Morgunblaðið - 18.09.1996, Side 37

Morgunblaðið - 18.09.1996, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR18. SEPTEMBER1996 E 37 SKIPASMIÐAR .ts.,.. ‘ J•*-1, f <■ áfU 15 •!* 5 ... ( ■ ^ y. ía. GUÐBJÖRG ÍS í nýrri flotkví Slippstöðvarinnar. Ný flotkví bætir aðstöðuna mikið SLIPPSTÖÐIN hf. á Akureyri á að baki ára- tuga reynslu í skipa- smíðum og skipavið- gerðum. Þar er boðið upp á alla þætti við- gerða, viðhalds- og jafnt fyrir fiskiskipaflotann sem kaupskipaflotann. kaupandans til þess að útgerðin geti fengið bestu hugsanlega afurð og þannig hæsta söluverð. Þá býður Slippstöðin hf. einnig upp á mjög öfluygan háþrýstiþvott, allt að 2000 börum, til hreinsunar og þvotta, auk málunar innanskips sem utan. Slippstöðin hf. með ára- tuga reynslu í skipa- smíðum og viðgerðum endurbyggingar, Aðstaða og tækjakostur Slipp- stöðvarinnar eru mjög góð og hefur stöðin meðal annars yfir að ráða tveimur dráttarbrautum, 300 metra viðiegukanti og sérhæfðu starfs- fólki. Ný flotkví hefur stórbætt aðstöðu fyrirtækisins til þess að veita alhliða þjónustu i skipaiðnaði, þar sem hægt er að taka upp flest skip íslenska flotans eða upp í 120 metra löng og er lyftigetan um 5000 þungatonn. Smíðað 35 stálskip Slippstöðin hf. hefur á undan- förnum árum framleitt mörg af fullkomnustu fiskiskipum íslend- inga. Við nýsmíðar er lögð áhersla á öryggi og góðan aðbúnað áhafn- ar, hagkvæmni í rekstri, orkunýtni og sjóhæfni. Frá árinu 1965, þegar stálskipasmíði hófst, hefur fyrir- tækið smíðað samtals 35 stálskip, allt að 68 metra löng. Þá hafa á undanförnum árum verið gerðar umfangsmiklar endurbyggingar á gömlum skipum til að auka líftíma þeirra og bæta rekstrarafkomu. M.a. hefur verið unnið við lenging- ar, skutbreytingar, stafnbreytingar, geymabreytingar, endurnýjun stýr- ishúsa, skrúfu- og stýrisbúnaðar- skipti, vélaskipti, vinnslubúnaðar- skipti, endurnýjun innréttinga í lest, endurnýjun íbúða, endurnýjun tog- spila og annars veiðibúnaðar á dekki og endurnýjun rörakerfa og rafkerfa. Fjölbreyttar vinnslulínur Ennfremur hefur Slippstöðin hf. um árabil smíðað og sett upp fisk- vinnslubúnað fyrir rækju, karfa og bolfisk í innlend og erlend fiskiskip og smíðaði t.d. (Iivar HU, fyrsta íslenska fi-ystitogarann. í stöðinni eru smíðaðar og settar upp vinnslu- línur í skip, jafnt fyrir flakavinnslu, heilfrystingu og rækjuvinnslu. Auk þess smíðar Slippstöðin hf. hvers- konar hluti í fiskvinnslulínur, s.s. færibönd, kör, rennur, borð og rekka. Allur búnaður er hannaður og settur upp samkvæmt óskum Samkeppnisstaða að batna Áki Áskelsson, markaðsstjóri Slippstöðvarinnar hf, segir að á undanförnum árum hafi miklir erf- iðleikar steðjað að íslenskum skipa- smíðaiðnaði og nýsmíðar fiskiskipa hafi að stórum hluta flust úr landi vegna erfiðrar samkeppnisstöðu. „Það bendir nú margt til þess að samkeppnisstaða íslenskra fyrir- tækja sé að batna í þessum efnum og hefur Slippstöðin hf. fullan hug á að taka að sér nýsmíðaverkefni ef aðstæður skapast til þess á nýjan leik. T1 þess höfum við bæði að- stöðu og verkþekkingu,“ segir Áki. NASSAU IÐNAÐARHURÐIR HENTA HVAR SEM ER, einnig hjá þér. F.P.Diesel vélavarahlutir í Caterpillar - Cumming - Detroit Diesel. Öruggir ábyrgðarskilmálar og mjög hagstætt verð Bendix ehf. Sími 562-8081 og 897-4366.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.