Morgunblaðið - 08.09.1996, Blaðsíða 34
34 SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1996
MININIINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
+ Baldvin Jóns-
son hæstarétt-
arlögmaður fædd-
ist í Reykjavík 10.
janúar 1911. Hann
lést í Reykjavík 1.
september síðast-
liðinn. Foreldrar
hans voru Jón
Baldvinsson prent-
ari, forseti ASI,
bankastjóri og al-
^ þingismaður, og
Júlíana Guðmunds-
dóttir húsfreyja.
Fyrri kona Bald-
vins var Guðrún
Gísladóttir og áttu þau þrjú
börn en síðari kona var Emilía
Ingibjörg Samúelsdóttir. Þá
átti Baldvin stjúpson.
Baldvin varð stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík
árið 1931 og lauk jprófi í lög-
fræði frá Háskóla Islands árið
1937. Hann öðlaðist réttindi
héraðsdómslögmanns árið
1940 og hæstaréttarlögmanns
árið 1954. Baldvin starfaði sem
fulltrúi hjá lögmanninum í
_4 Reykjavík á árunum 1937-
1940 og var um tíma fulltrúi
lögreglustjórans í Reykjavík.
Hann var lögfræðingur Búnað-
arbankans á árunum 1940—
1942. Hann rak eigin málflutn-
ingsstofu í Reykjavík frá árinu
1942 en í félagi við Reyni
Karlsson hdl. frá árinu 1985
þar til stofan var sameinuð
Það er kunn staðreynd að á upp-
vaxtarárum hvers einstaklings
%iótast hann mjög af því fólki sem
hann umgengst og ekki síst af
þeim fyrirmyndum sem hann velur
sér. Ég varð þeirrar gæfu aðnjót-
andi að þekkja og umgangast Bald-
vin Jónsson frá barnsaldri og hann
varð mér fyrirmynd um margt.
Baldvin tengdist fjölskyldu minni
á þeim tíma er ég sleit bamsskón-
um á Laugaveginum á sjötta ára-
tug aldarinnar. Hann kvæntist þá
ömmusystur minni Emilíu (Emmu)
Samúelsdóttur. Hún lést árið 1994.
Mikil og náin tengsl voru milli
systranna, ömmu minnar og
Emmu, og náðu þau góðu tengsl
einnig til afkomenda þeirra, þannig
að við lá að hægt væri að tala um
“eina stórfjölskyldu. Samgangur var
mikill og heimboð, formleg og
óformleg, voru mörg. Á þeim árum
virtist fólk hafa meiri tíma til slíks.
Okkur börnunum í fjölskyldunni
þótti strax mikið til Baldvins koma.
Hann var einstaklega barngóður
og naut sín ætíð best í návist smá-
fólksins að því er manni fannst.
Er fullorðna fólkið sat í stofu og
ræddi stjórnmál eða efnahagsmál
hélt Baldvin sig gjarnan hjá okkur
krökkunum, spjallaði við okkur,
spilaði eða tefldi.
Kímnigáfa Baldvins var rómuð.
Hann gat verið mjög stríðinn, en
þó aldrei á þann hátt að hann særði
neinn. Ótal sögur eru til af glettni
hans og tilsvörum og bera þær all-
ar vitni um nokkuð sérstætt en
mjög skemmtilegt skopskyn hans.
Leiðir okkar Baldvins áttu svo
áfram eftir að liggja saman á ýms-
um sviðum eftir að ég komst á
unglings- og síðan fullorðinsár auk
fjölskyldutengslanna, sem áður er
getið. Hann var formaður banka-
ráðs Landsbanka íslaiids, er ég
vann þar sem sendill í minni fyrstu
sumarvinnu. Þá kynntist ég hversu
mikillar virðingar og vinsælda
. .Baldvin naut þar á bæ. Baldvin
æfði og spilaði badminton stóran
hluta ævi sinnar eða vel fram yfir
áttrætt. í meira en aldarfjórðung
hittist hópur badmintonspilara á
hveiju sunnudagskvöldi í Vals-
heimilinu. Forvígismennþessa hóps
voru auk Baldvins þeir Ulfar Þórð-
arson augnlæknir, Tage faðir minn
r-og Kornelíus Jónsson úrsmiður.
lögmannsstofu Jón-
atans Sveinssonar
hrl. og Hróbjarts
Jónatanssonar hrl.
undir nafninu Al-
menna málflutn-
ingsstofan hf. Bald-
vin átti sæti í bank-
aráði Landsbank-
ans, fyrst sem vara-
maður, síðar að-
almaður og var
hann formaður
ráðsins frá 1959 til
ársloka 1972. Hann
var varamaður í
flugráði um árabil,
átti sæti í stjórn Sjúkrasamlags
Reykjavíkur og var formaður
stjórnar á árunum 1952-1978
og hann sat í fjárhagsráði á
árunum 1949-1953. Baldvin
átti sæti í miðstjórn Alþýðu-
flokksins og sat í fram-
kvæmdastjórn flokksins, þar
af var hann formaður í fjögur
ár. Hann var formaður Flug-
málaféiags íslands, átti sæti í
stjórn Sogsvirkjunar og í
stjórn Landsvirkjunar. Baldvin
var sæmdur gullmerki Flug-
málafélags íslands árið 1965,
riddarakrossi Hinnar íslensku
fálkaorðu árið 1970 og gull-
merki Flugbjörgunarsveit-
arinnar árið 1990.
Útför Baldvins fer fram frá
Dómkirkjunni á morgun,
mánudaginn 9. september, og
hefst athöfnin klukkan 15.
Mín fyrstu kynni af hinni göfugu
badmintoníþrótt voru með þessum
hópi og fengum við þeir yngri þar
góða kennslu og hvatningu frá
þeim eldri og reyndari en þarna
var þó leikgleðin höfð í öndvegi.
Baldvin var alltaf kallaður „foring-
inn“, enda stjórnaði hann niðurröð-
un á vellina af röggsemi.
Baldvin og Emma áttu sumarbú-
stað í Mosfellsdal, skammt frá sum-
arbústað fjölskyldu minnar. Sam-
gangur var þar að sjálfsögðu einn-
ig mikill á sumrin, einkum áður
fyrr er gjarnan var dvalið sumar-
langt í sveitinni. í báðum bústöðun-
um var tijárækt mikið stunduð og
þar eru fallegir skógarlundir. Það
var ætíð ánægjulegt að sækja Bald-
vin þar heim og spjalla við hann
um skógræktina.
Baldvin var mjög greindur mað-
ur og fróður. Hann gegndi fjölda-
mörgum trúnaðar- og embættis-
störfum eins og greint hefur verið
frá annars staðar. Hann gat notið
sín innan um ráðherra og þjóðar-
leiðtoga en leið ekki síður vel í
vinnugallanum við jarðræktarvinnu
í sumarbústaðnum sínum. Hann
var þar síðast nú í sumar og sem
fyrr óþreytandi við endurbætur og
gróðursetningu.
Fyrir hönd fjölskyldu minnar vil
ég kveðja góðan vin, sem verður
sárt saknað.
Páll Ammendrup.
Baldvin og Emilía voru áratug-
um saman ómissandi í félagsskap
jafnaðarmanna í Reykjavík. Hann
var alvörugefinn og íhugull en fróð-
ur og áhugasamur, þegar eftir var
leitað. Hún var glaðvær og gáska-
full, lífið og sálin í félagslífinu.
Hennar var sárt, saknað þegar hún
féll frá í október 1994. Það varð
Baldvini mikill missir. Ég þóttist
sjá það í fari frænda míns að hann
hafði misst gleði sína.
Alþýðuflokkurinn og Baldvin
Jónsson áttu lengi samleið. Hann
var sonur Jóns Baldvinssonar,
fyrsta formanns Alþýðuflokksins
og ástsælasta leiðtoga hans frá
öndverðu. Sú lífsreynsla að alast
upp á heimili stjórnmálamanns
nægir flestum til að forðast að feta
í þau fótspor. Þrátt fyrir laganám
og góða málflutningshæfileika lét
Baldvin sér nægja að leggja mál-
staðnum lið að tjaldabaki.
Alþýðuflokkurinn sýndi honum
mikinn trúnað og traust. Hann átti
sæti í miðstjórn flokksins í meira
en tvo áratugi og var um skeið
formaður framkvæmdastjórnar. Af
hálfu flokksins átti Baldvin sæti í
fjölmörgum opinberum nefndum og
ráðum. í stjórn Sjúkrasamlags
Reykjavíkur í 20 ár, í ríkiskatta-
nefnd í 27 ár, í bankaráði Lands-
bankans í 19 ár, í stjórn Landsvirkj-
unar í 22 ár og þar áður í stjórn
Sogsvirkjunar í áratug. í Lands-
kjörstjórn átti hann sæti frá 1978.
Jón Baldvinsson stofnaði á sínum
tíma Alþýðubrauðgerðina, til að
tryggja alþýðuheimilum Reykjavík-
ur ódýrt brauð á kreppuárunum.
Baldvin sýslaði um þær eignir sein-
ustu áratugina.
Ævistarf Baldvins Jónssonar var
lögmannsstarfið. Hann var sjálf-
stætt starfandi lögmaður í Reykja-
vík í 56 ár. Nú er þeim málflutn-
ingi lokið. F.h. Álþýðuflokksins
þakka ég Baldvini fyrir málflutning
í þágu góðs málstaðar og flyt af-
komendum hans öllum samúðar-
kveðjur.
Jón Baldvin Hannibalsson,
formaður Alþýðuflokksins.
Kveðja frá Landsbanka
Islands
Eins og að líkum lætur hefir
Landsbanki íslands haft á að skipa
í bankaráði sínu um meira en aldar-
skeið ýmsum af fremstu mönnum
þjóðarinnar í stjórnmálum og at-
vinnumálum. Formennsku í banka-
ráði Landsbankans hafa ýmsir af
þekktustu þjóðmálaskörungum
gegnt, svo sem Einar Olgeirsson
og Lúðvík Jósepsson og í ráðinu
um lengri og skemmri tíma setið
menn á borð við Ólaf Thors og
Jónas Jónsson frá Hriflu.
Sá maður, sem lengsta setu mun
hafa átt í bankaráði Landsbanka
íslands er genginn fyrir ætternis-
stapann, Baldvin Jónsson, lögmað-
ur. Hann átti sæti í bankaráðinu í
hartnær aldarfjórðung, eða frá árs-
byijun 1952, allar götur til ársloka
1976, þar af sem formaður banka-
ráðsins frá 21. september 1959 til
31. desember 1972. Landsbankinn
á því nú á bak að sjá manni mikill-
ar sögu í bankanum, og farsællar
um málefni hans.
Sá sem hér heldur á stuttum rit-
stíl átti þess ekki kost að starfa
með Baldvini að málefnum bank-
ans, en kynntist við hann síðar og
fann þá hversu annt honum var
um bankann og bar velferð hans
fyrir bijósti. Samstarfsmenn Bald-
vins í bankanum lýsa honum sem
liprum samningamanni, yfirlætis-
lausum og vinföstum. Það kann að
vera að dýpri spor hafi aðrir stigið
í sögu Landsbankans en Baldvin
Jónsson, en auðveldlega má rekja
slóð hans, sem vörðuð er góðvild í
garð viðskiptavina og umhyggju
fyrir starfsfólki bankans.
Baldvin Jónsson er kvaddur af
Landsbanka íslands með virðingu
og þökk.
Sverrir Hermannsson.
Baldvin Jónsson lögmaður var
einn hornsteina þeirra sem flug
okkar íslendinga var reist á. Hann
var einn af hollvinum flugsins og
vildi veg þess ætíð sem mestan,
hvort sem um var að ræða atvinnu-
starfsemi eða áhugamennsku.
Baldvin fékk snemma áhuga á
flugi, lét sig flugmál mikið varða
og fylgdist grannt með þróun og
framgangi þeirra bæði hér og er-
lendis. Það sem dró hann mest að
því var, að hann vildi auka öryggi
þess sem mest. Hann var gætinn
maður og flanaði ekki að neinu.
Því var það mikils vert að hann var
skipaður í flugráð við stofnun þess
í júlí 1947, en þar sat hann um
langt árabil og hæfileikar hans
nýttust vel.
Baldvin var einn stofnenda Flug-
málafélags íslands og forseti þess
í 8 ár og hann var sæmdur gull-
merki félagsins árið 1965. Baldvin
var einnig einn stofnenda Flug-
björgunarsveitarinnar og hann
stjórnaði aðalfundum sveitarinnar
allt fram til ársins 1995. Baldvin
var heiðursfélagi sveitarinnar og
hann var sæmdur gullmerki hennar
árið 1990.
Baldvin Jónsson tók einliðaflug-
próf árið 1946 og síðan einkaflug-
próf, sem hann hélt í gildi fram
undir 1960. Árið 1946 keyptu Bald-
vin og þrír félagar hans, sem allir
voru áhugamenn um flug og flug-
mál, eina af fyrstu einkaflugvélun-
um sem skráðar voru hér á landi
og hún bar upphafsstafi þeirra fé-
laga, TF-BLÚ. Þetta var tveggja
sæta og opin flugvél af gerðinni
Miles Magister, sem þeir keyptu
af Reading-flugskólanum í Bret-
landi, en þar hafði einmitt Úlfar
Þórðarson, einn þeirra félaganna,
lært flug árið 1932. Það voru glað-
ir og reifir ungir menn sem þar
svifu um loftin blá með hvítan tref-
il um hálsinn á flugvél sinni sem
reyndist hið mesta happafley. Bald-
vin rak lögmannsstofu í Reykjavík
í fjölda ára og sinnti ótal trúnaðar-
störfum, bæði opinberum og á öðr-
um sviðum. Þeirra starfa verður
vafalaust minnst af öðrum sem þar
þekkja betur til. Það er mjög merki-
legt að maður eins og hann, önnum
kafinn í óskyldum málum svo sem
stjórnmálavafstri, lögfræðistörfum
og bankamálum, skógrækt og land-
vernd, skuli hafa gefið sér tíma til
þess að sinna fluginu eins vel og
hann gerði á langri ævi. Auk fjölda
trúnaðarstarfa í stjórnmálaflokki
sínum og öðrum félögum sem hann
starfaði í, var Baldvin mikill áhuga-
og framkvæmdamaður á sviði
skógræktar og heftingu uppfoks
og um landgræðslu.
Það er kunnugt, að erlendir
menn sem höfðu samskipti við
Baldvin svo sem í bankamálum,
mátu hann umfram aðra, þó fyrst
og fremst vegna mannkosta hans.
Baldvins verður lengi minnst sem
drengskaparmanns.
Baldvin hafði mjög vítt sjónsvið
og naut sín á mörgum sviðum.
Baldvin var n\jög hæglátur maður.
Hann hafði græskulausa kímnigáfu
sem vinir hans, sem nú hafa misst
einn sinn besta félaga, nutu i ríkum
mæli. Að leiðarlokum vilja sam-
starfsmenn fyrr og síðar hjá Flug-
málastjórninni með þessum orðum
votta fjölskyldu Baldvins dýpstu
hluttekningu og samúð við þennan
mikla missi sem þau hafa orðið
fyrir. __
Úlfar Þórðarson,
Skúli Jón Sigurðarson.
Það mun hafa verið rétt fyrir
áramótin 1982/1983 sem undirrit-
aður kynntist Baldvini Jónssyni.
Undanfari þess var sá að ég hafði
löngun til þess að leggja fyrir mig
lögmennsku, þá 26 ára nýút-
skrifaður lögfræðingur. Renndi ég
nokkuð blint í sjóinn en ákvað að
ganga á milli lögmannsstofa og
leita fyrir mér um möguleika á
starfí. Meðal þeirra fyrstu sem ég
talaði við, var Baldvin, sem þá rak
lögfræðistofu að Kirkjutorgi 6.
Tók hann mér strax vel og bauð
mér aðstöðu á skrifstofu sinni. Ég
mætti „praktisera" sjálfur og
greiða leigu með því að inna fáein
verk af hendi fyrir hann. Þóttu
mér það ágæt skipti. Sjálfur hafði
hann á þessum tíma nokkuð dreg-
ið úr lögfræðistörfum, en seta
hans S stjórn Landsvirkjunar og
áhugamál því tengd, áttu hug hans
allan.
Smám saman þróaðist samband
okkar í ágæta vináttu og frekara
samstarf með auknum verkefnum.
Fór svo að á árinu 1985 stofnuðum
við formlega Lögmannsstofu Bald-
vins og Reynis sf., en Baldvin var
þá orðinn 74 ára gamall. Var eng-
an bilbug á honum að finna og
starfsþrekið þá að mestu óskert.
Fann ég lítið fyrir aldursmuninum
enda var Baldvin í mínum huga
aldrei „gamalmenni“ þrátt fyrir
háan aldur og fylgdist ávallt vel
með. Þá var honum lagið að gera
BALDVIN
JÓNSSON
engan mannamun, hvort sem í hlut
áttu börn eða fullorðnir, háir eða
lágir.
Vegna aukinna verkefna ákváð-
um við að flytja starfsemina og fór
svo að árið 1989 keyptum við hús-
næði að Háaleitisbraut 58-60.
Hafði ég á tilfínningunni að Bald-
vin hefði í raun aldrei verið sáttur
við þá ráðstöfun. Hann saknaði
gamla miðbæjarins þar sem hann
hafði unnið meira og minna við
lögfræðistörf í nálægt hálfa öld.
Árið 1992 ákváðum við að sam-
eina lögmannsstofu okkar lög-
mannsstofu feðganna Jónatans
Sveinssonar og Hróbjartar Jónat-
anssonar. Í félagi við þá stofnuðum
við Almennu málflutningsstofuna
hf. Fyrsta starfsár félagsins tók
Baldvin fullan þátt í störfum þess,
en dró sig síðan út úr því. Síðustu
árin sinnti hann eigin hugðarefnum
auk þess sem hann vann við að
ljúka ýmsum málum frá löngum
lögmannsferli.
Svo krefjandi sem lögmannsstörf
eru, má sæta furðu að Baldvin
skyldi endast í þeim svo lengi sem
raun ber vitni. Virðist hafa búið í
honum ótrúleg orka og honum ver-
ið einstaklega lagið að fást við þau
störf. Við sem unnum með honum
búum að reynslu hans og vináttu.
Fyrir það ber að þakka.
Fyrir mína hönd og annarra eig-
enda og starfsfólks Almennu mál-
flutningsstofunnar, sendi ég börn-
um hans og öðrum ættingjum inni-
legar samúðarkveðjur.
Reynir Karlsson.
Baldvin var persónugervingur
Alþýðuflokksins. Hann var alinn
upp í honum, baráttunni, hugsjón-
unum, sigrum og ósigrum. Faðir
hans var einn af stofnendum
flokksins og fyrsti formaður. Hver
einasti alþýðuflokksmaður var hluti
af Baldvini, gat leitað til hans,
þegið ráð og styrk. Baldvin var
einn fórnfúsasti maður sem ég hef
kynnst.
Seinni kona Baldvins var Emilía
heitin Samúelsdóttir, sem lengi
vann á Alþýðublaðinu, stjórnaði
skemmtinefnd Alþýðuflokksfélags-
ins og varð svo formaður félagsins.
Saman voru þau gleði og skjól allra
alþýðuflokksmanna.
Hvað sem bjátaði á var hringt í
Emilíu eða Baldvin og þau lögðu á
ráðin. „Hann Baldvin bjargar
þessu," var viðkvæðið hjá Emilíu.
Hversu margir voru þeir ekki sem
stigu sin fyrstu spor í einkafjármál-
unum undir traustri leiðsögn Bald-
vins? Hversu margir voru þeir einn-
ig ekki sem hann tók í hönd sér
til atvinnu og bjargálna?
Baldvin var jafnan formaður
nefndanefndar Alþýðuflokksins á
þingum hans og þar voru oft lögð
fyrstu drög að farsæld ákvarðana,
stefnumótun og þátttöku í stjórn
lands- og sveitarfélaga. Einstakl-
ingar skipta nefnilega máli í stjórn-
málum, þótt hugsjónin sé ein. Bald-
vin var sérstaklega mannglöggur
og skynjaði hæfileika manna á ör-
skotsstundu.
Miklir einstaklingar breyta um-
hverfi sínu. Baldvin hafði þá hæfi-
leika að öllum leið vel í návist hans.
Hann hafði stórkostlega kímnigáfu
og stundum brotnuðu brotsjóir
æsinga og tilfinninga svo gersam-
lega niður í ekki neitt við eitt til-
svar frá honum að eftirminnilegt
er. Hin uppveðraða persóna líka
miklu glaðari að vera orðin róleg
heldur en með öll þessi læti. Þá
brosti Baldvin því hann hafði sér-
stakan unað af því að létta fólki
byrðarnar.
Sem strákur í Alþýðuflokknum
naut ég strax Baldvins og Emilíu.
Ævinlega stóðum við saman gegn-
um þykkt og þunnt. Ég finn fyrir
sárum missi og svo er um marga
flokksmenn. Ég votta börnum
Baldvins, fóstursyni, fjölskyldunni
allri, ættingjum og vinum mína
dýpstu samúð. Sá algóði Guð, sem
blés mannkyninu von, gleði og
kærleika í hjarta veiti nú Baldvini
mínum sinn frið.
Guðlaugur Tryggvi Karlsson.