Morgunblaðið - 19.09.1996, Side 1
SfÓNVARP m FYRIRTÆIiI
Verslunargluggi ■ I Loóskinn nýtir
framtíöarinnar/4 | ^^^^ J , góöæriö/6
VIÐSKIPn JOVINNULÍF
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAG UR 19. SEPTEMBER 1996 BLAÐ
ÚTFLUTNINCUR
Þekking flutt út til
Víetnam/8
Borgarplast
Finnur Ingólfsson, iðnaðarráð-
herra mun á morgun gangsetja
nýja hverfisteypuvél Borgar-
plasts í nýju 900 fermetra verk-
smiðjuhúsi fyrirtækisins. Vélin
þrefaldar framleiðslugetu Bor-
garplasts og gerir það að einu
öflugasta hverfisteypufyrirtæki
í Evrópu.
Hlutabréf
Þingvísitala hlutabréfa lækkaði
um 0,02% í viðskiptum á Verð-
bréfaþingi í gær. Aftur á móti
hafði hún hækkað um 0,65% á
þriðjudag. Rólegt var á hluta-
bréfamarkaði í gær, en heildar-
viðskipti dagsins námu rúmum
11 miiyónum króna að söluvirði.
Ráðstefnur
Ráðstefnuskrifstofa íslands hef-
ur gefið út nýjan kynningarbækl-
ing sem er hannaður með það _
fyrir augum að markaðssetja Is-
land sem áfangastað fyrir fundi,
ráðstefnur og hvatningarferðir.
Þar er vakin athygli á því að
aðstaða hér á Iandi fyrir minni
ráðstefnur sé mjög góð, en hægt
sé að halda allt að 1000 manna
ráðstefnur.
SÖLUGENGI DOLLARS
Þjónustumiðstöð ríkisverðbréfa
Sala áskrifta flutt til
verðbréfamarkaða ?
VON er breytingum hjá Þjónustu-
miðstöð ríkisverðbréfa innan tíðar
og þykir koma til greina að áskrift-
arsala spariskírteina verði falin
verðbréfafyrirtækjunum. Þetta
kom fram á fundi Skandia hf. með
fjárfestum á þriðjudag, þar sem
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra flutti ávarp.
Þar var íjármálaráðherra spurður
álits á þeirri skoðun að áskriftar-
sala ríkissjóðs hefði truflandi áhrif
á vaxtamyndun á markaði og hvort
ríkissjóður gæti ekki aflað sér 80
milljóna króna á mánuði með öðrum
hætti sem hefði ekki slík áhrif?
„Það liggur fyrir álit um að Þjón-
ustumiðstöð ríkisverðbréfa taki
breytingum, en ég ætla ekki að
segja mikið um það, allra síst í þenn-
an hóp,“ sagði fjármálaráðherra.
„Ég á von á því að það verði breyt-
ingar á þessu innan tíðar af því ég
tel að smám saman hafi það sann-
ast að önnur fyrirtæki geta tekið
yfir þetta verkefni. Það sé í sjálfu
sér óþarfi að halda úti Þjónustumið-
stöðinni öllu lengur, hvað sem svo
verður gert við áskriftina. Ég hef
ekkert á móti áskriftinni en það
getur vel verið að hægt sé að koma
henni fyrir hjá fyrirtækjum úti í bæ
sem taka það að sér að annast þetta
fyrirbæri fyrir okkur.“
GENGIN0KKURRA GJALDMIÐLA
frá 6. september 1995 (sölugengi)
DOLLARI
+2,50% breyting
frá áramótum
Kr.
- 80
75
67J370
65
60
55
1996
j'f'm'a'mVj'a's' 50
Japanskt YEN
-2,88% breyting
frá áramótum
/
‘ Kr.
0,80
0,75
0,70
0,65
0,6095
0,60
1996
j'f'm'a'm' j'j 'A'S10,55
STEB +2,82% fráá ^L02r LINGSPUND rSÍTrS 115 110 104,43
1995 1996
S'O'N'D J F M A M J J A S
Þýskt MARK Kr.
Í5<L —46 ..
44,39^
-2,52% breyting
frá á amótum
1995 1996
S'O'N'D JFMAMJJÁS
Lán tryggingafélaga til ein-
staklinga nxu um 1,7 milljarða
ÚTLÁN tryggingafélaga til ein-
staklinga jukust um 1,7 milljarða
króna á fimmtán mánaða tímabili
frá ársbyrjun 1995 fram til mars-
loka í ár, sarnkvæmt upplýsingum
Seðlabanka íslands. Nýrri upplýs-
ingar en þetta liggja ekki fyrir en
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hefur aukning þessara lána
áfram verið með svipuðum hætti
síðustu mánuði, en einkum er um
að ræða lán vegna bifreiðakaupa.
Samkvæmt upplýsingum Seðla-
banka Islands námu útlán trygg-
ingafélaga í marslok í ár 8,8 millj-
örðum króna. Þar af voru lán til
einstaklinga 4,4 milljarðar króna,
lán til fyrirtækja 4,3 milljarðar
króna og lán til sveitarfélaga um
100 milljónir. Lán til einstaklinga
höfðu vaxið um 400 milljónir frá
áramótum er þau numu 4 milljörð-
um og lán til fyrirtækja 4,2 milljörð-
um. Vöxtur lánveitinga trygginga-
félaganna til einstaklinga hefur
verið samfelldur allt síðastliðið ár
því í ársbyijun 1995 námu lán til
einstaklinga 2,7 milljörðum króna.
Þá námu lán til fyrirtækja 3,6 millj-
örðum og lán til sveitarfélaga 100
milljónum króna.
Lánveitingar tryggingafélag-
anna til einstaklinga eru einkum
vegna bifreiðakaupa. Upplýsingar
um lánveitingar einstakra félaga í
þessum efnum og breytingar á und-
anförnum misserum lágu hins vegar
ekki á lausu þegar Morgunblaðið
leitaði eftir þeim.
Sigurður Sigurkarlsson, fjár-
málastjóri Sjóvár-Almennra, segir
að lán til einstaklinga séu vissulega
stór þáttur í rekstrinum, en nánari
upplýsingar þar um séu ekki gefnar
upp umfram það sem komi fram í
ársreikningum fyrirtækisins. Al-
mennt talað sé hins vegar þessi
lánafyrirgreiðsla liður í því að ná
sem bestri ávöxtun á eignir fyrir-
tækisins. Það sé engin launung að
lán vegna bifreiðakaupa hafi vaxið
mjög mikið. Bæði sé það vegna
þess að fyrirtækið hafi lagt meiri
áherslu á þessi mál auk þess sem
það segi sig sjálft að með auknum
innflutningi bíla hafi eftirspurnin
eftir þessum lánum aukist.
Benedikt Sigurðsson, fjármála-
stjóri Vátryggingafélags íslands,
segir að félagið hafi ekki farið út
í að gefa upplýsingar um lán til
einstaklinga eða bílalán sérstak-
lega, hvorki um fjölda lána né heild-
arupphæð. VÍS hafi farið inn á
þennan lánamarkað með markviss-
um hætti fyrir einu og hálfu ári og
á því tímabili hafi bílalán VÍS vax-
ið verulega.
Glitnir hf. Kirkjusandi, 155 Reykjavfk Sími 560 88 00 og 560 88 20. Myndsími 560 88 10.
FJARMOGNUN
ATVINNUTJEKJA
Skynsamlegar fjárfestingar í atvinnutækjum
eru oftar en ekki lykillinn að velgengni.
Við hjá Glitni sérhæfum okkur í fjármögnun
atvinnutækja.
Glitnirhf
DÓTTURFYRIRTÆKI ÍSLANDSBANKA