Morgunblaðið - 27.09.1996, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1996 5
Nefnd um fram-
tíðarskipulag Lands-
virkjunar
Tillögnm
skilað fyrir
miðjan
október
NEFND sem skipuð var af eignar-
aðilum Landsvirkjunar til að yfir-
fara eignarhald, rekstrarfyrirkomu-
lag og framtíðarskipulag fyrirtæk-
isins, mun skiia tillögum fyrir miðj-
an október, að sögn Halldórs J.
Kristjánssonar, ráðuneytisstjóra í
iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu,
sem er formaður nefndarinnar.
Nefndin var skipuð síðastliðinn
vetur í framhaldi af því að borgar-
stjórinn í Reykjavík lagði fram í
borgarráði tillögu um að óska eftir
viðræðum við aðra eignaraðila
Landsvirkjunar, það er ríkið og
Akureyrarbæ, um framtíðarskipu-
lag, rekstrarform og eignaraðild að
fyrirtækinu. Sagði Ingibjörg Sólrún
Gísladóttur, borgarstjóri, þá að vel
kæmi til greina að skipta Lands-
virkjun og auka samkeppni í orku-
vinnslu. Einnig kom fram hjá henni
að bæði kæmi til greina að Reykja-
víkurborg seldi sinn eignarhiuta í
Landsvirkjun eða leysti til sín sinn
hlut.
Úttekt JP Morgan
Einn þáttur í starfi nefndarinnar,
að sögn Halldórs, hefur verið að
láta meta markaðsverð Landsvirkj-
unar, arðsemi fyrirtækisins, arðgjöf
til eigenda sinna og annað slíkt.
Fékk nefndin hið þekkta fjármála-
fyrirtæki JP Morgan í Lundúnum
til að gera úttekt á fyrirtækinu. Þar
er meðal annars lagt mat á mark-
aðsvirði, lánshæfni og hvaða stöðu
fyrirtækið hefði á lánamarkaði ef
ríkisábyrgðar nyti ekki við. Á
grundvelli þessarar úttektar muni
nefndin gera tillögur til eignaraðila
fyrirtækisins fyrir miðjan næsta
mánuð.
Halldór sagðist ekki geta rætt
einstakar niðurstöður úttektar ijár-
málafyrirtækisins, enda væri hún
viðamikil og málið ennþá tii úr-
vinnslu. Hann gæti hins vegar sagt
að markaðsvirði fyrirtækisins væri
ekki ijarri bókfærðu eigin fé Lands-
virkjunar samkvæmt ársreikning-
um fyrirtækisins árið 1995, en bók-
fært eigið fé samkvæmt reikningi
þess árs er nálægt 26 milljörðum
króna.
----»-----
Þjóðminjasafnið
Vilhjálmi
Erni
s> upp
ÞÓR Magnússon þjóðminjavörður
hefur sagt Vilhjálmi Erni Vilhjálms-
syni fornleifafræðingi_ upp störfum
á Þjóðminjasafninu. Óskað er eftir
að Vilhjálmur Örn láti strax af
störfum.
Þór sagði að Vilhjálmi Erni væri
sagt upp störfum vegna samstarfs-
örðugleika innan og utan Þjóð-
minjasafns. Hann neitaði því ekki
að ein af ástæðunum væri fram-
koma Vilhjálms Arnar í tengslum
við fund hins svokallaða Miðhúsa-
silfurs.
Vilhjálmur Örn kom til starfa í
Þjóðminjasafninu í maímánuði árið
1993. Honum barst uppagnarbréfið
sl. miðvikudag. Þór sagðist ekki
hafa fengið sérstök viðbrögð við
uppsögninni frá Vilhjálmi Erni enda
hafi uppsögnin væntanlega ekki
komið á óvart.
Vilhjálmur Örn er nú staddur
erlendis.
Mikið bókað í
Lundúnafer ðir
HEIMSFERÐIR fóru fyrstu flug-
ferð sína til London í haust í gær-
kvöldi, full Boeing 737 vél frá
breska flugfélaginu Sabre Airways
sem flaug einnig fyrir Heimsferðir
síðasta vetur til London.
Heimsferðir fljúga nú annað
árið í röð til London alla fimmtu-
daga og mánudaga og fluttu yfir
tvö þúsund farþega þangað í
fyrra, en í London býður fyrirtæk-
ið þjónustu íslenskra fararstjóra
og flytur alla farþega sína frá
flugvelli heim á hótel með rútum
Heimsferða.
Töluverð aukning hefur verið í
London-ferðum Heimsferða frá því
í fyrra og er nú búið að bóka 1.858
farþega til London í vetur, í októ-
ber og nóvember.
Fargjöld eru frá 16.900 kr. með
sköttum fram og til baka.
Notkun HP-skannans er einföld og auðskilin.
Þú sérð þetta gert einu sinni og kannt það siðan
Skjalið birtist a skjanum. Þu getur lesið það inn i
t.d. Word eða Excel, unnið með textann, prentað
skjalið út eða sent það i tölvupósti.
ftÁÐSTEPTvUlVlÐ
URST
UR
Þú setur skjalið í HP-skannann, litið galdratæki
á milli lyklaborðs og skjás. Skjalið er skannað
nær samstundis inn i minni tölvunnar.
r.fi e
J — '
■I
HP-skanninn setur prentuð gögn
á tölvutækt form á einfaldan og ódýran hátt
Nýi HP-skanninn er
Lykilatriói í pappírslausum viðskiptum
bylting í meðferð og úrvinnslu prentgagna meó tölvum
galdratæki sem opnar nýja möguleika fyrir tölvunotendur
Nýi HP-skanninn kostar aðeins
19.900 kr.
Viðurkenndur þjónustu- og söluaöili
Upplýsingatækni
Ármúla 7, sími 550 9090