Morgunblaðið - 18.09.1996, Page 23

Morgunblaðið - 18.09.1996, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR18. SBPTEMBER1996 E 23 FRÉTTIR i Frárennslismengun rækjuverksmiðja lítil MENGUN af völdum frárennslis frá rækjuverksmiðjum á Vestfjörðum er ekki mikil ef marka má rannsókn | Gunnars Torfasonar, nemanda í i sjávarútvegfræði við Háskólann á ® Akureyri. Gunnar hefur í sumar | unnið við verkefnið „Umhverfismál fyrirtækja" og kannað virkni meng- unarvarna vegna frárennslis frá fyrirtækjum í rækjuvinnslu á Vest- fjörðum. Verkefnið er styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna. Hertar reglur Reglur varðandi mengun frá fyr- | irtækjum hafa verið hertar og fyrir- tæki leita lausna til að uppfylla ný I skilyrði. Búast má við að hreinni framleiðslutækni verði mikilvægari hluti af starfsemi matvælafyrir- tækja þar sem kaupendur horfa ekki einungis á heilnæmi vörunnar, heldur einnig á að framleiðsla henn- ar skaði ekki umhverfið. Rækjuafli á íslandsmiðum hefur farið vaxandi síðustu ár. Heildar- rækjuaflinn varð tæp 76 þúsund tonn árið 1995 en var tæp 73 þús- und tonn 1994. Vestfirðingar hafa Ilöngum verið frumkvöðlar í veiðum og vinnslu og árlega hafa verið unnin um 30% af heildarrækjuafla- num á „Stór-ísafjarðarsvæðinu“. Virkni síubúnaðar könnuð Gunnar segir að í viðleitni sinni til að halda umhverfinu sem mest . í upprunalegu horfi hafi forsvars- menn rækjuverksmiðja verið að setja upp síubúnað á undanförnum ■ árum til að fjarlægja rækjuskel úr * frárennsli. Virkni þess búnaðar sem notaður er hafi ekki verið að fullu kunnur og af þeim sökum hafi Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða farið af stað með verkefni sem kannaði virknina. Að sögn Gunnars stóð til að kanna virkni síuútbúnaðar hjá fimm fyrirtækjum á ísafirði og ná- • grenni; Frosta hf. í Súðavík, Bása- felli hf. og Rit hf. á ísafirði, Bakka j hf. í Hnífsdal og Bakka Bolungar- vík hf., en vegna sumarlokana hjá Rit hf. reyndist ekki unnt að skoða hverfissíuna þar og hjá Frosta hf. urðu tafir á uppsetningu hreinsun- arbúnaðar en búnaðurinn er kominn til Súðavíkur og bíður uppsetningar. Mæld var súrefnisþörf fráveitu- vatns í frárennsli rækjuverksmiðj- anna. Ákvarðað var rúmmál og þyngd botnfallanlegra og óbotnfall- anlegra efna og fundið út heildar- þurrefnismagn. Einnig var magn lífrænna efna í frárennslinu athug- að. Fyrrgreindar mælingar voru gerðar fyrir og eftir síun til að finna út hvaða áhrif síun hefði á fyrr- greinda þætti. 75% hrelnsunargeta Helstu niðurstöður mælinganna að sögn Gunnars eru á þá leið að einföld hallandi sía með fjögurra millímetra járnneti sem er í notkun hjá Básafelli hf., hreinsaði um 50% af heildarþurrefni frárennslisins. Hallandi sía með 1,2 millímetra á milli rimla í Bakka hf. hreinsaði 70% af heildarþurrefni en færiband með 3x4 millímetra gatasíu sem notuð er í Bakka Bolungarvík hreinsaði best af þeim síum sem skoðaðar voru, eða um 73%. Gunnar segir að verkefnið meti virkni lausna og komið verði með tillögur til úrbóta. Þá verði metnar þær ráðstafanir sem rækjuverk- smiðjur hafi gert til að minnka frá- rennslismengun. Niðurstöðurnar nýtist til að endurmeta og endur- bæta mengunarvarnir. 1.000 tonnáári Gná hf. á Bolungarvík hefur frá árinu 1994 þurrkað og malað rækjuhratið sem fellur til við hreins- un en fram að því var hratið að mestu urðað. Elías Jónatansson, framkvæmdastjóri Gnáar, segir að þegar síunarbúnaðurinn hjá Frosta hf. á Súðavík komist í gagnið sé reiknað með um 1.000 tonna mjöl- framleiðslu á ári. Hann segir að mjölið sé einkum selt til Noregs þar sem það sé notað í blöndun á fiska- fóðri. Öryggi framar ölíu í útgerð og fiskvinnslu er mikilvægt að allur búnaður, tæki og vélar séu í góðu lagi. Vandaðar vörur ásamt lipurri þjónustu tryggja ekki aðeins öryggi þeirra sem vinna við þær, heldur skapa fyrirtækjum ómetanlegt rekstraröryggi. Hátæknibúnaðúr FLYGT, Slógdælur # LOWARA Þrýstiaukadælur, miðflóttaafls- og brunndælur mu88 Dælur INTERROLL f joKi Færibandabúnaður ESÁB Allt til rafsuöu Héðinn verslun hefur þjónað íslenskum sjávarútvegi í áratugi með heimsþekktum gæðavörum, tryggum lager og öruggri þjónustu sem byggist á mikilli reynslu og þekkingu tœknimanna. Þér er óhætt að treysta því að þeir leggja sig alla fram um að veita þér faglega ráðgjöf hvenær sem þú þarft á henni að halda. Velkommn í sýningarstúku okkarnr. E39 á Sjávarútvegs- sýningunni í Laugardalshöll. Þar kynnum við NESSIE, bvltinsarkennda nviune í Danfoss vökvabúnaði sem hefur mikla þýðingu fyrir matvælaiðnaðinn í heiminum. = HÉOINN == VERSLUN SELJAVEGI 2 SÍMI 562 4260

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.