Morgunblaðið - 27.09.1996, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Þingsetning óbreytt vegna
andstöðu jafnaðarmanna
HÆTT hefur verið við breytingar á fyrirkomu-
lagi setningar Alþingis og umræðna um stefnu-
ræðu forsætisráðherra eftir að þingflokkur
jafnaðarmanna lagðist gegn tillögum Olafs G.
Einarssonar, forseta Alþingis, á fundi forsætis-
nefndar þingsins í gær.
Á móti sérstökum sessi fyrir
formann Framsóknarflokks
Tillögur forseta fólu í sér að stefnuræða
forsætisráðherra yrði flutt á sjálfum þingsetn-
ingarfundinum og að umræður um hana yrðu
ekki fyrr en kvöldið eftir. Þar fengju allir
þingflokkar nema Sjálfstæðisflokkur ræðu-
tíma í fyrstu umferð og forsætisráðherra
fengi tækifæri til andsvara við ræðum stjórn-
arandstöðu. Jafnframt fengi stjórnarand-
staða að veita andsvör við ræðu utanríkisráð-
herra.
Vilja rétt til andsvara,
eigi að skilja stefnuræðu
og umræðu sundur
Svanfríður Jónasdóttir, varaformaður þing-
flokks jafnaðarmanna, segir jafnaðarmenn
hafa lagzt gegn þessum hugmyndum af tveim-
ur ástæðum. Annars vegar hafi þeir talið fárán-
legt að veita ætti ræðu utanríkisráðherra og
formanns Framsóknarflokksins sérstakan sess.
„Það var eins og það væri verið að búa til
aukaforsætisráðherra úr formanni Fram-
sóknarflokksins," segir hún.
Hins vegar segir Svanfríður að jafnaðar-
menn hafi talið eðlilegt, ef slíta ætti ræðu for-
sætisráðherra frá umræðunni um hana, að
stjómarandstaðan fengi að veita fyrstu við-
brögð við ræðunni strax á þingsetningarfundin-
um í 3-4 mínútna löngum ræðum. „Þetta fannst
okkur ekki sízt vegna þess að forsætisráðherra
átti síðan að fá að svara ræðum stjórnarand-
stöðunnar strax, auk þess sem þegar stefnu-
ræðan er flutt deginum áður, er eins víst að
menn verði meira og minna búnir að tjá sig
um hana í fjölmiðlum áður en til umræðna
kemur,“ segir Svanfríður.
Forseti og forsætisráðherra
tali ekki við sömu athöfn
Hún segir það auk þess persónulega skoðun
sína, sem hún viti að sumir aðrir stjórnarand-
stöðuþingmenn deili, „að þap væri kannski
smekídegra að leyfa forseta íslands að flytja
sína ræðu við þingsetningarathöfnina án þess
að verið sé að setja forsætisráðherra inn í sömu
athöfn með sína ræðu.“
Morgunblaðið/Tryggvi Þormóðsson
Hreyfing á bílatryggingum
Atvinnubí lstj ór-
ar skoða útboð
SIGFÚS Bjarnason, formaður
Frama, stéttarfélags leigubíl-
stjóra, segir að félagið sé að skoða
möguleika á að bjóða út trygging-
ar félagsmanna í þeim tilgangi að
ná fram lækkun á iðgjöldum.
Áhugi sé á því innan félagsins að
hafa samstarf við aðra atvinnubíl-
stjóra um þetta mál.
Sigfús sagði að Frami hefði
fylgst vel með útboði FÍB á trygg-
ingum félagsmanna sinna, bæði
aðdraganda málsins og eins eftir
að útgáfa tryggingarskírteina
hófst. Verulegur áhugi væri inn-
an félagsins á að skoða allar leið-
ir til að lækka iðgjöld bílatrygg-
inga leigubílstjóra. Sigfús sagði
leigubílstjóra greiða að jafnaði
tvöfalt hærri iðgjöld en almennir
bíleigendur. Hann sagði að þó
að meiri áhætta fylgdi trygging-
um leigubílstjóra en annarra
væri þetta verðlag ekki eðlilegt.
„Við teljum að það sé hægt að
lækka tryggingar á atvinnubílum
alveg eins og á einkabílum. Við
teljum okkur búa við óeðlilega
verðlagningu. Hlutdeild leigubíl-
stjóra í bótasjóðum tryggingafé-
lagannna er hærri en annarra að
okkar mati. Við erum að kynna
okkur þetta og þegar því er lokið
ætlum við að leita samstarfs við
vörubílstjóra, sendibílstjóra og
jafnvel vinnuvélaeigendur og hóp-
ferðabílstjóra. Til greina kemur
að fara út í eitt útboð,“ sagði Sig-
fús.
Sigfús sagði hugsanlegt að far-
ið yrði út í útboð strax í næsta
mánuði. Frami nyti góðs af vinnu
FÍB, en félagið vann í um eitt ár
að útboði á bílatryggingum áður
en afgreiðsla tryggingaskírteina
hófst.
Eins og hásumar væri
SVO mikil veðurblíða hefur
verið á Norður- og Austur-
landi síðasta mánuðinn, að
þar eru tún græn eins og há-
sumar væri. Þessi mynd var
tekin á Árbót í Aðaldal og í
baksýn sést Laxá renna til
sjávar.
íslensk listaverk á upp-
boði í Kaupmannahöfn
Kaupend-
urvoru
íslenskir
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
MÓDELMYND eftir Gunnlaug Blön-
dal, sem ekki seldist í fyrradag á
uppboði Bruun Rasmussen uppboðs-
hússins, var boðin upp aftur { gær
og þá slegin dönskum listaverka-
safnara, að sögn talsmanns fyrir-
tækisins. Myndin var metin á 125
þúsund danskar krónur, en slegin á
hundrað þúsund.
Að sögn talsmannsins fóru mál-
verk eftir Svavar Guðnason og högg-
myndin „Fótboltamenn" Siguijóns
Ólafssonar báðar til íslands. Fyrra
verkið var selt Listasafni íslands,
en ekki fékkst gefið upp hver hefði
keypt það síðara.
Samkvæmt talsmanni hússins var
mynd Blöndals, sem seld var í fyrra-
dag fyrir 48 þúsund danskar krón-
ur, seld íslendingi. Matsverð mynd-
arinnar var 50-75 þúsund krónur.
Myndir eftir Svavar Guðnason eru
fastur liður á dönskum uppboðum,
enda margar mynda hans í danskri
eign, bæði á söfnum og í einkaeign.
Listasafn íslands hefur áður keypt
verk Svavars á dönskum uppboðum.
Tvær myndir eftir Ragnar Jóns-
son organleikara voru seldar á upp-
boðinu í gær. Þær voru metnar á
fimm og þijú þúsund. Sú seinni seld-
ist á matsverði, en sú fyrri fór á
5.500 krónur. í dag verður boðið
upp málverk eftir Ásgrím Jónsson,
sem metið er á tuttugu þúsund
danskar.
Tap gegn
Georgíu
Jerevan, Armeniu. Morgunblaðið.
GEORGÍUMENN voru andstæðing-
ar íslendinga í 10. umferð Ólympíu-
mótsins í gær og tapaði ísland l'/i-
2'á. Enginn íslensku stórmeistar-
anna átti góðan dag, nema Helgi
Áss Grétarsson sem hafði svart á
fjórða borði gegn Supatasvili, öflug-
um alþjóðameistara.
Helgi tefldi af miklum þrótti og
baráttugleði og féll andstæðingur
hans loks á tíma með tapaða stöðu.
Á efsta borði gerði Margeir Péturs-
son stutt jafntefli við kaupsýslu-
manninn Sjúrab Asmæparasvili og
hafði Margeir hvítt í skákinni.
Jóhann Hjartarson tapaði fyrir
stórmeistaranum Giorgadze á 2.
borði og Hannes Hlífar lék af sér í
ágætri stöðu á þriðja borði.
Rússar eru enn langefstir, en
staða næstu þjóða var óljós vegna
nokkurra langra skáka á efstu borð-
unum. ísland er nú í námunda við
20.-25. sæti.
Séra Flóki til þjónustu
á meginlandi Evrópu
SÉRA Flóki Kristinsson, sóknar-
prestur í Langholtssókn, tekur við
þjónustu við Islendinga á megin-
landi Evrópu, einkum í Lúxemborg
og Brussel og nærliggjandi svæð-
um, frá 1. október nk. Hann lætur
af störfum við Langholtskirkju frá
sama tíma.
í fréttatilkynningu frá biskups-
stofu kemur fram að staðan hafi
verið stofnuð í framhaldi af sam-
þykkt kirkjuþings í október árið
1995. Kirkjuþing hafí falið kirkju-
ráði að leita leiða til að efia þjón-
ustu við Islendinga erlendis, m.a.
með fjölgun prestsembætta.
Séra Ragnar Fjalar Lárusson, pró-
Langholtssókn
auglýsir eftir
presti fljótlega
fastur í Reykjavíkurprófastsdæmi
vestra, sagði að gert væri ráð fyrir
að prestur í þjónustu við íslendinga
á meginlandi Evrópu yrði til að byija
með staðsettur á íslandi. Hins vegar
væri staðan í mótun og ekki gott
að segja hvort breyting yrði á í fram-
tíðinni. Hann vildi að öðru leyti ekki
tjá sig um málið.
Hvorki náðist í séra Flóka Krist-
insson né Jón Stefánsson, organista
í Langholtskirkju, í gærkvöldi. Hr.
Ólafur Skúlason biskup er erlendis.
Séra Gylfi þjóni tímabundið
Guðmundur Ágústsson, formað-
ur sóknarnefndar Langholtssóknar,
sagðist eiga von á að Gylfi Jónsson,
héraðsprestur í Reykjavíkurpróf-
astsdæmi vestra, tæki að sér tíma-
bundna þjónustu við Langholts-
kirkju eftir að séra Flóki hætti.
Fljótlega yrði svo auglýst eftir sókn-
arpresti og væntanlega hefði nýr
sóknarprestur tekið við í sókninni
fyrir jólin.
Guðmundur vildi ekki tjá sig um
brotthvarf séra Flóka.