Morgunblaðið - 08.09.1996, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1996 15
LISTIR
Ingveldur Ýr í Sigurjónssafni
Haugtussa Griegs og
Stúlkuljóð Brahms
Morgunblaðið/Ásdís
INGVELDUR Ýr Jónsdóttir ætlar meðal annars að syngja ljóðaflokkinn Haug-
tussa eftir Grieg og Arne Garborg í Sigurjónssafni á þriðjudagskvöld.
SÍÐUSTU sumartónleikar Listasafns Sigur-
jóns Ólafssonar verða þriðjudagskvöldið 10.
september klukkan 20.30 og fram koma þau
Ingveldur Ýr Jónsdóttir mezzósópran og
Jónas Ingimundarson píanóleikari. Þau
flytja sönglög eftir Franz Schubert, Johann-
es Brahms og Edvard Grieg. „Eftir Grieg
ætla ég að flytja verk sem ég komst nýlga
i kynni við en það heitir Haugtussa og er
samið við samnefndan Ijóðaflokk eftir
norska rómantíkerinn Arne Garborg. Mér
fannst þetta verk eins og sniðið fyrir mig
og ákvað að læra það allt en það er í átta
þáttum. Svo hef ég tekið saman flokk af
Stúlkuljóðum Brahms sem ég mun einnig
syngja ásamt nokkrum ljóðasöngvum eftir
Schubert."
Ingveldur Ýr er nýkomin frá Bandaríkjun-
um þar sem hún tók þátt í tónlistarhátíðinni
í Tanglewood í Masachusetts. „Þarna koma
saman margir frægustu tónlistarmenn
heims á ári hveiju,“ segir Ingveldur, „en á
hátíðina er einnig boðið yngri tónlistarmönn-
um til að reyna að brúa bilið þarna á milli.
Ég komst enda í ágætis sambönd þarna sem
er vissulega dýrmætt. Ár hvert býður hátíð-
in nokkrum ungum tónlistarmönnum til
Tanglewood í tvo mánuði og var ég einn
þeirra nú. Ég söng í uppfærslu á óperunni
Peter Grimes eftir Britten en það voru ein-
mitt fimmtiu ár liðin frá þvi hún var frum-
flutt á hátíðinni. Seiji Ozawa var stjórnandi
en hann stendur mjög framarlega í hópi
hljómsveitarstjóra; telja sumir hann vera
hálfgerðan snilling en hann stjórnaði óper-
unni blaðlaust. Mér var svo einnig boðið að
taka þátt í hátíð um nútímatónlist undir
handleiðslu Reinbert Teleuw. Þar söng ég
þjóðleg í útsetningu Lucciano Berio.“
Ingveldur Ýr stundaði nám við Söngskól-
ann í Reykjavík og framhaldsnám við Tón-
listarskólann í Vínarborg og Manhattan
School of Music í New York. Kennarar henn-
ar voru Guðmunda Elíasdóttir, Svanhvít
Egilsdóttir og Cynthia Hoffmann. Einnig
sótti hún námskeið m.a. hjá Charles Spenc-
er, Martin Katz og Phyllis Curtin. Ingveldur
Ýr hefur haldið fjölda ljóðatónleika, þar á
meðal í íslensku óperunni, Gerðubergi, í
Siguijónssafni, einnig í Vínarborg, víða í
Þýskalandi og Bandaríkjunum. í vetur sem
leið var Ingveldur fastráðin við Óperuna í
Lyon, þar sem hún söng m.a. hlutverk Dora-
bellu í Cosi fan Tutte, Orlovsky í Leðurblök-
unni, C-moll Messu Mozarts og Carmen.
Helstu hlutverk hennar á íslensku óperu-
sviði eru Olga í Évgení Ónegin í íslensku
óperunni, Fljóthildur og Valþrúður í Nifl-
ungahringnum á Listahátíð í Reykjavík árið
1994, og Preziosilla í óperu Verdis Á valdi
örlaganna.
Jónas Ingimundarson stundaði tónlist-
arnám í Tónlistarskólanum í Reykjavík og
framhaldsnám í Tónlistarskólanum í Vínar-
borg hjá prófessor Dr. Josef Dichler. Frá
árinu 1970 hefur Jónas starfað sem píanó-
leikari, tónlistarkennari og kórstjóri. Hann
hefur haldið Qölda tónleika á Islandi og
komið fram á öllum Norðurlöndum, í Sovét-
ríkjunum og Kanada, sem píanóleikari ýmist
einn eða með öðrum, einkum söngvurum,
og á árum áður einnig sem kórstjóri. Jónas
hefur oft leikið með Sinfóníuhljómsveit ís-
lands í verkum eftir Bach, Mozart, Beethov-
en, Liszt, Grieg, Saint-Saens og Brahms.
Hann hefur margoft leikið i útvarpi og sjón-
varpi og stjórnað tónlistarþáttum þar. Hann
hefur komið fram á alþjóðlegum listahátíð-
uny og leikið inn á hljómplötur.
Árið 1994 sæmdi forseti íslands Jónas
riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu fyr-
ir tónlistarstörf.
Sópran-
arnir þrír
ásvið
Los Angeles. Reuter.
MAÐURINN að baki hug-
myndinni um að leiða saman
þijá þekktustu tenóra heims;
Pavarotti, Carreras og Dom-
ingo, hefur nú kynnt til sög-
unnar næstu áætlun sína; tón-
leika sóprananna þriggja. Á
fimmtudag voru haldnir tón-
leikar þriggja sópransöng-
kvenna, sem fluttir verður í
sjónvarpi í desember og er
vonast til þess að þær muni
slá í gegn líkt og tenórarnir.
Cassello, Esperian og
Lawrence
Ekki er þó víst að sú verði
raunin, enda njóta söngkon-
urnar ekki viðlíka vinsælda
og tenórarnir. Þær heita
Kathleen Cassello, Kallen
Esperian og Cynthia Lawr-
ence en sá sem stendur að
tónleikunum er upptökustjór-
inn Tibor Rudas. Hann segir
tónleikana ekki eiga að vera
svar við tenórunum þremur,
heldur sé von hans sú að
skapa megi nýja hefð í tón-
listarflutningi.
Tónleikar sóprananna
þriggja voru á sviði skammt
frá Century Plaza-hótelinu í
Los Angeles og seldust miðar
á 25-100 dali, um 1.650-
6.700 kr. ísl. Gert er ráð fyr-
ir að þeir verði gefnir út á
geisladisk í október og sýndir
í sjónvarpi í desember.
NÝ 8 VIKNA FITUBRENNSLUNAMSKEIÐ
hefjast 18. september
Mikil fræðsla og gott aðhald. Matardagbók og uppskriftir.
Fitumælingar og vigtanir. Mæting 3x til 5x sinnum í viku.
íþróttakennarar með menntun og reynslu. Barnagæsla.
ÁTAKSNÁMSKEIÐ KARLA
og
MÖMMUTÍMAR
Fyrir barnshafandi konur og konur með barn á brjósti.
ALLAR UPPLÝSINGAR 0G INNRITUN í SÍMA 553 0000
Fellsmúla 24 108 Reykjavík Sími 553 5000
HEFST EFTIR
9
DAGA
HEIMSVIÐBURÐUR ^
í LAUGARDALSHÖLL
Alþjóðlega sjávarútvegssýningin 18.-21. sept.