Morgunblaðið - 25.09.1996, Page 36
MORGUNBLAÐIÐ
36 MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 1996
ATVINNI3AUGL YSINGAR
Prentsmiður
óskar að ráða prentsmið til skeytingastarfa.
Viðkomandi þarf að hafa kunnáttu á t.d.
Photoshop og/eða QuarkXPress.
Um er að ræðá vaktavinnu.
Umsóknareyðubiöð og nánari uppiýsingar
fást eingöngu á skrifstofu Guðna Jónssonar
og skai umsóknum skilað á sama stað.
Umsóknarfrestur er til hádegis föstudaginn
27. september nk.
Guðni Tónsson
RÁÐGTÖF & RÁÐNINGARÞÍÓNUSTA
HÁTEIGSVEGI7,105 REYKJAVÍK, SÍMI5-62 13 22
Sölufulltrúi
Óskum eftir að ráða duglegan, sjálfstæðan
og heiðarlegan sölufulltrúa til starfa. Starfið
felst í heimsóknum og sölu til viðskiptavina.
Reynsla af sölustörfum æskileg. Bíll nauð-
synlegur. Viðkomandi þarf að geta hafið störf
strax. Framtíðarstarf.
Umsóknum, er tilgreini aldur og fyrri störf,
sé skilað á afgreiðslu Mbl. fyrir 1. október
nk. merktum: „Sölufulltrúi - 843“.
HÚSNÆÐI í BOÐI
Kringlan
stækhar
Til leigu 39 m2
verslunareining
Einingin er á 2. hæð í húsnæði Borgar-
kringlunnar á milli glæsilegs þriggja sala
kvikmyndahúss og SEGA leiktækjasalar.
Tilvalið undir starfsemi sem tengist af-
þreyingu ýmiss konar, kvikmyndum, tölvu-
leikjum, leiktækjum o.fl. Hentar einnig
fyrir litríkar smávörur, tískuskart og tæki-
færisgjafir.
Kjörið tækifæri fyrir ungt fólk sem vill hefja
eigin verslunarrekstur.
Nánari upplýsingar veitir
Einar I. Halldórsson í síma 588 1565.
TILBOÐ - ÚTBOÐ
ÚTBOÐ
F.h. Byggingadeildar borgarverkfr. er óskað
eftir tilboðum í leikskólann Árborg í Reykjavík.
Verkið felst í breytingum og endurbótum á
eldra húsnæði, fullnaðarfrágangi á 175 fm
viðbyggingu, ásamt frágangi lóðar vegna við-
byggingarinnar.
Framkvæmdum á að Ijúka 15. ágúst 1997.
Útboðsgögn eru afhent á skrifst. vorri gegn
kr. 10.000,- skilatr. Opnun tilboða: Þriðjud.
15. okt. nk. kl. 14.00 á sama stað.
bgd 130/6.
INNKAUMSTOFNUN
REYKJAVtKURBORQAR
Fríkirkjuvegi 3 - Sími 552 58 00 - Fax 562 26 16
Lagermaður
Lagermaður óskast á lager Fossvirkis við
Suðurenda Hvalfjarðarganga.
Uppl. í síma 566-8800 á skrifstofutíma.
FOSSVIRKI
„Au pair“
Óskum eftir að ráða íslenska „au pair“ á
heimili úti á landi.
Góð laun í boði.
Umsóknir sendist afgreiðslu Mbl. fyrir 30.
september merktar: „au pair“ - 777“.
Laust starf
Laust er starf á skrifststofu embættisins í
Keflavík við almenn skrifstofustörf. Um er
að ræða fullt starf. Umsóknareyðublöð fást
hjá embættinu. Laun eru skv. kjarasamningi
opinberra starfsmanna.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um fyrri störf
og menntun, óskast sendar undirrituðum
fyrir 10. október 1996.
Allar frekari upplýsingar um starfið, sem
veitist frá 1. nóvember nk., veitir Börkur Ei-
ríksson, skrifstofustjóri embættisins, í síma
421 4411.
Sýslumaðurinn íKeflavík,
23. september 1996.
éÁóíík
Nýr skemmtistaður í miðborg Reykjavíkur leitar að
starfsfólki til starfa við almenn afgreiðslu- og sölustörf
á börum staðarins, við samantekt á glösum í sölum,
í fatahengi og einnig við dyravörslu.
Staður þessi er starfræktur af reyndum veitingamönnum og verður opinn á kvöldin,
alla daga vikunnar og rekinn með töluvert sterkum erótískum blæ; bæði verða þar
erótískir dansarar svo og ýmsar aðrar uppákomur er því tengjast.
Leitað er að huggulegum (sexí) og sjálfsöruggum einstaklingum, sem eru tuttugu
ára og eldri, með fágaða og góða framkomu og tilbúnir að vera frjálslega klæddir
við störf sín. Reynsla af störfum á bar æskileg en þó ekki nauðsynleg.
í boði eru störf á lifandi og skemmtilegum vinnustað, ásamt góðum launum fyrir rétta aðila.
Umsóknir er tilgreini ýmsar persónulegar upplýsingar, fyrri störf ásamt mynd af umsækjanda
óskas't skilað inn á auglýsingadeild Mbl., merkt "Frakkur-6969" fyrir 30.sept. n.k.
Ollum umsóknum svarað og þær endursendar til þeirra sem ekki verða ráðnir.
★ ★
★ ★
Stjórnarkjör
Listi stjómar og trúnaðarráðs um kjör stjórn-
ar og trúnaðarráðs Sjómannafélags Hafnar-
fjarðar fyrir árin 1997-1998 liggur frammi á
skrifstofu félagsins.
Öðrum listum ber að skila eigi síðar en kl.
16.00 þann 25. október 1996.
Stjórnin.
^3 K I P U L A G R í K I S I N S
Hlíðarvegur um Gljúfursá
og um Öxl á
Vopnafjarðarströnd
Mat á umhverfisáhrifum
-frumathugun
Skipulag ríkisins kynnir mat á umhverfisáhrif-
um Hlíðarvegar um Gljúfursá og um Öxl á
Vopnafjarðarströnd.
Tillaga að ofangreindri framkvæmd og
skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar
liggurframmi til kynningarfrá 25. september
til 31. október 1996 á Skipulagi ríkisins,
Laugavegi 166 og Þjóðarbókhlöðunni, Arn-
grímsgötu 3, Reykjavík. Einnig á skrifstofu
Vopnafjarðarhrepps og á bókasafni Vopna-
fjarðar.
Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina
og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir
skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en
31. október 1996 til Skipulags ríkisins,
Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást enn-
fremur nánari upplýsingar um mat á um-
hverfisáhrifum.
Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum, nr. 63/1993.
Skipulagsstjóri ríkisins.
Fulltrúakjör
Listi stjórnar og trúnaðarráðs um fulltrúa
Sjómannafélags Hafnarfjarðar á 20. þing SSÍ
dagana 6.-8. nóvember 1996 liggur frammi
á skrifstofu félagsins.
Öðrum listum ber að skila fyrir kl. 16.00
þann 25. október 1996 á skrifstofu félagsins.
Stjórnin.
Til sölu póstlisti
Umboð fyrir JCÞenney-póstlistann er til sölu.
Áhugasamir leggi inn nafn og símanúmer á
afgreiðslu Mbl. merkt: „JCPenney“.
Sma auglýsingar
ÞJÓNUSTA
Litaljósritun
Opið frá kl. 13.30-18.00.
Ljósfell,
Laugavegi 168,
Brautarholtsmegin.
FÉLAGSÚF
IOOF 9 = 1789257V2 = R.K.
I.O.O.F. 7 = 17809258V2 =
□ Helgafell 5996092519 IV/V
Fjhst.
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Lofgjörð, bæn og blblíulestur i
kvöld ki. 20.00. Ræöumaður
Hafliði Kristinsson.
Allir hjartanlega velkomnir.
ÉSAMBAND ÍSLENZKRA
____f KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Háaleitisbraut 58-60
Samkoma í kvöld kl. 20.30 (
Kristniboðssalnum.
Ræðumaður: Karl Jónas Gísla-
son. Allir velkomnir.
FERDAFÉLAG
® ÍSLANDS
MÖRKINNI6 - SlMI 568-2533
Næstu ferðir
Helgarferðir 27.-29. sept.
1. Þórsmörk, haustlitir, grill-
veisla. Árleg ferð. Gönguferðir,
kvöldvaka. Gist í Skagfjörðs-
skála Langadal.
2. Núpsstaðarskógar o.fl.,
haustlitaferð. Spennandi nátt-
úruskoðunarferð. Gist i svefn-
pokaplássi á Klaustri. Brottför
föstud. kl. 20.
Fyrsta myndakvöld vetrarins
verður miðvikudagskvöldið 9.
október og fyrsta árshátíö
Ferðafélagsins f nýja salnum,
Mörkinni 6, verður laugardags-
kvöldið 23. nóv. Verið meðl
Ferðafélag (slands.