Morgunblaðið - 24.09.1996, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1996 B 3
ÍÞRÓTTIR
KNATTSPYRNA
Eyjamenn sendu harðar ásakanir með margföldum hraða til föðurhúsanna
BoKinn snýst ekki um
óheiðarleika og peninga
Svindl í tengslum við getrauna-
starfsemi er alvarlegur hlutur
og ásakanir um að menn hafi vísvit-
andi rangt við með því að ákveða
úrslit leikja fyrirfram eru mönnum
langt því frá að vera sæmandi nema
100% sannanir liggi fyrir. Islenskar
getraunir duttu í þann fúla pytt að
væna Eyjamenn - og reyndar ís-
lenska knattspyrnuhreyfingu í heild
- um óheiðarleika með óvenjulegum
og áður óþekktum skrifum hér á
landi í leikskrá 38. leikviku Lengj-
unnar. „Við þurfum að vera 100%
öruggir um að úrslit séu ekki ákveð-
in fyrirfram og að leikur á Lengj-
unni sé í alla staði heiðarlega fram-
kvæmdur," var skýringin i skránni
á því að umræddur leikur var ekki
með í leiknum auk þess sem Lengjan
hafði heyrt og hafði eftir leikmönn-
um ÍBV að „best væri að tapa fyrir
ÍA til að komast í Evrópukeppni".
Eyjamenn þekktir fyrir annað
Eyjamenn eru þekktir fyrir að
gefa aldrei eftir og beijast til síð-
ustu stundar. Reyndar ræddu menn
um fyrir leikinn í Eyjum á laugardag
að gaman yrði að sjá frarrian í for-
svarsmenn Lengjunnar yrðu þrenn-
urnar margar, jafnvel á annan tug-
inn, en Lengjan greiðir leikmönnum,
sem gera þijú mörk í leik, 100.000
krónur. Glettnin var því til staðar í
herbúðum liðanna áður en flautað
var til leiks en eftir það tók alvaran
við í ausandi rigningu.
Skagamenn léku undan vindi í
fyrri háifleik og ætluðu greinilega
að tryggja stöðu sína í efsta sæti
1. deildar. Boltinn gekk hratt manna
á milli og góð skot hittu á markið
en Eyjamenn voru ekki á því að
gefa neitt. Tvisvar björguðu þeir á
línu í hálfleiknum og oftar en ekki
sýndi Friðrik markvörður meistara-
takta. En heimamenn voru líka
snöggir að snúa vörn í sókn - rétt
eins og á KR-velli í 16. umferð -
og Steingrímur gerði gott mark eft-
ir aukaspyrnu sem var fljótt og vel
úthugsuð hjá Tryggva um miðjan
hálfleikinn. Þeir fengu færi til að
bæta öðru marki við áður en Kári
Steinn jafnaði í kjölfar góðs spils
undir lok hálfleiksins en Tryggvi
„fraus“ fyrir opnu marki eftir að
Steingrímur hafði skotið í stöng.
Seinni hálfleikur var rétt byijaður
þegar Eyjamenn náðu forystu á ný
og aftur kom mark eftir hraða sókn
upp vinstri kantinn en Rútur Iauk
áhlaupinu. Ekki leið á löngu þar til
Kári Steinn hafði jafnað öðru sinni
eftir markvissa sókn á hægri vængn-
um en Tryggvi gerði út um leikinn
með skallamarki 20 mínútum fyrir
leikslok og sem fyrr kom boltinn frá
vinstri.
Hlynur á réttum stað
Viðureignin var skemmtileg á að
horfa, prúðmannleg og heiðarleg
eins og við var að búast. Skagamenn
áttu miðjuna og spiluðu oft vel en
tímabundinn doði og einbeitingar-
leysi komu þeim í koll. Eyjamenn
vörðust vel, skyndisóknir þeirra skil-
uðu tilætluðum árangri og fögnuður
þeirra var mikill í lokin enda höfðu
þeir ekki aðeins sigrað íslands- og
bikarmeistarana heldur sent alvar-
legar ásakanir á margföldum hraða
til föðurhúsanna.
Friðrik lék í markinu á ný og var
frábær. Fyrirliðinn Hlynur Stefáns-
son spilaði sem miðvörður í stað
Hermanns sem tók út leikbann og
átti staðan greinilega mjög vel við
hann en kappinn hefur aðeins einu
sinni áður verið miðvörður - í bikar-
úrslitaleiknum gegn ÍA í lok ágúst.
Hann var yfirvegaður og öruggur
og spilaði eins og sá sem valdið
Morgunblaðið/Sigfús G. Guðmundsson
Fögnuður
ÍBV fagnaði hverju marki vel og ekki síst sigurmarkinu.
* *
I liðinni viku ásökuðu Islenskar getraunir
íslensku knattspymuhreyfínguna um óheið-
arleika í sambandi við ákvörðun um úrslit
leikja og var spjótunum beint að Eyjamönn-
um. Steinþór Guðbjartsson fylgdist með
leik ÍBV og ÍA, sem Lengjan gaf til kynna
að úrslit yrðu jafnvel ákveðin í fyrirfram,
og varð vitni að því að fyrirtækið hljóp held-
ur betur á sig en ÍBV vann 3:2 í Eyjum.
hefur. Tryggvi og Ingi voru
skemmtilegir á köntunum og Rútur
og Steingrímur sköpuðu mikla hættu
með hraða si'num en miðjan var höf-
uðverkur sem oft fyrr.
Skagamenn héldu ekki haus allan
tímann og supu seyðið af því. Þórð-
ur markvörður lék ekki með vegna
veikinda og var eins og varnarmenn-
irnir treystu ekki Árna Gauti al-
mennilega en hann er traustsins
verður. Stefán, bróðir Þórðar, var í
leikbanni en Kári Steinn kom í stað-
inn, las miðheijastöðuna vel og gerði
tvö góð mörk. Steinar fór veikur af
velli í hálfleik en Sigursteinn tók
yfir á miðjunni og var óstöðvandi í
vörn sem sókn. Kraftur hans smit-
aði út frá sér í lokin en hefðu sam-
heijarnir verið ákveðnari fyrr er eins
líklegt að úrslit hefðu orðið önnur.
Hægri vængurinn var veiki hlekkur
liðsins hvað vörnina áhrærði og
kantmennirnir nýttust illa i sókninni.
Barátta
Verði Skagamenn íslandsmeist-
arar fara Eyjamenn í Evrópukeppni
bikarhafa en heimamenn hugsuðu
ekki um það heldur að beijast til
sigurs eins og þeir eru þekktir fyrir
og er aðal sannra íþróttamanna.
Þátttaka í Evrópukeppni getur gefið
mikla peninga í aðra hönd en Eyja-
menn eru nánast öruggir með sæti
í Toto-Evrópukeppninni næsta ár,
sem þykir að vísu ekki mjög merki-
leg en er ákveðinn stökkpallur og
veitir mönnum mikilvæga reynslu.
Með peninga í huga hagnast Eyja-
menn á því að Skagamenn verði ís-
landsmeistarar, úr því sem komið
er, en hafi það vafist fyrir einhvetj-
um ætti öllum að vera ljóst eftir
viðureign helgarinnar að boltinn
snýst ekki um óheiðarleika og pen-
inga í Eyjum - frekar en annars
staðar á landinu.
1B^\Tryggvi Guðmunds-
■ %#son var fjjótur að
taka aukaspymu vinstra megin
á miðjum vallarhelmingi ÍA á
24. mínútu. Hann sendi fram á
Steingrím Jóhannesson, sem
lék framl\já Árna Gaut Arasyni,
markverði, og renndi boltanum
af öryggi f netið.
1m 4| Sigursteinn Gfslason
■ I vann boltann við hlið-
arlínu vinstra megin, lék á vam-
armann og inn í teig, og renndi
fyrir markið á Bjarna Guðjóns-
son. í stað þess að skjóta sendi
hann á Kára Stein Reynisson,
sem var einn og yfirgefinn rétt
utan markteigshorns og hann
átti ekki í erfiðleikum með að
skora á 41. mfnútu.
2a 4 Eyjamennimir
■ I Tryggvi Gi'ðmunds-
son, ívar Bjarkiind og Rútur
Snorrason iéku hratt og
skemmtilega upp að endamörk-
um vinstra megin. ívar gaf fyrir
markið og þar afgreiddi Rútur
boltann í netið á 47. mínútu.
■ Skagamenn sóttu
■ fciupp hægra megin á
56. mínútu. Sturlaugur Haraids-
son gaf á Ólaf Þórðarson sem
sendi aftur á bakvörðinn en
hann sendi fyrir markið þar sem
Kári Steinn Reynisson var vel
staðsettur og hann skaut boltan-
um í hiiðametið fjær.
31 Eftir hornspyrnu á
■ JCb69. mínútu fékk Ingi
Sigurðsson boltann aftur frá
ívari Bjarklind og gaf fyrir
markið þar sem Tryggvi Guð-
mundsson laumaði sér á milli
mótherjanna og skallaði í mark-
ið.
HANDBOLTI
Essen
trónir á
toppnum
Essen er eina liðið í þýsku 1.
deildinni í handknattleik sem
hefur unnið þijá fyrstu leikina. Á
sunnudaginn sigraði Essen lið Nied-
erwúrzbach 27:24. Patrekur Jó-
hannesson gerði eitt mark í leiknum
en Hvít-Rússinn Aleksandr Tutsch-
kin var markahæstur í liði Essen
með 9 mörk. Essen hefur fullt hús
stiga eða sex eftir þijár umferðir.
Nettelstedt og Lemgo koma næst
með 4 stig.
Sigurður Bjarnason gerði 3 mörk
fyrir GWD Minden sem vann
Schutterwald 32:29 á útivelli. Rób-
ert Sighvatsson gerði eitt mark fyr-
ir Shutterwald. Lið Kristjáns Ara-
sonar, Wallau Massenheim, tapaði
fyrir Niederwúrzbach 30:25.
íslendingaliðið í 2. deildinni,
WSV Wuppertal, sem Viggó Sig-
urðsson þjálfar og Ólafur Stefáns-
son og Dagur Sigurðsson leika
með, sigraði TSG Herdecke 23:15
á útivelli um helgina. Wuppertal er
nú í öðru sæti deildarinnar með 4
stig. Bad Schwartau er efst með
jafnmörg stig en hagstæðara
markahlutfall.
GOLF
Bandaríkin
burstuðu
Evrópu
Bandaríska kvennalandsliðið í
golfi gjörsigraði úrvalslið Evr-
ópu í Solheim keppninni, en um er
að ræða hliðstæðu Ryder keppni
karla. Evrópuliðið komst í 10:7 eft-
ir fyrsta leikinn á sunnudaginn, en
þá léku stúlkurnar holukeppni. En
síðan sprakk allt, Bandaríkin sigr-
uðu 17:11 og héldu því bikarnum.
LYFJAMAL
íþrótta-
maður
ítveggja
ára bann
Dómstóll, sem framkvæmdastjórn
íþróttasambands íslands skip-
aði vegna meints brots á lögum ÍSÍ
um lyfjamisnotkun íþróttamanna,
dæmdi í gær íslenskan íþróttamann
í tveggja ára keppnisbann vegna
neyslu ólöglegra lyfja.
íþróttamaðurinn féll á lyfjaprófi
eftir keppni í bikarmóti FRI í frjáls-
íþróttum í ágúst sl. Rannsókn leiddi
í ljós að hann hafði neytt amfetam-
íns og kókaíns og viðurkenndi hann
brot sitt. Dómstóllinn taldi brotið
alvarlegt, þar sem um var að ræða
ólögleg fíkniefni. Vegna þess að sýnt
þótti að þeirra hafði ekki verið neytt
í þeim tilgangi að ná betri árangri í
íþróttum, var ákveðið að beita lág-
marksrefsingu, sem er tveggja ára
keppnisbann.
Samkvæmt dómsúrskurðinum er
íþróttamaðurinn útilokaður frá þátt-
töku í íþróttamótum á vegum allra
sérsambanda ÍSÍ í 24 mánuði, frá
9. september 1996 að telja.