Morgunblaðið - 25.09.1996, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 25. SEPTEMBER 1996 37
(
(
(
I
I
j
I
1
ALDARMINIMING
HELGI
TÓMASSON
Ný frímerki
17. september 1996
Í15JAHD , „
NY FRIMERKI17. september.
»*•« «••••*••»•
nordia|%
í mi
••••••••••••
•••••••••••*•••ft•••••
SMÁÖRK á Degi frímerkisins.
ÓLYMPIUFRIMERKI, sem út komu í júní sl.
MIÐVIKUDAGINN 25. september
1996 verða liðin 100 ár frá fæðingu
dr. Helga Tómassonar, yfirlæknis
og skátahöfðingja. Hann kynntist
skátahreyfingunni ungur af lestri
erlendra blaða og gerðist félagi í
fyrsta skátaflokki sem starfaði hér-
lendis haustið 1911. Helgi Tómas-
son var sömuleiðis einn stofnenda
Skátafélags Reykjavíkur árið 1912,
en félagið var stofnað í húsakynn-
um Menntaskólans í Reykjavík, og
nýyrðið skáti, sem Pálmi Pálmason
íslenskukennari í menntaskólanum
smíðaði, sá dagsins ljós. Helgi Tóm-
asson tók við embætti skátahöfð-
ingja er fyrsti skátahöfðinginn
Axel V. Tuliníus lést. Kom hann
til starfa á ný í skátahreyfingunni
í marsmánuði árið 1938. Fyrsta
baráttumál hans innan skátahreyf-
ingarinnar var að skátahreyfingin
fengi góða aðstöðu fyrir skátaskóla
og miðstöð skátastarfs og beindust
sjónir hans þá þegar að Úlfljóts-
vatni í Grafningi en þar fengu skát-
ar afnot af landi frá árinu 1941.
Úlfljótsvatn hefur síðan verið mið-
stöð foringjanámskeiða, sumar-
starfs fyrir börn og skátamóta.
Helgi Tómasson átti einnig dtjúgan
þátt í því að skátafélögin í Reykja-
vík fengu til afnota árið 1946, her-
skála sem stóðu við Snorrabraut.
Var þar Skátaheimilið í Reykjavík
sannkölluð félagsmiðstöð íslenskr-
ar æsku um tveggja áratuga skeið.
Helgi Tómasson bryddaði upp á
mörgum nýjungum í skátastarfi
undir forystu hans efldist þjálfun
og kennsla skátaforingja, blaða-
og bókaútgáfa blómstraði og skáta-
mót fengu á sig glæsilegri svip. Á
styrjaldarárunum síðari voru stofn-
uð hér á landi fyrstu sameiginleg
skátafélög pilta og stúlkna í heim-
inum og það var heimsviðburður í
heimi skáta er kvenskátafélög
gengu í Bandalag íslenskra skáta
árið 1944 og voru síðan í einum
samtökum. Arið 1948 var svo hald-
ið hérlendis fyrsta sameiginlega
landsmót skáta sem sótt var bæði
af piltum og stúlkum og þótti afar
nýstárlegt á þeim árum.
Dr. Helgi Tómasson var mikil-
virkur vísindamaður sem lét til sín
taka á mörgum sviðum. Hann var
þó sérstaklega áhugasamur um
uppeldismál. Hann taldi uppeld-
isaðferð Baden-Powells, þá aðferð
að láta fólk læra af verkunum sjálf-
um, þar sem hugur og hönd áttu
samleið, afar mikilvæga. Hann var
og einn forystumanna í skóg-
ræktarstarfi og sat í stjórn Skóg-
Helgi Tómasson skátahöfðingi
með erlendum gesti á Lands-
móti skáta 1938.
ræktarfélags Reykjavíkur og var í
forystu margra annarra félaga.
Helgi Tómasson var léttur í
spori, framkvæmdasamur og
glöggskyggn á mál og framsýnn.
Hann hafði þann hæfileika að vera
ávallt til reiðu væri til hans leitað,
eins og hann hefði feikinógan tíma,
þótt skyldan kallaði víða. Helgi
Tómasson var nýorðinn skátahöfð-
ingi árið 1938 er Robert Baden-
Powell, stofnandj skátahreyfingar-
innar, heimsótti ísland ásamt konu
sinni, Olave Baden-Powell. Hún
kom í annað sinn til íslands árið
1956 og ritaði Helga Tómassyni
þakkarbréf er heim kom. Þar kem-
ur vel fram það álit hennar að fáir
hafi haft jafn djúpan skilning á
eðli og gagni þeirrar uppeldishreyf-
ingar sem skátahreyfingin er og
dr. Helgi Tómasson. Hann lést 2.
ágúst 1958.
Stjórn Bandalags íslenskra skáta
vill minnast dr. Helga Tómassonar
með stuttri athöfn er blómsveigur
verður lagður á leiði hans í þakk-
lætis- og virðingarskyni. Athöfnin
fer fram miðvikudaginn 25. sept-
ember, kl. 17.15 í Fossvogskirkju-
garði. Eru skátar hvattir til að vera
viðstaddir athöfnina.
Olafur Ásgeirsson
skátahöfðingi.
FRIMERKI
Dagur f rí m c r k i s i n s
9. OKTÓBER NK.
EFTIR nær þriggja mánaða hlé
gaf islenzka póststjómin út tvö ný
frímerki 17. sept. sl., til þess að minn-
ast tveggja merkra atburða í þjóðlífi
Islendinga.
Á öðru frímerkinu, að verðgildi 65
kr., er þess minnzt, að nú eru hundr-
að ár liðin, síðan fjórar St. Jósefssyst-
ur komu hingað til lands til hjálpar-
starfa. Um leið gerðust þær frum-
kvöðlar í heilsugæzlu og skólastarfi
á íslandi. Sá mæti maður, sr. Jón
Sveinsson, Nonni, átti hlut að því,
að þær settust hér að. I framhaldi
af því tók svo St. Jósefsspítali í
Landakoti til starfa árið 1902, fyrsta
sjúkrahús með nútímasniði hérlendis.
Er óþarfí að rekja nánar sögu þessa
spítala og hið gagnmerka starf St.
Jósefssystra allt fram að því, að rík-
ið keypti hann árið 1976.
Hitt frímerkið, 150 kr. að verð-
gildi, kemur út á 150 ára afmæli
Menntaskólans í Reykjavík, eða
Lærða skólans, eins og hann var
nefndur fram yfir síðustu aldamót.
Var skólinn vigður 1. okt. 1846 í
nýreistu húsi, sem enn stendur aust-
an Lækjargötu og neðst í Þingholtun-
um og setur mikinn svip á umhverfí
gamla bæjarins. Raunar er þessi
menntastofnun miklu eldri en þetta.
Má með fullum rétti rekja sögu henn-
ar allt til stólskólanna í Skálholti og
á Hólum, því að Hólavallaskóli tók
við af þeim eftir flutning biskupsstól-
anna til Reykjavíkur um aldamótin
1800. Sá skóli var svo fluttur að
Bessastöðum 1805 og síðan aftur til
Reykjavíkur 1846. Hið reisulega hús
Menntaskólans hýsti Alþingi Islend-
inga allt frá endurreisn þess 1845
til ársins 1879. Var það haldið í há-
tíðasal skólans, og þar sat Jón Sig-
urðsson alla sína alþingisfundi. Þá
var í því húsi haldinn Þjóðfundurinn
1851.
Hönnun fyrra merkisins var í
höndum Sigríðar Bogadóttur eftir
gamalli ljósmynd úr sjúkrastofu í
Landakotsspítala. Tryggvi Tryggva-
son hannaði síðara merkið eftir ljós-
mynd af skólanum. Frímerkin voru
offset-prentuð, annars vegar í Hol-
landi hjá Joh. Enschedé en Zonen
og hins vegar hjá Norges Bank Sedd-
eltrykkeri.
Dagur frímerkisins 1996
Sú venja er orðin föst, að Póstur
og sími gefur út smáörk á Degi frí-
merkisins, sem er 9. október. I fyrra
kom út örk með myndum af þeim
kunnu Hraunfossum í Borgarfirði.
Að þessu sinni hefur Goðafoss orðið
fyrir valinu. Má því gera ráð fyrir,
að á næstu árum á Degi frímerkisins
birtist myndir af öðrum þekktum
fossum landsins. Af mörgu skemmti-
legu er líka að taka.
Um myndefnið segir m. a. svo í
tilkynningu póststjórnarinnar:
„Goðafoss í Skjálfandafijóti hefur
löngum verið talinn með fegurstu
fossum á íslandi. ... Fljótið hefur
grafið næstum þriggja kílómetra
langt gljúfur inn í hraunið við Goða-
foss og hefur hann því færst upp
eftir fljótinu um 27 cm á ári að
meðaltali."
Svo vel vill til, að myndin af Goða-
fossi býður á skemmtilegan hátt upp
á að skipta henni niður á þijú fossa-
frímerki, enda þótt fossbunan á
þriðja merkinu sé ekki rismikil.
Verðgildi merkjanna er þetta: 90
kr., 45 kr. og 65 kr. Ekki veit ég,
hvað hefur ráðið þessari niðurröðun,
en miðað við þau burðargjöld, sem
nú gilda, fer vel á myndefni 45 kr.
merkisins, því að það berst með al-
mennum pósti bæði til Norðurlanda
og annarra Evrópulanda. Aftur á
móti hefði verið meira auglýsinga-
gildi gagnvart erlendum ferðamönn-
um að velja myndefni 90 kr. merkis-
ins á 65 kr. merkið, þar sem það
frímerki berst með almennum pósti
til fjarlægari landa en hitt, að ég
hygg-
Verðgildi arkarinnar er 300 krón-
ur, en til burðargjalds 200 krónur.
Mismunurinn, 100 krónur, rennur
til NORDlÚ-sýningarinnar, sem
haldin verður á Kjarvalsstöðum seint
í október. Örkin í fyrra var einnig
tileinkuð NORDIU 96, en þá var
yfirverðið 40 krónur. Á þennan hátt'
lendir ekki svo lítill kostnaður við
sýningarhaldið á sjálfum frímerkja-
söfnurunum. Það eru einmitt fyrst
og fremst þeir, sem kaupa þessar
NORDIU-smáarkir með yfirverði.
Almennir póstnotendur hér á landi
hafa aldrei komizt upp á lag með
að nota frímerki með yfirverði. Samt
eru þau mun betri safngripir en
venjuleg frimerki og þá ekki sízt á
heilum umslögum. Þetta ættu þeir
að hafa í huga, sem vilja sérstaklega
gleðja safnara með bréfum sínum.
Leiðrétting
Þau mistök urðu við úrvinnslu síð-
asta frímerkjaþáttar, að tvö frímerki
úr Olympíuseríu póststjórnarinnar, 5
kr. og 65 kr., urðu viðskila við þátt-
inn. Því eru myndir þeirra birtar að
þessu sinni. Eru lesendur þáttarins
beðnir afsökunar á þessu óhappi.
Jón Aðalsteinn Jónsson
ÝSIhJGAR
KENNSLA FUNDIR - MANNFAGNAÐUR
Myndlistarskóli Kópavogs Innritun á haustnámskeið stendur yfir. Skrifstofutími kl. 17-19 alla virka daga. Nýjung: Hugmyndavinna. Kennari Tumi Magnússon. Höfuð- og andlitsteiknun: Kennari Guðrún Sigurðardóttir. Veiðiréttareigendur - áhugamenn um veiði 50 ára afmælisráðstefna Veiðimálastofnunar hefst kl. 9.00 árdegis, fimmtudaginn 26. september í Funda- og ráðstefnusölum ríkis- stofnana, Borgartúni 6. Allir velkomnir. Veiðimálastofnun.
Atvinnuflugmannsnám við Fiugskóla íslands 1997 Inntökupróf fyrir væntanlega þátttakendur verða haldin í skólanum á Reykjavíkurflug- velli laugardaginn 7. desember 1996. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember nk. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu skólans. Upplýsingar í síma 569 4208. Skólastjóri.
Kanada og Grænland í Norræna húsinu í kvöld 25. sept. kl. 20.30. Einar Bragi, rithöfundur, les úr þýðingum sínum á bókmenntum grl. Inúíta. Síðan fjallar Sigfús Jónsson, landfr. og leiðsögumaður í Kanada, um Nýfundnaland og Labrador. Kaffiterían verður opin í hléi. Grl.-ísl. félagið KALAK, Vináttufélag íslands og Kanada.