Morgunblaðið - 25.09.1996, Blaðsíða 1
f
Haustið er komið
HAUSTIÐ með rigninguna, rokið og kólnandi veður hefur heils-
að okkur. Eva María Magnúsdóttir, 6 ára, Laufengi 44, 112
Reykjavík, er höfundur myndar af vel klæddri stúlku (Evu sjálfri)
með útbreiddan faðm og bros á vör. Munum eftir að klæða
okkur eftir veðrinu - þá eru minni líkur á, að við þurfum að
liggja í rúminu með kvef og hita.
HUÓM-
PLÖTUR
- Hvað er nú það?
VITIÐ þið hvað eru margar
skorur á hljómplötu? Þær eru
í rauninni bara tvær, ein á
hvorri hlið.
Hljómplata - hvað er nú
það? Það eru plastskífurnar í
plöturekkunum hjá foreldrum
ykkar í pappaumslögum, oft
með myndum á. Þau taka þess-
ar svörtu plastskífur stundum
úr umslögunum og setja á ein-
kennilegt verkfæri sem nefnist
plötuspilari (það er ef ekki er
búið að henda honum).
Þau verða angurvær á svip-
inn og rifja upp gamla tíma,
þegar þau voru unglingar og
hlustuðu á rokktónlist, sem
foreldrum þeirra fannst vera
hið mesta garg og gól.
Geisladiskar og geisla-
spilarar eru arftakar platn-
anna og plötuspilaranna.og
gera að mörgu leyti það sama,
flytja tónlist til okkar tónvísu
eyrna.
Standið
á eigin
fótum
ÞESSAR tvær myndir eftir
einhvern teiknara í útlönd-
um eru til þess gerðar, að
athuga hvort þið eruð at-
hugul og getið einbeitt ykk-
ur. Fimm atriði á efri mynd-
inni er einnig að finna á
þeirri neðri. Getið þið séð
hver þau eru?
Það er þetta með Lausnir,
þær sögðust ekki vilja gefa
upp réttu svörin að þessu
sinni, þið hefðuð gott af því
að nota athyglisgáfu ykkar
til hins ýtrasta og ekki hafa
neitt annað við að styðjast
nema ykkur sjálf - og svei
mér þá, það er nú heilmikið
til í þessu hjá Lausnum!
PENNA-
VINIR
Eftirfarandi bréf barst Pósti
og síma, sem leitaði til
Myndasagna Moggans - og
þið sem eruð læs og skrif-
andi á ensku getið eignast
pennavinkonu á Ítalíu:
Dear Central Post Admini-
stration of Iceland.
I am an Italian little girl,
I am 9 years old and my
name is Serena. I attend ele-
mentary school and study
English. I live in Palermo in
Sicily, but in summer I go
to Sciacca on holiday, and
now I’m in Sciacca.
I love travelling, drawing,
music and I love your beauti-
ful country too. I wish to
correspond with little girls
from Iceland of my age or a
little older, in English or Ital-
ian, but I don’t know what
to do to find them. Please,
may you help me? Thank you
very much!!!
Serena.
These are my adresses:
Serena Fanara
Via S. Aldisio, No. 1
90146 Palermo
ITALY
Summer adress:
Serena Fanara
c/o Saieva
Via B. Nastasi, 3/C
92019 Sciacca (AG)
ITALY
Krakkar, þau ykkar sem
sendið bréf til Serenu, ættuð
að senda á báða staðina,
sennilega er stúlkan komin
suður til Sikileyjar og bytjuð
í skólanum.
Kæri Moggi.
Ég er tólf ára og mig lang-
ar að eignast pennavini,
stráka og stelpur, á aldrinum
11-13 ára. Svara öllum bréf-
um og skrifa oft. Áhugamál
mín eru: Sætir strákar, föt,
dýr, diskótek, fótbolti og tón-
list.
Heimilisfang mitt er:
Diljá Agnarsdóttir
Baugatanga 3
101 Reykjavík