Morgunblaðið - 08.09.1996, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 08.09.1996, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1996 33 hennar, Eiríkur, dó, 9. maí 1980, fluttist Óla aftur til Siglufjarðar og hefur dvalið í allmörg ár á Sjúkrahúsinu þar. Hún gekk til allra starfa sem til féllu og að- stæður leyfðu, hún var verkhög og verkmikil, og helgaði sig að mestu heimilinu enda æði mikið starf þar sem fjölskyldan stækk- aði ört. Óla var hjartahrein og glaðsinna og undi öllu sem til góðs horfði og mátti ekkert aumt sjá, án þess að gera sitt til að bæta þar úr. Hún var ósérhlífin og traustur vinur vina sinna. Óla var nett kona á velli, í meðallagi há, vel vaxin, dökk á hár. Á sínum yngri árum hafði hún yndi af að umgangast hesta og reyna kosti þeirra og var mjög iagin í þeirri íþrótt. Frá mínum barnsárum minnist ég vel þessarar fóstursystur, þeg- ar hún sat með mig í kjöltu sér og var að kenna mér að lesa, og hefur eflaust oft þurft að nota sitt góða skap og þolinmæði. Ég hef trúlega verið uppburðarlítill við fósturforeldra mína því ekki var það sjaldan að Óla var milli- göngumanneskja við þau ef mig langaði til að fara eitthvað eða gera, hún var minn bjargvættur æði oft. Ég minnist Ólu með miklum hlýhug og kveð hana með sökn- uði. Hún er síðust af kjarnafjöl- skyldunni í Tungu sem kveður og efast ég ekki um að hún hefur fengið góða móttöku í fyrirheitna landinu. Um leið og ég sendi ætt- ingjum hennar samúðarkveðjur, eru Ólu færðar þakkir fyrir öll góðu kynnin og óska ég henni Guðs blessunar. Farðu í friði. Þinn fósturbróðir, Guðmundur. 2 I 8 | I | 8 *ISfÉÉÖl#!0tf 8 <DaC{a ..ek£i Bara Bíóma6úðy Fersk blóm og skreytingar við öll tœkifœri Opið til kl.10 öll kvöld Persónuleg þjónusta Fákafeni 11, st'mi 568 9120 2 I 8 | 8 t Ástkær dóttir okkar, systir og barna- barn, INGA FANNEY KRISTINSSDÓTTIR, sem lést mánudaginn 26. ágúst sl. í Svíþjóð, verður jarðsungin frá Foss- vogskirkju þriðjudaginn 10. september kl. 15.00. Kristinn Valdemarsson, Guðlaug Ásta Ingólfsdóttir, Erla Gerður Matthíasdóttir, Garibaldi Þ. Einarsson, Steinunn Sif Kristinsdóttir, Margrét Einarsdóttir, Birgitta Dröfn Kristinsdóttir, Valdemar Gestur Kristinsson, Guðbjörg Óskarsdóttir, Petra Fanney Þórlindsdóttir. t Bróðir okkar og mágur, ÓLAFUR JÓHANNESSON frá Svínhóli, Hátúni 10A, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 10. september nk. kl. 13.30. Helgi Jóhannesson, Þóra Þorleifsdóttir, Jón Jóhannesson, Ragnheiður Jóhannesdóttir, Haraldur Sigfússon, Kristín Jóhannesdóttir, Ragnheiður Guðmundsdóttir. GeirZoega, Sigríður Zoéga, Helga Zoéga, Ingimar K. Sveinbjörnsson, barnabörn og fjölskyldur þeirra. Lokað Ráðningarþjónustan verður lokuð mánudaginn 9. september frá kl. 13.00 vegna jarðarfarar BALDVINS JÓNSSONAR, hæstaréttarlögmanns. Ráðningarþjónustan, Háaleitisbraut 58-60. t Öllum þeim sem heiðruðu minningu eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður og afa, ÞÓRÐAR GUÐMUNDSSONAR, Jökulgrunni 14, áður Langholtsvegi 137, Reykjavík, þökkum við vináttu og hlýhug við frá- fall og útför hans. Einstakar þakkir fyrir góða ummönnun færum við læknum og hjúkrunarfólki á deild A6 Sjúkrahúsi Reykja- vfkur í Fossvogi. ísgerður Kristjánsdóttir, Gunnar Ingi Þórðarson, Sigrún Þórðardóttir, Gunnar Hans Helgason, Ragnheiður G. Þórðardóttir, Björn Björnsson og barnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra JÓNASAR HALLGRÍMSSONAR vélvirkja, Skeiðarvogi 149. Sérstakar þakkir sendum við til starfs- fólks á deild 14 G, Landspítalanum, og til starfsfólks á öldrunardeild Landspít- alans, Hátúni 10a fyrir hlýhug og góða umönnum hins látna. Elín Steinunn Árnadóttir, Magnús Jónasson, Sigurbjörg Sigurðardóttir, Arngrímur Jónasson, Guðrún Björk Jónasdóttir, Halldór Jónasson, Hallfriður Jónasdóttir, Þórður Björnsson, Árdís Jónasdóttir, Hjörtur Sandholt, barnabörn og langafabarn. Marmari ♦ Granít ♦ Blágrýti ♦ Gabbró íslensk framleiðsla MOSAIK . t Faðir okkar, SÍMON JÓNSSON frá Nýrækt, Fljótum, Þingvailastræti 16, Akureyri, sem lést í Fjórðungssjúkrahúsi Akur- eyrar 1. september, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju mánudaginn 9. sept- ember kl. 13.30. María Símonardóttir, Kolbrún Si'monardóttir, Aðalsteinn Símonarson. t Ástkær eiginmaöur minn, faðir okkar og sonur, ÓTTAR HELGASON, Möðrufelli 11, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 11. septemberkl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Krabbameinsfélagið. Ásdfs Stefánsdóttir, Unnur Helga Óttarsdóttir, Valný Óttarsdóttir, Valný Bárðardóttir, Helgi Sæmundsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.