Morgunblaðið - 18.09.1996, Blaðsíða 30
30 E MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Endurvinnanleg ker
og ný djúpsjávarkúla
KER úr endurvinnanlegu plasti
°g ný djúpsjávartrollkúla munu
setja svip sinn á 60 fermetra sýn-
ingarbás Sæplasts hf., sem ávallt
hefur lagt mikið upp úr þátttöku
í íslensku sjávarútvegssýningunni
og jafnan sýnt það nýjasta sem í
boði er hjá fyrirtækinu hveiju sinni. Sæplast býður nokkrum umboðsmönn-
um sínum og viðskiptavinum frá útlöndum á sýninguna, en félagið hefur
' gjarnan haft þann háttinn á. Forsvarsmenn Sæplasts binda miklar vonir
við sýninguna nú enda fj'ölmörg teikn á lofti um að betri tíð sé framundan
í íslenskum sjávarútvegi.
Afrakstur þrot-
lausra rannsókna
hjá Sæplasti hf.
Endurvinnanlega plastkerið,
MPC-kerið svonefnda, var sýnt sem
þróunarverkefni á sjávarútvegssýn-
ingunni fyrir þremur árum, en ker-
ið er afrakstur þrotlausra rann-
sókna. Kerið hefur verið sýnt á
þremur erlendum sýningum frá því
að framleiðsla á því hófst á liðnu
ári. „Við erum mjög ánægðir með
árangurinn enda hefur kerið vakið
verðskuldaða athygli og fengið góð-
ar undirtektir á markaðnum. í kjöl-
farið hafa fylgt margir sölusamn-
ingar, stærstur er samningur um
sölu á rúmlega eitt þúsund kerum
til Danmerkur, en þar verða þau
notuð í kjötvinnslu. Fiskmarkaður
Suðurnesja varð fyrstur fyrirtækja
til að taka kerið í notkun hér á
landi,“ segir Hilmar Guðmundsson,
sölustjóri Sæplasts innanlands. Fyr-
irtækið mun einnig bjóða eldri gerð-
ir kera og kynnir á sýningunni 460
lítra og 660 lítra ker, sem eru með
sérstyrktum botni.
Djúpsjávartrollkúlan, sem kynnt
NÝJA kerið, sem er úr endurvinnanlegu plasti, hefur hlotið góð-
ar viðtökur hvarvetna þar sem það hefur verið kynnt.
verður og heitir Iceplast 1087, þol-
ir að fara niður á 750 faðma dýpi
eða upp undir tvö þúsund metra.
„Um er að ræða átta tommu mið-
gatskúlu úr nýju og mjög sterku
plastefni, sem við höfum ekki notað
í kúlur áður. Iðntæknistofnun að-
stoðaði við hönnun og prófanir á
nýju kúlunni, en að baki framleiðsl-
unni liggur mikil þróunarvinna og
margvíslegar tilraunir. Við teljum
okkur hafa leyst verkefnið með
góðum árangri og væntum þess að
sjómenn og útgerðarmenn taki nýju
kúlunni fagnandi.“
Unnið á vöktum
allan sólarhringinn
Framleiðsla Sæplasts hefur verið
flutt út til um 70 landa í öllum
heimsálfum og nemur útflutningur-
inn um helmingi af heildarfram-
leiðslu fyrirtækisins ár hvert. Inn-
anlands er staða Sæplasts einnig
mjög sterk þar sem það nýtur um
60% markaðshlutdeildar. I árslok
mun Sæplast taka í notkun nýtt
1.550 fermetra verksmiðjuhús á
Dalvík sem tvöfaldar afkastaget-
una, en undanfarin misseri hefur
verksmiðjan verið keyrð á vöktum
allan sólarhringinn til að anna eftir-
spurn.
Rekstur Sæplasts hf. skilaði rúm-
lega 12,3 milljóna kr. hagnaði
fyrstu sex mánuði ársins. Hagnaður
af reglulegri starfsemi nam 13,7
milljónum eða um 6,8% af tekjum
og jókst um tæp 38% milli ára.
Útflutningur nam um 52% af heild-
arveltu félagsins á þessu tímabili.
Eigið fé fyrirtækisins var 300 millj-
ónir í júnílok og hefur gengi hluta-
bréfa í Sæplasti hf. hækkað um tæp
40% frá áramótum.
Sala á fiskikerum innanlands
jókst um tæp 10% milli ára og út-
flutningur kera jókst einnig lítil-
lega. Sala á rotþróm og tönkum
jókst um rúm 86% milli ára og röra-
sala um 6%. Aftur á móti varð 16%
samdráttur í sölu trollkúlna. For-
svarsmenn Sæplasts gera ráð fyrir
10% veltuaukningu milli ára og að
eftir standi þokkalegur hagnaður í
árslok.
yt
SINDRI
- sterkur í verki -
A'AlfaLaval IWIOI
Tetra Laval Food
Koppens
Pneumatic
INDUSTRI
EGO
ARMATURl
PFERD
QMIRAWAI.L ^ Hoogovens Aluminium
Sérhannaður kassi
til flutninga á
ferskum „flugfíski“
KOMINN er á markaðinn 20 lítra
samanbrotinn „þurrkassi" hannaður
til fiskflutnings á landi og í lofti.
Framleiðandinn SCA Packaging
Sweden AB hefur hannað kassann í
samvinnu og með samþykki IATA
(Alþjóðlegir flugflutningar) sem set-
ur reglur um umbúnað fyrir flug-
flutninga á ferskum kældum fiski.
Þurrkassinn er úr pappa og er af-
greiddur útflattur þannig að hann
tekur lítið pláss og er auðveldur í
umbroti.
Þurrkassinn er með tvöfaldar hlið-
ar, styrkt hom og er sérstaklega gerð-
ur til að þola hnjask. Mörg erlend
flugfélög eru hætt að leyfa fiskflutn-
ing í venjulegum frauðplastkössum
(polystyrene) vegna þess að að þeir
brotna auðveldlega við hnjask. Þerri-
spjald fylgir með kassanum semk
sýgur í sig tilfallandi vatn. Þurrkassar
til landflutninga eru með 3 lítra þerri-
spjaldi en kassar til flugflutninga eru
með tvöfalda þá getu.
Síðast en ekki síst þá er þurrkass-
inn umhverfisvænn því hann er end-
urvinnanlegur.
Helstu kostir þurrkassans eru eft-
irfarandi:
• Hægt er að flytja fisk samhliða
annarri vöru
• Gott útlit
• Lægri flutningskostnaður á út-
flöttum kössum
• Minni geymslukostnaður
• Mjög mikið öryggi í flugflutning-
um
• Öll umgengni auðveld
• Allt að 25% minna pláss í flutningi
• Aukin gæði farmsins
• Enginn leki
Þurrkassinn verður til sýnis á sjáv-
arútvegessýningunni í Laugardags-
höll dagana 18.-21. september í sýn-
ingarbás nr. A-2 hjá Friðriki A. Jóns-
syni ehf. og einnig í sænska sýning-
arbásnum nr. E-70.
Kyrnia nýtt sjáifvirkt
sótthreinsunarkerfi
Á SJÁVARÚTVEGSSÝNINGUNNI
verður nú í fyrsta skipti á íslandi
sýnt alsjálfvirkt sótthreinsunarkerfi
til að sótthreinsa framleiðslutæki og
framleiðslurými fyrir matvælafram-
leiðslu.
Kerfið byggist á nýrri sótthreins-
unarforskrift sem tryggir mjög mikil
sótthreinsandi, líffræðileg áhrif. Þar
TSURUMI
SLÓGDÆLUR
Margar stæróir.
Níðsterkur
rafmótor
3 x 380 volt
3 x 220 volt
Tvöföld þétt-
ing með sili-
koni á
snertiflötum
Öflugt og vel
opiðdælu-
hjól með
karbíthnífum
V Skútuvogi 12a, 104 Rvk. tt 581 2530
við bætist þverrandi notkun sótt-
hreinsiefna í samanburði við hefð-
bundnar aðferðir.
Stærsti fískivöruframleiðandi á
Norður-Atlandshafssvæðinu, Royal
Greenland, notar þetta kerfi og geng-
ur sótthreinsiaðferðin inn í gæða-
kerfi fyrirtækisins í sambandi við
sölu til alþjóðlegra verslanakeðja.
Á sýningunni verður kerfið sýnt í
vinnslu á myndbandi og sýndir verða
áþreifanlegir tæknihlutir úr kerfinu.
Einnig verður á básnum hjá AVS
Hagtæki fulltrúi danska fyrirtækis-
ins, Ejvind Skov, og mun hann ieit-
ast við að svara tæknilegum spurn-
ingum og útskýra notkunarmögu-
leika kerfisins.
Verkfræðifyrirtækið Blue & Green
í Danmörku framleiðir kerfi og mark-
aðssetur það í Danmörku og á Græn-
landi. Á íslandi er það kynnt og
selt af AVS Hagtæki hf.
F.P.Diesel
vélavarahlutir
í Caterpillar - Cumming ■ Detroit Diesel.
Öruggir
ábyrgðarskilmálar
og mjög hagstætt verð
Bendix ehf.
Sími 562-8081 og 897-4366.