Morgunblaðið - 26.09.1996, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.09.1996, Blaðsíða 1
IRIPIUM Símkerfi á braut um jörðu/6 HÚSAVÍK Matarbúrið fyrir norðan /8 FLUTWIWCAR Bílar gegn strand- siglingum/11 VIÐSKIPn AIVINNULÍF PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 26. SEPTEMBER 1996 BLAÐ Isfélag Fjölmargar beiðnir höfðu borist í gær til Þróunarsjóðs sjávarútvegs frá hluthöfum Búlandstinds hf. og Meitilsins hf. um að nýta forkaups- rétt að hlutabréfum sjóðsins í þessum fyrirtækjum. Er því ljóst að tilboð Isfélags Vestmannaeyja hf. í bréfin nær ekki fram að ganga. Skandia Skandia hf. hefur á fimm ára tíma- bili fengið alls 821 milljón króna frá móðurfélagi sínu í Svíþjóð, samkvæmt nýrri Vísbendingu. Þar segir m.a. að óvíst sé hvert þrek erlendra eigenda FIB-tryggingar verði til stuðnings við félagið. Er vitnað til ummæla forráðamanna Skandia árið 1994 um að ólíklegt sé að hægt sé að setja á stofn hér vátryggingafélag „upp úr engu“. Hlutabréf Þingvísitala hlutabréfa hefur heldur áfram að hækka. í gær nam hækkunin 0,25% sem rekja má til hækkana á gengi hlutabréfa í allmörgum félögum, þ.á.m. í Skinnaiðnaði, Skagstrendingi, Eimskip og Vinnslustöðinni. Hef- ur vísitalan nú hækkað um 57,46% frá áramótum. SÖLUGENGI DOLLARS Launavísitala 1994-1996 16,8% Umreiknaðtil 0 árshækkunar m, hækkun Síðustu 3 mán. og 10% siðustu 12 mán kunarm.v. i vísitölunnar: ■5% Des. 1988=100 ________________ -i—i—i—i—i—i—i—i—i—i—i—V—i—i—i—i—i—i—i—i—i—i—i— J FMAMJ J Á S 0 N D|J FMAMJ JÁ SOND 1994 1995 -i-1- . JFMAMJJÁS 1996 _______________________ is% Vísitala neysluverðs 1994-1996 10% JFMAMJJÁSONDJFMAMJJÁSONOJFMAMJJÁS 1994 1995 1996 75%|Vísitala byggingarkostnaðar — 1994-1996 Jöfn og stöðug fjölgun tryggingafélaga með leyfi til að starfa hér á landi Um 60 erlend tryggingafélög með starfsleyfi UM sextíu erlend tryggingarfélög hafa fengið starfsleyfi hér á landi á síðustu tveimur árum eða frá miðju ári 1994 þegar tilskipanir um aukið frelsi í tryggingarmálum gengu í gildi innan Evrópusambandsins og á evrópska efnahagssvæðinu. Fjölg- unin hefur verið nokkuð jöfn og stöðug allt tímabilið og ekki er út- lit fyrir annað en að framhaldið verði með sama hætti á næstu miss- erum, samkvæmt upplýsingum Vá- tryggingaeftirlitsins. Einungis inn- an við tíu erlend tryggingarfélög hafa hins vegar tekið upp virka starfsemi hér á landi og starfa þau fyrst og fremst á sviði líftrygginga, fyrirtækjatrygginga og ökutækja- trygginga. Með þeim breytingum sem gerðar voru á reglum um vátrygginga- starfsemi innan Evrópusambands- ins og á evrópska efnahagssvæðinu og tóku gildi um mitt ár 1994 var einfaldað mjög það sem til þurfti til þess að hefja vátryggingastarf- semi í öðru landi en heimalandi. Samkvæmt upplýsingum Helga Þórssonar, deildarstjóra hjá Vá- tryggingareftirlitinu, þarf að til- kynna með lögformlegum hætti í heimalandinu að félagið hyggist hefja tryggingastarfsemi í öðru landi. Það er síðan í höndum vá- tryggingaeftirlits í heimalandi tryggingafélagsins að fullvissa sig um að tryggingafélagið sé hæft til að starfa á viðkomandi markaði. Þannig veitir Vátryggingaeftirlitið hér á landi ekki umsagnir um þau erlendu tiyggingafélög sem hér fá starfsleyfi heldur vátryggingaeftirlit í viðkomandi löndum. Hins vegar upplýsir Vátryggingaeftirlitið er- lendu félögin um lögboðnar trygg- ingar, gjöld sem skylt er að inn- heimta og þess háttar. Búið í haginn Helgi sagði að mörg erlend tiygg- ingarfélög virtust fremur vera að afla sér starfsleyfís hér á landi forms- ins vegna en að þau ætluðu að hefja hér starfsemi. Þau væru að opna sér öll landamæri og búa þannig í haginn fyrir sig í framtíðinni. Þetta væri heldur ekki mikið miðað við það sem væri í öðrum löndum, því í stærri Evrópulöndum skiptu erlend trygg- ingarfélög hundruðum: Helgi sagði að þau félög sem hefðu tilkynnt sig hér á landi væru af öllum stærðum og gerðum. Sum þeirra væru mjög sérhæfð og störf- uðu einungis á þröngum trygginga- sviðum en önnur væru í flestum tryggingagreinum. Fyrst til að til- kynna sig hér á landi eftir breyting- una hefðu verið bresk tryggingarfé- lög, sem hefðu verið með einhveija starfsemi hér áður og þekktu til frá gamalli tíð. Nú væri svo komið að tryggingarfélög í flestum Evrópu- löndum hefðu tilkynnt sig hér. Það gilti um öll Norðurlöndin, Þýskaland, Frakkland, Austurríki, Irland, Hol- land, Belgíu, Lúxemborg og Bret- land eins og áður sagði, en Miðjarð- arhafslöndin væru ekki í þessum hópi. 1 Nafnávöxtun sl. 10 daga 6,74% Nafnávöxtun sl. 1 mán. 5,65% Nafnávöxtun sl. 2 mán. 5,38% Nafnávöxtun sl. 3 mán. 5,47% Peningabréf - nýr skammtímaverðbréfasjóður Peningabréf eru kjörin leið fyrir þá sem vilja festa fé til skamms tíma, s.s. fyrirtæki, sjóði, sveitarfélög, tryggingarfélög og einstaklinga. Sjóðurinn fjárfestir einungis í traustustu tegundum verðbréfa á markaðnum, einkum skammtímaverðbréfum ríkissjóðs og bankastofnana. Peningabréf eru laus til útborgunar án kostnaðar þegar 3 dagar eru liðnir frá kaupunum. Hvenær sem er eftir það er hægt að leysa bréfin út samdægurs með einu símtali. y LANDSBRÉF HF. M. — - if Hringdu eða komdu... og nýttu þér ráðgjafaþjónustu okkar og umboðsmanna okkar í öllum útibúum Landsbanka íslands. Löggilt verðbréfafyrirtæki. Aðili að Verðbréfaþingi íslands. $ U 0 URLANOSBRAU T s . 10 8 fttYKJAVÍK, S 1 IVI 1 5 8 8 9 2 0 0. B R t \ A S 1 M 1 5 H H 8598 mm

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.