Morgunblaðið - 18.09.1996, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1996 E 39
í
I
i
4
i
i
<
1
1
(
1
j
i
FRÉTTIR
Ný vökvakerfi
vatn í stað olíu
Á SJÁVARÚTVEGSSÝNINGUNNI
í Laugardalshöll kynnir Héðinn,
verslun, nýjung frá Danfoss sem á
eftir að valda straumhvörfum, m.a.
í matvælaiðnaði.
Kröfur um hreinlæti og umhverf-
isvæna framleiðslu í iðnaði verða
sífellt_ strangari, sérstaklega í Evr-
ópu. Ýmis spilliefni fara nú á bann-
lista og reynt er að finna vistvænni
efni í stað olíu.
Til þessa hefur olía verið notuð á
öll vökvakerfi sem knýja færibönd,
krana, gíra, flutningatæki o.fl. Komi
fram leki í vökvakerfi getur hann
valdið umhverfisspjöllum, og eld-
hætta er fyrir hendi.
Eftir áralangar rannsóknir og þró-
unarstarf hefur Danfoss tekist fyrst
allra að nota venjulegt vatn á vökva-
kerfi í stað olíu. Þróunarstarfið hef-
ur einnig leitt af sér útvíkkun á
notkun vökvakerfa og breytta hönn-
un með nýjum hráefnum.
Kostirnir við að nota vatnið sem
þrýstimiðil í vökvakerfin eru margir,
t.d. er vatnið vistvænt, engin eld-
hætta er af því, það er ódýrt, hrein-
legt, auðvelt er að nálgast það og
losna við það. Jafnframt hefur vatn-
ið í samanburði við olíuna mjög lága
þjöppunareiginleika. Við-
brögð/hreyfing kerfisins og raforku-
tap minnkar. Einnig er allt viðhald
og vinna við tækin þægilegri. Nessie
vökvakerfíð þolir að umhverfishitinn
fari niður fyrir 30 mínusgráður á
Celcius.
Nessie hentar sérlega vel í öllum
matvælaiðnaði, þar með talinn fisk-
iðnaður, lyfjaframleiðsla, efnagerð
og hreinsitækni.
Héðinn hf. hefur átt samstarf
við Danfoss allt frá 1947. Danfoss
stýringar fyrir hitakerfi eru án efa
þekktustu framleiðsluvörur þessa
danska stórfyrirtækis hér á landi.
Umfangsmiklar rannsóknir og þró-
unarstarf hjá Danfoss leiða af sér
stöðugar tækninýjungar. Til dæmis
má nefna að Danfoss varð fyrst
fyrirtækja til að framleiða kælitæki
sem ekki byggðust á ósoneyðandi
CFC-efnum. Enda er Danfoss í
fararbroddi á sviði kælitækni í
heiminum og framleiðir kælivél í
fimmta hvern ísskáp sem seldur er
í Evrópu.
Grundvallarþemað í allri fram-
leiðslu á Danfoss-vörum er að þær
skapi heilsusamlegt umhverfi og
hámarks öryggi.
í sýningarstúku Héðinsverslunar
eru auk Nessie sýnd ýmis önnur
tæki frá Danfoss. Til dæmis gæslu-
kerfi fyrir veitur, sem byggjast á
nýjum tíðnibreytum, hraða- og hita-
stýringum og kælitæki.
Ný námskeið fyrir
saltendur og sjómenn
NÁMSKEIÐ sem uppselt var á
á vorönn hjá RF verða haldin
aftur nú í haust og einnig verða
ný námskeið haldin fyrir salt-
fiskverkendur og sjómenn. Auk
þess sem námskeiðin verða öllum opin bjóðum við þau einstökum fyrirtækj-
um þar sem námsefnið er sérstaklega lagað að þeirra þörfum.
Haustnámskeið RF
eru að hefjast
Á námskeiði um þurrkun fiskaf-
urða verður m.a. fjallað um eðliseig-
inleika lofts, uppbyggingu þurrk-
búnaðar, orku- og massavægi og
gæða- 0g örverubreytingar við
þurrkun á saltfiski, harðfiski, skreið
og þorskhausum. Námskeiðið verð-
ur haldið 18. september frá kl.
9.00-14.30, þátttökugjald er
11.500 með námsgögnum og veit-
ingum.
Á námskeiði í frystingu sjávaraf-
urða verður m.a. fjallað um varma-
fræði, þróun frystikerfa, frystibún-
að, frystihraða, geymslu, flutninga
og tvífrystingu. Auk þess fá þátt-
takendur verkefni með sér heim í
lok fyrri dags sem farið verður yfir
í lok seinni dags. Námskeiðið verð-
ur haldið 19.-20. september frá kl.
8.30-12.30 og 8.30-12.00. Þátt-
tökugjald er 12.500 krónur með
námsgögnum og veitingum.
Á námskeiði um saltfiskverkun
verður m.a. fjallað um vinnsluferli,
aðbúnað, geymslu, verkunaraðferð-
ir og flutninga. Námskeiðið verður
haldið 10.—11. októberfrá kl. 8.30-
12.30 báða dagana, þátttökugjald
er 12.500 kr. með námsgögnum og
veitingum.
Á námskeiði um meðferð á fiski
um borð í veiðiskipum verður m.a.
fjallað um náttúrulegan breytileika
fisks, áhrif veiðarfæra, blóðgun og
slægingu, þvott, flokkun, kælingu
og ísun, geymslu og flutning, þrif
og gæðastýringu. Þátttakendum er
sett fyrir heimaverkefni sem er síð-
an skilað til RF. Eftir yfirferð eru
þau send til baka ásamt skriflegri
umsögn. Námskeiðið verður haldið
17.-18. október og á Hornafirði
8.-9. nóvember, þátttökugjald er
13.500 kr. með námsgögnum og
veitingum.
<il Auðlind
^pplD Þáttur um sjávarútvegsmál á vegum
píKls
Fréttastofu Utvarpsins á Rás 1 alla virka
daga að loknum veðurfregnum í hádeginu.
Fjallað er um:
Veiðar,
vinnslu,
markaðsmál,
tækninýjungar
og ótalmargt fleira, sem tengist sjávar-
útvegi.
Látið umsjónarmenn á Fréttastofunni í Reykjavík vita
af pví sem fréttnæmt er í greininni, s: 515-3050, fax:
515-3650, eða hafið samband við svæðisstöðvar
Útvarpsins á ísafirði, s: 456-4177, Akureyri, s: 461-
2305, eða Egilsstöðum, s: 471-2300.
Auðlind - fréttaþáttur um
sjávarútvegsmál á Rásl í Útvarpinu.
Við mælum með „M6renÓt“
Jord/o-s # NETANAUST ^ kJelJU
Skútuvogi 13,104 Reykjavík, sími 568 9030, íax 568 0555 og farsími 852 3885
ogleitið upplýsinga
MARVfS HF.
Hamraborg 5 200 Kópavogur Simar 564 1550 & 564 1545 Fax 554 1651
Skeifan 3h • Sími 588 5080 • Fax 568 0470