Morgunblaðið - 18.09.1996, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR18. SEPTEMBER1996 E 21
FRÉTTIR
Hekla hf. kynnir nýja vélaútfærslu fyrir skip og heildarlausnir fyrir vélarrúm
HEKLA HF. kynnir á sjávarútvegs-
sýningunni í Laugardalshöll grunn-
vélabúnað fyrir skip og heildar-
lausnir fyrir vélarrúm. Þá verður
kynnt ný útfærsla á hinum þraut-
reyndu CAT 3500 vélum, CAT
3500B, þar sem eldri hönnun 3500
vélanna er tekin til talsverðra end-
urbóta sem auka eiga áreiðanleika
vélanna, minnka mengun og draga
úr eldsneytisnotkun.
Endurbæturnar koma fyrst og
fremst fram í nýrri hönnun elds-
neytiskerfisins. Eldsneytiskerfi
CAT 3500B er vélrænt knúið, en
stýring innsprautunar, bæði hvað
varðar magn, tímasetningu og
ganghraða er rafeindastýrð með
nýrri gerð rafeindagangráðs, Cat-
erpillar ADEM II.
Minna hitatap og aukin nýtni
Strokkslífum 3500B vélarinnar
er komið fyrir á hefðbundinn hátt
í vélarblokkinni, án útsnörunar fyr-
ir kragann. Utan um kragann, á
milli blokkarinnar og strokkloksins
kemur milliplata úr áli. Vélinni er
síðan lokað með strokkloki úr grá-
járnssteypu. Fjórir lokar eru við
hvern strokk og ferskloftgrein og
afgasgrein eru sömu megin á innan-
Eykur áreiðanleika
og minnkar mengun
verðu strokklokinu. Stimplar eru
tveggja hluta; efri hlutinn úr stáli,
sem gefur aukinn styrkleika, en sá
neðri er úr áli, sem er léttara og
efnislega að miklu leyti ótengdur
þeim neðri, þannig að hann gengur
kaldari og leyfir þar af leiðandi
þrengri og ísetningarmál sem
minnkar gangskelli þegar vélin er
að hitna. Efsti stimpilhringur er
ofar á stimplinum en i eldri gerð
vélanna og minnkar þannig óvirkt
rúmtak og ný lögun stimpilloksins
leiðir af sér betri þyrlun og bruna,
sem minnkar hitatap og eykur
þannig nýtni vélarinnar.
Rafeindastýrð eldsneytiskerfi
Eldsneytisdæla og spíss vélarinn-
ar eru sambyggð, svokallaður dælu-
spíss og knúinn af þriðja kambinum
á kambásnum en innsprautun er
stýrt af rafeindastjórneiningu,
ADEM II. Innsprautunarþrýstingur
hefur verið aukinn um 20% frá því
sem var í eldri gerðum CAT 3500
og hefur kambás vélarinnar verið
styrktur ásamt vippuarmi dælu-
spíssins.
ADEM II rafeindagangráðurinn
fær upplýsingar frá þar til gerðum
skynjurum um starfsemi vélarinnar
og nánasta umhverfi, m.a. um
hraða vélarinnar og viðmiðunar-
stöðu fyrir hvern strokk, kælivatns-
hita og hæðarstöðu kælivatns,
sveifarhússþrýsting, eldsneytis- og
smurolíuþrýsting fyrir og eftir síur,
þrýsting við inntak beggja for-
þjappa, skolloftþrýsting og hita,
ásamt ýmsu öðru.
Ef vélin þjónar sem aðalvél í skipi,
eru tvær ADEM II stjómeiningar
tengdar vélinni, þar sem önnur þeirra
þjónar sem varaeining og tekur við
ef hin bilar. Mælaborð og viðvörunar-
kerfí vélarinnar fá einnig upplýsingar
frá ADEM II einingunni.
Nýtt eftirlitskerfi
Þá kynnir Hekla hf. nýtt eftirlits-
kerfi fyrir skip frá Caterpillar. Kerf-
ið fylgist með ástandi vélarinnar á
öllum sviðum og er stjórnstöð kerf-
isins í brú skipsins en auk þess má
setja upp allt að sjö mælaborð víðs-
vegar um skipið, ef á þarf að halda.
Enn fremur býður kerfið upp á
tengingu við gervitungl og geta
útgerðir þannig fylgst náið með
staðsetningu og ástandi skipanna
frá landi.
HELSTU upplýsingar um CAT 3500B: Fjöldi strokka: 8, 12 eða 16. STJÓRNSTÖÐ nýs eftirlitkerfis frá Caterpillar.
Borvídd: 170 mm. Slaglengd: 190 mm. Rúmtak: 4,31 lítrar á strokk.
Þjöppunarhlutfall: 13:1. Þyngd: 5.200-8.030 kg
NETAGERÐIN INGÓLFUR
INGVAR & ARI ehf.
Sýnum það nýjasta í veiðarfæragerð
Kynnum DYNEEMA ofurefnið,
veiðarfæra efni fram tíðarinn ar.
Alhliða víra- og veiðarfæraverkstæði
Framleiðum og önnumst viðhald á
flestum tegundum veiðarfæra.
Fulltrúar frá eftirtöldum fyrirtækjum
verða í bás okkar.
Vírar, keðjur, lásar og krókar frá
viðurkenndum framleiðendum.
BRIOOIM ROPES vírar
mmmuwÆir
Grosuy keðjur, lásar, krókar o.fl
4 ScanRope vírar
" . V-’G -y ***** *■*
immrnm
Netagerðin ingolrur
Söjuskrif5tofa R
Simi 567 02
iMtjœ
I
&
■4-
m,
Veríð velkömin í bas
sem víd höfum upp á að bjóða