Morgunblaðið - 24.09.1996, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA
1
1996
■ ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER
B
BLAÐ
SANDSPYRNA
IÞROTTAHREYFINGIN
ÍBR vill vinna að
sátt um sameiningu
Fjögur
Islands-
met slegin
FJÖGUR íslandsmet voru
slegin á íslandsmótinu í sand-
spyrnu á Akureyri á laugar-
daginn. Keppt var í sex flokk-
um og í opnum flokki spyrntu
Hafliði Guðjónsson og Valur
Vífilsson til úrslita. Valur sló
fyrst gildandi íslandsmet á
4,94 sekúndum, en Hafliði
bætti um betur á tímanum
3,833 í síðara mótinu af
tveimur sem fram fóru. A
myndinni eigast þessir öku-
menn við í úrslitum, en Haf-
liði tryggði sér íslandsmeist-
aratitilinn með því að sigra á
báðum mótunum. Þurfti
aukaspyrnur milli kappanna
til að skera úr um hvor ynni
sigur, svo jöfn var keppnin á
milli þeirra.
Formenn hverfafélaganna í
Reykjavík hittust á fundi hjá
Iþróttabandalagi Reykjavíkur í gær-
kvöldi vegna hugsanlegrar samein-
ingar íþróttasambands íslands og
Olympíunefndar íslands. Að sögn
Reynis Ragnarssonar, formanns
ÍBR, kom fram vilji til að nota tím-
ann vel fram að ársþingi ÍSÍ í lok
október til að finna farveg sem allir
gætu sætt sig með sameiningu í
huga.
Reynir sagði að fram hefði komið
að þjóðlönd væru sameinuð á styttri
tíma og mikið væri hægt að gera á
þeim mánuði sem væri til stefnu.
Hins vegar væru nokkur atriði í
drögum „nýrra“ samtaka sem menn
gætu ekki fellt sig við og unnið yrði
til þrautar að ná sáttum í því efni.
Eftirfarandi ályktun var sam-
þykkt á fundinum:
„Fundur formanna aðildarfélaga
ÍBR samþykkir að fulltrúar héraðs-
sambanda hefji viðræður við full-
trúa ólympískra sérsambanda um
sameiningu ÍSÍ og Óí. Verkefni við-
ræðunefndarinnar verði að endur-
skoða rekstur og skipulag yfir-
stjórnar íþróttahreyfingarinnar
m.a. með það í huga að draga úr
kostnaði, skilgreina verkefni og ein-
falda allan rekstur hreyfingarinnar.
Nefndinni er heimilt að ráða sér
óháða utanaðkomandi sérfræðinga
á sviði rekstrarráðgjafar.
Náist ekki samkomulag fyrir ÍSÍ-
þing í október nk. samþykkir fund-
ur formanna að beina þeirri tillögu
til stjórnar ÍBR í samráði við hér-
aðssambönd og sérsambönd að
skipa viðræðunefnd þessara aðila
til að k:ggja fram tillögu fyrir aðal-
fund ÓI og aukaþing ÍSÍ á næsta
ári um sameiningu samtakanna,
fjárhagslega endurskipulagningu
og að kanna möguleika á samein-
ingu þeirra og UMFÍ í ein samtök."
HANDKNATTLEIKUR: PATREKUR OG ESSEN Á TOPPNUM / B3
45.235.160 2.518.160
KIN a
17.09.-23.09. 96
UPPLYSINGAR
• Bónufivínningarnir voru solcJir á
eftirfarandi sölustööum. Markinu á
Akranesí, Sóluturninum Miðvangí i
Hafnarfírói. Allra best við Stiqahliö í
Reyk|avik oy Toppmyndum viö
Eddufolli i Reykjavik