Morgunblaðið - 25.09.1996, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 1996 9
FRETTIR
1.000 ára afmæli Vínlandsfundar
Ættum að minnast
fyrsta hvíta mannsins
sem fæddist á Vínlandi
INDRIÐI G. Þorsteinsson rithöf-
undur telur að á þúsund ára af-
mæli Vínlandsfundar ættu ís-
lendingar að snúast til varnar
gegn tilraunum Norðmanna til
að eigna sér Leif Eiríksson og
aðra þá sögufræga menn sem við
teljum islenska en þeir segja
norska. Vænlegast til árangurs
telur hann að fjalla um fleiri en
Leif Eiríksson einan í tengslum
við Vínlandsferðir Islendinga.
„Eg held, og ræð það af því
sem ég hef lesið í erlendum tíma-
ritum, að Bandaríkjamenn
myndu veigra sér við að fá Norð-
menn upp á móti sér í þessu
máli. Ég held að við ættum að
fá Kanadamenn og Bandaríkja-
menn í lið með okkur til að minn-
ast sérstaklega Guðríðar Þor-
bjarnardóttur, en sonur hennar,
Snorri, var fyrsti hvíti maðurinn
sem fæddist í Ameríku.
Það er í raun ekki ómerkilegri
atburður en landafundirnir sjálf-
ir og því verður ekki neitað að
Snorri var Islendingur. Hann bjó
í Glaumbæ i Skagafirði. Guðríður
var merkileg kona, fór meðal
annars tvisvar til Rómar auk
Vínlands. Það er athugandi hvort
til dæmis Kanadamenn vilji ekki
gera kvikmynd í samstarfi við
okkur um Guðríði og Snorra og
Vínlandsferðina.
í tengslum við afmæli Amer-
Þing kem-
ur saman á
þriðjudag
FORSET íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, hefur að
tillögu Davíðs Oddssonar for-
sætisráðherra kvatt Alþingi
saman þriðjudaginn 1. októ-
ber.
AÐ venju hefst þingsetn-
ingarathöfnin í Dómkirkjunni
kl. 13,30. Að því búnu ganga
forseti og þingmenn til Al-
þingishússins, þar sem Al-
þingi verður sett.
íkusiglingar Kólumbusar var
ekkert ríkjasamstarf um að
minnast hans, og ég tel að það
hafi verið mistök. Með því að
leita eftir samstarfi við Kanada-
og Bandarikjamenn gætum við
gert betur.“
Formaður íslenskrar málnefndar segir áherslu á kvik-
myndaþýðingar mismikla
Spurning um pen-
inga og metnað
KRISTJÁN Árnason, prófessor og
formaður íslenskrar málnefndar,
segir ljóst af viðbrögðum talsmanna
þriggja kvikmyndahúsa við ályktun
nefndarinnar um þýðingar á kvik-
myndaauglýsingum, að spurningin
snúist um peninga og metnað.
Ályktun nefndarinnar um þýð-
ingar á auglýsingum um erlendar
kvikmyndir var birt í Morgunblað-
inu á miðvikudag og gerðu tals-
menn kvikmyndahúsanna þriggja
grein fyrir sínum sjónarmiðum í
blaðinu í gær. „Sumir líkja erlend-
um kvikmyndaheitum við vöru-
merki en hvað yrði sagt ef titill
erlendra skáldsagna væri látinn
óþýddur á bókarkápu“ spyr Krist-
ján. „Viðhorf hefur líka breyst með
tímanum því ég man ekki betur en
að allir hafi flykkst á kvikmyndina
Á hverfanda hveli, þó hún hafi heit-
ið „Gone With the Wind“ á frum-
málinu.
Bruðhjón
Allur borðhúnaður Glæsilcg gjafavara Brúðarhjöna listar
Laugavegi 52, s. 562 4244.
VERSLUNIN
Góð veisla í glœsilegum sall
Sunnusalur er glæsilegur salur sem hentar sérstaklega vel fyrir árshátíðir, afmæli,
brúðkaup og önnur veislusamsæti.
Kynnið ykkur góð kjör, athugið sérstakt árshátíðartilboð á föstudagskvöldum.
Allar nánari upplýsingar eru veittar í söludeild í síma 552 9900.
-þín sagal
Hagsmunaárekstrar menn-
ingar og framleiðenda
Kristján segir ennfremur að svo
virðist sem um hagsmunaárekstur
sé að ræða. „Þá á ég við menn-
ingarlega hagsmuni og hagsmuni
framleiðandans. Auðvitað átta ég
mig á hvaða sjónarmið ræður þeg-
ar þess er krafist að allt efni sé á
ensku. Framleiðendur vilja auðvit-
að að íbúar annarra landa séu sem
læsastir á þeirra framleiðslu. Þá
er spurningin sú hvort menn líta á
sig sem umboðsaðila þeirra eða
hvort kvikmyndahúsin telji sig part
af íslenskri kvikmyndamenningu.
Ef allar kvikmyndir eru auglýstar
á ensku og þurfa helst að vera
bandarískar til þess jafnvel að telj-
ast kvikmyndir, hvar stendur þá
íslensk kvikmyndagerð? Vilja inn-
lend kvikmyndahús ekki styðja við
hana með því að leggja áherslu á
íslensku sem kvikmyndamál" spyr
Kristján.
Kristján segir margar þjóðir
leggja metnað í að talsetja allar
myndir. „Sem væntanlega þýðir að
það er vinnandi vegur svo þetta er
eingöngu spurning um peninga og
metnað,“ segir hann loks.
GULLFOSS
HAUSTDRAGTIR - STUTTKÁPUR - SKÓR,
GULLFOSS
Miðbæjarmarkaði, sími 551 2315.
Daman auglýsir!
Fallegir prjónakjólar
peysur og vesti
Laugavegi 32, sími 551 6477.
:0
1/1
'O
QU
vr-t
s
3
G
d)
CO
MaxMara
Ný sending frá
Hverfisgötu 6, Reykjavík, sími 562 2862
• •
Orugg ávöxtun sparifjár
Spaiiskíiteini líkissjóðs með mismunandi gjalddaga
• Við bjóðum eldri flokka spariskírteina ríkissjóðs með gjalddaga
eftir 'h ár, IV2 ár, 2'h ár, 3'h ár og 4'h ár.
• Þú getur raðað saman mismunandi flokkum spariskírteina þannig að
þú sért alltaf með laust fé þegar þú þarft á því að halda.
• Spariskírteini eru tæki til að skapa þann hreyfanleika sem þú þarfnast.
Helstu flokkar
spariskírteina:
Hafðu samband við ráðgjafa
Þjónustumiðstöðvar ríkisverðbréfa
og fáðu nánari upplýsingar.
Sími 562 6040.
1992 1D5 Gjalddagi 1/2 1997
1993 1D5 Gjalddagi 10/4 1998
1994 1D5 Gjalddagi 10/2 1999
1995 1D5 Gjalddagi 1/2 2000
1990 2D10 Gjalddagi 1/2 2001
Fjölmargir aðrir flokkar spariskírteina eru einnig tii söiu. Hafa skal í huga að spariskírteini ríkissjóðs eru markaðsveröbréf sem eru skráð á Verðbréfaþingi íslands,
og eru þvl auðseljanleg á lánstlmanum. Kynntu þér möguleika sparisklrteina rikissjóös.
ÞJONUSTUMIÐSTOÐ
RÍKISVERÐBRÉFA
Hverfisgötu 6,2. hæð (neðsta húsið við Hverfisgötu)
sími 562 6040, fax 562 6068.
Hvað sem þú gerir - sparaðu með áskrift að spariskírteinum