Morgunblaðið - 20.09.1996, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1996 13
FRÉTTIR
Félag þroskaþjálfa
Innganga
ÍSFR
samþykkt
AÐALFUNDUR Félags þroska-
þjálfa samþykkti á þriðjudags-
kvöld að breyta því úr fagfélagi í
stéttarfélag og óska aðildar að
Starfsmannafélagi ríkisstofnana í
kjölfarið.
Fjölmennt var á fundinum, eða
um 120 manns. Tekist var á um
hvort ganga ætti í SFR eða óska
aðildar að BSRB. Atkvæði féllu
þannig að 33 sögðu já en 72 sögðu
nei við inngöngu í BSRB, en 76
sögðu já við inngöngu í SFR en
20 sögðu nei, og auðir og ógildir
seðlar voru 8.
Stéttinni til sóma
Hrefna Haraldsdóttir formaður
félagsins kveðst afar sátt við þessa
niðurstöðu og telja hana allri stétt
þroskaþjálfa til sóma. Á fundinum
hafi verið skiptar skoðanir eins og
eðlilegt sé, en góð aðsókn sýni að
hennar mati að hugur sé innan
stéttarinnar.
Guðný Stefánsdóttir, ein þeirra
sem vildu inngöngu í BSRB, kveð-
ur niðurstöðuna vonbrigði að því
leyti að ákveðinn hluti félags-
manna hafi viljað að félagið stæði
á eigin fótum, auk þess sem marg-
ir þeirra þroskaþjálfa sem starfa
hjá hinum ýmsu sveitarfélögum
búi við óvissu um hvort þeir haldi
áunnum réttindum sínum við inn-
göngu í SFR. Hún telji hins vegar
aðeins um áfanga að ræða.
Framhaldsaðalfundur verður
haldinn næstkomandi þriðjudag.
Þar verða drög að lagabreytingum
rædd, auk þess sem kosið verður
í stjórn. Formaður félagsins,
Hrefna, kveðst ekki gefa kost á
sér til áframhaldandi setu í emb-
ætti.
-----»• ♦ ♦---
Tvö ný apótek
fá leyfi
borgarráðs
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
fyrir sitt leyti erindi heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytisins
um leyfi fyrir tveimur nýjum apó-
tekum í borginni, við Langarima
21-23 í Grafarvogi og við Ármúla
7.
Erindið var samþykkt með fjór-
um atkvæðum í borgarráði en
Guðrún Ágústsdóttir sat hjá og
vísaði til fyrri bókunar varðandi
veitingu lyfsöluleyfa.
í erindi ráðuneytisins til borgar-
ráðs kemur fram að samkvæmt
lyfjalögum ber að óska eftir um-
sögn sveitarstjórnar um lyfsölu-
leyfi. Samkvæmt þeim lögum skuli
við mat á umsókn meðal annars
stuðst við íbúðafjölda að baki lyfja-
búðar og fjarlægð hennar frá
næstu lyfjabúð.
Þetta bara er í hættu!
.. .því ekki er víst að það muni hafa aðgang að tölvu með íslensku stýrikerfi. Þess vegna er máltilfinningu þess og orða-
forða hætta búin. Við viljum að sjálfsögðu búa börnum okkar bjarta framtíð, þar sem íslensk menning er í hávegum
höfð. Það getum við gert með því að miðla þeim af visku og þekkingu okkar, kenna þeim góða siði og veita þeim
vandað, öflugt námsefni og verkfæri. Vitanlega á allt námsefnið að vera á íslensku, því málfar barnanna mótast af því
sem íyrir þeim er haft. Apple-umboðið er eina íslenska fyrirtækið sem ver árlega umtalsverðu fé til íslenskunar á nýjum
uppfærslum stýrikerfis og hugbúnaðar, s.s. ritvinnslu, töflureikni, gagnagrunni, kennsluforritum og ýmsu fleira. Veitum
börnunum okkar aðeins það besta - kennum þeim íslensku og bjóðum þeim tölvur sem eru á sama máli og þau.
Apple-umboðið
Skipholti 21, 105 Reykjavík, sími: 511 5111
Heimasíða: http://www.apple.is
Blab allra landsmanna!
- kjarni málsins!
Sjóvá-Almennra deildin á Lengjunni
1,15 4,00