Morgunblaðið - 15.09.1996, Side 1
KÚBA
í EINA tíð var Kúba rómuð ferðamanna-
paradís. Eftir byltingu Castros
breyttist margt, þar á meðal
minnkaði snarlega ásókn ferða-
manna til þessarar fögru og gróð-
ursælu eyju í Karíbahafinu. Eftir
hrun Sovétríkjanna þurfti að leita
leiða til að bæta efnahagsástandið
og þótti aukin ferðaþjónusta vænlegur
kostur. Undanfarin ár hefur Kúba óðum
verið að endurheimta paradísarorðsporið.
ISLENDING-
AR í SPÉ-
SPEGLI
lorjjnmMíilöifo
SUNNUDAGUR15. SEPTEMBER1996 BLAÐ C
A SIÐASTA ARIKOM
ÚT LÍTILL ferðabækl-
ingur, The Xenophobe’s
Guide to the Icelanders.
Þar gerir höfundurinn,
sem er breskur, ós-
part grín að íslend-
ingum og kynlegum
háttum þeirra.
Stærsta sjávarútvegssýning sem haldin hefur verið á íslandi í Laugardalshöll 18-21 september
Útlit fyrir
metaisókn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
FRÁ Sjávarútvegssýningunni 1993. Dieter Simon í bás skipasmíða-
stöðvarinnar í Stralsund en fyrirtækið smiðaði svonefnda „tappatog-
ara“ fyrir íslendinga á sjötta áratugnum.
„ALLT stefnir í að „íslenska sjávar-
útvegssýningin 1996“ verði stærsta
sjávarútvegssýning sem haldin hefur
verið á íslandi, bæði hvað varðar
þátttakendafjölda og umfang," segir
Ellen Ingvadóttur upplýsingafulltrúi
sýningarinnar.
Ellen segir að um 700 innlend og
erlend fyrirtæki muni taka þátt í
sýningunni, sem haldin verður
18.-21. september, og að hún verði
20% umfangsmeiri en sýningin sem
haldin var fyrir þremur árum.
„Öll hótel og gistiheimili í Reykja-
vík og nágrenni munu vera fullbókuð
yfir sýningardagana og einnig er
mikið af bókunum í gistirými sem
einkaheimili veita ferðamönnum."
Ellen segir að ekki sé unnt að
svara því hvað margir útlendingar
komi til landsins, „en með tilliti til
ástandsins á hótelmarkaðnum á
umræddum tíma eru teikn á lofti um
að þátttaka útlendinga verði meiri
en nokkru sinni."
Gestakoma í. heild á sýninguna
sem haldin var fyrir þremur árum
var yfir tólf þúsund manns. „Að sjálf-
sögðu standa vonir til að aðsóknin
muni sprengja af sér öll bönd á sama
hátt og sýningin sjálf hefur gert.“
Ellen segir _að auðvitað sé þetta
góð kynning á íslandi, bæði sem landi
til að heimsækja og landi sem getur
haldið sýningar af þessu tagi.
Rððstefnur og sýnlngar utan
háannatíma mjög mlkllvægar
„Allar sýningar, ráðstefnur og
fundir, sérstaklega utan háannatíma,
eru okkur geysilega mikilvægar,"
segir Magnús Oddsson ferðamála-
stjóri. Hann segir að hægt sé að
nota þumalputtareglu um meðal-
eyðslu erlendra gesta á sýningum
og ráðstefnum, sem byggist á könn-
unum sem framkvæmdar hafi verið
hér á landi.
„Ef miðað er við að fjöldi erlendra
gesta verði um 2.500 ætti það að
skila íslendingum gjaldeyristekjum
upp á 300 til 400 milljónir. Þá er
ég eingöngu að tala um það sem
þeir skilja eftir sem ferðamenn.
Við þá tölu bætast tekjur af því
að leigja út sýningarpláss í Laugar-
dalshöll, sölu á þjónustu við að setja
upp bása o.fl. þannig að við gætum
verið að tala um veltu upp á hálfan
milljarð vegna þátttöku erlendra
gesta. Það er fyrir utan þær tekjur
sem sýningin sjálf færir íslendingum.
Það er annar handleggur." Magnús
segir að í síðustu viku hafi verið
haldin 600 manna ferðakaupstefna
á Akureyri,west Norden, þannig að
í septembermánuði einum hafi verið
haldnir tveir stórir viðburðir með
hundruðum erlendra gesta, sem sé
ómetanlegt fyrir ferðaþjónustuna. ■
Gömul föt
á uppboði
► í ÞESSUM mánuði stendur
uppboðsfyrirtækið Christie í
London fyrir sýningu og uppboði
á alls kyns tískufatnaði frá árun-
um 1955-1980. Á sjöunda áratugn-
um kom tískuhönnuðurinn Mary
Quant fram á sjónarsviðið með
fatnað, sem höfðaði til svokallaðr-
ar bítlakynslóðar; kynslóðarinnar
sem vildi vera „öðruvísi". Meðal
merkra gripa má nefna gegnsæ
karrígul og rauð stígvél með
merki Quants hvort á sínum hæln-
um.
Þetta er í þriðja sinn sem
Christie heldur uppboð af þessu
tagi, eða svokallað götutískuupp-
boð. Þar má finna nýstárlegan
fatnað eftir ekki ómerkari hönn-
uði en Pierre Cardin, Vivienne
Westwood og Jean Muir. Búist er
við að 50-5.000 pund, eða ígildi
fimm þúsund til hálfrar milljónar
íslenskra króna, fáist fyrir ein-
staka flik. Áhugasamir geta skoð-
að fatnaðinn i uppboðshúsi
Christie’s, 85 Old Brompton Road,
South Kensington, London SW7,
dagana 23. og 24. september frá
kl. 9-19.30. Uppboðið hefst 24.
september kl. 14. ®
Feröaskrifstofan Ratvís
Til Dublin frá sex
kaupstöðum og
Reykjavík
í HAUST býður Ferðaskrifstofan Ratvís beint
leiguflug til Dublin á írlandi frá ísafirði,
Patreksfirði, Vestmannaeyjum, Egilsstöðum,
Akureyri, Sauðárkróki og Reykjavíkurflug-
velli.
í boði eru annars vegar þriggja daga helg-
arferðir frá fimmtudegi til sunnudags og hins
vegar ferðir í miðri viku frá sunnudegi til
fimmtudags. Fyrsta ferðin er 10. október frá
ísafirði. Flogið verður með 80 sæta BAe 146
flugvélum írska flugfélagsins Cityjet, sem
valið var fiugfélag ársins í Bretlandi og ír-
landi 1994/1995.
Farþegar Ratvís fá afsiáttarmiða á vöru
og þjónustu frá írskum ferðamálayfirvöldum
og þeim verður boðið upp á ýmsar skoðunar-
og skemmtiferðir. Sem dæmi um verð kostar
ferð frá ísafirði, Patreksfirði, Sauðárkróki,
Akureyri og Egilsstöðum 35.910 kr. miðað
við staðgreiðslu. Innifalið er flug, gisting í
þijár nætur eða fjórar í miðri viku, akstur
til og frá flugvelli og íslensk fararstjórn.
Sex milljónir til
að kynna
Hornafjörð
Á FÖSTUDAG undirrituðu fulltrúar Jökla-
ferða, Austurleiða, Hótel Hafnar, Flugleiða
og bæjarstjórnar Hornafjarðar samning um
samstarf til næstu þriggja ára um markmið-
ið að fjölga verulega gestum tii Hornafjarðar
á vorin og haustin. Einnig var Gísli Sverrir
Árnason, forseti bæjarstjórnar, ráðinn til að
hafa umsjón með verkefninu.
Sex milljónum verður varið til þessa verk-
efnis á þremur árum, en það er nýjung að
fyrirtæki taki höndum saman á þennan hátt,
að sögn talsmanna átaksins. Hópurinn sem
höfða á til eru íslensk félög sem boðið er að
halda fundi, ráðstefnur, árshátíðir og fleira
á hagstæðum kjörum. En einnig verður höfð-
að til félaga á öðrum Norðurlöndum til að
halda ráðstefnur á Hornafirði.
Af þessu tilefni stóðu ofangreind fyrirtæki
að kynningu á föstudag undir kjörorðinu:
Morgunblaðið/Golli
UNDIRRITUNIN. Talið frá vinstri; Árni
Stefánsson hótelstjóri Hótel Hafnar,
Tryggvi Árnason framkvæmdastjóri
Jöklaferða, Sturlaugur Þorsteinsson bæj-
arsljóri Hornafjarðar, Páll Halldórsson
Flugleiðum og Garðar Óskarsson fram-
kvæmdastjóri Austurleiðar.
„Hornafjörður vor og haust“ í Sunnusal Hót-
el Sögu fyrir fjölda gesta, forsvarsmenn fyrir-
tækja og opinberra stofnana.