Morgunblaðið - 25.09.1996, Qupperneq 2
2 MIÐVIKIIDÁGUR 25‘. 'sEPTEMBER' 1906
FRÉTTIR
MÓRbuNBLAÐIÐ
Varsla bamakláms
gerð refsiverð
RÍKISSTJÓRNIN fjallaði í gær um
nýtt frumvarp dómsmálaráðherra
sem gerir vörslu efnis sem flokkast
undir barnaklám refsiverða. í frum-
varpinu er gengið út frá þeirri skil-
greiningu að börn séu sýnd á kyn-
ferðislegan eða klámfenginn hátt.
Frumvarpið verður lagt fram til
kynningar í þingflokkum stjórnar-
flokkanna.
Björg Thorarensen, lögfræðingur
og deildarstjóri I dómsmálaráðuneyt-
inu, segir að nektarmyndir af börn-
um geti fallið undir skiigreininguna
Tvö reið-
hjólaslys
LÍKLEGT er að hjól strætisvagns
hafi farið yfir fótlegg reiðhjóla-
manns sem lenti fyrir strætis-
vagni í Vesturbergi á sjötta tím-
anum í gær. Maðurinn hlaut auk
þess áverka á höfði en hann var
ekki með hjálm.
Að sögn vakthafandi læknis á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur stóð til
að gera aðgerð á fæti mannsins
í gærkvöldi. Hann er ekki í lífs-
hættu.
Annað reiöhjólaslys varð á
Vesturgötu um svipað leyti.
Fólksbíl var bakkað á dreng á
reiðhjóli og skall hann með höf-
uðið í götuna. Hann var heldur
ekki með hjálm á höfði.
♦ ♦ »
Mega ekki flytja
óslægðan fisk milli
byggðarlaga
„Töpum
15-20%
gæðanna“
MEGN ÓÁNÆGJA er meðal fisk-
verkenda, sem kaupa fisk í ná-
grannabyggðarlögum og flytja
með bílum í vinnslur sínar, með
nýsetta reglugerð um meðferð og
vinnslu sjávarafurða. Hún bannar
allan flutning á óslægðum físki
milli byggðarlaga. Reglugerðin
kveður á um að slægja skuli fisk-
inn um leið og honum er landað.
Hermann Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Stakkavíkur hf. í
Grindavík, segir að reglugerðinni
hafi ekki verið verið beitt að gagni
ennþá. Hinsvegar sé Ijóst að reglu-
gerðin geti aldrei komið til fram-
kvæmda. „Það er ekki aðstaða á
minni bátum til að slægja fiskinn
úti á sjó. Það er heldur engin að-
staða í stærri höfnum til að slægja
allan þann físk sem getur farið um
þær á einum degi nema með mjög
stórri verksmiðju og miklum mann-
skap.
Það er að mínu mati ekki freist-
andi starfsemi því stundum fer
enginn fískur um höfnina í marga
daga. Það yrði löng biðröð fyrir
utan slægingaþjónustu í til dæmis
Sandgerði á góðum degi. Það tekur
hins vegar 15 mínútur að keyra
fiskinn til okkar í Grindavík. Ég
er sannfærður um að þetta þýddi
að við myndum tapa gæðum físks-
ins niður um 15-20%,“ segir Her-
mann.
■ Bannað að flytja/Dl
þótt skoða verði hvert tilvik í sam-
hengi. Brotið varðar sektum.
Frumvarp til laga um breytingu
á 210. grein almennra hegningar-
laga um klám var lagt fram á vor-
þingi og var markmiðið með því að
gera vörslu klámefnis refsiverða að
Bjargar sögn. í því frumvarpi hljóð-
aði umrædd málsgrein svo: „Hver
sem hefur í vörslu sinni ljósmyndir,
kvikmyndir eða sambærilega hluti
sem sýna börn í holdiegu samræði
eða öðrum kynferðismökum skal
sæta sektum." Ákvæðið þótti hins
HUÓÐFÆRUM og öðrum tækja-
búnaði, sem metinn er á nær 2
milljónir króna, var stolið nýlega
frá Jónasi Þóri Jónassyni tónlistar-
manni.
Tækin voru geymd í húsnæði
Nýja músíkskólans við Laugaveg
og höfðu verið reistir stillansar við
bygginguna í sumar vegna við-
halds. Innbrotsþjófarnir hafa
líklega fundið opinn glugga og kom-
ist að honum með því að klifra upp
vinnupallana.
Grunur um vltorðsmenn
Jónas segir ljóst að fleiri en einn
hafí verið á ferð, þar sem mörg þau
tæki sem stolið var séu þyngri en
svo að einn maður valdi þeim. Þjóf-
amir virðast hafa verið kunnugir
vegar einungis taka á vörslu grófs
barnakláms, segir Björg, og því
gengið út frá því nú að sýnt þyki
að verið sé að fremja kynferðisbrot
á barni.
Markmiðið að draga úr
eftirspurn
Málsgreinin, sem verður sú fjórða
ef frumvarpið fæst samþykkt, hljóð-
ar því svo: „Hver sem hefur í vörslu
sinni ljósmyndir, kvikmyndir eða
sambærilega hluti sem sýna börn á
kynferðislegan eða klámfenginn hátt
aðstæðum og þannig hafí þeir t.d.
fundið tæki sem voru hulin sjónum
undir stigaskoti í skólanum og haft
á brott með sér. Jónas kveðst helst
halda að sökudólgamir hafí átt vit-
orðsmann sem þekki til í húsnæðinu.
Jónas segir áætlað verðmæti alls
þess sem hvarf nema um 1,8 millj-
ónum króna, en þar á meðal vom
hljóðnemar, hátalarar, magnarar,
hljóðblöndunartæki, hljómborð og
ýmislegt fleira.
Rannsóknarlögregla ríkisins hef-
ur málið til rannsóknar.
Sennilega flutt úr landi
„Ég fékk þau svör hjá RLR að
ég ætti að hætta að gera mér von-
ir um að sjá þennan búnað aftur,
þar sem mjög líklega hefði hann-
skal sæta sektum." „Undir þetta
ákvæði geta fallið nektarmyndir af
börnum eða myndir með kynferðis-
legu yfirbragði. Það þarf ekki að
hafa verið brotið gegn barninu enda
er ómögulegt að ráða slíkt af mynd-
inni,“ segir Björg.
Hún segir jafnframt að með um-
ræddu ákvæði sé unnið að því
markmiði að draga úr framleiðslu
og eftirspurn eftir slíku efni. Taki
það gildi sé nóg að finna klámefni
í vörslu einhvers og einu gildi hvort
það sé til leigu eða láns.
þegar verið fluttur úr landi. Þjófarn-
ir hafi gengið skipulega til verks
og greinilega verið vel undirbúnir,
þannig að líkur séu til að við höfn-
ina eða einhvers staðar hafi beðið
gámur eftir góssinu. Ég varð að
sjálfsögðu afar undrandi, en svona
virðist þetta vera orðið hér á landi
eins og annars staðar, þótt maður
spyrji afhveiju „atvinnumennska“
af þessu tagi sé ekki upprætt fyrst
vitneskja um hana er til staðar,“
segir Jónas.
Tækjabúnaðurinn var tryggður
en Jónas segir ákveðinn tíma líða
áður en hann fái hann greiddan.
Hann hafi hins vegar getað stundað
starf sitt sem tónlistarmaður með
aðstoð góðra manna sem hafí lánað
honum tæki og hljóðfæri.
Formaður
orðunefnd-
ar biðst
lausnar
JÓNAS Kristjánsson hefur
beðist lausnar frá störfum í
orðunefnd af persónulegum
ástæðum, að sögn Kristjáns
Andra Stefánssonar deildar-
stjóra í forsætisráðuneyti.
Jónas hefur átt sæti í
nefndinni hátt á annan ára-
tug og gegnt formennsku.
Davíð Oddsson forsætisráð-
herra lagði beiðni Jónasar
fyrir ríkisstjórn í gær og mun
síðan legjgja til við forseta
íslands, Olaf Ragnar Gríms-
son, að Jónasi verði veitt
lausn. Engin tillaga hefur
verið gerð um eftirmann Jón-
asar að sögn Kristjáns Andra.
í orðunefnd eiga sæti auk
hins fráfarandi formanns
Baldvin Tryggvason, Ásgeir
Pétursson, Hulda Valtýsdótt-
ir, Sigmundur Guðbjarnason
og Kornelíus Sigmundsson.
Yrðlingur í
smala-
mennsku
Ólafsvík. Morgunblaðið.
LEIFUR Agústsson, refaskytta
í Mávahlíð, elur stundum yrð-
linga sér og öðrum til gamans.
í vor tók hann heim yrðling úr
greni við Hólahóla sem eru inn-
an væntanlegs þjóðgarðs undir
Jökli og er hann nú í góðu yfir-
læti í Mávahlíð, kátur og fjörug-
ur eins og þessir rebbar hans
hafa alltaf verið.
Yrðlingurinn er þó lélegur
smali, jafnvel kærulaus. Þetta
kom í Uós þegar hann fór með
Leifi og tíkinni Pílu í smölun á
Mávahliðarfelli. Það lék allt í
lyndi framan af og var yrð-
lingurinn einkar kátur og for-
vitinn þegar þeir fóru þjá einu
greninu á fjallinu. Þegar svo
Píla fór að sinna starfi sínu og
fór geltandi að kindum lét rebbi
sig hverfa og kom ekki heim
fyrr en daginn eftir og skellti
skollaeyrum við öllum áminn-
ingum.
Reyndar sver þessi litla refa-
læða sig rækilega í ættina. All-
ir yrðlingar sem í Mávahlíð
hafa verið sem heimalningar
hafa haft sína hentisemi um
flest, verið ufsum og ásum og
horfið endanlega til fjalls þegar
kall náttúrunnar hljómar á síð-
vetrarkvöldi.
BLAÐINU í dag fylgir fjög-
urra síðna auglýsingablað frá
BYKO.
FRÁ slysstað í Vesturbergi í gærkvöldi.
Morgunblaðið/Ingvar
Hljómtækjum fyrir um 2 milljónir stolið
Þjófamir þekktu
til aðstæðna