Morgunblaðið - 20.09.1996, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.09.1996, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA PfaraiMtÞIiifrlfe 1996 HANDKNATTLEIKUR FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER BLAÐ Birgir Leif- ur lékfrá- bærlega BIRGIR Leifur Hafþórsson, hinn ungi íslands- meistari frá Akranesi, lék frábærlega f gær á Opna ítalska mótinu í golfi. Hann lék vðllinn á 65 hðggum, fjórum hðggum undir pari og mun því taka þátt í holukeppninni sem hefst í dag. „Strákurinn lék stórkostlega og við látum okkur nægja að gleðjast yfir hans skori,“ sagði Bjðrg- vin Þorsteinsson, sem lék á 78 hðggum í gær og komst ekki áfram í hóp þeirra 32 bestu. „ Annars bætti ég mig um sex hðgg frá því á fyrsta hring og er því á réttri leið, hefði verið orðinn góður á sunnudaginn," sagði Björgvin í léttum tón í sam- Kristján Arason, þjálfari Wallau-Massenheim, eftirtap gegn Essen „Patrekur skaut okkur á kaf“ tali við Morgunblaðið í gær. Birgir Leifur fékk 7 fugla á hringnum og þijá skolla og hefði þvi hæglega getað komið inn á enn lægra skori. I dag leika 36 bestu holu- keppni, 18 holur, fyrir há- . degi ogeftir hádegi þeir 16 bestu. Á laugardagiim verða átta fyrir hádegi og undan- úrslitin eftir hádegi og á sunnudaginn verður 36 holu úrslitaleikur, einnig holu- keppni. „Við verðum þar,“ sagði Bjðrgvin en hann ætl- ar að vera kylfusveinn hjá Birgi Leifi í holukeppninni. KRISTJAN Arason og lærisveinar hans hjá Wallau-Massenheim mættu ofjarli sinum þegar þeir heimsóttu Essen á miðvikudags- kvöldið til að leika 11. deildarkeppninni í Þýskalandi. Þar hittu þeir fyrir Patrek Jóhannesson í vigamóði; að hætti víkinga frá fyrri tið. „Patrekur var okkur erfiður, hann hreinlega skaut okkur á kaf,' sagði Kristján. Við lögðum áherslu á að stöðva Hvít-Rússann Aleksandr Tutschkin og tókst okkur það mjög vel, vorum 4 mörkum yfir í leikhléi, 12:16, og leiddum lengi vel framan af í seinni hálfleik. Það var þá sem Patrekur fór á ferðina og töframað- urinn Stefan Hecker sagði lok, lok og læs. Hann varði fjórum sinnum skot frá okkur úr dauðafærum og gaf okkur síðan langt nef með því að veija vítakast. Patrekur, sem íék mjög vel í vörninni, skoraði mörk í öllum regnbogans litum — 4 úr víta- köstum, með þremur góðum lang- skotum, eitt úr hraðaupphlaupi, tvö með gegnumbrotum og brá sér inn á iínuna til að skora 1 mark. Þá átti hann hnitmiðar sendingar, sem vörn okkar átti erfitt með. Það er mjög gott fyrir Patrek að byija eins vel og hann hefur gert, skora 19 mörk í tveimur fyrstu leikj- um sínum. Þessi góða byijun hefur tekið alla pressu af honum og hann naut sín svo sannarlega fyrir framan hátt í þijú þúsund áhorfendur í Ess- en. Patrekur, Tutschkin og Hecker eiga eftir að leika stór hlutverk hjá Essen í vetur,“ sagði Kristján, sem var ekki ánægður með leik sinna manna. „Við lékum vel í fyrri hálfleik, illa í þeim síðari. Við erum með marga góða einstaklinga, en eigum eftir að flnpússa ýmislegt. Tveir af nýjum leikmönnum okkar voru lítið með á undirbúningstímabilinu vegna meiðsla, Rússinn Dimitri Torgow- anow og Frakkinn Frederic Volle, ásamt þýska landsliðsmanninum Mike Fuhrig," sagði Kristján. SJONVARP KKÍ semur við Stöð 2 og Sýn Stjórn Körfuknattleikssambands íslands ákvað á fundi í gær- kvöldi að ganga til samninga við Stöð 2 og Sýn um sýningar frá inn- lendum körfuknattleik næstu árin. Samningurinn verður til 5 ára og tekur bæði til landsleikja og deildar- og bikarleikja. Stöðvarnar greiða, skv. heimildum Morgunblaðsins, tæpar 15 milljónir króna á samnings- tímanum skv. tilboði. Um verður að ræða svokallaðan forgangsréttarsamning, þannig að aðrar stöðvar geta sýnt frá körfu- boltaleikjum en Stöð og Sýn hafa alltaf forgang - geta því valið leiki, og öðrum stöðvum verður ekki heim- ilt að sýna þá. Hart er nú barist á sjónvarpsmarkaði hérlendis um íþróttaefni. Ríkissjónvarpið og Stöð 3 hafa keypt einkarétt til sýninga frá handbolta næstu fjögur árin eins og greint var frá í blaðinu í gær og nánar í dag og Stöð 2 hefur nælt í einkarétt á sýningum frá aksturs- íþróttum næstu árin og þátturinn Mótorsport, sem verið hefur á dag- skrá RÚV undanfarið, flyst því yfir á Stöð 2 næsta sumar. ■ Hreyfingln / C4 ■ Stöö 2 / C4 PATREKUR Jóhannesson hefur byrjað keppnistímabilið f Þýskalandi glæsilega. Kristján Arason þjálfari Wallau Mass- enhelm hællr honum á hvert relpl fyrlr frammlstöðuna. Birkir undir smásjánni BLÖÐ í Bergen hafa sagt frá því að Birkir Kristinsson, landsliðsmarkvörður íslands, sé undir smásjánni hjá félög- um utan Noregs. Sagt hefur verið fráþví að „iýósnarar“ frá hollenska liðinu FC Twente Enschede hafí gert sér ferð til Bergen á dögun- um til að fylgjast með Birki og einum varnarmanni Brann. Þá hefur verið sagt frá „iyósnurum“ frá enskum liðum, sem eru orðnir dag- legir gestir á norskum knatt- spyrnuvölium. Brann seldi t.d. fyrirliða sinn, vamar- manninn Klaus Lunde- kvamm, til Southampton á dögunum og hjá liðinu er einnig er miðherjinn Thoren Andre Flo, bróðir Jostein Flo, til reynslu. Frode Grodás, landsliðsmarkvörð- ur Noregs, sem leikur með Lilleström, er á förum til Chelsea. Hann hefur verið lánaður til Lundúnarliðsins út árið, þar sem rússneski landsliðsmarkvörðurinn Dmitri Kharin er meiddur. Rúnar skoraði RÚNAR Kristinsson, lands- liðsmaður í knattspyrnu, kom Örgryte á bragðið, þeg- ar hann skoraði í sigurleik gegn Falkenberg í sænsku bikarkeppninni, 8:1. Örebro vann Vesterás 2:1 á útivelli, eftir framlengingu. Pétur Marteinsson og félagar hjá Hammerby fögnuðu sigri á Enköping, 2:0. Einar Brekk- an skoraði ekki þegar Sirius vann Ope á útivelli, 2:1. KNATTSPYRNA: NORSKILANDSLIÐSÞJÁLFARINN KANNAR MÁL BIRKIS / C3

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.