Morgunblaðið - 27.09.1996, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1996 7
FRÉTTIR
Frumvarp til breyt-
inga á umferðarlög-
um kynnt í ríkisstjórn
Minni öku-
skírteini
fyrirhuguð
FRUMVARP til laga um breytingu
á umferðarlögum sem kynnt var á
síðasta ríkisstjórnarfundi felur
meðal annars í sér útgáfu á nýrri
gerð ökuskírteina og að bílstjóra-
réttindi veiti leyfi til að aka léttu
bifhjóli.
Frumvarpið er endurflutt frá
síðasta þingi og segir Olafur Walt-
er Stefánsson skrifstofustjóri í
dómsmálaráðuneytinu að verið sé
að samræma íslensku lögin við
evrópsk. í frumvarpinu eru 14
greinar og meðal annars verið að
breyta skilgreiningu á léttu bif-
hjóli og ýmsum hugtökum í tengsl-
um við ný vegalög að Olafs sögn.
Samkvæmt frumvarpinu verða
evrópsk ökuskírteini að fullu viður-
kennd hérlendis eftir að handhafi
er sestur hér að. Þá er í undirbún-
ingi útgáfa nýrrar gerðar ökuskír-
teina sem verða í sömu stærð og
greiðslukort, segir Ólafur Walter
ennfremur. Miðað var við að þau
tækju gildi í vetur en Island hefur
aðlögunartíma að evrópsku reglun-
um út næsta ár, að hans sögn.
Mega aka léttu bifhjóli
Réttindaflokkar verða jafnframt
samræmdir sem þýðir að bílpróf
þarf til þess að mega aka torfæru-
ökutækjum, segir hann. Þá mega
handhafar bílprófs aka léttu bif-
hjóli samkvæmt nýju lögunum.
Einnig eru ákvæði um að bílar
með eftirvagn megi aka á 80 kíló-
metra hraða og að ráðherra sé
heimilt að setja reglur um ökunám
auk ökukennslu og reglur um
stofnun og starfsemi ökuskóla. Þá
má ráðherra Iengja tímabil fyrir
æfingaakstur fyrir 17_ ára úr sex
mánuðum í tólf, segir Ólafur Walt-
er.
-----»~»"4-----
Undir þung-
brýndum himni
í RIGNINGARSUDDA, undir þungbrýnd-
um himni, vann Guðjón, landvörður í Jök-
ulsárjgljúfrum, rösklega að skyldustörfun-
um. A bakvið ólgaði Dettifoss í mórauðum
haustlitunum. Hver árstíð gefur fossinum
nýjan svip og ekki að undra að ávallt sé
stöðugur straumur ferðamanna að honum.
Nýlega var aðkoma að fossinum bætt til
muna. Aðrar gönguleiðir hafa verið af-
markaðar og sett upp skilti með upplýsing-
um um náttúru, gróðurfar og fleira. A
útsýnisstaðnum hefur verið hellulagt með
náttúrulegu grjóti til að koma í veg fyrir
frekari gróðurskemmdir.
Achtung!
búliatmgnv
Nú standa yfir þýskir bókadagar í bóka -
búð Eymundsson í Austurstræti.
Á boðstólum eru hátt á sjötta hundrað
Tveir af fjór-
um bátum
Kambs til sölu
KAMBUR hf. á Flateyri reynir nú
að selja tvo af fjórum bátum sín-
um. Er það gert í hagræðingar-
skyni, að sögn Hinriks Kristjáns-
sonar, framkvæmdastjóra.
Hinrik segir að við afnám línu-
tvöföldunar og kvótasetningu
steinbíts séu forsendur brostnar
fyrir útgerð fjögurra báta. Hann
segir að þó tekið hafi verið tillit
til aflareynslu við línuveiðar við
úthlutun þorskkvóta nú og fengist
hafi kvóti út á steinbítsveiðarnar
vanti fyrirtækið tæplega 400 tonn
upp á þann þorskafla sem það
hefði fengið í óbreyttu kerfi og
einnig vantaði mikið upp á í stein-
bítnum. Því hafi Kambur ekki leng-
ur verkefni fyrir fjóra báta og sé
verið að reyna að selja Styrmi og
Jóhannes ívar kvótalausa eða með
iitlum kvóta og sækja kvótann á
tveimur bátum.
Hann segir einnig að erfitt og
dýrt sé að gera út báta með að-
komumönnum að stærstum hluta
og það hafi haft áhrif á ákvörðun-
ina.
Aukin söltun
Vegna lélegrar afkomu frysting-
ar hefur Kambur dregið úr fryst-
ingu á fiski og aukið saltfiskverk-
un, meðal annars með því að hefja
vinnslu á flöttum saltfiski til við-
bótar flakasöltun. Segir Hinrik að
skárri útkoma sé úr því en fryst-
ingunni þó ekki sé hún nægilega
góð.
bókartitla. Hér er að finna verk eftir meistara
á borð við Thomas Mann og Heinrich Böll,
listaverkabækur, lciljur, handbækur af
öllum toga, sagnfræðirit, alfræðibækur og
marga fleiri bókaflokka. Ekki síst gefst
unnendum þýskra bókmennta tækifæri til að
kynna sér þá nýju sem nú kveða
sér hljóðs hjá þessari miklu bókmenntaþjóð.
Verið öll velkomin! Auf Wiedersehen!
Góðar bækur - segin saga
Eymundsson
AUSTURSTRÆTI 18 • SlMAR 511 1130/511 1140
Bókaverslun Eymundssonhefur frá stofnun 1872 miölað íslcndingum af búkmcnntum annarra þjóða samhliða islcnskri
ritsmíð. I Eymundsson er að finna allt frá cinstökum bökum til heilla bókaflokka, skemmtiritum til fagurbókmennta auk
ritfanga í miklu úrvali. I verslun Eymundsson • Austurstræti muni þú finna citthvað við þitt hæfi og njóta til þcss aöstoðar
kunnáttufúlks - hvort scm þú crt námsmaður, fagurkeri, spcnnufikill, grúskari, - cða þetta allt!