Morgunblaðið - 08.09.1996, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 1/9 - 7/9
► FYRSTU vísbendingar
um stærð þorskárgangsins
frá þessu ári eru að hann
verði undir meðailagi eða
lélegur. Skýringin á slakri
útkomu hrygningarþorsks-
ins í vor eru meðal annars
lítill hrygningarstofn og
stuttur hrygningartími.
Seiðavísitala loðnu er hins
vegar einhver sú hæsta
sem mælst hefur.
► FRAMKVÆMDIR við
stækkun álversins i
Straumsvík eru þremur
mánuðum á undan áætlun
og hefst framleiðsla í nýja
steypuskálanum í júlí 1997
í stað október eins og upp-
haflega var áætlað.
► MIÐSTJÓRN Alþýðu-
sambands Islands hefur
samþykkt að draga full-
trúa sina út úr opinberum
nefndum um landbúnaðar-
mál ef ekki næst jákvæður
árangur í starfi þeirra fyr-
ir lok nóvember.
► BÚIST er við að ríkis-
stjórnin muni á næstu vik-
um taka endanlega ákvörð-
un um saminingu Iðnlána-
sjóðs, Iðnþróunarsjóðs og
Fiskveiðasjóðs í einn fjár-
festingarbanka. í tengslum
við sameininguna er gert
ráð fyrir að setja á stofn
Nýsköpunarsjóð sem fengi
um 40% af eigin fé sjóðanna
þriggja til ráðstöfunar.
► HLÝINDI síðastliðinn
vetur og í sumar hafa gert
það að verkum að fannir i
Esjunni hafa horfið nánast
með öllu en það hefur ekki
átt sér stað síðan sumarið
1964.
► KJARADEILA ríkisins
og heimilislækna er enn
óleyst, en sáttafundir hjá
ríkissáttasemjara hafa haf-
ist á ný eftir viku hlé. Heim-
ilislæknar fengu eindregna
stuðningsyfirlýsingu á
aukaaðalfundi Læknafé-
lags Islands í vikunni.
Þingflokkar
sameinaðir
SAMKOMULAG hefur náðst milli við-
ræðunenfda þingflokka Alþýðuflokks
og Þjóðvaka um sameiningu þing-
flokkanna í haust og mun hann bera
nafnið Þingflokkur jafnaðarmanna.
Rannveig Guðmundsdóttir, þing-
flokksformaður Alþýðuflokks, verður
formaður hins nýja þingfiokks og
Svanfríður Jónasdóttir, þingflokks-
formaður Þjóðvaka, verður varafor-
maður.
Nýtt Dómhús
Hæstaréttar vígt
DÓMHÚS Hæstaréttar við Arnarhól
var vígt síðastliðinn fimmtudag, en
húsið gerbreytir allri aðstöðu réttar-
ins. Dómsaiir verða tveir og þingsalur
einn, og auk þess fá lögmenn sem
flytja mál fyrir Hæstarétti starfsað-
stöðu í húsinu. Við afhendingu húss-
ins sagði dómsmálaráðherra að
þyngri refsingar séu nauðsynlegar til
að verja einstaklinga fyrir líkamlegu
ofbeldi.
Bjartsýni eftir við-
ræður við Columbia
FINNUR Ingólfsson iðnaðarráðherra
segir að eftir fund fulltrúa iðnaðar-
ráðuneytisins og Landsvirkjunar í
New York með stjómendum Columbia
Ventures Corporation séu menn bjart-
sýnni en áður á að af byggingu álvers
Columbia hér á landi geti orðið. Við-
ræðum verður haldið áfram á næstu
vikum og ráðast ákvarðanir um bygg-
ingu álversins af niðurstöðum þeirra
viðræðna.
Nýtt leiðakerfi
veldur seinkunum
VAGNSTJÓRAR hjá Strætisvögnum
Reykjavíkur telja að nýtt leiðakerfi
valdi seinkunum og of miklu álagi á
vagnstjóra og því sé þörf á tafar-
lausri endurskoðun þess. Borgarstjóri
telur erfíðleikana tímabundna og enga
ástæðu til breytinga nú svo skömmu
eftir gildistöku nýja kerfísins.
Eldflaugaárás
álraka
BANDARÍKJAMENN skutu 27 stýri-
flaugum frá herskipum og sprengju-
flugvélum á hemaðarleg skotmörk í
suðurhluta íraks á þriðjudag. Fimm
manns féllu í árásinni og einn maður
í árás sem gerð var degi síðar. Voru
árásimar gerðar í kjölfar þess að ír-
aksher var sendur inn í héruð Kúrda
í norðri um helgina og réðst á borg-
ina Arbil, þar sem blóðug átök hafa
staðið á milli stríðandi fylkinga
Kúrda. Vesturveldin telja að með inn-
rás íraka hafi þeir brotið vopnahlés-
skilmála. Ríki heims tóku árásinni
misjafnlega, Bandaríkjamenn njóta
ekki einskorðaðs stuðnings banda-
manna sinna úr Persaflóastríðinu við
aðgerðirnar og var talað um brest í
samstöðu þeirra. Þá hafa Rússar for-
dæmt árásina. Öryggisráði Samein-
uðu þjóðanna hefur ekki tekist að
ná samkomulagi um ályktun vegna
málsins.
Jeltsín í
hjartaaðgerð
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti til-
kynnti á fimmtudag að hann hefði
fallist á að gangast undir hjartaupp-
skurð siðar i mánuðinum og batt þar
með enda á vangaveltur um heilsu
sína. Aðgerðin verður framkvæmd í
Moskvu. Við sama tækifæri tilkynnti
Jeltsín ennfremur að hann styddi frið-
arsamkomulag Alexanders Lebed við
Tsjetsjena, nema hvað varðaði tafar-
lausan brottflutning rússneska hers-
ins frá Tsjetsjníju.
► LÍK tveggja unglings-
stúlkna fundust á þriðju-
dag við hús dæmds barna-
nauðgara í Belgíu en
stúlknanna hafði verið leit-
að frá því að lík tveggja
átta ára stúlkna fundust
við annað hús í eigu hans.
Er nú öll von talin úti um
að finna fleiri fórnarlömb
mannsins á lífi.
►YASSER Arafat, leiðtogi
palestínsku sjálfsstjórnar-
innar, og Benjamin Net-
anyahu, forsætisráðherra
ísraels, hittust í fyrsta sinn
á miðvikudag. í lok fundar-
ins lofuðu leiðtogarnir að
beita sér fyrir friði og
sagði Arafat að fundurinn
hefði verið gagnlegur en
kvað deiluna um stöðu
Jerúsalem geta ráðið úr-
slitum um hvort tryggja
mætti varanlegan frið.
►BILL Clinton Banda-
ríkjaforseti hefur sam-
kvæmt síðustu skoðana-
könnunum um 15% forystu
á Bob Dole, forsetafram-
bjóðanda repúblikana.
Leiddi könnunin, sem Re-
uters gerði, í ljós forystu
forsetans á öllum sviðum
og í öllum landshlutum
Bandaríkjanna.
►PALESTÍNSKUR mað-
ur, sem rændi flugvél á
leið frá Súdan til Búlgaríu,
gafst upp, skömmu eftir
að vélin lenti í Ósló, að ósk
mannsins. Sótti hann um
pólitiskt hæli þar í landi.
FRÉTTIR
Stokkseyringar og Eyrbekkingar ræða sameiningn
Spamaður í yfirstjóm
dugar fyrir leikskóla
Morgunblaðið/RAX
ÞEIR Grétar Zophaníasson sveitarstjóri á Stokkseyri og Magnús
Karel Hannesson oddviti á Eyrarbakka ræða þessa dagana um
möguleika á saineiningu sveitarfélaganna tveggja.
HREPPSNEFNDIR Stokkseyrar og
Eyrarbakka hafa kosið sameigin-
lega nefnd til að kanna hagkvæmni
aukins samstarfs eða sameiningar
hreppanna. Áhugi er á því að fá
fleiri sveitarfélög á svæðinu til að
taka þátt í þessari vinnu.
í framhaldi af stóru sameiningart-
ilrauninni sem félagsmálaráðuneytið
stóð fyrir og felld var í öllum sveitar-
félögunum í Flóanum hófust umræð-
ur um sameiningu Eyrarbakka,
Stokkseyrar, Sándvíkurhrepps og
Selfoss. Ekkert varð úr því. Grétar
Zóphaníasson, sveitarstjóri á Stokks-
eyri, segir að umræðan hafí verið
tekin upp að nýju í hreppsnefndinni
í tengslum við fulla yfírtöku sveitar-
félaganna á grunnskólanum og
hugsanlega aukin verkefni sveitarfé-
laganna og samþykkt að óska eftir
viðræðum við Eyrbekkinga um
aukna samvinnu eða sameiningu.
Stærri sameining í Flóa?
Magnús Karel Hannesson, oddviti
á Eyrarbakka, bendir í þessu sam-
bandi á að sveitarstjómirnar hafí
áður náð samkomulagi um að fá
Rannsóknastofnun Kennaraháskóla
íslands til að gera úttekt á skólamál-
unum, þar á meðal hagkvæmni sam-
einingar þeirra.
Hreppsnefnd Eyrarbakkahrepps
tók jákvætt í erindi Stokkseyringa
en án allra skuldbindinga, að því
er fram kemur hjá Magnúsi Karel.
Hann segir að í samþykkt hrepps-
nefndar hafi verið lögð áhersla á
að fá fleiri sveitarfélög inn í viðræð-
urnar, fyrr eða síðar.
Eyrarbakki og Stokkseyri eru
svipuð sveitarfélög, bæði með lið-
lega 500 íbúa, svipaðar tekjur og
miklar skuldir vegna þátttöku í at-
vinnulífinu fyrr á árum. Grétar telur
að sameining yrði mjög til góðs fyr-
ir íbúana. Bendir hann á að ef það
tækist að spara 5-6 milljónir í yfír-
stjórn myndi það duga til reksturs
eins leikskóla.
Þess má geta að á næsta ári verð-
ur liðin öld frá því Eyrarbakka var
skipt út úr Stökkse.yrarhreppi og
hann gerður að sjálfstæðu sveitarfé-
lagi.
Veijandi Sierra Leóne-mannsins
RLR skortir gögn
TÓMAS Jónsson, veijandi Sierra
Leóne-manns sem Finnar vilja fá
framseldan héðan, segist hafa undir
höndum skjöl sem sanni að Finnar
hafí á sínum tíma neytt hann til að
fara úr landi.
*
Arekstur
á Biskups-
tungnabraut
ÁREKSTUR varð á Biskupstungna-
braut á móti versluninni Minni-Borg
um tíuleytið í gærmorgun. Ökumað-
ur annarrar bifreiðarinnar hugðist
beygja inn til verslunarinnar en á
sama tíma ætlaði hinn að taka fram
úr honum. Ökumennirnir voru báðir
fluttir á heilsugæslustöðina á Sel-
fossi en meiðsli þeirra voru ekki
talin alvarleg.
Jón H. Snorrason, starfandi rann-
sóknarlögreglustjóri, sagði í viðtali
við Morgunblaðið í gær, að staðhæf-
ingar Tó.masar í þessa veru væru
byggðar á misskilningi. Tómas telur
að Jón hafi ekki undir höndum öll
málsgögn. Ekki náðist í Jón í gær.
Tómas segir að í upphafi hafí
Finnar gefíð íslensku lögreglunni
misvísandi upplýsingar um málið.
Þegar hann hafí grennslast nánar
fyrir hafí Finnar viðurkennt í bréfí
að maðurinn hafi verið sendur nauð-
ugur úr landi.
Maðurinn hafði verið dæmdur í
skilorðsbundið fangelsi vegna
nauðgunar í undirrétti. Hann áfrýj-
aði dómnum en var, að sögn Tómas-
ar, sendur úr landi til Sierra Leóne
áður en nýr dómur féll. Sá var
harðari en hinn fyrri og telur Tóm-
as að hann beri þess vitni að maður-
inn hafi ekki getað sinnt málsvörn
sinni.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Hreindýra-
veiðar
ganga vel
HREINDÝRAVEIÐAR hafa geng-
ið vel það sem af er þessu veiði-
tímabili og er búið veiða um tvo
þriðju þess kvóta sem heimilt er
að veiða í ár, en hann er 268 dýr.
Veiðitímabilinu lýkur 15. sept-
ember, en það hófst 1. ágúst og
á sumum svæðum um miðjan ág-
ústmánuð.
Að sögn Aðalsteins Aðalsteins-
sonar, starfsmanns hreindýrar-
áðs, hefur veiðin gengið vel og
er langt komin umhverfis Snæ-
fell og á Fljótsdalsheiði norður
^fþví-Einnig er langt komið að
veiða á Borgarfirði til Norðfjarð-
ar, en veiðin hefur gengið heldur
hægar á suðurfjörðum.
A myndinni sést Hákon Er-
lendsson, við nýfelldan stóran
tarf og í baksýn má sjá fjallið
Þrælaháls á Fljótsdalsheiði.