden hentu öUu lauslegu inná völlinn f Gautaborg og rifu upp malbik á bUastæð- um eftir leikinn. Tveimur dögum síðar ákvað sljórn félagsins að ijúfa öll tengsl við stuðnings- menn og sögðust tUbúnir tU að láta liðið leika í neðri deild bættu stuðningsmenn ekki ráð sitt. KAPPAKSTUR Damon Hill út í kuldann Báðir Evrópu- leikir KA heima SAMNINGAR hafa tekist um að báðir leikir KA og sviss- neska liðsins Amiticia Zilrich frá Sviss i 1. umferð Evrópu- keppni bikarhafa í hand- knattleik fari fram á Akur- eyri. Samkvæmt drættinum átti fyrri leikurinn að fara fram á Akureyri 12. eða 13. október og seinni leikurinn í Sviss 19. eða 20. október en samið var um að leika á Akureyri 11. og 13. október. Breski kappakstursökumaður- inn Damon Hill ekur ekki fyrir Williams-liðið á næsta ári. Frank Williams keppnisstjóri liðsins, sem nýverið tryggði sér heimsmeistara- titilinn í Formula 1 kappakstri, hefur ákveðið að fá Þjóðveijann Heinz Harald Frentzen í sæti Hill. Kanadabúinn Jaques Villenuve verður áfram hjá Williams. Ákvörðun Williams er reiðarslag fyrir Hili sem hefur forystu í heimsmeistaramótinu þegar þijú mót eru eftir. Hill hefur þrettán stiga forskot á Villenuve fyrir loka- sprettinn. „Ég hefði haldið að keppnislið vildi halda þeim öku- manni sem hefur unnið sjö sigra á einu keppnistímabili og fært liðinu heimseistaratitil bílahönnuða. Framhaldið er óljóst, en nokkur lið hafa verið í sambandi við mig varð- andi næsta ár,“ sagði Hill um málið. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Williams losar sig við ökumann á heimsmælikvarða. Nelson Piquet, Nigel Mansell og Alain Prost voru allir nýkrýndir heimsmeistarar í kappakstri þegar þeir voru látnir fara. Williams hefur lengi gælt við að fá Frentzen í sínar raðir, en á árum áður keppti hann af hörku við Michael Schumacher á annars konar kappakstursbílum og hafði oft vinninginn. Schumacher gekk hinsvegar að eiga Corinu í fjöl- mennu brúðkaupi á þessu ári, en HILL var reklnn þrátt fyrlr aö vera efstur í Formula 1. hún var kærasta Frentzen á árum áður. Ef lýsing Mansell á samskiptum við Williamsliðið er marktæk, þá bíður ekkert gleðilíf hans. Mansell hefur m.a. sagt ; „Ég vann með Williams í sex ár og við náðum miklum árangri saman. En það virðist skipta litlu máli þegar kemur að mannlegu hliðinni. Ég átti von á því að Hill upplifði þessa hluti á sama hátt og ég og það hefur gerst.“ Jordan hefur sýnt Hill áhuga, sömuleiðis McLaren liðið og nýstofnað lið fyrrum heimsmeist- ara, Skotans Jackie Stewart. í dag hefur Hill tæpar tíu milljónir doll- ara í árslaun, rúmlega helmingi minna en Schumacher. ALÞJÓDARALLIÐ: FEÐGARNIR RÚNAR OG JÓN EIGA TITIL AÐ VERJA / C2,C3

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.