Morgunblaðið - 25.09.1996, Side 18
18 MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
Reuter
RIITTA Uosukainen, forseti finnska þingsins, boðaði til blaða-
mannafundar til að kynna bók sína, þar sem er að finna árásir
á pólitíska andstæðinga og óvenju opinskáar lýsingar á ástar-
lífi þingforsetans.
Clinton segist
enginn
vinstrimaður ;
Washington. Reuter.
*
Astarfars-
lýsingar
þingfor-
seta vekja
undrun
Helsinki. Morgunblaðid.
UM FÁTT er meira talað í Finn-
landi þessa dagana en lýsingar
forseta þingsins á ástalífi sínu, en
þær er að finna í bók þingforset-
ans, sem út kom fyrir helgi og
kallast „Eldtungur" Þykir bókin
óvenju opinská en höfundurinn,
Riitta Uosukainen, fjallar m.a. um
hjónalífið með eiginmanni sínum
í 35 ár, Toivo „Topi“ Uosukainen
ofursta, auk þess sem hún ræðst
harkalega á samráðherra sína í
síðustu ríkisstjórn.
Riitta Uosukainen er þingmað-
ur Hægriflokksins og þykir opin-
skár og orðheppinn stjórnmála-
maður. í bókinni skrifar hún bréf
til nokkurra manna, fyrst og
fremst stjórnmálamanna, en það
hefur vakið undrun og hneykslun
margra hversu harðlega hún
gagnrýnir vinnubrögð Esko Aho,
fyrrverandi forsætisráðherra og
samráðherra hans í bréfunum.
Sjálf gegndi Uosukainen embætti
menntamálaráðherra í sljórn Aho.
Þrátt fyrir að gagnrýni Uosuka-
inen þyki á köflum jaðra við meið-
yrði, hafa lýsingar hennar á hjóna-
lífinu vakið mun meiri athygli.
Er bréf þingforsetans til eigin-
mannsins fullt þrár og ástar, hún
segist heppin að ástarlíf þeirra sé
svo gott eftir 35 ára hjónaband.
Bréfið er skrifað í kjölfar „æs-
andi“ helgar sem hjónin áttu sam-
an en þar segir m.a.: „Vatnsrúmið
var frábært, ekkert brak - og hví-
líkar skvettur í uppáferðinni." Þá
segir einnig að það að „geta elsk-
ast af krafti er merki um heil-
brigði, það er besta svefnmeðalið
og orkuuppsprettan.“
Léttvæg fundin
Aho segist ekki ætla að svara
ummælum þingforsetans um ólýð-
ræðisleg vinnubrögð og skort á
drengskap í stjórnarsamstarfinu.
Telja Miðflokksmenn að bók
Uosukainen verði vegin og létt-
væg fundin vegna kynlífslýsinga
hennar.
Miklar vangaveltur eru í Finn-
landi um hvort að bókin muni
marki lok stjórnmálaferils
Uosukainen en margir telja að hún
geri möguleika þingforsetans á
því að verða forsetaefni Hægri-
flokksins árið 2000 að engu.
Hún verður þó ekki á flæðiskeri
stödd fjárhagslega, því fyrsta upp-
lagið af bók Uosukainen er þegar
uppselt og hyggst útgefandinn
prenta allt að 40.000 eintök til
viðbótar. Hefur þingforsetinn nú
þegar hagnast um 3,7 milljónir
ísl. kr. á bókinni.
BILL Clinton, forseti Bandaríkjanna,
vísaði í fyrradag á bug þeim ásökun-
um keppinauts síns, Bob Doles, að
hann væri „vinstrimaður á laun“ og
sagði, að stórsigur repúblikana í
kosningunum 1994 hefði haft varan-
leg áhrif á stefnu demókrata. Kvaðst
hann einnig taka mátulega mikið
mark á skoðanakönnunum, sem
sýndu, að hann hefði mikið fylgi
umfram þá Dole og Ross Perot og
sagði, að demókrati á forsetastóli
hefði ávallt átt undir högg að sækja
í öðrum kosningum.
Síðasta breiðsíðan frá Dole er, að
Clinton sé vinstrimaður, sem geri
sitt besta til að fela það fram yfir
kosningarnar 5. nóvember, en í sjón-
varpsviðtali í fyrradag vísaði Clinton
því á bug. Kvað hann demókrata
hafa lært mikið á óförunum 1994
þegar repúblikanar náðu meirihluta
í báðum deildum þingsins auk þess
sem hans eigin ferill á forsetastóli
væri ekki til marks um vinstri-
mennsku. Nefndi hann sem dæmi
breytingar á velferðarkerfinu, að-
GRÍSKA ríkisstjómin verður áfram
skipuð sömu ráðherrum að verulegu
leyti, einkum þeim, sem farið hafa
með efnahagsmálin. Skýrði Costas
Simitis forsætisráðherra frá því í gær.
Yannos Papandoniou, sem er
þakkaður góður árangur í baráttunni
við verðbólguna, verður áfram efna-
hagsráðherra og fær fjármálaráðu-
neytið að auki. Þá verður Vasso
Papandreou áfram þróunarráðherra
og Theodoros Pangalos utanríkisráð-
herra.
Mesta athygli vekur og þykir bera
vott um áræði Simitis, að hann lætur
gerðir gegn glæpum og niðurskurð
á ríkisútgjöldum.
Dole sakaður um lágkúru
Gerði Clinton grín að þessum
ásökunum Doles en talsmaður Hvíta
hússins, Mike McCurry, sagði hins
vegar, að nú hefði Dole lagst lægra .
en nokkru sinni fyrr. Augljóst væri,
að hann og repúblikanar hefðu gefist I
upp á málefnalegri umræðu og j
treystu nú á skítkastið eitt.
Samkvæmt skoðanakönnunum,
sem birtar voru í fyrradag, hefur
Clinton 12 til 14 prósentustig um-
fram Dole, 52% á móti 40% og 51%
á móti 37%, en fylgi Perots mældist
4% og 6%. Hefur þetta forskot Clint-
ons ekkert breyst allan þennan mán-
uð en í viðtalinu í fyrradag vildi hann
samt ekki gera of mikið úr því. Sagði r
hann, að sagan væri sér víti til varn- ^
aðar, í heila öld hefðu aðeins tveir .
demókratar á forsetastóli verið end- *
urkjörnir. Þess vegna yrðu demó-
kratar að haga kosningabaráttunni
eins og allt væri í járnum.
Gerassimos Arsenis, sósíalista af
gamla skólanum, fyrir róða sem
varnarmálaráðherra og skipar í hans
stað Akis Tsohatzopoulos. Var sá
síðarnefndi andstæðingur Simitis og
bauð sig fram gegn honum í form-
annskosningum innan flokksins en
hefur nú algerlega snúið við blaðinu.
Alexandros Papadopoulos hverfur k
nú úr fjármálaráðuneytinu og tekur
við af Tsohatzopoulos sem innanrík- »
isráðherra og George Papandreou, p
sonur Andreas heitins Papandreous,
verður aðstoðarutanríkisráðherra í
stað menntamálaráðherra áður.
Stólaskipti í stjórn-
inni í Grikklandi ►
Aþenu. Reuter. |
Major reiður
vegna um-
mæla Clarkes
London. Reuter.
JOHN Major, forsætisráðherra Bret-
lands, er sagður ævareiður vegna
yfirlýsinga Kenneths Clarke fjár-
málaráðherra um stuðning við þátt-
töku Breta í hinum peningalega
samruna Evrópuríkja, EMU. Stefna
stjórnarinnar hefur verið sú að halda
öllum dyrum opnum en Clarke sagði
í viðtali á sunnu-
dag að það væri
„aumkunarvert*1
að ætla að bíða og
sjá hvernig mál
þróuðust.
Clarke hefur
ekki áður lýst yfir
jafneindreginn
stuðningi við sameiginlegu myntina
og rauf hann þar með óopinbert
vopnahlé innan íhaldsflokksins í
Evrópumálum.
Skrifstofa forsætisráðherrans
vildi ekki tjá sig um fregnir í bresk-
um blöðum í gær að Major væri
„mjög reiður“ vegna ummæla Clark-
es en talið er að þau geti valdið klofn-
ingi innan íhaldsflokksins.
Evrópuandstæðingar innan
Ihaldsflokksins þrýsta nú á Major
að reka Clarke úr stjórninni áður
en kosningar fara fram á næsta
ári. Það gæti þó reynst áhættusamt
að mati breskra fréttaskýrenda. í
fjármálaráðherratíð Clarkes hefur
tekist að koma í veg fyrir of mikla
þenslu, þrátt fyrir efnahagslega upp-
sveiflu, og nýtur hann mikillar virð-
ingar í viðskipta-
lífinu. Það gæti því
valdið efnahags-
legri óvissu ef
honum yrði fórnað
vegna pólitískrar
stundarhagsmuna
íhaldsmanna.
Þá myndi það
valda mikilli reiði í röðum Evrópu-
sinnaðra íhaldsmanna, sem hafa
verið að sækja í sig veðrið upp á
síðkastið í baráttunni við Evrópu-
andstæðinga innan flokksins.
Einnig herma heimildir að allt
að sex þingmenn íhaldsflokksins
hafi greint frá því að þeir myndu
láta af stuðningi við stjórnina ef
Ciarke segði af sér. Stjórnin hefur
einungis eins atkvæðis meirihluta á
þinginu.
EVRÓPA^,
Morgunblaðið/Reuter
Reiðir bændur
RÚMLEGA fimm þúsund írskir
bændur efndu í gær til mótmæla
fyrir utan Evrópuhótelið í Kill-
arney þar sem að Iandbúnaðar-
ráðherrar Evrópusambandsins
sátu á fundi og ræddu kúariðu-
málið. Vildu bændurnir mót-
mæla þeirri ákvörðun Breta að
hætta við fjöldaslátrun naut-
gripa til að útrýma kúariðu.
Otti neytenda við kúariðu hefur
valdið því að sala á nautgripaaf-
urðum hefur hrunið um alla
Evrópu.
Ráðskona
skýrði frá
ástkonunum
London. The Daily Telegraph.
FYRRVERANDI ráðskona Rod-
ericks Wrights, biskupsins af
Argyll, var í gær sögð hafa rætt
við æðstu menn kaþólsku kirkj-
unnar í Bretlandi fyrir þremur
árum og sakað hann um að hafa
verið í þingum við tvær konur.
Ileene McKinney, sem er 67
ára, varð ráðskona Wrights árið
1991, viku eftir að hann var
skipaður biskup. Tveimur árum
síðar fór hún á fund Keith O’Bri-
ens erkibiskups og Thomas
Winnings kardinála og skýrði
þeim frá kvennamálum biskups-
ins. Hún byggði ásakanirnar á
bréfum frá Wright, sem hún
hafði lesið, og símtölum hans
við konur. Ráðskonan mun hafa
nefnt tvö nöfn, Joanna og Kat-
hleen.
Biskupinn rak ráðskonuna
tveimur vikum síðar eftir að
kardinálinn og erkibiskupinn
báru ásakanirnar undir hann.
Wright sagði þeim að ekkert
væri hæft í þeim og O’Brien erk-
ibiskup segist hafa trúað honum.
Wright er nú í felum með
Kathleen MacPhee, fráskilinni
hjúkrunarkonu sem hann hyggst
kvænast, og hefur viðurkennt
að eiga 15 ára son með annarri
konu, Joanna Whibley.
'
í
I
i.
I
I
r
i
»