Morgunblaðið - 18.09.1996, Qupperneq 26
26 E MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÞEIR hjá Haftækni ætla að kynna nýjan stafrænan gyro-
kompás á sjávarútvegssýningunni í Laugardalhöll í næstu
viku í sýningarbás þeirra sem hannaður er á Akureyri. Frá
vinstri er Kristinn Daníelsson, Baldvin Björnsson, Sigurður
Baldvinsson og Sævar O. Sigurðsson.
Haftækni kynnir
nýjan stafrænan
„gyro-kompás“
Samhæfðir flutningar
bæði á sjó og á landi
^^^^^^^^^^■■■■■■■■■^■■■^* ÞRJÚ ár eru liðin
Uppbyggingarstarf SXgS?’ “Pu
Samskipa skilar árangri &ffiS 4 “
starfar nú sem alhliða flutningafyrirtæki á breiðun grundveili flutninga
á sjó, á landi og í lofti innanlands og utan. Samskip var stofnað árið 1990
og tók þá við rekstri rótgróins þjónustufyrirtækis á sviði sjóflutninga sem
hóf millilandasiglingar fyrir um hálfri öld. Almenn kynning kynning verð-
ur á þjónustu Samskipa á sjávarútvegssýningunni með sérstaka áherslu
á sjávarútvegstengdri þjónustu.
HAFTÆKNI á Akureyri hefur
fengið umboð fyrir stafrænan
gyro-kompás frá bandaríska fyrir-
tækinu KVH, en þar er um að
ræða nýjung hér á landi, sem hlot-
ið góðar viðtökur þar sem hann
hefur verið reyndur.
Sigurður Baldvinsson hjá Haf-
tækni sagði að um væri að ræða
uppgötvun sem orðið hefði til í
hernaði, þar sem verið var reyna
að halda miðunarstöðvum stöðug-
um og hefði kompásinn þróast út
frá því. „Þetta er algjörlega ný
tækrii og óþekkt hér á landi,“ seg-
ir Sigurður. „Kompásinn hefur
reynst einstaklega vel þar sem
hann hefur verið í notkun. Hann
gerir að verkum að það er hægt
að stjórna skipum mun betur en
áður, sjálfstýringin fær loks réttar
upplýsingar um hvernig skipið
snýr. Við höfum prófað þennan
kompás í nokkrum íslenskum skip-
um og reynslan er góð.“
Stafræni gyro-kompásinn sam-
einar kosti gyro-kompáss og staf-
ræns kompáss og gefur þannig
nákvæmari og stöðugri stefnuupp-
G.S. Maríasson er ungt fyrirtæki,
byggt á traustum grunni og hefur
sérhæft sig í pökkunarvélum. G.S.
Maríasson hefur náð góðri fótfestu
á markaðnum og kynnir ýmsa
hluti á Sjávarútvegssýningunni.
Innflutningur á Iímböndum frá
Supertape í Hollandi hefur aukist
stöðugt og kassalokunarvélar frá
sama fyrirtæki hafa reynst vel og
eru nú yfir 30 vélar í notkun í
sjávarútvegfyrirtækjum.
A básnum verða pokalokunar-
vélar frá Doboy, prentbúnaður frá
Preston Printers og vakúm-
pökkunarvél frá Boss, en fjöldi
véla frá Boss er til hér á landi og
hefur G.M. Maríasson nýlega tekið
við umboðinu.
Þá verða kynntar nýjungar frá
Sandiacre Packaging Machinery
lýsingar en hefðbundnum kompás-
um er unnt. Stefnuskynjun er
mikilvægasti þátturinn í sjálfstýri-
búnaði hvers skips, en ýmislegt
getur valdið því að hefðbundin
segulkompás gefi ónákvæmar
upplýsingar um stefnuna, ekki síst
á norðlægum slóðum þar sem allra
veðra er von. Lóðrætt seguláhrif
jarðar og velta skipsins eru dæmi
um atriði sem hafa áhrif á hefð-
bundin segulkompás og draga úr
nákvæmni hans. Nýi starfræni
gyro-kompásinn samanstendur af
segulskynjun, einstaklega örs-
máum nákvæmum rate-kompás
og örtölvu sem sér um að sameina
upplýsingar frá kompásunum
tveimur. Með þessu mót eru
skekkjuþættirnir útilokaðir og
kompásinn sendir frá sér nákvæm-
ar og stöðugar upplýsingar.
Þessi starfræni gyro-kompás er
einnig mun minni og léttari en
venjulegur gyro-kompás, hann
þarfnast minna viðhalds og þá
má nefna að verðið er um það bil
fjórðungur af verði venjulegs
gyro-kompáss.
sem framleiðir sjálfvirkar pökkun-
arvélar og er m.a. að nefna sjálf-
virka röðun poka í kassa, en slíkar
vélar hafa rutt sér rúm í Englandi
og Skandinavíu, enda sparast mik-
il vinna við það að raða í kassa
þar sem afköst eru orðin mikil með
sjálfvirkum pökkunarútbúnaði.
Hanlex í Englandi framleiðir
vélar sem settar eru við pökkunar-
vélar og gera mögulegt að fram-
leiða rennilásapoka, þannig að
hægt verði að loka pokum aftur
eftir opnun. Hér er um mjög
áhugaverða nýjung að ræða.
Margir kannast við Record
flæðipökkunarvélar, en fjöldi Rec-
ord Panda og Vega véla er hér á
landi. G.S. Maríasson hefur nú
tekið að sér umboð fyrir þessar
gæðavélar.
Eitt stærsta verkefni Samskipa
síðustu ár hefur verið þróun og
uppbygging á heilsteyptu flutninga-
kerfi innanlands og hefur félagið
haft frumkvæði að stofnun fjögurra
sjálfstæðra flutningamiðstöðva úti
á landi í samstarfi við heimamenn.
Þessar stöðvar, sem þjóna bæði sjó-
og landflutningum, eru Flutning-
amiðstöðvar Norðurlands, Suður-
lands, Austurlands og Vestmanna-
eyja. Þá hafa Samskip eignast 80%
hlutafjár í Landflutningum ehf. sem
er, að sögn forsvarsmanna fyrir-
tækisins, forsenda fyrir samhæfðu
flutningakerfi í samstarfi margra
aðila. Innanlandskerfið ber nafnið
Landflutningar-Samskip og er hið
víðtækasta á landinu.
Ný útibú erlendis
Á síðasta ári var starfsemi Sam-
skipa erlendis byggð upp, m.a. með
opnun þriggja nýrra skrifstofa, í
Hull í Bretlandi, Rotterdam í Hol-
landi og Norfolk á austurströnd
Bandaríkjanna, en skrifstofur fé-
lagsins hafa verið reknar í Árósum
og Kaupmannahöfn í Danmörku frá
1993. Að auki eru Samskip með
íslenska fulltrúa í Bremerhaven í
Þýskalandi og Þórshöfn í Færeyjum
og umboðsmenn á sínum snærum
í Moss í Noregi, Varberg í Svíþjóð,
Antwerpen í Belgíu og Helsinki í
Finnlandi.
Samskip bjóða vikulegar áætlun-
arsiglingar til Evrópu og Norður-
landanna og til Bandaríkjanna,
Kanada og Nýfundnalands á
þriggja vikna fresti beint frá ís-
landi. Aftur á móti skapar sam-
starfssamningur, sem gerður hefur
verið við danska skipafélagið
FISKIFÉLAG íslands og Miðlun
ehf. munu í samvinnu gefa út nýtt
alþjóðlegt fréttabréf, North Atlantic
Fishing News (NAFN), um sjávar-
útveg við Norður-Atlantshaf.
Fyrsta tölublað þess kemur út 18.
september eða á opnunardegi sjáv-
arútvegssýningarinnar í Laugar-
dalshöll þar sem Fiskifélagið og
Miðlun munu jafnframt kynna
fréttabréfið formlega. Fréttabréfið
verður fjórblöðungur og kemur út
vikulega á ensku.
Svæðið og fiskaflinn
í NAFN verða birtar fréttir af
sjávarútvegi við norðanvert Norður-
Átlantshaf, þ.e. frá íslandi, Noregi,
Danmörku, Irlandi, Skotlandi, Eng-
landi, Færeyjum, Grænlandi og
austurströnd Kanada. Sérstök
áhersla verður lögð á fréttir frá
Norðurlöndunum, þ.e. íslandi, Nor-
egi, Danmörku, Færeyjum og
Grænlandi, enda eru íslendingar,
Danir og Norðmenn mestu fisk-
veiðiþjóðir í Evrópu. Samkvæmt
tölum FAO fyrir árið 1994 veiddu
(og framleiddu) Norðmenn mest
allra Evrópuþjóða, Danir voru í
öðru sæti, íslendingar í því þriðja
og Bretar í fimmta sæti. Gera má
ráð fyrir að á þessu ári verði Norð-
menn og Islendingar í tveimur efstu
sætunum. Segja má að þessar þjóð-
ir hafi ekki alltaf fengið þann sess
eða rými í alþjóðlegum sjávarút-
Maersk, nýja möguleika, sem felast
m.a. í því að boðið er upp á vikuleg-
ar afskipanir í Norður-Ámeríku með
flutningum í gegnum Evrópu. Sam-
skip tengjast flutninganeti Maersk
með umskipun í Bremerhaven sem
skapar möguleika á að flytja beint
til allra viðkomuhafna Maersk á
austurströnd Bandaríkjanna, allt
frá Miami í Flórída til Halifax í
Kanada.
Alhliða flutningamiðiun
Dótturfyrirtæki Samskipa, BM
flutningar ehf., sem starfar sem
alhliða flutningamiðlun, hefur
byggt upp vörudreifingarmiðstöð í
Holtagörðum. Það býður viðskipta-
vinum vöruhúsaþjónustu og höfðar
sérstaklega til minni inn- og útflytj-
enda, sem hafa þörf fyrir smærri
og tíðari sendingar og sjá sér hag
vegsritum sem þeim ber og fréttir
frá íslandi, Færeyjum og Grænlandi
berast oft á tíðum seint í alþjóðleg
rit eða jafnvel alls ekki.
Evrópuþjóðirnar, sem ijallað
verður um í NAFN, veiddu samtals
í kringum 7,5 milljónir tonna árið
1994 en það eru um 55% af öllum
afla Evrópuþjóða. Mikilvægi fisk-
veiða NAFN-þjóðanna er þó miklum
mun meira í einstökum tegundum.
Af sumum tegundum veiða þær
lungann af öllum afla Evrópuríkja
(t.d. síld, loðnu, kaldsjávarrækju og
grálúðu) auk þess að eiga stóra
hlutdeild í botnfiskafla, s.s. þorski,
ýsu og karfa. Það fiskveiðisvæði,
sem fjallað verður um í NAFN,
hefur því ákaflega mikla þýðingu
fyrir evrópskan fiskmarkað í heild.
Efnisöflun
í NAFN verður lögð áhersla á
að birta stuttar og greinargóðar
fréttir af öllu því helsta sem snertir
sjávarútveg á þessu svæði, bæði
hvað varðar veiðar, vinnslu, fisk-
veiðistjórnun, samskipti þjóðanna,
umhverfis- og tæknimál. Efnið er
sótt í fjölda fagrita um sjávarútveg
í þessum löndum, fréttabréf og úr-
klippur úr dagblöðum. Eins verður
reynt að birta bráðabirgðatölur yfir
afla í löndum eins fljótt og unnt
er. NAFN-fréttabréfinu er ætlað
að veita mönnum heildarsýn yfir
sjávarútveg á þessu svæði.
í að láta þriðja aðila annast vörulag-
er. Vörudreifingamiðstöðin hóf
starfsemi sína árið 1994 og var sú
fyrsta sinnar tegundar hér á landi.
Úm síðustu áramót var sett á stofn
tollvörugeymsla á vegum BM flutn-
inga í Holtagörðum. BM flutningar
bjóða einnig upp á flugsendingar,
en Samskip hefur keypt öll hluta-
bréf í Air Express á Islandi ehf.,
sem sérhæfir sig í hraðsendingar-
þjónustu með flugi.
Aðalstarfsemi Samskipa fer fram
á 100 þúsund fermetra athafna-
svæði við Holtabakka í Reykjavík.
Þar er skipaafgreiðsla, gámavöllur,
verkstæði, útigeymsla, vöru-
geymsla og skrifstofur landrekstr-
ardeildar. Vöruhús Samskipa og
aðalskrifstofur eru beintengdar at-
hafnasvæðinu með viðskiptaþjón-
ustu í innflutningi og útflutningi,
vöruafgreiðslu og tollþjónustu. Oll
starfsemi félagsins í borginni er
þannig á einum stað, til hagræðis
fyrir viðskiptavini. Vöruhús Sam-
skipa í Holtagörðum er um sjö þús-
und fermetrar að stærð, upphitað
með hillukerfum og er vöruflæði
stjórnað með tölvukerfi. Útflytjend-
um sjávarafurða er boðið upp á
frystigeymslu auk þess sem Sam-
skip veitir löndunarþjónustu á at-
hafnasvæði sínu á Holtabakka.
Takmörkuð afrakstursgeta eigin
fiskistofna innan landhelgi og of
mikil sóknargeta hefur leitt til
síaukinnar sóknar á úthafið og fyr-
ir vikið eru snertifletir í fiskveiðum
þessara þjóða orðnir miklu fleiri en
áður og ekki líklegt að þeim muni
fækka í framtíðinni. Þetta, ásamt
auknu frelsi í fjárfestingum milli
landa, hefur gert það að verkum
að sjávarútvegur á þessu svæði
hefur öðlast mun alþjóðlegri blæ.
NAFN-fréttabréfinu er ætlað að
koma til móts við þessa þróun.
Markaðurinn
Markaður fyrir NAFN er einkum
í þeim löndum sem fréttabréfið tek-
ur til en ljóst er að það ætti einnig
að höfða til kaupenda á meginlandi
Evrópu og að einhveiju leyti í Vest-
urheimi. I tilefni sjávarútvegssýn-
ingarinnar verður sérstakt kynning-
artilboð og býðst mönnum þar
ókeypis mánaðaráskrift að NAFN.
Almennt verð fyrir ársáskrift verð-
ur 24.000 ISK eða um 360 banda-
ríkjadalir, 2.000 ISK á mánuði eða
30 dalir. Að lokinni sjávarútvegs-
sýningunni verður heijað á markað-
inn hér heima en síðan verður, að
hætti forfeðra okkar og raunar á
sama svæði líka, farið land úr landi
og gert strandhögg.
G.S. Maríasson með
nýjungar í pökkun
Nýtt alþjóðlegt fréttabréf
Alþjóðavæðing
sjávarútvegs