Morgunblaðið - 25.09.1996, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 1996 19
FRÉTTIR
Holbrooke
spáð
Nóbelsverð-
launum
AÐ sögn norsku fréttastof-
unnar Norsk Telegrambyrá
(NTB) er bandaríski samn-
ingamaðurinn Richard Holbro-
oke líklegastur til að hljóta
friðarverðlaun Nóbels í ár. Til-
nefningar um 120 menn og
stofnanir bárust en þeim hefur
verið fækkað í rúman tug og
nk. Tilkynnt verður hver
hnossið hlýtur 11. október.
Meðal tilnefndra eru Bill Clint-
on Bandaríkjaforseti, Jimmy
Carter fyrrverandi forseti, og
þrír kunnir hugsjónafangar,
Leyla Zana í Kína, Wei Jings-
heng í Kína og Mordechai
Vanunu í ísrael.
Kesri tekur
við af Rao
SITARAM Kesri, áttræð fyrr-
verandi frelsishetja, var í gær
kjörinn leiðtogi Kongress-
flokksins í Indlandi til bráða-
birgða þar til samkomulag
næst um nýjan eftirmann P.V.
Narashima Rao, fyrrverandi
forsætisráðherra. Rao sagði
fyrirvaralaust af sér leiðtoga-
starfi sl. laugardag eftir að
honum var stefnt sem vitni í
glæpamáli.
Kona stýrir
drengjakór
KONA hefur verið ráðinn
stjórnandi drengjakórsins í
Vínarborg og er þar með eitt
síðasta vígi karlanna í Austur-
ríki fallið. Agnes Grossmann,
heitir hún og tekur við af Pet-
er Marschik. Faðir hennar,
Ferdinand Grossmann, stjórn-
aði kórnum 1956-66. Kórinn á
rætur að rekja til 15. aldar og
var Franz Schubert á sínum
tíma í hópi kórfélaga. í síðasta
mánuði sögðu forsvarsmenn
Fílharmóníusveitar Vínar-
borgar, að þeir hygðust ráða
konur til starfa í hljómsveit-
inni. Konum hefur ekki verið
hleypt í hana frá stofnun sveit-
arinnar 1842.
Neituðu að
borga vernd
TALSMAÐUR innanríkisráðu-
neytisins í Vilnius í Litháen
sagði í gær, að sprengjutil-
ræði, sem framin voru nær
samtímis aðfaranótt mánu-
dags í þremur gleraugnaversl-
unum breska fyrirtækisins
Vision Express í þremur borg-
um landsins, væru verk glæpa-
samtaka. Augljóslega væri um
hefndaraðgerðir á hendur fyr-
irtækinu að ræða fyrir að neita
að greiða glæpamönnum
verndarfé.
Handtaka
í Belgíu
BELGÍSKA lögreglan handtók
í gær konu, Marleen De Coc-
kere, í tengslum við rannsókn
á málum barnaníðingsins
Marcs Dutroux. Er hún 12.
maðurinn sem situr nú á bak
við lás og slá vegna málsins.
Hún er grunuð bæði um að
halda börnum í gíslingu og
fíkniefnadreifingu.
Spenna í Multan
ATHAFNALÍF lamaðist í gær í borginni
Multan í miðhluta Pakistans er borgarbú-
ar syrgðu 21 mann sem myrtir voru við
bænastund i mosku. Astandið líktist alls-
herjarverkfalli, umferð var lítil og fáir á
ferli en flestir héldu sig heima af ótta
við ofbeldisaðgerðir. Her- og lögreglu-
menn gættu þess í gær, að ekki kæmi til
uppþota, en spenna er mikil í borginni.
Herská samtök sunni-múslima sögðu
shíta-samtökin Tehrik-e-Jafria Pakistan
(TJP) bera ábyrgð á morðunum en leið-
togi TJP vísaði því á bug og fordæmdi
skotárásina. Sagði hann skotárás á fólk
á bæn vera síðustu sort af hermdarverk-
um sem til væri og samtök sín fordæmdu
slika gjörninga af hörku. Öfgamenn súnn-
íta og shíta í Pakistan hafa borist á bana-
spjót um margra ára skeið.
Hjá okkur ej/ flugvallarskatturinn innifalinn í verðinu!
Flugjy4^> Gisting
- ÞRJÁR NÆTURl
- PKJAK INÆlUK^aá
Verð pr. mann frá kr:
A HOSPITALITYINN
Takmarkað sœtaframboð (örfá sœti laus.)
í haust hafa 800 manns
bókað sig til Newcastle.
19.900.
Innifalið: Flug, flugv.skattar og gisting (2ja m. herb. 3 nœlur.
Brottför: 14 október
-FJORAR NÆTUR!
Á HOSPITALITY
Verð pr.
mann kr:
Innifalið:
Flug,flugv.skattar og gisting
(2ja m. herb.4 nœtur.Brottför: 28. okt.
21M-
-HELGARFERÐ! ^rf
Verð pr.
mann kr:
Innifalið:
Flug ( október og flugv.skattar.
22.570,-
Takmarkað sætaframboð (örfá sæti laus.)
*Nánari upplýsingar hjá
sölumönnum.
OPIÐ
Á LAUGARDÖGUM
kl.: 10-14
VISA
SJÓVÁ-ALMENNAR
Farþegar PLÚSferða fljtíga
eingöngu með Flugleiðum.
(D
FERÐIR
Faxafeni 5 108 Reykjavík. Sími: 568 2277 Fax: 568 2274
OTTÓ AUGLÝSINGAR