Morgunblaðið - 20.09.1996, Qupperneq 1
72 SIÐUR B/C
214. TBL. 84. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Herjað á
CIA á al-
netinu
Washington. Reuter.
BANDARÍSKA leyniþjónustan
CIA, vígi háþróaðrar njósna-
og tölvutækni, varð að loka
heimasíðu sinni á alnetinu í gær
eftir að töivuþrjótur hafði
breytt henni og skrumskælt.
Tölvuþijóturinn sneri meðal
annars út úr nafni leyniþjón-
ustunnar, Central Intelligence
Agency (Aðalleyniþjónustu-
stofnunin, en „intelligence"
getur þýtt „greind“ þótt hér
merki það „upplýsingar"),
þannig að þegar heimasíðan
birtist blöstu við orðin „Central
Stupidity Agency“ („aðalstofn-
un heimskunnar"). „Hættið
þessum lygum" stóð meðal
annars í textanum og í stað
gagna CIA var m.a. boðið upp
á aðgang að efni karlatímarits-
ins Playboy.
Tölvuþijóturinn gaf til kynna
að hann væri sænskur og í text-
anum sagði að samtökin „Völd
með mótspyrnu" hefðu staðið
fyrir tiitækinu.
Reuter
Hvar eru
dönsku
drengirnir?
London. Reuter.
DANSKUR vísindamaður, Henrik
Moller, segir að verið geti að nú
fæðist hlutfallslega færri drengir
en stúlkur í Danmörku en áður
vegna eiturefna, sem hafi áhrif á
fijósemi karla. Eftir því sem
sæðisfrumum karla fækki aukist
líkur á að þeir eigi stúlkubörn.
Moller, sem starfar hjá Rann-
sóknastofnun Danmerkur, segir í
bréfi, sem birtist í breska lækna-
tímaritinu Lancet og greint var frá
í gær, að í Danmörku hefði hlut-
fall drengja gagnvart stúlkum náð
hámarki í kringum 1950, en snar-
lækkað eftir það.
Moller bendir á að ýmsum teg-
undum skordýraeiturs fylgi eitur,
sem líki eftir áhrifum kvenhorm-
ónsins estrogens, en aðrar tegund-
ir dragi úr framleiðslu karlhorm-
óna.
Loftárásir
í Líbanon
Flokkar þjóðemis-
Tsjernomýrd-
ín fær völdin
Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands,
tók í gær af öll tvímæli um það
hver verður við stjórnvölinn þegar
hann gengst undir hjartaaðgerð
síðar í þessum mánuði.
Gaf hann út tilskipun um að
Víktor Tsjernomýrdín forsætisráð-
herra mundi gegna öllum skyldum
forseta, þ. á m. fara með vald yfir
kjarnorkuvopnum Rússa.
ÍSRAELSHER staðfesti seint í
gær fregnir um að tveir ísraelsk-
ir hermenn hefðu látist í átökum
við Hizbollah-skæruliða í suður-
hluta Líbanons. f tilkynningu
hersins sagði að ísraelskir her-
menn hefðu fellt þrjá vopnaða
menn Hizbollah.
Sagði að ísraelsher hefði
brugðist við þessum skærum með
því að gera árásir á Hizbollah
úr lofti.
A myndinni sjást ísraelskar
Cobra-þyrlur í eftirlitsflugi á
landamærum Líbanons og ísra-
els.
Vilja efla friðarsamstarf
Atlantshafsbandalagsins
Helsinki. Reuter.
INNAN Atlantshafsbandalagsins er
verið að vinna að áformum um að
efla hið svokallaða friðarsamstarf
(PfP) NATO til að koma til móts
við þau ríki, sem verða skilin eftir
þegar fyrstu nýju aðildarríkjunum
eftir iok kalda stríðsins verður veitt
innganga í bandalagið.
Haft er eftir stjórnarerindrekum
að þar sem iíklega gangi einhver
fyrrverandi kommúnistaríki í
NATO 1996 sé ráðgert að óháð ríki
og þjóðir, sem ekki fá inngöngu,
geti tekið þátt í öflugra friðarsam-
starfi.
„PfP-plús ætti að veita vissu um
að öryggi stækkaðs Atlantshafs-
bandalags og samstarfsfélaga þess
er nátengt," sagði Javier Solana,
framkvæmdastjóri NATO, í gær.
sinna sisra í Bosníu
Mvo. Reuter.
flokkar þjóðernissinna unnu
sigur í kosningunum til landsþings
Bosníu-Herzegóvínu og tveggja
svæðisbundinna þinga, samkvæmt
niðurstöðum þegar nánast öll at-
kvæði höfðu verið talin í gær. Carl
Bildt, sem stýrir uppbyggingarstarfi
í Bosníu, sagði í gær að hann mundi
fagna því ef Sameinuðu þjóðirnar
veittu leyfi til að beita refsiaðgerð-
um ef þyrfti að knýja þjóðernissinna
til samstarfs í Bosníu eftir kosning-
arnar.
Þegar atkvæði úr kosningunum
14. september höfðu verið talin frá
127 talningastöðum af 148 höfðu
hinir þrír flokkar þjóðernissinna,
Lýðræðisflokkur múslima (SDA),
Lýðræðisflokkur Serba (SDS), og
Lýðræðissamband Króata (HDZ),
fengið iangflest sæti jafnt á lands-
þinginu, sem og í þingi lýðveldis
Bosníu-Serba og þingi sambands-
lýðveldis múslima og Króata.
Fulltrúar sömu flokka skiptu
sætunum þremur í hinu nýmyndaða
forsætisráði milli sín. Alija Izet-
begovic, flokki múslima, verður for-
seti forsætisráðsins þar sem hann
Bildt vill heimild
til refsiaðgerða
fékk flest atkvæði eins og greint
var frá í fyrradag.
Ágreiningur
á öðrum degi
Aðeins degi eftir að greint var
frá úrslitunum kom upp ágreiningur
milli leiðtoga Serba og múslima í
forsætisráðinu. Osamkomulag er
um það hvar ráðið skuli koma sam-
an, hvernig embættiseiðurinn éigi
að hljóða og fleira. Momcilo Kraji-
snik, fulltrúi Serba í ráðinu, kvaðst
i gær vilja að ráðið gegndi hlutverki
sínu, en kröfur hans voru í beinni
andstöðu við Izetbegovic. Hann
kvaðst andvígur því að Izetbegovic
gegndi formennsku í ráðinu næstu
tvö ár, eins og skipuieggjendur
kosninganna höfðu ákveðið. Sagði
hann að þremenningarnir í forsætis-
ráðinu ættu að vera í forystu til
skiptis, átta mánuði í senn.
Þá er deilt um embættiseið Kraj-
isniks. Ekki er ljóst hvernig hann
eigi að hljóða og sagði Izetbegovic
í gær að ráðið gæti ekki komið sam-
an fyrr en Krajisnik hefði svarið
stjórnarskrá Bosníu hollustueið.
Gagnrýnendur sögðu að sigur
þjóðernissinna mundi leiða til þess
að á ný tækjust á andstæðar fylk-
ingar í Bosníu og upp kæmi sama
ástand refskákar og þráteflis sem
fyrir fjórum árum lyktaði með stríði
í landinu.
Vestrænir eftirlitsmenn friðar-
umleitana í Bosníu sögðu hins vegar
að þess yrði krafist að fylkingarnar
virtu skuldbindingar um að deila
völdum og helga sig því að sameina
ríki Bosníu.
Samkvæmt upplýsingum frá Ör-
yggis- og samvinnustofnun Evrópu
(ÖSE), sem sá um skipulag og fram-
kvæmd kosninganna, fékk flokkur
Izetbegovic 54,3% atkvæða og tvo
þriðju af 42 sætum, sem ætluð eru
sambandslýðveldi múslima og Kró-
ata á landsþinginu. Flokkur Króata
fékk 23,4% atkvæða. í serbneska
lýðveldinu fékk SDS 54,3% í kosn-
ingunum til landsþingsins.
Vill vernd gegn Irökum
Kúyeit, Washington. Reuter.
RUMLEGA tvö hundruð bandarískir
hermenn komu í gær til Kúveits og
héldu að landamærum íraks. Flug-
móðurskipið Enterprise sigldi inn á
Persaflóa og eru þar nú tvö banda-
rísk flugmóðurskip. John Deutch,
yfirmaður bandarísku ieyniþjón-
ustunnar, CIA, sagði í gær að leið-
togi Kúrdahreyfingarinnar, sem
náði völdum í norðurhluta íraks með
hjálp Saddams Husseins, forseta
Iraks, hefði óskað hjálpar andstæð-
inga Saddams, þar á meðal Banda-
ríkjamanna, til að halda honum í
skefjum.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
sagði í viðtali við Barböru Waiters,
fréttamann sjónvarpsstöðvarinnar
ABC, að Bandaríkjamenn væru ekki
að „reyna að losa sig við“ Saddam.
Hættulegur leikur
Sagði Deutch leyniþjónustunefnd
öldungadeildar Bandaríkjaþings að
Massoud Barzani, leiðtogi Lýð-
ræðisflokks Kúrdistans (KDP), hefði
leitað til andstæðinga Saddams.
„Barzani er að ieika mjög hættu-
legan leik,“ sagði Deutch. Hann
sagði að KDP hefði náð nánast öll-
um völdum í norðurhluta íraks.
Deutch sagði að Saddam hefði
styrkst pólitískt á undanförnum sex
vikum, þótt dfcgið hefði úr hernað-
arstyrk hans. Ekki væri líklegt að
Saddam yrði steypt á næstunni.
, Reuler
RUMLEGA 230 bandarískir hermenn komu til Kúveits í gær.
Þeir eru hluti af 3.500 manna liði, sem þangað á að senda.