Morgunblaðið - 24.09.1996, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 24.09.1996, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER1996 B 9 KNATTSPYRIMA Adams fer ekki frá Arsenal „TONY Adams er ekki á för- um frá Arsenal,“ sagði Pat Rice um þann orðróm að George Graham vilji fá hann til Leeds. „ Adams verður áfram hjá okkur,“ sagði Rice, sem stjórnar Arsenal-liðinu þar til Arsene Wenger tekur við stjórninni en þá verður Rice aðstoðarmaður hans. Adams kom inn á sem vara- maður gegn Middlesbrough og stóð sig vel í fyrsta leik sínum með liðinu siðan í jan- úar. „Tony var eins og stóð- hestur í girðingu sem skyndi- lega var laus,“ sagði Rice. „Hann mun ekki hlaupa frá vandræðum sínum, heldur takast á við þau. Tony er mjög mikilvægur fyrir Ars- enal, bæði innan og utan vall- ár,“ sagði Rice. Tony Adams, sem hefur átt við áfengis- vandamál að stríða, lét það ekki á sig fá þó að áhorfendur hrópuðu oft á hann: „Þrefald- an vodka.“ Adams er þekktur fyi’ir að herðast við mótlæti og leika vel á útivöllum þegar áhorfendur hrópa að honum. Vialli þoldi ekki mót- lætið Þ AÐ var aftur á móti annar maður, sem þoldi ekki mót- lætið, var með leikaraskap og dólgshátt við áhorfendur og fékk þá gegn sér. Það var ítalinn Vialli þjá Chelsea sem þoldi greinilega ekki stórt tap gegn Liverpool, 5:1. Þetta var fyrsta tap Chelsea og margir segja að það hafi komið á réttum tíma, verið góð ráðn- ing fyrir Ruud Gullit og læri- sveina hans. NEIL Lewis, leikmaður hjá Leicester (t.h.) leikur á Ruel Fox hjá Tottenham. Berger er nýja stjaman á Anfield PATRIK Berger, hinn hárprúði sóknarleikmaður frá Tékklandi, fellur heldur betur inn íleik Liverpool-liðsins. Hann skoraðitvö frábær mörk þegar Liverpool skellti Chelsea 5:1 á Anfield Road. Berger skoraði þar með sex mörk á viku - tvö mörk þegar hann kom inná sam varamaður gegn Leicester á dögunum, tvö mörk fyrir Tékkland gegn Möltu sl. miðvikudag og tvö gegn Chelsea, ífyrsta leiksínum íbyrjunarliði. Liverpool erá toppnum i'Eng- landi og er liðiðtil alls líklegt í meistarabaráttunni. Það er þó of snemmt fyrir stuðningsmenn Liverpool að fara að fagna - fyrir sex árum vann Liverpool sex leiki í röð í byrjun og fagnaði tólf sigrum ífyrstu fjórtán leikjum sínum. Þegar upp var staðið varð Arsenal meistari, Liverpool í öðru sæti. ÍÞRÚmR FOLX ■ TVÍBURARNIR Guðmundur og Sæmundur Jónssynir unnu síðasta rallmót ársins á Ford Escort. Keppt var á Suðurnesjum. Steingrímur Ing- asson og Jóhannes Jóhannesson á Nissan náðu forystu en óku út af og töpuðu miklum tíma og enduðu í sjö- unda sæti. ■ Sigurður Bragi Guðmundsson og Rögnvaldur Pálmasson á Talbot náðu öðru sæti og unnu titil í flokki eins drifs bíla í íslandsmótinu. í rall- inu unnu Garðar Þór Hilmarsson og Guðni Þorbjörnsson flokk Norð- dekk bíla. ■ BJÖRN B. Steinarsson vann reynda jaxla á krosshjólum í sand- spyrnunni og varð meistari, sem sveið þeim reyndari svolítið. Björn hefur síðustu ár liðsinnt kvartmílingnum Vali Vífilssyni af kappi og unnið mikið starf fyrir þá sem keppa í kvartmílu. Hann hefur í sex ár smíð- að Challanger ökutæki í kvartmíluna og ætlar að mæta í keppni á bílnum næsta sumar. ■ KARL Gunnlaugsson varð annar til meistara á krosshjólum. Hann keppti fyrir skömmu í kappakstri í Englandi en hætti með bilaða vél. í sömu keppni ók Þorsteinn Marel en varð einnig fyrir bilunum. Eftir keppni kastaðist síðan Þorsteinn fram yfír motokross hjól sem hann var að prófa og brotnaði á báðum höndum. ■ FINNUR Aðalbjörnsson keppti á motokross hjóli en hann er þekktari sem vélsleðamaður. Hann hefur fund- ið bensíngjöfina að nýju. Vann í sum- ar erfíða klifurkeppni á mótorhjólum. Finnur náði bronsi í sandspymunni og klykkti síðan út með því að æða mýri og djúpan skurð fulian af vatni upp undir hendur á mótorhjólinu. Nokkrum sinnum. ■ FINNUR er bóndi og smalar stundum á mótorhjóli sínu. Hann flaug af hjólinu 20 metra af hjólinu í lok smölunar einn daginn vegna þreytu, ók beint á barð. Hafði ekki orku í að taka í bremsuna, að sögn sveitunga hans sem sáu til. Hélt síðan áfram för sinni eins og ekkert hefði í skorist ■ AKUREYRINGURINN knái Jón Rúnar Rafnsson ók Ford Bronco 1974 í sandspymunni. Jeppa hans hafði verið ekið 300.483 km áður en að keppni kom og það hlýtur að vera einstakt í keppnistæki í akstursíþrótt- um. ■ GUNNAR Guðmundsson náði ekki að veija titil sinn í jeppafiokknum í sandspyrnunni. Sjálfskiptingin bilaði í tímatökum og hann var heppinn að geta keppt. Gunnar varð að sætta sig við annað sætið á eftir Gunnari Geirssyni á risavöxnum og þungum Ford Bronco. ■ JÓNAS Karl Harðarson átti í vandræðum í sandspyrnunni. Pakkn- ing hjá olíudælunni lak og titringur var í drifbúnaðinum þar sem keppnis- tæki hans hafði verið hækkað upp. Jónas keppir að öllu jöfnu í kvartm- ílu og varð þriðji að stigum í flokki útbúinna bila í sandspymunni. ■ BIRGIR Þór Bragason kvik- myndaði í Mótorsport þáttinn fyrir Ríkissjónvarpið í síðasta skipti á keppninni. Hann var heppinn að verða ekki fyrir spymugrind Kristjáns Skjóldals sem snarsnerist í rásmark- inu í einni spymunni. Birgir stóð þó eins og klettur og myndaði en bíllinn stoppaði í tveggja metra fjarlægð frá honum. Berger og hinn 21 árs Robbie Fowler, sem hefur skorað 67 mörk í 116 leikjum, vinna vel sam- an. Berger tók stöðu átta millj. punda mannsins Stan Collymore. Fowler opnaði leikinn fyrir Liver- pool með marki á fimmtándu mín., síðan skoraði Andy Myers sjálfs- mark, áður en Berger skoraði þriðja markið rétt fyrir leikhié og það fjórða á 49. mín. John Barnes rak smiðshöggið á sigurinn með marki á 57. mín., Frakkinn Frank LeBouef skoraði mark Chelsea úr vítaspyrnu á 85 mín. „Við getum leikið betur en við gerðum gegn Chelsea," sagði Roy Evans, knattspyrnustjóri Liver- pool, sem hefur unnið fimm leiki og gert tvisvar jafntefli í sjö fyrstu leikjunum í úrvalsdeildinni. Ruud Gullit, knattspyrnustjóri Chelsea, var ekki ánægður að leik loknum: „Við vorum sjálfum okkur verstir, gerðum slæm varnarmistök sem kostuðu mörk.“ Newcastle skaust upp í annað sætið með sigri á Leeds á Elland Road, 1:0. Alan Shearer, sem hefur skorað í tíu af ellefu leikjum sem hann hefur leikið gegn Leeds, skor- aði sigurmarkið á 59. mín. Carlton Palmer, varnarleikmaður Leeds, var rekinn af leikvelli á 30 mín., fékk að sjá gula spjaldið tvisvar á fjórum mín. „Eg get ekki sagt að Palmer hafi verið skynsamur, að næla sér í tvö gul spjöld á stuttum tíma fyr- ir eins brot. Það er hans höfuðverk- ur, ekki minn,“ sagði Shearer. Arsenal er komið í þriðja sætið með sigri á Middlesborough, 2:0. John Hartson færði Arsenal óska- byijun er hann skoraði fyrra mark- ið eftir þijár mín. og Ian Wright bætti öðru marki við á 27. min. Tony Adams kom inná sem vara- maður fyrir Lee Dixon á 30 mín. og átti skot í stöng. Áður hafði Fabrizio Ravanelli átt skot sem hafnaði á þverslánni á marki Arse- nal. Frakkinn Patrick Vieira, sem Arsenal keypti frá AC Milan á 3,5 millj. punda, lék í fyrsta sinn í byij- unarliði og átti mjög góðan leik á miðjunni. Gary Pallister, varnarmaður Manchester United, meiddist á hné á Villa Park, þar sem United varð að sætta sig við jafntefli gegn Ast- on Villa, 0:0. Peter Schmeichel lék ekki í marki United vegna meiðsla, stöðu hans tók Hollendingurinn Raimond Van Der Gouw. Blackburn, meistararnir frá 1995, eru á botni deildarinnar eftir jafntefli 1:1 gegn Everton. Skotinn Duncan Ferguson, miðheiji Ever- ton, var rekinn af leikvelli rétt fyr- ir leikslok. Grikkinn George Donis skoraði mark Blackburn á 32. mín., David Unsworth jafnaði fyrir Ever- ton fimm mín. síðar. Skallamark frá varamanninum lan Marshall á 86. mín. tryggði Leicester sigur, 1:2, á Tottenham á White Hart Lane. Þetta var fyrsta mark Marshall fyrir Leicester síðan hann var keyptur frá Ipswich á 800 þús. pund. Stóran þátt í sigrinum átti 18 ára táningur, Emile Heskey, sem lék varnarmenn Tottenham oft grátt - lagði upp fyrra markið, sem Steve Claridge skoraði eftir 22. mín. Clive Wilson skoraði mark Tottenham úr vítaspyrnu á 64. mín. Steve Walsh, fyrirliði Leicester, náði aftur á móti ekki að skora úr vítaspyrnu i leiknum þar sem Ian Walker varði skot hans. Wenger með Arsenal í Þýskalandi „ÉG mun ekki kaupa fræg nöfn, heldur góða knatt- spymumenn,“ sagði Arsene Wenger, knattspyrnusljóri Arsenal, þegar hann var spyrður hvort hann ætlaði að kaupa þekkta leikmenn til Ars- enal. „Eg mun ekki ana að neinu, ég hef leikmenn í huga sem geta styrkt leikmannahóp- inn.“ Wenger kom snöggt til Englands frá Japan fyrir helg- ina. Hann fór með Arsenal-Iið- inu til Middlesbrough og er nú með því í Þýskalandi til að sjá seinni leik Arsenal og Mönchengladbach í IJEFA- keppninni í kvöld. Arsenal tap- aði fyrri leiknura, 2:3, heima. Wenger heldur á ný til Japans á fimmtudag og stjórnar Grampus Eight í síðasta sinn á laugardaginn. Wenger tekur við stjórninni lyá Arsenal í byijun október. „Eg mun ekki stjórna Arsenal- liðinu gegn Mönchengladbacli, það sér Riee um og ég treysti honum fullkomlega,“ sagði Wenger.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.