Morgunblaðið - 22.09.1996, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 22.09.1996, Blaðsíða 1
Frekar indjáni en íslendingur (D Gengið á hljóðið SUNNUDAGUR SUNNUDAGUR 22. SEPTEMBER 1996 BLAÐ B Vegurinn inn að Nesjavallavirkjun hefur opnað íbúum höfuðborgarsvæðisins leið að útivistarparadís við bæjardyrnar. Pétur Gunnarsson blaðamaður og Þorkell Þor- kelsson ljósmyndari lituðust um við Hengil- inn. í Grafningnum á Reykjavíkurborgþrjár jarðir, Nesjavelli, Ölfusvatn og Úlfljótsvatn, þar sem unnið er af krafti að landgræðslu og skógrækt og merktar gönguleiðir ná yfir 120 kílómetra. MOGULEIKAR á nátt- úruskoðun eru nánast ótæmandi á Hengils- svæðinu og athyglis- verðar gönguleiðir liggja hvar- vetna um sögustaði og minjar. Hengilssvæðið státar líka af flestu því sem prýðir íslenska náttúru, spennandi landslagi, hverir og laugar á jarðhitasvæði og gígar, hraun og ummerki um eldvirkni minna hvarvetna á að svæðið stendur á miðju gosbelti, gróðurfar er fjölbreytt, mosaþemba, heim- skautagróður í bland við birkikjarr og 50 ára gamlan barrskóg sem sker sums staðar í augu á haust- in. Fuglalíf er aúðugt, 50 tegundir eru þekktar; heiðlóa, hrossagauk- ur, himbrimi, skúfendur, smyrill og fýll, sem verpir við Þingvalla- vatn og hættir sér hvergi ijær ströndinni. Mikið er einnig um rjúpu á svæðinu en íjúpnaskyttur eru ekki velkomnar. Bíltúr um gígasvæðið Fegurð Hengilssvæðisins er aldrei meiri en í litadýrðinni á haustin og blasir ekki eingöngu við göngu- og útivistarfólki. Þeir sem njóta ósnortinnar náttúru best í gegnum bílrúðu komast líka í feitt því það er varla völ á skemmtilegri sunnudagsbíltúr en þeim að beygja inn á Hafravatns- veginn móts við Geitháls og fylgja As SJÁSÍÐU14 y- Kx- m > - - - ••

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.