Morgunblaðið - 22.09.1996, Page 1
96 SIÐUR B/C/D
216. TBL. 84. ÁRG. SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Morgunblaðið/RAX
*
Utivistardögum fækkar
NÚ haustar að og lýkur því hvað úr hverju útivistardögum hreppi njóti útiverunnar. Við tekur vetrardvöl innandyra
kúnna. Er ekki annað að sjá en þessi kúahjörð í Hrunamanna- áður en kýrnar fá að sletta úr klaufunum á ný að vori.
Skurðaðgerð á Jeltsín
talin of áhættusöm
Moskvu. Reuter.
HJARTASKURÐAÐGERÐ á Borís Jeltsín Rússlandsforseta gæti reynst of áhættusöm til
þess að vera réttlætanleg, að sögn rússneska skurðlæknisins Renats Aktsjúríns. Ákveðið
verður næstu daga hvort af aðgerðinni verður og kvaðst Aktsjúrín þrátt fyrir allt vona að
af henni gæti orðið. Hann kvaðst einungis vilja leggja áherslu á hætturnar sem því fylgdu
að gera aðgerð á forsetanum svo að hann gæti lifað aftur eðlilegu lífí.
Æfðuhundaí
sprengjuleit í
TWA-þotunni
New York. Reuter.
ÞOTA TWA-flugfélagsins sem splundr-
aðist á flugi skömmu eftir flugtak frá
New York 17. júlí sl. var notuð í fyrra
til að þjálfa sprengjuleitarhunda og
gætu örlitlar sprengiefnaleifar, sem
fundist hafa í braki þotunnar, verið frá
þeim tíma, að sögn embættismanna.
Bögglar með sprengiefni voru faldir
víðs vegar í Boeing-747 þotunni er
hundaþjálfunin, sem var á vegum alrík-
islögreglunnar (FBI), fór fram. í lok
æfingarinnar, sem fór fram á ótil-
greindum tíma í fyrra, voru bögglarnir
fjarlægðir.
Talsmaður Oryggisstofnunar sam-
göngumála (NTSB) sagði að þessi
sprengiefni skýrðu ekki hvers vegna
þotan fórst. Aðeins sprengiefni hefðu
verið í bögglunum, ekki fullbúnar
sprengjur, og engir þeirra hefðu verið
skildir eftir um borð.
Örsmáar leifar sprengiefnanna
PETN og RDX, uppistöðuefna Semtex-
sprengiefnisins, hafa fundist á tveimur
stöðum, sem langt var á milli, í braki
TWA-þotunnar. Þykja leifarnar ónógar
til að hægt verði að fullyrða að
sprengja hafi grandað þotunni. Til við-
bótar hafa engin ummerki fundist á
brakinu, sem venjulega fylgja spreng-
ingu, og því beinist rannsóknin á slys-
inu nú meir að hugsanlegri bilun í raf-
kerfi eða sprengingu í eldsneytistanki.
Heróín fannst
í forsetaþotu
Bogota. Reuter.
RUMLEGA þijú kíló af heróíni fundust
falin í nefi og stéli Boeing-707 þotu
Ernesto Sampers, forseta Kólumbíu,
skömmu áður en hann ætlaði að halda
í opinbera heimsókn til höfuðstöðva
Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í New York.
Málið er hið vandræðalegasta fyrir
Samper því hann hefur verið sakaður
um að hafa fjármagnað kosningabar-
áttu sína fyrir forsetakjörið 1994 með
peningum frá Cali-eiturlyfjahringnum.
Hann var sviptur vegabréfsáritun til
Bandarikjanna í júlí sl. og sögðu sljórn-
völd í Washington ástæðuna vera tengsl
Sampers við fíkniefnasmyglara.
Carlos Medellin dómsmálaráðherra
skellti skuldinni á „glæpamenn sem
viljað hefðu skaða ímynd forsetans á
alþjóðavettvangi enn frekar“. Lék
grunur á að flugvirkjar hersins hefðu
átt hlut að máli. Fyndust fíkniefnin
eftir komuna til New York hefði Sam-
per átt yfir höfði sér handtöku þar.
Hefja aftur
heimkvaðningu
Moskvu. Reuter.
BROTTFLUTNINGUR rússneskra hersveita
frá Tsjetsjníju hófst að nýju í gær eftir 11
daga hlé vegna ágreinings um stríðsfanga.
í framhaldi af friðarsamningum, sem tókust
fyrir tilstilli Alexanders Lebeds, yfirmanns
öryggisráðs Rússlands, hófst brottflutningur
sveita 8. september en stöðvaðist daginn eft-
ir vegna ágreinings um lista yfir stríðsfanga
sem báðir deiluaðilar í Tsjetsjníju lögðu fram.
Fyrsta járnbrautarlestin hélt til stöðva 276.
rifflaherdeildarinnar í Úralfjöllum. Ráðgert
er að tvær lestar leggi upp frá Tsjetsjníju á
mánudag og þriðjudag.
Uppljóstrun Aktsjúríns þess efnis að Jelts-
ín hefði fengið hjartaáfall nokkrum dögum
fyrir seinni umferð forsetakosninganna, 3.
júlí sl., hefur vakið upp efasemdir um að
forsetinn lifi af eða nái sér nokkurn tíma
eftir fyrirhugaða skurðaðgerð.
Aktsjúrín sagði að sér hefði beinlínis verið
bannað af ráðamönnum í Kreml að fjalla um
sjúkleika forsetans í smátriðum. Honum hefði
aldrei verið tjáð að hann hefði fengið áfall,
annaðhvort í lok júní eða byijun júlí, en
greinileg merki þess hefðu komið fram á
hjartasneiðmyndum.
Jeltsín dró sig í hlé eftir fyrri umferð kosn-
inganna, 16. júní, og var því haldið fram að
hann væri með hálsbólgu og kvef, ekkert
alvarlegt amaði að honum. Víktor Tsjerno-
mýrdín forsætisráðherra fór þar fremstur í
flokki og sagði öðru hveiju að kvefið væri
að batna og forsetinn að endurheimta rödd-
ina.
Aktsjúrín mun stjórna aðgerðinni en mun
njóta aðstoðar og ráðgjafa Michaels DeBa-
key, eins færasta hjartaskurðlæknis Banda-
ríkjanna.
Aðeins nokkrir vissu um veikindin
Aktsjúrín skýrði frá hjartaáfailinu, hinu
þriðja sem Jeltsín verður fyrir, í samtali við
bandarísku sjónvarpsstöðina ABC í fyrra-
kvöld. Hann játaði að því hefði verið haldið
leyndu, aðeins nokkrir æðstu ráðmenn hefðu
fengið vitneskju um það. „Getur þú ímyndað
þér hvað gerst hefði ef forsetinn hefði sagt
öllum frá því að hann hefði fengið hjarta-
áfall og gæti ekki unnið?“ svaraði hann spurn-
ingu um hvers vegna veikindum forsetans
hefði verið haldið leyndum.
Rússneskir kommúnistar minntust þess á
Smolensktorgi í Moskvu í gær að þrjú ár
voru liðin frá því að valdaránstilraun harð-
línumanna á þingi var stöðvuð. Ekkert bólaði
á samúð í garð Jeltsíns á útifundinum.
Mikil gróska
á Skaganum
Fiögur tungumál á
einu heimili
Afmæliskaffi
_ hjá 24
1Kaaber