Morgunblaðið - 08.09.1996, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1996 41
BRÉF TIL BLAÐSINS
Haustfatnaður frá Líbra
Ný sending af haustfatnaði frá
Lfbra í mörgum litum
Jakkar, pils, buxur, blússur,
kjólar og frakkar.
Opið í dag sunnudag frá kl. 13 -17
[Ftíflarion
Reykjavíkurvegi 64 • Hafnarfirði • Sími 565 1147
Fimleikar
Innritun hefst d morgun 9. september, í
íþróttamiðstöðinniÁsgarði, milli kl 16.00 og 18.00.
Allar upplýsingar eru veittar í símum 565-1940 og 565-75Ö2
milli kl 19.30 og 21.00 í dag og næstu daga.
Einelti á ekki
að umbera
Innritað verður í eftirtalda hópa:
• Leikhópur, börn þriggja til fimm ára
• Almennir fimleikar
• Trompfimleikar
• Nýtt Trompfimleikar drengja.
Sumarbúðasaga
Frá Ingibjörgu Gísladóttur:
EINU sinni var blóm. Það var stórt
og miklu faliegra en blómin í kring.
Hin blómin urðu öfundsjúk og
þrengdu að rótum þess svo það
fengi ekki vætu eða næringu.
Strákurinn sem átti blómið reyndi
að hjáipa því og vökvaði það oft
en vondu blómin klipptu þá sundur
á því ræturnar. Fallega blómið var
að deyja en áður en það dó kastaði
það frá sér laufblaði sem óx og
varð að fallegustu og gróskumestu
jurt sem menn höfðu séð og hún
skyggði á vondu blómin svo þau
visnuðu og dóu.
Þessa sögðu sagði strákurinn
minn mér nokkrum dögum eftir að
hann kom heim úr sumarbúðum.
„Tveir strákar voru alltaf að stríða
mér og hinir hlógu. Ég kvartaði við
mennina en það gerðist ekki neitt,“
sagði hann.
Að fara í sumarbúðir á að vera
skemmtilegt og þroskandi. Guttan-
um mínum fannst að vísu stundum
skemmtilegt en hann langar altént
ekki aftur. Þetta er enn sárara af
því hann er bæði seinþroska og
misþroska og hefur ekki sömu
möguleika og aðrir til að veija sig,
munnlega eða líkamlega. Ég varaði
forstöðumanninn við því að þetta
gæti gerst en þrátt fyrir að drengur-
inn kvartaði sjálfur ítrekað (sem
fórnarlömb eineltis gera sjaldan)
var ekki tekið á málunum.
Ég geri mér ljóst að það er erf-
itt að halda uppi stjórn í stórum
strákahópi (eða stelpu-) en einelti
tel ég að sé það mikið alvörumál
að grípa þurfi til róttækra ráðstaf-
ana þar sem það kemur upp, klapp
á öxlina og „þetta er Ijótt strákar
mínir“ dugar skammt.
Rannsóknir sýna að einelti skerð-
ir sjálfstraust þolanda og langvar-
andi einelti veldur varanlegum
skaða svo hæfileikar einstaklings-
ins nýtast e.t.v. aldrei sem skyldi.
Sjálfsmorð eru alls ekki óþekkt
meðal þolenda og margir þeirra sem
hringja í símaþjónustu Rauða kross-
ins í slíkum hugleiðingum hafa orð-
ið fyrir einelti.
Gerendurnir eru síst betur stadd-
ir, þeir lenda oft í útistöðum við
kerfið seinna meir og í norskri rann-
sókn kom í ljós að 35-40% geranda
í 6.-9. bekk voru komin vel á veg
á síbrotabrautinni (3 dómar eða fl.)
fyrir 24 ára aldur. íhugum hvernig
sjálfsmynd sá ungi maður eða kona
hafi sem hefur verið leyft að eyða
barnæsku sinni við að pína og kvelja
aðra. Lykillinn að’því að skilja þessa
óásættanlegu hegðun tel ég vera
orðið vanræksla. Foreldrar sem
hafa vanrækt börn sín tilfinninga-
lega, vanrækt að kenna þeim rétt
siðferðislegt gildismat og vanrækt
að beita þau jákvæðri ögun. Sú litla
ögun sem sum börn fá er oft í formi
grimmilegs ofbeldis, andlegs sem
líkamlegs, og þess vegna finnst
þeim allt í lagi að beita aðra ofbeldi.
Mér finnst að starfsfólk sumar-
búða (þetta er jú hugsjónastarf, er
það ekki?) ætti að taka þessum
börnum fagnandi og setja í gang
sérstakt hjálparátak þeim til bjarg-
ar. Það gæti birst í formi sérhæfðs
starfsmanns sem hefði umsjón með
þeim á dvalartíma, passaði upp á
að þau hegðuðu sér eins og börn
eiga að gera og reyndi síðan að
viðhalda sambandinu með tilboðum
um þátttöku í félagsstarfi.
Ef ekki er aðstaða í sumarbúðun-
um, vegna t.d. skorts á starfsfólki
eða aðstöðu til að taka á málum
þessara barna, ætti að senda þau
heim en ekki leyfa þeim að eyði-
leggja ánægjuna fyrir hinum. Fólk
er jú ekki að borga fyrir að láta
kvelja barnið sitt.
Þessi saga mín er ekkert eins-
dæmi og þau tilfelli eflaust marg-
falt fleiri sem aldrei er sagt frá,
EINELTI getur valdið varanleg-
um skaða á þeim sem verður
fyrir þvi.
því börnin skammast sín fyrir að
hafa verið niðurlægð og langar
ekkert til að rifja upp hvað var
sagt og gert við þau. Ég vil hvetja
foreldra til að ræða um einelti við
börn sín, segja þeim að þegja ekki
heldur kvarta hástöfum ef þau
verða fyrir slíku og koma til varnar
ef þau sjá einhvern tekinn fyrir.
Það á aldrei að umbera einelti
hvar svo sem það kemur upp. Þeir
sem bera ábyrgð á umsjá barna
verða að rækta með sér hugrekki
og dug til að taka á slíkum málum
með festu en ekki leyfa börnunum
að skaða bæði sjálf sig og aðra.
INGIBJÖRG GÍSLADÓTTIR,
Flétturima 21, Reykjavík.
Fimleikadeild Stjörnunar
OPIÐ I DAG I KRINGLUNNI
FRÁKL.13TIL17
HERRADEILD:
Ný meiriháttar sending frá
VAN GILS - CHARLY'S -
OBVIOUS -
ALL SAINTS OG LOAF
ART skórnir komnir.
Nýir ullar-úlpujakkar.
Nýjar KRONK peysur
frá 3.900,-
Nýjar buxur frá 3.900,-
DICKIES buxur frá 2.900,-
Skyrtur frá 3.500,-
Meiriháttar nýjar
haustvörur frá
TOI DU MOND -
FRANKY - KOOKAI -
STICKY FINGERS -
CLAUDEZANA -
MODELLI
AMAZING gallabuxur 4.900
FRANKY teygjubuxur 3.900
FRANKY skyrtur 3.900
MEIRIHÁTTAR nýjar úlpur.
Nokkrar gerðir. Verð 6.900,- til 7.900,-
TARK teygjubuxur og leðurlíkisbuxur
koma aftur næsta föstudag.
SKODEILD:
Meiriháttar nýir skór frá DESTROY •
BRONX - SHELLY'S - SONAX -
NO BOX - NEW ROCK
ART skórnir komnir.
Kringlan, s. 568 9017.