Morgunblaðið - 18.09.1996, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR18. SBPTEMBER1996 E 23
FRÉTTIR
i Frárennslismengun
rækjuverksmiðja lítil
MENGUN af völdum frárennslis frá
rækjuverksmiðjum á Vestfjörðum
er ekki mikil ef marka má rannsókn
| Gunnars Torfasonar, nemanda í
i sjávarútvegfræði við Háskólann á
® Akureyri. Gunnar hefur í sumar
| unnið við verkefnið „Umhverfismál
fyrirtækja" og kannað virkni meng-
unarvarna vegna frárennslis frá
fyrirtækjum í rækjuvinnslu á Vest-
fjörðum. Verkefnið er styrkt af
Nýsköpunarsjóði námsmanna.
Hertar reglur
Reglur varðandi mengun frá fyr-
| irtækjum hafa verið hertar og fyrir-
tæki leita lausna til að uppfylla ný
I skilyrði. Búast má við að hreinni
framleiðslutækni verði mikilvægari
hluti af starfsemi matvælafyrir-
tækja þar sem kaupendur horfa
ekki einungis á heilnæmi vörunnar,
heldur einnig á að framleiðsla henn-
ar skaði ekki umhverfið.
Rækjuafli á íslandsmiðum hefur
farið vaxandi síðustu ár. Heildar-
rækjuaflinn varð tæp 76 þúsund
tonn árið 1995 en var tæp 73 þús-
und tonn 1994. Vestfirðingar hafa
Ilöngum verið frumkvöðlar í veiðum
og vinnslu og árlega hafa verið
unnin um 30% af heildarrækjuafla-
num á „Stór-ísafjarðarsvæðinu“.
Virkni síubúnaðar
könnuð
Gunnar segir að í viðleitni sinni
til að halda umhverfinu sem mest
. í upprunalegu horfi hafi forsvars-
menn rækjuverksmiðja verið að
setja upp síubúnað á undanförnum
■ árum til að fjarlægja rækjuskel úr
* frárennsli. Virkni þess búnaðar sem
notaður er hafi ekki verið að fullu
kunnur og af þeim sökum hafi
Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða farið
af stað með verkefni sem kannaði
virknina. Að sögn Gunnars stóð til
að kanna virkni síuútbúnaðar hjá
fimm fyrirtækjum á ísafirði og ná-
• grenni; Frosta hf. í Súðavík, Bása-
felli hf. og Rit hf. á ísafirði, Bakka
j hf. í Hnífsdal og Bakka Bolungar-
vík hf., en vegna sumarlokana hjá
Rit hf. reyndist ekki unnt að skoða
hverfissíuna þar og hjá Frosta hf.
urðu tafir á uppsetningu hreinsun-
arbúnaðar en búnaðurinn er kominn
til Súðavíkur og bíður uppsetningar.
Mæld var súrefnisþörf fráveitu-
vatns í frárennsli rækjuverksmiðj-
anna. Ákvarðað var rúmmál og
þyngd botnfallanlegra og óbotnfall-
anlegra efna og fundið út heildar-
þurrefnismagn. Einnig var magn
lífrænna efna í frárennslinu athug-
að. Fyrrgreindar mælingar voru
gerðar fyrir og eftir síun til að finna
út hvaða áhrif síun hefði á fyrr-
greinda þætti.
75% hrelnsunargeta
Helstu niðurstöður mælinganna
að sögn Gunnars eru á þá leið að
einföld hallandi sía með fjögurra
millímetra járnneti sem er í notkun
hjá Básafelli hf., hreinsaði um 50%
af heildarþurrefni frárennslisins.
Hallandi sía með 1,2 millímetra á
milli rimla í Bakka hf. hreinsaði 70%
af heildarþurrefni en færiband með
3x4 millímetra gatasíu sem notuð
er í Bakka Bolungarvík hreinsaði
best af þeim síum sem skoðaðar
voru, eða um 73%.
Gunnar segir að verkefnið meti
virkni lausna og komið verði með
tillögur til úrbóta. Þá verði metnar
þær ráðstafanir sem rækjuverk-
smiðjur hafi gert til að minnka frá-
rennslismengun. Niðurstöðurnar
nýtist til að endurmeta og endur-
bæta mengunarvarnir.
1.000 tonnáári
Gná hf. á Bolungarvík hefur frá
árinu 1994 þurrkað og malað
rækjuhratið sem fellur til við hreins-
un en fram að því var hratið að
mestu urðað. Elías Jónatansson,
framkvæmdastjóri Gnáar, segir að
þegar síunarbúnaðurinn hjá Frosta
hf. á Súðavík komist í gagnið sé
reiknað með um 1.000 tonna mjöl-
framleiðslu á ári. Hann segir að
mjölið sé einkum selt til Noregs þar
sem það sé notað í blöndun á fiska-
fóðri.
Öryggi
framar ölíu
í útgerð og fiskvinnslu er mikilvægt að
allur búnaður, tæki og vélar séu í góðu
lagi. Vandaðar vörur ásamt lipurri
þjónustu tryggja ekki aðeins öryggi þeirra
sem vinna við þær, heldur skapa
fyrirtækjum ómetanlegt rekstraröryggi.
Hátæknibúnaðúr
FLYGT,
Slógdælur
# LOWARA
Þrýstiaukadælur,
miðflóttaafls- og
brunndælur
mu88
Dælur
INTERROLL f
joKi
Færibandabúnaður
ESÁB
Allt til rafsuöu
Héðinn verslun hefur þjónað íslenskum sjávarútvegi
í áratugi með heimsþekktum gæðavörum, tryggum lager
og öruggri þjónustu sem byggist á mikilli reynslu og
þekkingu tœknimanna. Þér er óhætt að treysta því að
þeir leggja sig alla fram um að veita þér faglega ráðgjöf
hvenær sem þú þarft á henni að halda.
Velkommn í sýningarstúku okkarnr. E39 á Sjávarútvegs-
sýningunni í Laugardalshöll.
Þar kynnum við NESSIE, bvltinsarkennda nviune í
Danfoss vökvabúnaði sem hefur mikla þýðingu fyrir
matvælaiðnaðinn í heiminum.
= HÉOINN ==
VERSLUN
SELJAVEGI 2 SÍMI 562 4260